Morgunblaðið - 16.10.2019, Page 26

Morgunblaðið - 16.10.2019, Page 26
ÞJÁLFARAR Kristján Jónsson kris@mbl.is Liðin tólf sem leika í efstu deild karla í knattspyrnu næsta sumar eru búin að ganga frá því hverjir stjórna liðunum. Fylkir og Grótta réðu þjálfara í gær og var það loka- hnykkurinn í ferlinu en fjögur lið fengu til sín nýja þjálfara eftir að Ís- landsmótinu lauk: Valur, Breiðablik, Fylkir og Grótta. Fylkir réð raunar tvo þjálfara sem bera munu jafn mikla áhyrgð, Atla Svein Þórarinsson og Ólaf Stígsson, einn dáðasta leikmann félagsins í gegnum tíðina. Nafn Atla hefur ekki farið hátt varðandi þjálfunina en hann lék lengi með KA og Val hér heima. „Já, að sumu leyti kom það á óvart en það var mikill heiður. Mér fannst ég ekki geta sleppt þessu tækifæri og er bara gríðarlega spenntur að takast á við verkefnið,“ sagði Atli þegar mbl.is spurði hann í gær hvort símtalið frá Fylkismönnum hefði komið honum á óvart. „Ég hef verið í þjálfun undanfarin ár og síðast yfirþjálfari hjá Stjörn- unni þannig að maður hefur lifað og hrærst í fótboltanum. Vissulega er þetta fyrsta stóra meistaraflokks- starfið sem ég tek að mér en ég held að ég og Ólarnir tveir myndum gott teymi saman. Þeir þekkja allt út og inn hjá félaginu og eru goðsagnir,“ sagði Atli og á þá einnig við Ólaf Inga Skúlason sem verður spilandi aðstoðarþjálfari. Ágúst var eftirsóttur Ágúst Gylfason gerði þriggja ára samning við Gróttu. Guðmundur Steinarsson verður Ágústi til að- stoðar rétt eins og þegar Ágúst stýrði Fjölni og Breiðabliki. Grótta og Breiðablik höfðu því þjálfara- skipti ef þannig má að orði komast. Ágúst segir að sjö eða átta félög hafi sett sig í samband við hann með ein- hverjum hætti eftir að Breiðablik lét Ágúst fara og leist honum best á Gróttu. „Áhuginn sem forráðamenn Gróttu sýndu mér hafði mikið að segja. Ég fann að þeir vildu fá mig og seldu mér þá hugmynd að koma hingað. Hugmyndafræði félagsins snýst um að byggja liðið á ungum og efnilegum drengjum og það er einn- ig skemmtilegt. Hentar það okkur Guðmundi Steinarssyni, sem verður mér við hlið, gríðarlega vel. Fyrir okkur er gott að vinna með áhuga- sömum og vinnusömum strákum sem eru tilbúnir að leggja sig 100% fram. En það er nokkuð ljóst að verkefnið verður mikil áskorun. Við ákváðum að kýla á þetta og taka þátt í þeirri vegferð sem félagið er í,“ sagði Ágúst Gylfason í samtali við mbl.is í gær. Á mbl.is/sport er að finna viðtöl við þá Atla Svein og Ágúst frá því í gær. Ráðningarferlinu er lokið  Öll liðin í efstu deild karla komin með þjálfara á launaskrá  Óvænt útspil í Árbænum  Atli fær tækifæri  Samstarf Ágústs og Guðmundar heldur áfram Morgunblaðið/Árni Sæberg Fylkir Atli Sveinn Þórarinsson stígur sín fyrstu skref sem þjálfari í efstu deild. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Fylkir Ólafur Stígsson var aðstoðarþjálfari Fylkis en er nú aðalþjálfari með Atla Sveini. Morgunblaðið/Valli Grótta Ágúst þór Gylfason er farinn úr Kópavogi og út á Seltjarnarnes til nýliðanna. Þjálfarar 2020 » KR: Rúnar Kristinsson » Breiðablik: Óskar Hrafn Þorvaldsson » FH: Ólafur Kristjánsson » Stjarnan: Rúnar Páll Sigmundsson » KA: Óli Stefán Flóventsson » Valur: Heimir Guðjónsson » Víkingur R.: Arnar Gunnlaugsson » Fylkir: Atli Sveinn Þórarins- son og Ólafur Stígsson » HK: Brynjar Björn Gunnarsson » ÍA: Jóhannes Karl Guðjónsson » Grótta: Ágúst Gylfason » Fjölnir: Ásmundur Arnarsson 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2019  Bjarki Már Elísson, hornamaðurinn knái í þýska liðinu Lemgo og íslenska landsliðinu, vann kosningu á leikmanni septembermánaðar í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Bjarki fór á kostum í september en í fimm leikjum Lemgo skoraði hann 50 mörk eða 10 mörk að meðaltali í leik. Bjarki Már fékk 40% atkvæðanna í kjörinu á leikmanni mánaðarins. Bjarki Már er í öðru sæti yfir markahæstu leikmenn deild- arinnar. Hann hefur skorað 68 mörk eða 7,6 mörk að meðaltali í leik. Uwe Gensheimer úr Rhein-Neckar Löwen er markahæstur með 76 mörk.  