Morgunblaðið - 16.10.2019, Page 18

Morgunblaðið - 16.10.2019, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2019 ✝ Sigurður Jóns-son vélvirkja- meistari fæddist á Selbakka á Mýrum í Austur-Skafta- fellssýslu 16. nóv- ember 1921. Hann lést 2. október 2019. Hann var sonur Jóns Magnússonar frá Sævarhólum í Suðursveit og Jó- hönnu Guðmundsdóttur frá Skálafelli í Suðursveit. Systkini hans voru Brynhild- ur Kristín húsmóðir Selfossi, f. 28.4. 1914, Guðmundur bóndi Höskuldsstöðum, f. 11.12. 1917, Hafsteinn vegaverkstjóri á Höfn Hornafirði, f. 25.1. 1919, og Haukur Sigurður, vélstjóri Fáskrúðsfirði, f. 10.10. 1937. Fjölskyldan flutti frá Sel- bakka í júní 1925 austur að Höskuldsstöðum í Breiðdal. Ungur hafði Sigurður gott lag á vélum og um fermingu setti hann upp vindrafstöð á Hösk- Sonur Sigurðar og Unnar er Jón Þór, f. 12.7. 1960, sambýlis- kona Margrét Jóhannsdóttir, f. 4.3. 1961, dóttir þeirra er Unn- ur Elísa, f. 15.7. 1994. Fyrir átti Unnur Hrafnhildi Kjartans- dóttur, f. 24.10. 1953, gift Jóni Þorvaldi Bjarnasyni, f. 13.2. 1957. Dóttir Hrafnhildar er Edda Björg Eyjólfsdóttir, f. 14.7. 1972, gift Stefáni Má Magnússyni, f. 28.7. 1971, þeirra börn: Kolbeinn Daði, f. 24.3. 2003, og Ísold Elsa, f. 18.10. 2012. Börn Hrafnhildar og Jóns eru Jón Þorri, f. 11.10. 1989, Hildur Ester, f. 1.9. 1994, sonur Hildar er Hrafn Máni Ingimundarson, f. 24.9. 2017, fyrir átti Jón Þorvaldur Thelmu Guðrúnu, f. 26.6. 1977. Sigurður gekk Hrafnhildi í föðurstað. Edda Björg ólst upp hjá ömmu sinni og afa á Hlíðarveginum. Sigurður gerðist félagi í Rót- arýklúbbi Kópavogs 1975 og var síðar sæmdur Paul Harris-- viðurkenningu auk þess að vera á seinni árum heiðursfélagi. Útför Sigurðar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 16. októ- ber 2019, og hefst athöfnin klukkan 15. uldsstöðum og lagði rafmagn í bæinn. Vindrafstöðina keypti hann fyrir lambfé sem hann eignaðist. Hann gekk í Alþýðuskól- ann á Eiðum með bræðrum sínum, Hafsteini og Guð- mundi, 1937-1939. Sigurður fluttist til Reykjavíkur 1945 og leigði risíbúð á Njálsgötu 49. Hann hóf nám í vélvirkjun hjá Vélaverkstæði Björgvins Fre- deriksen 1947 og tók sveinspróf 1951. Starfaði hann þar við uppsetningu frystikerfa í frystihúsum víða um land. 1956 tók hann svo að sér að byggja stálgeyma sem varð svo hans aðal starf og stofnaði hann Vél- smiðju Sigurðar Jónssonar hf. 1972. Sigurður kvæntist Unni Ólafsdóttur, f. 17.12. 1919, d. 6.1. 2015, og byggðu þau sér hús á Hlíðarvegi 26 í Kópavogi. Elsku afi minn, Sigurður Jóns- son, fæddur 16. nóvember 1921 á Selbakka á Mýrum í Austur- Skaftafellssýslu, er látinn. Það var amma hans, Sigríður Ara- dóttir, sem tók á móti honum. Afi minn elskulegi var einfald- lega bestur í heimi. Hann var uppáhaldsmanneskjan mín og ég hans, á milli okkar var órjúfan- legur strengur. Hann var svo góður, svo örlátur á allt sitt og elskaði mann skilyrðislaust. Ég finn fyrir djúpstæðu þakklæti til hans fyrir að hafa tekið mig undir sinn verndarvæng, alið mig upp, elskað mig og stutt alla tíð. Mínar fyrstu minningar eru í fanginu á afa, ég vakna, hann lyftir mér upp og heldur á mér inn í eldhús og ég sit hjá honum í stólnum hans við eldhúsborðið og hann spyr „dreymdi þig eitthvað fallegt í nótt?