Morgunblaðið - 16.10.2019, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2019
Litríkur og
vandaður fatnaður
Bæjarlind 2, Kópavogur, sími 866 4493.
Opnunartími eftir samkomulagi
Regnboginn verslun Regnboginn_verslun
Fallegur og vandaður fatnaður með
skemmtilegu og litríku munstri úr
hágæða efni.
Sjáið úrvalið í netverslun okkar
www.regnboginnverslun.is
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Þessi plata var í raun tilbúin fyrir ári en ég ákvað að stofna
mitt eigið útgáfufyrirtæki og það fór heilmikill tími í að undir-
búa það. Ég frestaði því útgáfunni, svo ég gæti gert þetta al-
mennilega og haft plötuna nákvæmlega eins og mig langaði
sjálfa til að hafa hana,“ segir tónlistarkonan Mr. Silla, eða
Sigurlaug Gísladóttir, sem sendi nýlega frá
sér sína aðra sólóplötu, Hands on Hands.
„Ástæðan fyrir því að það leið svona langt
á milli platna hjá mér, fjögur ár, er líka sú að
ég hef verið upptekin við svo margt annað,
ég hef verið að vinna með öðru tónlistarfólki,
aðallega með hljómsveitinni múm og Jae
Tyler, en líka með Snorra Helgasyni og
Teiti Magnússyni, auk annarra.“
Þegar Silla er spurð hvort einhverjar sérstakar pælingar
liggi að baki plötunni og hvort hún sé hugsuð út frá einhverju
sérstöku þema segir hún svo ekki vera.
„Ég er fyrst og fremst að gera tilraunir, mig langaði að prófa
mig áfram og tónlistin á henni kemur því úr ýmsum áttum. Sum
lögin eru rosalega poppuð en önnur tilraunakenndari þar sem
ég er að pæla í alls konar hljóðheimum. Þessi plata er afrakst-
urinn af ferðalagi í gegnum þessar pælingar, ég var ekki búin
að úthugsa neitt þema, það bara gerðist í ferlinu að ég fór þessa
leið.“
Við hlustun fer ekkert á milli mála að mikil gleði og léttleiki
einkennir tónlistina á nýju plötunni hennar Sillu, þar er m.a.
sungið um ljósið og eldinn hið innra.
„Enda var mikil leikgleði í gangi við vinnslu þessarar plötu og
vinnutitill sumra laganna var leikur. Ég var einfaldlega að njóta
þess að búa til og skapa, og svo var ég allt í einu komin með
heila plötu. Hún mætti bara sjálf,“ segir Silla og bætir við að
fyrri platan hennar, Mr. Silla, hafi verið sambandsslitaplata.
„Lögin á henni fjölluðu mikið um það drama og því finnst mér
gaman að láta leikgleðina taka við á þessari nýju plötu, enda er
ég stödd á allt öðrum stað í lífinu núna. Ég er ástfangin, það
verður að segjast, og það hefur skilað sér yfir á plötuna,“ segir
Silla sem býr í Berlín ásamt eiginmanni sínum Jae Tyler sem
einnig er tónlistarmaður og spilar hann á gítar á tónleikum hjá
Sillu og hún hefur komið fram í bandinu hans.
Vinahópurinn og samfélagið hafa áhrif á sköpunina
Silla hefur eðli málsins samkvæmt þróast heilmikið sem tón-
listarkona á þeim fjórum árum sem liðin eru frá því fyrsta plat-
an hennar kom út. Hún hefur óhjákvæmilega orðið fyrir áhrif-
um frá þeim sem hún hefur verið að vinna með sem og því
umhverfi sem hún lifir og hrærist í, en hún hefur búið í Berlín í
rúm þrjú ár.
„Auðvitað hefur sú tónlist sem er í gangi hér í Berlín haft ein-
hver áhrif á það sem ég er að gera, en tónlistarsenan hér er
mjög teknódrifin. Ég tel þó að vinahópurinn og samfélagið sem
ég lifi og hrærist í hér hafi haft meiri áhrif á sköpunarvinnu
mína, ég kemst ekki hjá því að verða fyrir áhrifum frá þeim. Það
skilar sér út í það sem ég er búa til, það gerist ósjálfrátt, bæði
meðvitað og ómeðvitað. Það er svo margt sem hefur áhrif á tón-
listarsköpun, ekki aðeins vinir og samsatarfsfólk heldur líka líf-
ið sjálft. Þar fyrir utan finnst mér ekkert spennandi að vera
alltaf að gera það sama eða búa til alveg eins tónlist og ég hef
áður gert. Ég vil frekar skoða og gera tilraunir, sem er mjög
skemmtilegt.“
Eitt lag á plötunni, „Butter on it“, sker sig nokkuð úr, í því er
önnur rödd en í hinum lögunum. Þetta er mjög líkamlegt lag og
nautnafullt, en höfundur þess er tónlistarmaðurinn Páll Ívan
frá Eiðum.
„Hann er góður vinur minn og áður en hann gaf út plötuna
sína, This is my shit, hafði ég hlustað á mörg laga hans sem
komu til greina á þeirri plötu. Ég var svo hrifin af þessu lagi,
sem endaði ekki á plötunni hans, svo ég spurði hvort ég mætti
taka það til mín og vinna í því, syngja inn á það og útsetja það.
