Morgunblaðið - 16.10.2019, Page 22

Morgunblaðið - 16.10.2019, Page 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2019 40 ára Lilja ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur en býr í Mosfellsbæ. Hún er viðurkenndur bókari að mennt og er bókari hjá Lýsi hf. Maki: Ómar Pálsson, f. 1979, forritari hjá Loft- myndum. Börn: Brynjar Óli, f. 2004, og Sóley Svana, f. 2007. Foreldrar: Ólafur Tryggvi Egilsson, f. 1958, vélvirki, sjálfstætt starfandi, bú- settur í Reykjavík, og Arndís Leifsdóttir, f. 1961, húsmóðir í Reykjavík. Lilja Huld Ólafsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þótt erfiðlega gangi að hrinda áætl- un þinni í framkvæmd er engin ástæða til þess að gefast upp. Fagurkerinn í þér fær útrás þegar þú færð nýju íbúðina afhenta. 20. apríl - 20. maí  Naut Einhver órói er í loftinu og þér er ekki rótt. Ekki láta óttann ná tökum á þér. Þetta verður einhver stormur í vatnsglasi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það eru einhver tilfinningaleg vandamál sem valda því að þér líður eins og fiski á þurru landi. Reyndu að heim- sækja einhvern sem þú hefur ekki séð lengi. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú gætir rekist á gamlan maka eða elskhuga og gleðst því þú finnur engar til- finningar bærast. Einhver skýtur þér skelk í bringu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þótt þú sért vanalega upp á þitt besta þegar það er nóg að gera hjá þér geturðu verið afar góð/ur í að gera ekkert. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það hendir margan manninn að kaupa hluti til þess að ganga í augun á öðr- um en ekki af því að þörf sé fyrir hlutinn. Reyndu að spyrna við fótum og ná valda- stöðu þinni aftur. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er svo oft sem við búum sjálf yfir þeim svörum sem við leitum helst. Gerðu ráð fyrir nokkuð óvenjulegum degi því allt getur gerst. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert þekk/tur fyrir að við- hafa fagleg vinnubrögð og þess vegna ertu vinsæl/l til vinnu. Þér verður lítið úr verki næstu daga. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ýmsu má bjarga sem er orðið gamalt og slitið. Brjóttu odd af oflætinu, gakktu til samstarfs og þá fara hjólin að snúast á nýjan leik. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú átt eftir að koma þér í klípu. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Að gefa endalaust hugmyndir þínar og tíma án þess að fá neitt í staðinn er bara vitleysa. Einhver hugsun truflar þig, reyndu að koma henni út úr höfðinu á þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Af einhverri ástæðu ertu í sviðsljós- inu í dag. Hóflegum kröfum þínum er mætt og þú gengur alsæl/l frá borði. ávísunum og peningum. Ferðalög nú eru leikur einn miðað við þetta. Síðar var ég deildarstjóri hjá Tryggingastofnun í félagsmála- og upplýsingadeildinni og sá m.a. um kynningarmálin. Ég lét útbúa fyrstu handbókina um almannatryggingar, sem er mjög flókinn málaflokkur, og lagði drög að því að hún færi á netið. Ég lærði allt um almannatryggingar þarna og það kom sér vel á Alþingi síðar.“ Ásta hefur setið í fjölda stjórna, ráða og nefnda, m.a. í stjórn Friðar- hreyfingar kvenna, útvarpsráði, starfshópi um endurskoðun íslenskr- ar heilbrigðislöggjafar, nefnd um efl- ingu heimilisiðnaðar, undirbúnings- nefnd fyrir alþjóðlegu kvenna- ráðstefnuna Global Forum for Women, fulltrúaráði Sólheima, stjórn Heilsugæslustöðvar Vesturbæjar, Miðbæjar og Hlíðahverfis, nefnd um endurskoðun almannatryggingalaga, nefnd um forgangsröðun í heilbrigð- isþjónustu og stýrihópi geðræktar- verkefnis landlæknisembættisins, Geðhjálpar og Landspítala. Hún sat í ráðgjafarhópi samgönguráðherra um stefnumótun í ferðamálum, í verk- efnisstjórn um heilsufar kvenna á barnaársnefndar á barnaári SÞ og sá þá um útvarps- og sjónvarpsþætti um börn.“ Eftir nám fyrir fararstjóra Íslend- inga erlendis tóku sólarlöndin við. Ásta vann á sumrin víða í Suður- Evrópu, oft með Einari, og var einnig fararstjóri í Heimsreisum Ingólfs Guðbrandssonar, sem var ein ferð á ári um fjarlægar heimsálfur. „Þetta var fyrir tíma netsins, farsíma og greiðslukorta. Við ferðuðumst því með töskur fullar af flugfarseðlum, Á sta Ragnheiður Jóhann- esdóttir fæddist 16. október 1949 í Reykja- vík. Hún átti heima á Víðimel 59 í fjölskyldu- húsi móðurforeldra sinna fyrstu árin, síðan á Reykjum í Mosfellssveit til sjö ára aldurs er fjölskyldan flutti í Laugarásinn. Þar eignaðist hún sínar bestu vinkonur sem enn halda hópinn og ferðast með mökum um fjarlægar