“ Svona voru flestir morgnar og ég byrjaði snemma að dýfa mola í mjólkurkaffi. Afi var járnsmiður, vélvirkja- meistari, og sá um mörg mikil- væg verkefni, smíðaði m.a. tanka fyrir Olíufélagið og má geta þess að eftir 1960 voru nánast allar tankar smíðaðir af honum. Allt sem hann gerði gerði hann vel. Það hrós sem hann var hvað stoltastur af var þegar Jóhann Pétursson hjá Olíufélaginu mælti með því að hann yrði fenginn í ákveðið verkefni og á hann að hafa sagt: „Fáið Sigurð til að gera þetta því þá þurfið þið ekki að gera þetta aftur.“ Afi lifði í algjörri rútínu. Gerði krossgátuna, eldaði kjötsúpu, hlustaði á fréttirnar og lagði sig eftir matinn. Hann las líka heil lifandis ósköp, ævisögur, ljóðabækur, Úr- val var alltaf við höndina. Þar var Þórbergur Þórðarson í miklu uppáhaldi, sagði hann margar sögur af þeim merka manni og var stoltur af að vera ættaður að austan líkt og Þórbergur. Hann átti ráð við öllu, kunni býsnin öll af sögum, ljóðum og vísum sem hann lærði og lagði á minnið. Þau amma voru mjög menn- ingarlega sinnuð og ólst ég upp við að fara með þeim í leikhús og óperuna frá unga aldri sem hafði svo mikil áhrif á mig að í dag starfa ég í leikhúsinu, þakka ég það því góða uppeldi sem ég fékk hjá elsku afa og ömmu. Öll þeirra ást og umhyggja er ómetanleg og á ég þeim allt mitt að þakka. Það eru svo margar ljúfar minningar: Þegar hann kenndi mér að gera bindishnút og svo fékk ég að binda bindið fyrir rót- arýfundina á þriðjudögum. Hvernig hann þvoði sér um hend- urnar með kaffikorgi, fallegu vinnuhendurnar hans afa. Þegar hann leiddi mig upp að altarinu, áður en við lögðum af stað sagði hann: „Þú ert svo fín, eins og hvítt kerti.“ Og nú þegar ég skrifa þetta til hans og finn hann allt í kringum mig finnst mér ég heyra „gráttu ekki elskan mín, allt verður gott“. Ég satt best að segja ósk- aði og vonaði að afi hefði snúið á almættið og myndi lifa að eilífu og það gerir hann. Elsku fallegi afi minn. Ég þakka þér af öllu hjarta fyrir allt það sem þú kenndir mér, fyrir alla þína ást og umhyggju, fyrir allt það góða sem þú hefur gefið mér og mínum alla tíð. Við elsk- um þig svo mikið elsku besti afi. Það er gott að vita af þér og ömmu saman, fallegir englar sem vernda okkur og styrkja. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín Edda Björg Eyjólfsdóttir. Kveðja frá Rótarýklúbbi Kópavogs Sigurður Jónsson, félagi okkar í Rótarýklúbbi Kópavogs, er fall- inn frá. Hann var félagi í klúbbn- um í yfir 44 ár eða frá ársbyrjun 1975. Í klúbbstarfinu var hann virkur, sótti vel fundi þar til síð- ustu mánuðina að heilsubrestur hamlaði fundarsókn. Fyrir vel unnin störf í klúbbnum var hann m.a. fyrir nokkrum árum sæmd- ur Paul Harris-orðunni, sem er sérstök heiðursviðurkenning til Rótarýfélaga. Á 50 ára afmæli Rótarýklúbbs Kópavogs var Sig- urður gerður að heiðursfélaga. Við andlátið var Sigurður elstur að árum okkar félaganna í Rót- arýklúbbnum eða tæplega 98 ára gamall. Sigurður var Austfirðingur að ætt og uppruna. Hann var gæfu- maður í lífinu og hélt andlegu og líkamlegu atgervi nánast allt til ævikloka. Eftir að Unnur eigin- kona hans lést árið 2015 bjó hann áfram einn í sínu húsi og var sjálfbjarga með allt. Hann var sí- starfandi langt fram á tíræðis- aldurinn