Morgunblaðið - 16.10.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.10.2019, Blaðsíða 24
MEISTARADEILD Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Leikurinn leggst mjög vel í mig og ég er fyrst og fremst spennt að tak- ast á við þetta verkefni,“ sagði Alex- andra Jóhannsdóttir, miðjumaður knattspyrnuliðs Breiðabliks, í sam- tali við Morgunblaðið á blaðamanna- fundi liðsins á Kópavogsvelli í gær. Breiðablik mætir franska stórlið- inu PSG í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Kópavogsvelli í dag klukkan 18:30. Breiðablik sló tékknesku meistarana í Sparta Prag úr leik í sextán liða úr- slitum keppninnar, samanlagt 4:2, á meðan PSG sló Sporting Braga frá Portúgal úr leik, samanlagt 7:0. Alexandra var í byrjunarliði ís- lenska kvennalandsliðsins í knatt- spyrnu sem mætti Frakklandi í vin- áttuleik á Costieres-vellinum í Nimes í Frakklandi 4. október síð- astliðinn. Alls komu tveir leikmenn PSG við sögu í leiknum sem lauk með 4:0-sigri Frakka. „Ég held að það sé alveg óhætt að segja það að leikirnir gerist ekki mikið stærra og þetta er sá stærsti á mínum ferli hingað til. Það var mikil upplifun að mæta þeim í byrjun október og þær eru ógeðslega góðar í fótbolta. Þær búa yfir þvílíkum gæðum og það var náttúrlega stærsti munurinn á liðunum í Ni- mes. Þær eru fáránlega góðar með boltann, geta haldið boltanum gríð- arlega vel innan síns liðs og ég held að það sé alveg eitthvað sem við get- um átt von á frá leikmönnum PSG á morgun.“ Alexandra á von á því að Blikar liggi til baka á morgun og leyfi franska stórliðinu að vera með bolt- ann. Miðjumaðurinn er ekki óvön því að verjast eftir þrjú tímabil með uppeldisfélagi sínu Haukum. Vön því að verjast „Við munum leggja áherslu á varnarleikinn á morgun og reyna svo að treysta á skyndisóknir. Þótt ég hafi kannski verið í meira sókn- arhlutverki hjá Blikum þá er ég ágætlega vön því að spila vörn eftir tíma minn hjá Haukum og það verð- ur bara gaman að takast á við það verkefni á morgun. Ég held að landsleikurinn gegn Frökkum á dög- unum hjálpi mér aðeins fyrir morgundaginn. Ég veit betur hvað ég er að fara út í og við erum ekki jafn langt frá þeim og maður heldur fyrirfram, eftir að hafa horft á myndbandsupptökur af þeim. Þegar þær skora þá fagna þær varla á með- an við vinnum nánast titil í hvert skipti sem við skorum. Það er mikil leikgleði í okkar hóp og vonandi get- um við farið langt á henni.“ Alexandra fékk tækifæri í byrj- unarliði íslenska kvennalandsliðsins í landsleikjunum í byrjun október gegn Frakklandi og Lettlandi en hún nýtti tækifæri sitt vel og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark gegn Lett- um í Liepaja. „Það er alltaf gaman að skora en það gaf mér fyrst og fremst sjálfs- traust að fá tækifæri í byrjunarlið- inu. Það kom mér skemmtilega á óvart ef ég á að vera alveg hrein- skilin því ég átti alls ekki von á því. Að sama skapi verður ekkert mál að gíra sig upp í leikinn á morgun og maður hefur kannski meiri áhyggjur af því að spennustigið verði of hátt. Við lentum í smá vandræðum með það á móti Spörtu Prag en ég hef fulla trú á því að við séum komnar yfir það núna,“ sagði Alexandra í samtali við Morgunblaðið. Leikirnir gerast ekki mikið stærri  Alexandra full sjálfstrausts eftir landsleikjahlé Morgunblaðið/Eggert Kraftmikil Alexandra Jóhannsdóttir er lykilmaður í liði Breiðabliks. Hún skoraði sitt fyrsta landsliðsmark á dögunum gegn Lettlandi í Liepaja. Í EYJUM Guðmundur Tómas Sigfússon sport@mbl.is Leikmenn Aftureldingar sóttu tvö dýrmæt stig til Vestmannaeyja í gær þegar liðið spilaði við ÍBV í hörkuleik í 6. umferð Olís-deildar karla. Leikn- um lauk 23:24 en Eyjamenn leiddu í raun allan leikinn áður en skipulagð- ur varnarleikur gestanna varð til