Morgunblaðið - 16.10.2019, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 16.10.2019, Qupperneq 19
minnst með virðingu og bið ég honum og ástvinum hans öllum blessunar Guðs. Blessuð sé minning Elíasar Hergeirssonar. Hafsteinn Hafsteinsson. Vel man ég fyrsta fund okkar Elíasar mágs míns. Bíbí systir kom með hann í kynningar- og sýningarferð heim á Framnesveg 27. Þau höfðu kynnst í öræfaferð með ferðaklúbbi ungs fólks, Mar- íumönnum. Þar sem hann sat á móti mér í stofunni fannst mér hann bjóða af sér góðan þokka, fasprúður, með frán augu og gerð- arlegt liðað hár sem fór honum einkar vel. Ég vissi deili á Elíasi. Hafði séð hann spila knattspyrnu með Val, hvar hann var um langan tíma af- ar traustur leikmaður, vinnusam- ur og einbeittur. Hann var íþróttamaður að upplagi og allar götur var hann handgenginn íþróttum. Fyrst knattspyrnu og skíðaiðkun, seinna badminton um langan tíma og sjaldan vanrækti hann sundtíma í hádeginu. Mörg- um trúnaðarstörfum gegndi hann fyrir Val og síðar KSÍ. Tel ég þó ekki allt sem þessi vinnusami og félagslyndi drengur tók sér fyrir hendur. Um árabil lékum við saman badminton ásamt Gunnari mági og fleiri dáðadrengjum. Var það marglitur hópur og voru sumar loturnar spilaðar með tali – jafn- vel hátt stilltu! Ég man hann aldr- ei reisa rödd í hita leiks. Þó gerðist það stundum að hann skammaði sjálfan sig ef eitthvað misfórst, stappaði niður fæti og sagði: „Hvað ertu að hugsa, Elías!“ Ætli mætti nú ekki margt af svona við- horfi læra? Á frumbýlingsárunum bjugg- um við Margrét í nágrenni við Bíbí og Elías í Safamýrinni. Börn- in okkar fæddust hvert af öðru og ólust upp á svipuðu reki og bund- ust traustum og ævarandi bönd- um frændsemi og vináttu. Fljót- lega fluttu Ragga og Gunnar ásamt börnum í næsta nágrenni. Stækkaði þá þessi myndarlegi og samstillti hópur. Elías var sigurvegari í lífi sínu og naut hvarvetna trausts og virð- ingar samferðamanna sinna. Síð- asta glíman tapaðist. Slíkt verður hlutskipti okkar allra. Hann mátti heyja baráttuna lengi af full- komnu æðruleysi og hugprýði. Bakhjarlinn var Bíbí og fjöl- skyldan öll – fágætur hópur. Framlag þeirra var einstakt allan þennan tíma. Elías var líka vin- margur og sá flokkur stytti hon- um stundir og sló birtu á tilveru hans á erfiðum tíma. Að ferðalokum flyt ég Bíbí og afkomendum öllum hlýjar samúð- arkveðjur og þakkir frá okkur systkinunum, mökum, afkomend- um og fjölskyldum. Við munum öll minnast Elíasar er við heyrum góðs manns getið. Þorvaldur. Ég settist í 1. bekk Verslunar- skólans árið 1953, þá 15 ára gam- all. Þar var meðal nemenda Elías Hergeirsson og tókst fljótt með okkur góð vinátta sem stóð allt líf- ið. Ég kom frá litlu þorpi á Vest- fjörðum og þekkti engan skóla- félagann. Því voru kynni mín við Elías mér mikils virði. Vináttan efldist þegar við störfuðum saman í slippnum í Reykjavík í tvö sumur á skólaárunum. Á skólaárunum stofnuðum við spilaklúbb með góðum félögum. Með því var stofnað til vináttu sem enst hefur í yfir 60 ár. Einn af félögunum var Friðjón B. Frið- jónsson sem lést fyrir aðeins þremur mánuðum og hafa því stór skörð verið höggvin í vinahópinn á stuttum tíma. Þátttaka í spila- klúbbi hafði mikil áhrif á sam- skipti okkar félaganna sem m.a. fólust í því að við heimsóttum heimili hver annars