og fór allra sinna ferða á bíl sínum allt þar til undir lok- in. Allt fram undir það síðasta var Sigurður óvenju sprækur miðað við aldur. Hann var lágvaxinn og þéttholda og afar sterklega byggður. Rauðhærður og hrokk- inhærður og rauða hárinu hélt hann alla ævi og gránaði lítt í vöngum. Í 3ja mínútna erindum á Rót- arýfundum fór Sigurður oft á kostum og sagði frá skemmtileg- um atvikum frá fyrri tíð. Und- irritaður átti oft skemmtilegar samræður við Sigurð á fundum um hin ýmsu málefni líðandi stundar og um lífið og tilveruna. Efst í hugann koma upp ljúfar minningar úr hinum ýmsum samfundum við Sigurð, sem var afskaplega heilsteyptur og traustur maður. Við félagarnir geymum með okkur minningarnar um ljúfan dreng og þökkum samfylgdina í gegnum árin. Við vottum börn- um hans Hrafnhildi og Jóni og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd Rótarýklúbbs Kópavogs, Kristófer Þorleifsson. Sigurður Jónsson ✝ Elías Hergeirs-son fæddist í Reykjavík 19. jan- úar 1938 og ólst upp við Kapla- skjólsveginn. Hann lést á Hjúkrunar- heimilinu Sóltúni 7. október 2019. Foreldrar hans voru Hergeir Elías- son togaraskip- stjóri og Ragnheið- ur G. Þórðardóttir húsfreyja. Systkini hans voru Valdimar, Haukur og Herdís. Elías kvæntist 7.12. 1963 Val- gerði Önnu Jónasdóttur, f. 21.2. 1941. Foreldrar hennar voru Jónas Þorvaldsson, skólastjóri og oddviti í Ólafsvík, og Magnea G. Böðvarsdóttir, húsfreyja frá Laugarvatni. Börn þeirra eru: 1) Hergeir, f. 31.3. 1967, maki hans er Rósa Guðmundsdóttir, f. 28.6. 1963, eiga þau einn son saman, Elías, f. 2004, fyrir átti Hergeir með Elínu Hallsteins- dóttur Helen. f. 1990, maki Halldór Árnason, dóttir þeirra Brák, f. 2010, og Indíu Bríet, f. 2011. Börn Örnu: Eldar, f. 1999, Erna Rós, f. 2006, og Egill Darri, f. 2014. Elías gekk í Landakotsskóla, Gagnfræðaskóla Vesturbæjar við Hringbraut og lauk versl- unarprófi frá Verslunarskóla Íslands árið 1957. Hóf þá störf við Útvegsbankann í sjáv- arútvegsdeild. Fór hann þá á vegum bankans til London í bankanám. Hann hóf störf hjá Vélsmiðjunni Héðni 1962 og vann þar til ársins 2008, lengst af sem yfirbókari. Elías sat í stjórn knatt- spyrnudeildar Vals og var for- maður í fjögur ár, sat í aðal- stjórn Vals, í stjórn Knatt- spyrnuráðs Reykjavíkur og í stjórn Knattspyrnusambands Ís- lands í tólf ár, þar af gjaldkeri í níu ár. Hann starfaði með Lions- klúbbnum Baldri og Akoges í Reykjavík um langt árabil og gegndi trúnaðarstörfum fyrir félögin. Elías og skólafélagar úr Verslunarskólanum hittust vikulega í rúm 60 ár til þess að spila brids. Elías verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag, 16. októ- ber 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. Kara Margrét, f. 2019. Börn Rósu eru Hólmfríður, f, 1992, maki Snorri Sigfússon, barn þeirra er Sunna Margrét, f. 2019, fyrir átti Snorri Úlf, f. 2007, og Þorgerði, f. 2009. Guðmundur, f. 1993. 2) Margrét, f. 10.5. 1970, maki hennar er Hermann Hauksson, f. 24.1. 1972, og eiga þau þrjú börn, Martin, f. 1994, maki Anna María Bjarnadóttir, barn þeirra Manúel, f. 2018. Arnór, f. 1998. Anna Margrét, f. 2006. 3) Ragnheiður, f. 3.1. 1973, maki Sigurður Egill Þorvaldsson, f. 31.5. 