þess að leikmenn ÍBV hættu að finna netmöskvana. Arnór Freyr Stef- ánsson, markvörður Aftureldingar, á í raun stærstan þátt í sigri gestanna en hann varði nokkuð vel, sérstaklega í síðari hálfleik. Annan leikinn í röð eru Eyjamenn verulega ósáttir út í dómara leiksins en margir dómar á síðustu 15 mín- útum leiksins fóru mjög fyrir brjóstið á leikmönnum, þjálfurum og stuðn- ingsmönnum ÍBV. Þá helst á lokasek- úndum leiksins þar sem Kristján Örn Kristjánsson reyndi að jafna metin fyrir heimamenn en fékk hressilega hrindingu í bakið. Í viðtali eftir leik sagði Kristinn Guðmundsson, annar þjálfara ÍBV, að dómaraparið væri það versta sem boðið er upp á í deild- inni og annar dómari leiksins hefði átt fjöldann allan af dómum á loka- kaflanum sem gerðu ÍBV erfitt fyrir. Eyjamenn leiddu 16:12 í hálfleik en liðið komst mest fimm mörkum yfir í fyrri hálfleik. Allt lék í lyndi hjá Eyja- mönnum þar til liðið komst fjórum mörkum yfir, 21:17, þá fór að halla undan fæti á síðasta korterinu. Liðið skoraði einungis sjö mörk í seinni hálfleik og einungis tvö á síðasta korterinu, það er ömurleg uppskera. Frábær mörk Karolis Stropus og seigla Guðmundar Árna Ólafssonar eiga stóran þátt í sigrinum en þeir gerðu vel á lokakaflanum þegar Aft- urelding var að síga fram úr. Guð- mundur gerði sigurmarkið þegar mínúta var eftir og samtals sex mörk í leiknum. Afturelding heldur áfram frábærri byrjun sinni en eini tapleikur liðsins kom gegn FH-ingum í Kaplakrika þar sem liðið varð fyrir miklu áfalli en Gestur Ólafur Ingvarsson meiddist þar illa og missir fyrir vikið af rest- inni af tímabilinu. Sterkari á lokakaflanum  ÍBV skoraði 7 mörk í síðari hálfleik Morgunblaðið/Hari Drjúgur Guðmundur Árni Ólafsson var atkvæðamikill í Eyjum í gær. 24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2019 Undankeppni EM U21 karla 1. riðill: Ísland – Írland.......................................... 1:0 Sveinn Aron Guðjohnsen 29. (víti). Rautt spjald: Lee O’Connor (Írlandi) 88. Lúxemborg – Svíþjóð.............................. 0:3 Dejan Kulusevski 22.(víti), Jake Larsson 32., 42. Staðan: Írland 5 3 1 1 7:2 10 Ísland 4 3 0 1 10:6 9 Ítalía 3 2 1 0 6:0 7 Svíþjóð 3 2 0 1 9:3 6 Armenía 3 0 0 3 1:8 0 Lúxemborg 4 0 0 4 0:14 0  Ísland sækir Ítalíu heim 16. nóvember en seinni fimm leikirnir fara fram á næsta ári, tveir þeir fyrstu á Írlandi og í Armeníu í lok mars. Undankeppni EM karla D-RIÐILL: Sviss – Írland............................................ 2:0 Haris Seferovic 16., sjálfsmark 90. Gíbraltar – Georgía................................. 2:3 Lee Casciaro 66., Roy Chipolina 74. – Giorgi Kharaishvili 10., Jaba Kankava 21., Giorgi Kvilitaia 84. Staðan: Danmörk 6 3 3 0 16:5 12 Írland 7 3 3 1 6:4 12 Sviss 6 3 2 1 12:5 11 Georgía 7 2 2 3 7:10 8 Gíbraltar 6 0 0 6 2:19 0 F-RIÐILL: Svíþjóð – Spánn ....................................... 1:1 Marcus Berg 50. – Rodrigo 90. Rúmenía – Noregur................................. 1:1 Alexandru Mitrita 62. – Alexander Sörloth 90. Færeyjar – Malta ..................................... 1:0 Rógvi Baldvinsson 71. Staðan: Spánn 8 6 2 0 19:5 20 Svíþjóð 8 4 3 1 18:9 15 Rúmenía 8 4 2 2 17:8 14 Noregur 8 2 5 1 13:10 11 Malta 8 1 0 7 2:18 3 Færeyjar 8 1 0 7 4:23 3  Spánn hefur tryggt sér sæti á EM. G-RIÐILL: Ísrael – Lettland ...................................... 3:1 Munas Dabbur 16., 42., Eran Zahavi 26. – Vladimirs Kamess 40. Staðan: Pólland 8 6 1 1 13:2 19 Austurríki 8 5 1 2 17:7 16 Slóvenía 8 3 2 3 13:8 11 Ísrael 8 3 2 3 15:15 11 N-Makedónía 8 3 2 3 10:11 11 Lettland 8 0 0 8 2:27 0  Pólland hefur tryggt sér sæti á EM. J-RIÐILL: Finnland – Armenía ................................ 3:0 Fredrik Jensen 31., Teemu Pukki 61., 88. Grikkland – Bosnía.................................. 