vikulega yfir vetrarmánuðina. Við þáðum veit- ingar frá eiginkonum okkar og reyktum vindla meðan það leyfð- ist. Eitt það ánægjulegasta í þessu sambandi voru tækifærin sem fól- ust í því að fá að fylgjast með upp- vexti og þroska barna okkar og fá að fylgjast með þeim ganga út í líf- ið. Það jók á vináttuna að fara í sameiginleg ferðalög og á þann hátt kynnast betur fjölskyldum hver annars. Elías hóf störf í Útvegsbanka Íslands að loknu námi. Þar starf- aði hann m.a. við hlið eiginkonu minnar. Úr bankanum lá leið hans til Vélsmiðjunnar Héðins þar sem hann gegndi starfi yfirbókara og starfaði þar, þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Segja má að ævistarfið hafi verið hjá Héðni. Elías var mikill íþróttamaður. Hann var mikill og einlægur Vals- maður og spilaði í meistaraflokki félagsins til margra ára og tók oft þátt í leikjum á erlendri grund fyrir Val. Hann var miðjuvallar- spilari, þótti yfirvegaður og sókn- djarfur. Elías ber ábyrgð á því að ég er mikill Valsmaður. Hann stóð fyrir því að við áttum margar ánægjustundir í Valsheimilinu og spiluðum badminton. Ég var oft mjög þreyttur eftir þær æfingar og konan mín sagði að augun í mér væru í kross og ég svaraði að mér væri uppálagt að elta hvern bolta. Elíasi voru falin ýmis verkefni á vegum íþróttahreyfingarinnar. Hann sat í stórn Vals til margra ára. Hann sat einnig í stjórn Knattspyrnusambands Íslands og Knattspyrnuráðs Reykjavíkur. Hann var sæmdur heiðurskrossi Íþróttasambands Íslands fyrir störf sín fyrir íþróttahreyfinguna. Alls staðar þar sem Elías kom fram naut hann virðingar og trausts fyrir yfirvegun og góða framgöngu. Elías var gæfumaður í einkalíf- inu. Eiginkona hans, Valgerður Anna (alltaf kölluð Bíbí af vinum og ættingjum), annaðist hann með einstökum hætti í hans erfiðu veikindum. Ég færi eiginkonu hans, börn- um, tengdabörnum, barnabörnum og langafabörnum mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Megi minn- ing um góðan dreng lifa. Kristján Ragnarsson. „Valur er ekkert annað en ég, þú og allir hinir,“ var sagt fyrir margt löngu og vissulega vegnar hverju íþróttafélagi misvel og þar eru margir áhrifavaldar þar sem hver einstaklingur leikur misstórt hlutverk. Knattspyrnufélagið Val- ur sér nú á bak einum af sínum allra bestu sonum þegar Elías Hergeirsson er kvaddur. Vinnu- semin, heilindin og hið jákvæða lundarfar voru meðal einkenna þessa góða drengs. Elías spurði aldrei hvað Valur gæti gert fyrir hann, það var alltaf á hinn veginn, og það var ekki tilviljun að við fé- lagar í fulltrúaráðinu ákváðum að Elías yrði fyrstur til að veita við- töku Friðrikshattinum þegar sú venja var tekin upp í tengslum við jólafund ráðsins. Elías, sem kom úr Vesturbænum, varð Íslands- meistari með Val 1956 og eftir að farsælum keppnisferli lauk tóku félagsstörfin við, þ.á m. for- mennska í knattspyrnudeildinni og seta í aðalstjórn félagsins. Starfsvettvangur Elíasar var lengst af Vélsmiðjan Héðinn og var gaman að koma þangað forð- um daga þegar þeir voru þar þrír saman, Elías, Friðjón B. Friðjóns- son og Róbert Jónsson, allir gegn- heilir Valsarar sem unnu sínu fé- lagi heitt. Auk starfanna fyrir Val sat Elías í stjórn KRR og var í mörg ár gjaldkeri KSÍ. Allt þetta hefði ekki getað gengið nema fyrir stuðning eiginkonu hans og barna, en Valgerður og Elías voru sann- arlega glæsileg saman. Innilegar samúðarkveðjur og þakkir eru hér sendar til fjölskyldunnar og fjölda vina. F.h. fulltrúaráðs Vals, Halldór Einarsson.  Fleiri minningargreinar um Elías Hergeirsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2019 Súðavíkurhreppur Auglýsing um skipulagsmál í Súðavíkurhreppi Hattardalur í Álftafirði Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps samþykkti þann 11. janúar 2019 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í Hattardal í Álftafirði skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Tillagan felur í sér heimild til að reisa litla vatnsaflsvirkjum við Hattardalsá í Hattardal í Álftafirði, uppsett afl hennar er allt að 100 Kw. Heimilt verður að virkja Hattardalsá sem á upptök sín innst í Hattardal. Hattardalsá myndar landamerki jarðanna Meiri-Hattardals I og II og Minni-Hattardals. Gert er ráð fyrir stíflu fyrir inntakslón, aðveitulögn frá inntakslóni að stöðvarhúsi, byggingu stöðvarhúss, gerð frárennslisskurðar frá stöðvarhúsi að Hattardalsá, raf- og fjarskiptastrengir frá stöðvarhúsi til notenda, vegur frá Meiri-Hattardal að stöðvar- húsi og vegslóði frá stöðvarhúsi að inntaki. Tillagan liggur frammi á skrifstofu Súðavíkurhrepps, Grundar- stræti 3, Súðavík og hjá skipulags- og byggingarfulltrúa að Hafnarstræti 1, Ísafirði, frá 16. október til 27. nóvember 2019 á venjulegum skrifstofutíma og á heimasíðu Súðavíkurhrepps www.sudavik.is. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulags- fulltrúa Súðavíkurhrepps í síðasta lagi 27. nóvember 2019 á skrifstofu Súðavíkurhrepps, Grundarstræti 3, 420 Súðavík eða á netfangið sudavik@sudavik.is Jóhann Birkir Helgason skipulags- og byggingarfulltrúi Súðavíkurhrepps Súðavíkurhreppur Auglýsing um Aðalskipulag Súðavíkurhrepps 2018-2030 Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps hefur samþykkt að auglýsa tillögu að aðalskipulagi Súðavíkurhrepps skv. 31. gr. laga nr. 123/2010 m.s.br. ásamt umhverfisskýrslu sbr. 7. gr. laga nr. 105/2006. Nýtt aðalskipulag tekur til tímabilsins 2018-2030 og er endurskoðun á aðalskipulagi fyrir tímabilið 1999-2018. Tillagan er sett fram í greinargerð og uppdrætti. Þar kemur fram stefna er varðar fjölmagra þætti, svo sem þróun byggðar, landnotkun og innviði sem skipta bæjarbúa miklu máli. Íbúar eru hvattir til að kynna sér hana vel. Skipulagstillagan verður til sýnis í afgreiðslu sveitarfélags- ins að Grundarstræti 3 í Súðavík og hjá skipulags- og byggingar fulltrúa að Hafnarstræti 1, Ísafirði, frá 16. október til og með 27. nóvember 2019. Á sama tíma verður tillagan aðgengileg hjá Skipulagsstofnun bæði í sýningarrými að Borgartúni 7b og á vefsíðunni www.skipulag.is. Þá eru öll gögn aðalskipulagsins aðgengileg rafrænt á heimasíðu Súðavíkurhrepps, www.sudavik.is, undir glugganum „Heildarendurskoðun aðal skipulags Súðavíkurhrepps“. Athugasemdir við tillöguna. Þeim sem telja sig eiga hags- muna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athuga- semdir við tillöguna og er frestur til að skila inn athuga semdum til 27. nóvember 2019. Skila skal inn skrifl egum athuga semdum á skrifstofu Súðavíkurhreppshans að Grundar stræti 3, 420 Súðavík eða á netfangið sudavik@sudavik.is Súðavíkurhreppur Auglýsing um skipulagsmál í Súðavíkurhreppi