Grindavík hefur bætt við sig lithá- ískum körfuknattleiksmanni fyrir bar- áttuna í úrvalsdeild karla í vetur. Hann heitir Valdas Vasylius, er 2,03 metrar á hæð og Grindvíkingar vonast eftir því að hann hjálpi þeim í baráttunni undir körfunni. Vasylius er framherji og lék síðast með Nevezis í heimalandi sínu en er nýbúinn að losna undan samningi þar. Hann hefur mest leikið með liðum í Litháen en einnig með Samara í Rússlandi og Dnipro í Úkra- ínu.  Valsmenn drógust í gær gegn aust- urríska liðinu Bregenz í Áskorenda- bikar karla í handknattleik en þeir hefja þar keppni í þriðju umferðinni í næsta mánuði. Bregenz hefur tals- verðar tengingar við Val því tveir gam- algrónir Valsmenn hafa þjálfað liðið. Dagur Sigurðsson var þar spilandi þjálfari á sínum tíma og Geir Sveins- son tók síðar við þjálfun liðsins. Bre- genz hefur um árabil verið eitt af bestu handboltaliðum Austurríkis en liðið hefur hins vegar farið mjög illa af stað á þessu tímabili og er næstneðst í A-deildinni þar í landi með sex ósigra í fyrstu átta umferðunum. Fyrri leikur liðanna á að fara fram á Hlíðarenda helgina 16.-17. nóvember og sá seinni í Austurríki viku síðar.  Atli Már Báruson, handknattleiks- maður úr Haukum, var í gær úrskurð- aður í eins leiks bann af aganefnd HSÍ og verður því ekki með Hafnarfjarð- arliðinu í næsta leik í úrvalsdeild karla sem er gegn ÍBV miðvikudaginn 30. október. Atli Már var rekinn af velli í leik Hauka gegn Val á laugardaginn og niðurstaða aganefndar var sú að brot- ið væri þess eðlis að hann færi í eins leiks bann. Elliði Snær Viðarsson úr ÍBV og Matthías Daðason úr Fram fengu hinsvegar ekki leikbönn þrátt fyrir að hafa verið reknir af velli en aganefnd mat brot þeirra þess eðlis að ekki skyldi aðhafst frekar.  Hægri hornamaðurinn Arnór Þór Gunnarsson hefur dregið sig út úr ís- lenska landsliðshópnum í handknatt- leik vegna meiðsla fyrir vináttuleikina gegn Svíþjóð í lok mánaðarins. Guð- mundur Þórður Guðmundsson, lands- liðsþjálfari, hefur valið Viggó Krist- jánsson, leikmann þýska liðsins Leipzig, í stað Arnórs en landsliðshóp- urinn telur 19 leik- menn. Viggó gekk í raðir Leipzig frá austurríska liðinu West Wien í sumar. Hann er uppalinn Gróttumaður en yfirgaf Seltjarn- arnesið 2016 og lék eitt ár með Randers í Danmörku áður en hann fór til West Wien. Eitt ogannað Finnar eru í góðri stöðu í baráttunni um sæti í lokakeppni Evrópumóts karla í knattspyrnu eftir sannfær- andi sigur á Armenum í Turku í gær, 3:0. Með sigrinum náðu þeir fimm stiga forskoti á Armena og Bosníumenn sem eru í þriðja og fjórða sæti J-riðils en Bosnía spilar við Grikkland á útivelli í kvöld. Finnar eiga eftir heimaleik við Liechtenstein og útileik við Grikk- land, og vinni þeir báða leikina fara þeir á EM. Ítalir hafa þegar unnið riðilinn, eru með 24 stig af 24 mögu- legum. Finnar voru með Íslend- ingum í riðli í undankeppni HM og unnu Ísland 1:0 í Tampere haustið 2017. Liðið var að mörgu leyti sein- heppið í þeirri keppni, til dæmis á Laugardalsvellinum, en liðið hefur nú náð vopnum sínum. Svíar gerðu vel þegar þeir fengu Spánverja í heimsókn í F-riðli. Sví- þjóð komst yfir en Spánn jafnaði á 90. mínútu og liðin gerðu 1:1 jafn- tefli. Spánverjar eru langefstir með 20 stig og öruggir með sæti á EM. Svíar eru í 2. sæti með 15 stig. Norðmenn undir stjórn Lars Lag- erbäck eiga nánast enga möguleika lengur á að komast upp úr F- riðlinum. Liðið gerði 1:1 jafntefli gegn Rúmeníu á útivelli. Norðmenn eru með 11 stig en Rúmenar eru með 14 stig og berjast við Svía um 2. sætið. AFP Mark Teemu Pukki skorar fyrir Finna gegn Armeníu í gær. Finnar líklegir til að komast á EM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.