1972, börn þeirra eru Elías Björgvin, f. 1997, maki Þórfríð- ur Ína Arinbjarnardóttir, Krist- ófer Dagur, f. 1998, og Jóhanna Margrét, f. 2002. 4) Jónas, f. 20.9. 1975, maki Arna Sigurð- ardóttir, f. 13.8. 1979, fyrir átti Jónas með Björk Ingadóttur Rafael Garp, f. 2007, Natalíu Elsku besti pabbi minn. Það er svo sárt að hugsa til þess að þú sért farinn frá okkur. Ég man ekki eftir þér öðruvísi en það væri eitthvað að gerast, oftast eitthvað tengt íþróttum eða útivist. Það er svo gaman að hugsa til baka því það er svo ótrúlega margt sem þú hefur áorkað og framkvæmt á þinni ævi. Alls staðar þar sem ég kem og þú hefur verið talar fólk svo fallega um þig, að þú hafir ver- ið svo mikill öðlingur, ég fyllist alltaf stolti. Þú varst svo óendanlega dug- legur að fara eitthvað með okkur krakkana. Allar skíðaferðirnar, sumarbústaðarferðirnar og önnur ferðalög, þú varst alltaf svo skap- góður, sama hvað ég reyndi á þig. Ég man sérstaklega vel eftir einu skipti frá því ég var bara smápolli. Þá fór ég með þér á Hlíðarenda þar sem þú varst að dæma leik í yngri flokkum og eins og svo oft í íþróttum voru foreldrarnir á hlið- arlínunni að öskra misgáfulegar athugasemdir inn á völlinn og til þín. Ég man að í bílnum á leiðinni heim spurði ég þig af hverju þú hefðir ekki flautað víti (fyrir Val, man ekki við hverja þeir voru að spila) og þú svaraðir strax að það hefði ekki verið í anda leiksins að „gefa víti“ þarna. Ég er ekki frá því að strax þá hafi ég ákveðið að þetta langaði mig til að gera, dæma. Ég valdi að vísu annað sport en þú, en alltaf hef ég haft þessa minningu með mér. Elsku pabbi, ég á eftir að sakna þess svo að sitja með þér og fylgj- ast með íþróttum og vera með þér, það var alltaf svo gott að vera hjá þér. Ég gæti haldið svo lengi áfram. Mig langar svo að þakka öllu frábæra starfsfólkinu á Hjúkrun- arheimilinu Sóltúni þar sem þú varst síðustu tæpu þrjú árin fyrir aðstoð þeirra og frábært starf. Hvíldu í friði elsku besti pabbi minn. Jónas. Elsku pabbi. Fyrstu orðin mín voru bíddu pabbi og alltaf beiðstu eftir mér. Þú varst svo duglegur að fara með okkur systkinunum í sund, skauta og skíði. Það var svo gam- an að dansa við þig, spila með þér kana og púkk. Þú áttir svo marga vini og ég á svo dásamlegar minningar með þeim, fjölskyldu þinni og mömmu, spilaklúbbnum úr Verzló, Vals- mönnum, KSÍ, Akóges, Lions- klúbbnum Baldri, Héðni og Sæ- björgu. Alltaf var fullt hús, gleði og hlátur þar sem þú varst og ynd- islegur gestagangur í sumarbú- staðnum á Laugarvatni. Þú varst líka svo stoltur og frá- bær afi. Það var svo gaman að geta gefið þér nafna í afmælisgjöf. Ég datt svo sannarlega í lukku- pottinn með þig, elsku pabbi, enda varstu gull af manni. Hvíl í friði. Ég elska þig endalaust. Ragnheiður. Elsku tengdafaðir og afi. Það hafa verið forréttindi að verða samferða þér. Það er margt sem kemur upp í hugann á svona tím- um. Sorgin hellist yfir okkur en kallar jafnframt fram margar góðar minningar. Nærvera þín var einstök og einkenndist af jákvæðni og þægi- legu andrúmslofti. Nægjusemi og umhyggja fyrir náunganum kem- ur fyrst upp í hugann yfir orð sem lýsa þér best. Það endurspeglast best í öllum þeim vinafjölda sem í kringum þig var. Dugnað og ósérhlífni lærði maður líka af þér. Kraftur þinn í að vinna í þágu íþróttahreyfing- arinnar á ýmsum stöðum var aðdáunarverður. Við kveðjum nú einstakan mann sem hafði mikil áhrif á líf okkar og skapaði okkur frábærar minningar. Elsku tengdafaðir, hvíl í friði. Elsku besti afi, takk fyrir allt. Sigurður Egill, Elías Björgvin, Kristófer Dagur og Jóhanna Margrét. Í dag kveð ég tengdaföður minn, hann Elías Hergeirsson. Með örfáum orðum langar mig einfaldlega að segja við þig takk, takk fyrir allt það sem þú hefur gefið mér, takk fyrir hlýjuna, takk fyrir hjálpina, takk fyrir að vera yndislegur tengdapabbi, afi og langafi. Ég gæti haldið svona endalaust áfram um þennan ein- staka mann. Ég tel það forréttindi að hafa kynnst þér og vera partur af þinni fjölskyldu. Þú varst alltaf hrókur alls fagn- aðar í fjölskylduboðum og þar naustu þín líka alltaf best í faðmi fjölsyldu eða vina. Þú fylgdist vel með öllu sem viðkom íþróttaiðkun barnabarna þinna og þér þótti gaman að spjalla um þær. Það fór fátt framhjá þér þegar íþróttir voru annars vegar enda höfðu þær verið stór hluti af lífi þínu, hvort sem þú stundaðir þær sjálfur eða gegndir formennsku og nefndarstörfum innan íþrótta- hreyfingarinnar. Þú varst mikils metinn þar enda rómaður fyrir heiðarleika og vinnusemi. Mér fannst alltaf gaman þegar ég gat kynnt mig sem tengdason þinn, enda í hvert skipti sem það gerðist fékk maður ekkert nema lof- söngva um þig. Elsku Elías minn, ég á eftir að sakna þín mikið en á sama tíma get ég huggað mig við margar yndislegar minningar um þig, um mesta gæðablóð sem ég hef kynnst. Ég bið góðan Guð að gefa Val- gerði tengdamóður minni styrk á þessum erfiðu tímum. Um leið vil ég dásama systkinin Hergeir, Margréti, Ragnheiði og Jónas, sem hafa sinnt föður sínum síðast- liðin ár í veikindum hans af mikilli ást og umhyggju. Þið eruð öll ein- stök. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Hermann Hauksson. Hugurinn reikar til baka um sextíu og sex ár þegar við Elías vorum að byrja í Verslunarskóla Íslands og þar kynntumst við. Það var samt eins og við hefðum þekkst lengi og upp frá því mynd- uðust sterk vináttubönd, sem aldrei bar neinn skugga á. Andlát vinar míns Elíasar Her- geirssonar kom ekki á óvart, en þó er erfitt að trúa að hann sé fallinn frá. Elías var hlýr og skemmtilegur maður. Hann var hvers manns hugljúfi. Heiðarleiki hans og drenglyndi voru einstök. Þó að Elías hafi átt heima í Vesturbænum frá fæðingu þá fór hann í Val. Hann keppti fyrir Val og gegndi fjölmörgum trúnaðar- störfum fyrir félagið. Elías var sannur íþróttamaður og var bæði góður knattspyrnumaður og skíðamaður. Lífsförunautur Elíasar var Val- gerður Anna Jónasdóttir. Þau voru eins og sköpuð hvort fyrir annað. Þau eignuðust fjögur mannvænleg börn, sem tengjast meira og minna íþróttum. Íþróttamennskan hefur svo sannarlega smitast til barna þeirra og barnabarna. Elías átti við veikindi að stríða í nokkur ár og dvaldi síðastliðin tæp þrjú ár á hjúkrunarheimilinu Sóltúni, sem býr yfir sérstaklega hæfileikaríku og góðu fólki. Því er þakkað fyrir frábæra umönnun. Í erfiðum veikindum Elíasar var Valgerður Anna við hlið hans eins og klettur, tillitssöm og verndandi. Að leiðarlokum er Elíasi þökk- uð ævarandi vinátta og hans Elías Hergeirsson Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.