Páll Ívan var til í það,“ segir Silla og bætir við að Jae Tyler mað-
urinn hennar eigi heiðurinn af því að hafa samið eitt lag á plöt-
unni, „Underneath“ . „Við sömdum saman tvö önnur lög, en þar
fyrir utan eru þetta alfarið mínar tónsmíðar á þessari plötu.“
Komin af stað með hugmyndavinnu fyrir næstu plötu
Þrjú tónlistarmyndbönd við lög af nýju plötunni eru þegar
komin út og verið að leggja lokahönd á gerð tveggja í viðbót.
„Ég er í samstarfi við Tönju Huld búningahönnuð og við er-
um að vinna að nokkuð kraftmiklum tónleikum í framhaldi af
útgáfu plötunnar,“ segir Silla sem er menntuð í sjónrænum list-
um frá Listaháskóla Íslands. „Ég er spennt að sjá hvert það
leiðir okkur Tönju Huld að taka þetta enn lengra. Þetta verður
meiri heildarupplifun, þar sem hið sjónræna mun spila stærri
rullu,“ segir Silla sem ætlar að sjálfsögðu að sinna sínum aðdá-
endum hér heima og ætlar að koma til Íslands yfir jólin og
halda útgáfutónleika milli jóla og nýárs.
„Svo renni ég mér beint í næstu plötu, því ég er í rosa miklu
stuði núna. Ég er svo ánægð í stúdíóinu mínu hérna í Berlín og
það er búið að vera virkilega gaman að semja og vinna. Ég geri
því ráð fyrir að það verði ekki jafn löng bið í næstu plötu hjá
mér, hún gæti jafnvel komið út fljótlega. Ég er komin vel af stað
með hugmyndavinnuna og þetta næsta verkefni verður meira
þematengt.“
Ljósmynd/@JULIAMAI
Silla Hún leggur mikið upp úr hinu sjónræna á tónleikum.
Silla vill skoða og gera tilraunir
Leikgleðin hefur tekið við
enda Silla ástfangin í Berlín
Odense Kammerkor, þ.e. Kamm-
erkór Óðinsvéa, heldur tvenna tón-
leika hér á landi í vikunni. Kórinn
kemur fram með kammerkórnum
Hymnodiu í Akureyrarkirkju í dag
og á föstudaginn, 18. október, í
Norræna húsinu.
Efnisskráin samanstendur að
mestu af verkum eftir skandinavísk
tónskáld, m.a. Carl Nielsen frá Óð-
insvéum og verða einnig flutt tvö
ný verk eftir íslensk tónskáld, verk-
ið „Liljur“, eftir Huga Guðmunds-
syni og „Ísland“ eftir Sigurdísi
Söndru Tryggvadóttur.
Kórinn skipa 25 söngvarar og
gekk hann upphaflega undir nafn-
inu Knuds Gymnasiums Lillekor
þegar hann var stofnaður árið
1951.
Kammerkór Óðinsvéa syngur á Íslandi
Heimsókn Kammerkór Óðinsvéa heldur tvenna tónleika hér á landi.
Larson skapaði.
Sem fyrr eru
Salander og
Michael Blom-
kvist blaðamaður
pólarnir sem öllu
skipta, einstakl-
ingarnir sem fást
við málin og
reyna að leysa
þau, hvort með sínum hætti.
Salander hefur marga fjöruna
sopið og nú er ekkert eftir nema að
setja punktinn yfir i-ið, en það reyn-
ist erfiðara en hún heldur, þótt hún
vilji frekar vera kötturinn en músin.
Blomkvist stendur í ströngu við ráð-
andi öfl og nýtur auk þess lífsins úti í
Sandhamn, þar sem sögur Vivecu
Sten gerast!
Uppgjör Salander við fortíðina og
leit Blomkvists að sannleikanum í
ákveðnu máli eiga nokkra samleið.
Dularfullt dauðsfall betlara tengist
för á Everest og rannsókn á leið-
angrinum leiðir ýmislegt miður
Lisbeth Salander er flottastikvenmaðurinn í spennu-sögum samtímans, töffarieins og Jack Reacher í
karlaheiminum. Glæpasagan Sú sem
varð að deyja fer um víðan völl og
Lisbeth Salander er svo sannarlega
á fleygiferð í sögunni.
Stieg Larson skrifaði frábæran
þríleik með Lisbeth Salander í aðal-
hlutverki og David Lagercrantz hef-
ur haldið heiðri hans á lofti, en Sú
sem varð að deyja er sjötta og síð-
asta bókin í sagnabálkinum sem
skemmtilegt í ljós. Þræðirnir liggja
víða en jafnt og þétt falla þeir sam-
an. Hraðinn er mikill, ofbeldið marg-
víslegt og spennan nær hámarki í
lokin, þegar ofurkonan sýnir úr
hverju hún er gerð. Það er bara ein
Lisbeth Salander.
AFP
Höfundurinn Lagercrantz kátur í
bókarkynningu árið 2015.
Á flótta undan skuggum fortíðar
Glæpasaga
Sú sem varð að deyja bbbbn
Eftir David Lagercrantz.
Halla Kjartansdóttir þýddi úr sænsku.
Kilja. 381 bls. Bjartur 2019.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR