Morgunblaðið - 16.10.2019, Qupperneq 25
Í FOSSVOGI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Strákarnir í U21 árs landsliði karla í
knattspyrnu stóðu við stóru orðin.
Þeir lofuðu að bæta fyrir skellinn
sem þeir fengu gegn Svíum um síð-
ustu helgi í undankeppni EM og
þeim tókst það því þeir lögðu Íra að
velli 1:0 í hryssingslegu veðri í Vík-
inni í gær og eru þá komnir með níu
stig í riðlinum eftir fjóra leiki.
Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði
eina mark leiksins úr vítaspyrnu á
29. mínútu sem dæmd var þegar skot
Ara Leifssonar hafði viðkomu í hönd
eins leiksmanna Íra innan vítateigs.
Það var ekki mikið um opin færi en
íslenska liðið náði oft á tíðum góðum
samleiksköflum og barátta, vilji og
gott skipulag einkenndi lærisveina
Arnars Þór Viðarssonar og Eiðs
Smára Guðjohnsen í þessum leik. Ír-
ar, sem eru í toppsæti riðilsins, náðu
sjaldan að ógna vörn íslenska liðsins
né markinu og þegar upp var staðið
var sigur Íslands sanngjarn og ekki
síður mikilvægur en það stefnir í
hörkuslag á milli Íra, Íslendinga,
Ítala og Svía um toppsætin í riðl-
inum. Liðið í efsta sæti fer á EM en
liðið sem endar í öðru sæti fer í um-
spil.
,,Við erum bara alveg í skýjunum
eftir þennan sigur. Það var gott að
koma til baka eftir útreiðina sem við
fengum gegn Svíunum og sýna úr
hverju við erum gerðir. Við vorum
hrikalega þéttir fyrir, unnum vel
hver fyrir annan og íslenska liðs-
heildin skilaði þessum sigri,“ sagði
Stjörnumaðurinn Alex Þór Hauks-
son við Morgunblaðið eftir leikinn en
hann var að öðrum ólöstuðum besti
maður Íslands. Alex kom inn í byrj-
unarliðið ásamt Herði Inga Gunn-
arssyni og báðir áttu þeir skínandi
leik. Alex Þór lék í stöðu aftasta
miðjumanns og gerði það afar vel þar
sem hann vann marga bolta af írsku
leikmönnunum og var duglegur að
koma knettinum í spil.
,,Mér fannst Írarnir hvorki kom-
ast lönd né strönd. Við vorum dug-
legir að loka á þá. Mér fannst allir
skila sínu virkilega vel og þetta var
nauðsynlegur sigur til að halda okk-
ur í toppbaráttunni þar sem við ætl-
um okkur að vera. Írarnir voru að
gorta sig af því fyrir leikinn að þeir
væru ósigraðir á toppnum og það var
gott að koma þeim niður á jörðina.
Við förum með gott sjálfstraust til
Ítalíu í næsta mánuði og við ætlum
okkur að fá eitthvað út úr þeim leik,“
sagði Alex. Fyrirliðinn Jón Dagur
Þorsteinsson og Kolbeinn Finnsson
voru sprækir og aftasta varnarlínan
og markvörðurinn Patrik Gunn-
arsson stigu vart feilspor.
Stóðu við stóru orðin
Flott frammistaða hjá U21 árs landsliðinu í mikilvægum sigri gegn Írum
Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
1:0 Sveinn Aron Guðjohnsen skorar eina mark leiksins í Fossvoginum í gær úr vítaspyrnu.
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2019
HANDBOLTI
Olísdeild karla
ÍBV – Afturelding ................................ 23:24
Staðan:
Haukar 6 5 1 0 155:142 11
ÍR 6 5 0 1 188:162 10
Afturelding 6 5 0 1 157:145 10
ÍBV 6 4 0 2 159:148 8
Selfoss 5 3 1 1 146:146 7
FH 5 2 1 2 132:131 5
KA 5 2 0 3 137:136 4
Fram 6 2 0 4 140:149 4
Valur 6 1 1 4 144:145 3
Fjölnir 5 1 1 3 127:143 3
Stjarnan 6 1 1 4 143:161 3
HK 6 0 0 6 145:165 0
Grill 66 deild karla
Þróttur – Víkingur ............................... 28:29
Staðan:
Þróttur 5 3 1 1 166:148 7
Þór Ak. 4 3 1 0 118:104 7
KA U 4 3 0 1 134:106 6
Víkingur 5 2 1 2 122:125 5
FH U 4 2 0 2 115:110 4
Haukar U 4 2 0 2 109:100 4
Valur U 4 2 0 2 116:118 4
Grótta 4 2 0 2 100:106 4
Stjarnan U 4 0 1 3 94:131 1
Fjölnir U 4 0 0 4 94:120 0
Spánn
Barcelona – Puerto Sagunto.............. 46:25
Aron Pálmarsson skoraði 1 mark fyrir
Barcelona.
Svíþjóð
Kristianstad – Skövde......................... 18:23
Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 1
mark fyrir Kristianstad og Teitur Örn Ein-
arsson 1.
Þjálfarakapallinn svokall-
aði gekk upp í gær þegar Fylkir
og Grótta tilkynntu um ráðningar
sínar á þjálfurum fyrir karlalið
sín í fótbolta.
Þar með eru liðin tólf sem
skipa úrvalsdeildina á næsta ári
öll komin með skipstjóra í brúna.
Átta þeirra voru það reyndar fyr-
ir en miklar vangaveltur voru í
gangi um hvað hin fjögur myndu
gera, í mislangan tíma.