2:1 Evangelos Pavlidis 30., sjálfsmark 88. – Amer Gojak 35. Liechtenstein – Ítalía .............................. 0:5 Andrea Belotti 70., 90., Federico Bernar- deschi 2., Alessio Romagnoli 77., Stephan El Shaarawy 82.  Helgi Kolviðsson þjálfar Liechtenstein. Staðan: Ítalía 8 8 0 0 25:3 24 Finnland 8 5 0 3 12:8 15 Bosnía 8 3 1 4 17:14 10 Armenía 8 3 1 4 13:15 10 Grikkland 8 2 2 4 9:13 8 Liechtenstein 8 0 2 6 2:25 2  Ítalía hefur tryggt sér sæti á EM. Vináttulandsleikir karla Danmörk – Lúxemborg .......................... 4:0 Kasper Dolberg 21., 59., Martin Brait- hwaite 13., Christian Gytkjær 67. Tékkland – Norður-Írland ...................... 2:3 Alsír – Kólumbía....................................... 3:0 Gínea – Síle ............................................... 2:3 KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA Meistaradeild kvenna, 16-liða úrslit: Kópavogsv.: Breiðablik – París SG..... 18.30 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Hleðsluhöllin: Selfoss – KA ................. 18.30 Kaplakriki: FH – Fjölnir ..................... 19.30 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Framhús: Fram U – Valur U .............. 20.15 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: DHL-höllin: KR – Valur ...................... 19.15 Blue-höllin: Keflavík – Breiðablik ...... 19.15 Mustad-höll: Grindavík – Haukar....... 19.15 Stykkish.: Snæfell – Skallagrímur...... 19.15 Í KVÖLD! Þýskaland Alba Berlín – Frankfurt ..................... 87:53  Martin Hermannsson gaf 6 stoðsending- ar og skoraði 7 stig fyrir Alba Berlín. KÖRFUBOLTI Ekki er útlit fyrir að Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur úr GR né Valdísi Þóru Jónsdóttur úr Leyni takist að komast á lokastig úrtökumótanna fyrir bandarísku LPGA-mótaröðina í golfi. Þær hafa leikið 36 holur á öðru stigi úrtökumótanna á Flórída og standa höllum fæti. Ólafía lék í gær á 75 höggum og er samtals á fimm yfir pari í 133. sæti. Valdís var í gær á 76 höggum og er samtals á sjö höggum yfir pari í 131. sæti. 27 efstu eru nú á samtals fjórum undir pari eftir hringina tvo. sport@mbl.is Standa höllum fæti á Flórída Morgunblaði/Arnþór Birkisson Úrtökumót Ólafía Þórunn var með keppnisrétt á LPGA. Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, er að ganga til liðs við Al-Arabi í Katar að sögn fjölmiðla þar í landi. Birkir verður þar með liðsfélagi Arons Einars Gunnars- sonar landsliðsfyrirliða, en Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi lands- liðsþjálfari Íslands, er knattspyrnu- stjóri Al-Arabi. Birkir hefur verið án félags síðan hann rifti samningi sínum við enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa í júní. Al-Arabi er í öðru sæti deild- arinnar með 13 stig eftir fyrstu fimm leiki sína. Heimir að næla í Birki Bjarnason Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Katar Birkir Bjarnason virðist vera búinn að finna sér nýtt félag. Vestmannaeyjar, Olísdeild karla, þriðjudag 15. október 2019. Gangur leiksins: 3:2, 6:5, 11:9, 15:10, 16:12, 17:14, 19:15, 20:17, 21:21, 23:23, 23:24. Mörk ÍBV: Kristján Örn Kristjánsson 8, Hákon Daði Styrmisson 5/5, Dagur Arnarsson 3, Fannar Friðgeirsson 2, Gabriel Martínez 2, Theódór Sig- urbjörnsson 2, Elliði Snær Viðarsson 1. Varin skot: Petar Jokanovic 7/1. ÍBV – AFTURELDING 23:24 Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Aftureldingar: Guðmundur Árni Ólafsson 6, Karolis Stropus 5, Gunnar Kristinn Þórsson 4, Birkir Benediktsson 3, Júlíus Þórir Stef- ánsson 3, Tumi Steinn Rúnarsson 2/1, Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 1. Varin skot: Arnór Freyr Stefánsson 11/1. Utan vallar: 4 mínútur. Áhorfendur: 450.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.