Langeyri, iðnaðar- og athafnasvæði í Álftafirði Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps samþykkti þann 31. maí 2019 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi iðnaðar- og athafna- svæðis á Langeyri í Álftafirði skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Ástæða breytingarinnar er fyrirhuguð uppbygging hafnar- og iðnaðarsvæðisins. Mörk deiliskipulagsins breytist þannig að Langeyrarvegur, lóð I-1 og geymslusvæði verða felld út úr skipulaginu. Fyrir breytingu er svæðið um 3,3 ha, eftir breytingu verður skipulagssvæðið um 2,3 ha. Nýtt deili- skipulag hafnar- og iðnaðarsvæðis inn af Langeyri verður auglýst samhliða þessari breytingu. Tillagan liggur frammi á skrifstofu Súðavíkurhrepps, Grundar- stræti 3, Súðavík og hjá skipulags- og byggingarfulltrúa að Hafnarstræti 1, Ísafirði, frá 16. október til 27. nóvember 2019 á venjulegum skrifstofutíma og á heimasíðu Súðavíkurhrepps www.sudavik.is. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulags- fulltrúa Súðavíkurhrepps í síðasta lagi 27. nóvember 2019 á skrifstofu Súðavíkurhrepps, Grundarstræti 3, 420 Súðavík eða á netfangið sudavik@sudavik.is Súðavíkurhreppur Auglýsing um skipulagsmál í Súðavíkurhreppi Hafnar- og iðnaðarsvæði inn af Langeyri í Álftafirði Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps samþykkti þann 31. maí 2019 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi hafnar- og iðnaðarsvæðis inn af Langeyri í Álftafirði skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Tillagan felur í sér heimild til að byggja kalkþörungaverk- smiðju á svæðinu þar sem unnið yrði allt að 120.000 m² af kalkþörungaseti úr Ísafjarðardjúpi á ári. Deiliskipulagssvæðið er að stórum hluta á uppfyllingu. Gert er ráð fyrir 230.000 m³ landfyllingu á allt að 38.000 m² svæði og 80 m löngum viðlegukanti. Á svæðinu verður rými fyrir hráefnislón, setlón og frekari vinnslu efnisins, þ.e.a.s. þurrkun, síun, mölun og sekkjun. Rými er fyrir allt að 9.000 m² verksmiðjuhúsi, 1.400 m² grófgeymslu og 400 m² skrifstofu- og starfsmannahúsi. Deiliskipulagið skarast á við deiliskipulag iðnaðar- og athafna svæði á Langeyri og er það því auglýst samhliða þessu deiliskipulagi. Tillagan liggur frammi á skrifstofu Súðavíkurhrepps, Grundar- stræti 3, Súðavík og hjá skipulags- og byggingarfulltrúa að Hafnarstræti 1, Ísafirði, frá 16. október til 27. nóvember 2019 á venjulegum skrifstofutíma og á heimasíðu Súðavíkurhrepps www.sudavik.is. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulags- fulltrúa Súðavíkurhrepps í síðasta lagi 27. nóvember 2019 á skrifstofu Súðavíkurhrepps, Grundarstræti 3, 420 Súðavík eða á netfangið sudavik@sudavik.is Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Bækur til sölu Tímarit Þjóðræknifélags Íslend- inga 1.-49. árg., gott band, Menntamál 1.-42. árg., Ferða- félag 1928-1972, snoturt band, Íslenk fornrit 21 bindi, skinn, Árbók Fornleifafélagsins 1882- 1940 ib, ógyllt, bækur Vilhjálms Stefánssonar á ensku, 6 stk. Íslenskir hermenn í fyrra stríði, Plógur 6.-9. árg., Á refaslóðum, Skýrsla M.A. 1930-1977 ib., Sýslumannaævir 1-5., Sturlunga- saga 1-2, 1946, Strandamenn. Uppl. í síma 898 9475 Bækur Smá- og raðauglýsingar Tilkynningar Vantar þig pípara? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.