Áhugaverðust er ráðning
Fylkismanna sem fóru ekki á
hefðbundna markaðinn heldur
réðu Atla Svein Þórarinsson,
sem var aldrei nefndur til sög-
unnar í þjálfarakaplinum um-
rædda.
Svo kom á daginn að tvö fé-
laganna skiptust einfaldlega á
þjálfurum, enda þótt þau ættu
auðvitað ekki nein viðskipti sín á
milli í þeim efnum.
Breiðablik réð um daginn
Óskar Hrafn Þorvaldsson, sem
var búinn að gera það gott með
Gróttu og fyrir vikið var grátur
og gnístran tanna á Nesinu. Að-
stoðarþjálfarinn fylgdi með í
kaupunum. Í gær svaraði Grótta
svo fyrir sig með því að ráða
Ágúst Þór Gylfason, sem Blikar
létu víkja fyrir Óskari Hrafni. Og
aðstoðarþjálfarinn fylgdi líka
með í kaupunum.
Þeir Óskar, Ágúst, Halldór og
Guðmundur afhenda nú líklega
hvor öðrum þjálfaraúlpurnar sem
þeir klæddust á síðasta tímabili.
Þeir þurfa bara að passa að
tæma vasana svo engin hern-
aðarleyndarmál fylgi með.
Þetta voru ekki einu skiptin á
milli félaga. Sigurbjörn Hreið-
arsson hvarf á braut sem að-
stoðarþjálfari Vals undanfarin ár
og tók við sem aðalþjálfari
Grindavíkur. Hvert fór þá Túfa,
þjálfari Grindavíkur? Jú, auðvit-
að beint í úlpu Sigurbjörns sem
aðstoðarþjálfari Vals!
Túfa þekkir þetta vel – hann
skipti við Óla Stefán Flóventsson
á milli KA og Grindavíkur í fyrra!
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Borislav Mihaylo, forseti búlgarska
knattspyrnusambandsins, er hætt-
ur en öll spjót hafa staðið á honum
eftir að tvívegis þurfti að stöðva
leik Búlgaríu og Englands í undan-
keppni EM vegna kynþáttaníðs
búlgarskra stuðningsmanna.
Í gær krafðist Boyko Borisov,
forsætisráðherra Búlgaríu, þess af
Mihaylo að hann segði af sér og
bætti því við að ríkisstjórnin myndi
slíta öll tengsl við búlgarska knatt-
spyrnusambandið, þar á meðal fjár-
hagslegan stuðning, þar til Mihay-
lov léti af störfum.
Ráðherra knúði
fram afsögn
AFP
Völd Boyko Borisov, forsætisráð-
herra Búlgaríu, tók í taumana.
Helgi Kolviðsson, landsliðsþjálfari
karlaliðs Liechtenstein í knatt-
spyrnu, fékk stórt og verðugt verk-
efni í undankeppni EM í gær.
Knattspyrnustórveldið Ítalía kom
þá í heimsókn. Eftir vonbrigðin í
undankeppni HM hafa Ítalir fundið
taktinn undir stjórn Roberto Man-
cini og hafa tryggt sér sæti á EM.
Smáríkið átti erfitt uppdráttar
en Ítalía skoraði strax á 3. mínútu.
Staðan breyttist ekki fyrr en á 70.
mínútu þegar Ítalía bætti við
marki. En þau urðu fimm áður en
yfir lauk og Ítalía sigraði 5:0.
Helgi tókst á við
Roberto Mancini
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðsþjálfari Helgi Kolviðsson
glímdi við stóran andstæðing.
1:0 Sveinn Aron Guðjohnsen 29. úr
vítaspyrnu eftir að Ari Leifsson átti
skot í hönd varnarmanns Íra.
I Gul spjöldJón Dagur, Ísak Óli, Sveinn
Aron, Patrik, Lee O’Connor, Jason
Molumby.
I Rauð spjöldLee O’Connor 89.
ÍSLAND – ÍRLAND 1:0
Ísland: (4-5-1) Mark: Patrik S. Gunn-
arsson. Vörn: Alfons Sampsted, Ísak
Óli Ólafsson (Finnur Tómas Pálma-
son 78), Ari Leifsson, Hörður Ingi
Gunnarsson. Miðja: Jón Dagur Þor-
steinsson (Brynjólfur Darri Will-
umsson 90), Willum Þór Willumsson,
Alex Þór Hauksson, Stefán Teitur
Þórðarson (Daníel Hafsteinsson 77),
Kolbeinn Birgir Finnsson. Sókn:
Sveinn Aron Guðjohnsen (Brynjólfur
Darri Willumsson 77).
Dómari: Dumitri Muntean, Moldóvu.
Áhorfendur: 228.
Fjölnir vann Skautafélag Reykjavíkur 4:2 í
Hertz-deild karla í íshokkí í gærkvöldi í Egils-
höllinni í Grafarvogi. Fjölnir hefur unnið báða
leiki sína til þessa í deildinni en SR byrjar
tímabilið illa og hefur tapað fyrstu fjórum
leikjunum.
Kristján Kristinsson skoraði eina markið í
fyrsta leikhluta fyrir Fjölni en í öðrum leik-
hluta komu þeir Michal Stoklosa og Sölvi Eg-
ilsson Fjölni í 3:0. Tómas Tjörvi Ómarsson
minnkaði muninn fyrir SR.
Í síðasta leikhlutanum jókst spennan þegar
Kári Guðlaugsson skoraði annað mark SR-
inga þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir.
Vignir Arason átti síðasta orðið þegar hann
skoraði í opið markið á lokamínútunni. Morgunblaðið/Hari
Annar sigur
Fjölnis
4:2 Fjölnismenn fagna
einu marka sinna gegn SR
í Egilshöllinni í gærkvöld.