slóðir. Hún er nýkomin heim úr slíkri ferð um silkileiðina í Úsbekistan. „Ég fór snemma að vinna, fyrst hjá afa á Hressingarskálanum og Valhöll á Þingvöllum. Var í fiskvinnu hjá Júpiter og Mars og Ísbirninum. Svo fór ég 15 ára sumarlangt til Spánar sem barnfóstra hjá móðursystur minni. Þá fékk ég ólæknandi ferða- bakteríu, sem hefur bara ágerst. Á menntaskólaárunum var ég í þýsku- námi í Lindau við Bodensee eitt sum- ar, annað sumar vann ég á barna- heimili Rauða krossins í Biskups- tungum. Eftir stúdentspróf frá MR 1969 fór ég í HÍ í félagsfræði og ensku og var flugfreyja hjá Loftleiðum í nokkur sumur. Þá var ég plötusnúður í Glaumbæ og Tónabæ. Þetta leiddi mig í útvarpið þar sem ég sá um dæg- urmála- og fréttatengda þætti, popp- og óskalagaþætti. Ég sá meðal ann- ars um Lög unga fólksins um árabil. Þá var bara ein íslensk útvarpsstöð og allir hlustuðu á það sama. Í út- varpinu var ég meira og minna í tutt- ugu ár og sá líka um marga sjón- varpsþætti. Þetta var stórkostlegur tími og þar kynntist ég mörgu skemmtilegu fólki.“ Á háskólaárunum fór Ásta í fyrsta sinn í framboð til Alþingis 1971, þá fyrir Framboðsflokkinn með starfs- titilinn plötusnúður. Þetta framboð var sprottið úr uppreisnaranda ’68- kynslóðarinnar. „Þar kynntist ég Einari, eiginmanni mínum. Við gift- um okkur 29. desember 1973. Eftir háskólanám fluttum við til Hellu og kenndum við Gagnfræða- skólann þar í tvö ár. Við fluttum svo aftur til Reykjavíkur og ég kenndi við Fiskvinnsluskólann í Hafnarfirði í þrjú ár. Árið 1979 var ég starfsmaður vegum heilbrigðisráðuneytisins, var formaður Straumhvarfa, átaksverk- efnis fyrir geðfatlaða, varaformaður nefndar á vegum heilbrigðisráðherra um greiðsluþátttöku almennings í heilbrigðiskerfinu og varaformaður nefndar þingmannasamtaka NATO um málefni Miðjarðarhafsríkja og Mið-Austurlanda. Ásta sat á Alþingi í 18 ár, frá 1995 til 2013. Hún var félags- og trygg- ingamálaráðherra í minnihlutastjórn- inni 2009 eftir hrun. Síðar sama ár var hún kjörin forseti Alþingis til fjögurra ára. Eftir að hún lét af störf- um á Alþingi var hún framkvæmda- stjóri 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna. Fjölskylda Eiginmaður Ástu er Einar Örn Stefánsson, f. 24.7. 1949, fv. fram- kvæmdastjóri og fréttamaður. For- eldrar hans voru Stefán Þ. Guðjohn- sen, f. 29.11. 1926 á Húsavík, d. 24.9. 1969, lögfræðingur í Reykjavík, og Guðrún Gréta Runólfsdóttir, f. 5.12. 1928 í Vestmannaeyjum, d. 18.6. 2014, skrifstofumaður í Reykjavík. Börn Ástu og Einars eru: 1) Ragna Björt, f. 11.12. 1972 í Reykjavík, verk- efnastjóri hjá lyfjafyrirtækinu TEVA í Amsterdam, sambýlismaður hennar er Immo De Maar sölustjóri. Dóttir Rögnu er Sóley, f. 2008. Þau búa í Amsterdam. 2) Ingvi Snær, f. 10.3. 1976 í Reykjavík, hæstaréttar- lögmaður á Lögfræðistofu Reykja- víkur, eiginkona hans er Hildur Ýr Ottósdóttir, arkitekt hjá Yddu arki- tektum. Börn þeirra eru Ásta Rún, f. 2002, og Ottó Snær, f. 2006. Þau búa í Reykjavík. Systkini Ástu Ragnheiðar eru Guðrún, f. 22.12. 1950, umhverfis- og félagsfræðingur í Reykjavík; Ragnar, f. 9.10. 1956, efnaverkfræðingur í Reykjavík, og Bjarni, f. 9.12. 1960, viðskiptafræðingur í Reykjavík. Foreldrar Ástu: hjónin Margrét Sigrún Ragnarsdóttir, f. 7.11. 1924 í Reykjavík, húsfreyja, og Jóhannes Bjarnason, f. 18.7. 1920 í Knarrarnesi á Mýrum, d. 8.6. 1995, verkfræðingur í Áburðarverksmiðjunni og Sements- verksmiðjunni. Ásta R. Jóhannesdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis – 70 ára Fjölskyldan F.v.: Hildur Ýr, Einar Örn, Ásta Ragnheiður, Sóley, Ingvi Snær, Ottó Snær, Ásta Rún og Ragna Björt í garðinum í Garðastræti 43 árið 2016. Með ólæknandi ferðabakteríu Hjónin Ásta og Einar á leið upp á Kumbel-tind í Úsbekistan. 30 ára Kristbjörg er Reykvíkingur en býr í Reykjanesbæ. Hún er leikskólakennari að mennt og vinnur á leikskólanum Holti. Maki: Ástvaldur Kristján Reynisson, f. 1989, smiður hjá R. Ástvaldssyni. Foreldrar: Hörður Geirlaugsson, f. 1951, vann lengi hjá Sementsverksmiðj- unni, og Sigrún Gísladóttir, f. 1953, kennir á sjúkraliðabraut í Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti. Þau eru búsett í Reykjavík. Kristbjörg Heiðrún Harðardóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Einfalt og nett hjartastuðtæki fyrir stofnanir og fyrirtæki. Tækið greinir sjálfkrafa mögulega rafvirkni í hjartanu og sé þess þörf gefur það rafstuð. Tækið talar til notandans og gefur fyrirmæli á íslensku* *Einnig fáanlegt með ensku tali. LIFEPAK CR PLUS HJARTASTUÐTÆKI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.