Morgunblaðið - 25.10.2019, Side 1

Morgunblaðið - 25.10.2019, Side 1
F Ö S T U D A G U R 2 5. O K T Ó B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  251. tölublað  107. árgangur  SÉRA SEM SÆKIR Í GLÆPASÖGUR BANDARÍKIN HORFA TIL GRÆNLANDS MEÐ TÓNLEIKA Á HRESSINGAR- SKÁLANUM EMBÆTTISMENN Í NUUK 13 BENNI HEMM HEMM 28HÖFUNDUR 5 SAGNA 10 Víða í stærri bæjum á landsbyggð- inni fara útfarir nú oftar fram á föstudögum eða öðrum virkum dögum en áður tíðkaðist. Áður var reglan sú að á höfuðborgarsvæð- inu var aðeins jarðað á virkum dögum, en á landsbyggðinni lang- oftast á laugardögum. Munurinn er sá að í þéttbýlinu er algengast að atvinnufólk komi að framkvæmd útfara, það er út- fararstofur og söngfólk auk prests. Í dreifbýlinu eru það gjarnan sjálf- boðaliðar sem gegna hlutverkum útfararstofu, annast tónlistarflutn- ing og fleira. Meðfylgjandi skýringarmynd byggir á tölum frá kirkjugörðun- um um fjölda útfara á föstudögum og laugardögum frá 2012, þ.e. í öðrum kirkjugörðum en kirkju- görðum Reykjavíkur, Hafnarfjarð- ar, Garðabæjar og Akureyrar. Framan af eða til ársins 2016 var algengast að jarðað væri á laugardögum. Tölurnar benda til þess að þetta hafi snúist við árið 2017 og síðan þá hafa verið fleiri jarðarfarir á föstudögum en á laugardögum í minni byggðarlög- um landsins. » 14 Útfarir oftar á virkum dögum  Breyting á útfarardögum úti á landi Útfarir á lands- byggðinni 2012-2019 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19 400 350 300 250 200 Föstudagar Laugardagar Baldur Arnarson baldura@mbl.is Verð á brotajárni hefur lækkað um tæp um 40% frá byrjun síðasta árs. Daði Jóhannesson, forstjóri Hringrásar, segir verndartolla eiga þátt í lækkuninni undanfarið. Þannig hafi Bandaríkjastjórn sett toll á tyrkneskt stál sem aftur hafi áhrif á íslenskan markað. Stærstur hluti brotajárnsins frá Íslandi sé enda fluttur til Tyrklands. Botninum sé náð Hringrás hafi lækkað verðið um síðustu mánaðamót um nærri 20%. „Það er heldur lítil lækkun miðað við verðþróunina. Við gerum þetta í þeirri von að botninum sé náð og að verðið sé hætt að lækka eftir stöð- ugar lækkanir í talsverðan tíma. Þeir sem þurfa að losna við brotajárn eru fæstir í aðstöðu til að sitja á því í von um að verðið hækki,“ segir Daði. Hann segir aðspurður að ástand efnahagsmála í heiminum hafi mikil áhrif á þennan markað. „Það eru nefndar þrjár ástæður fyrir því að stálverð er að lækka. Brotajárnið er beintengt því. Það er í fyrsta lagi tollastríð milli Bandaríkj- anna og Tyrklands og í öðru lagi Brexit, sem veldur óvissu sem aftur veldur því að menn halda að sér höndum. Í þriðja lagi er almennt að hægjast á efnahagslífinu í heiminum sem leiðir til minnkandi eftirspurnar eftir stáli,“ segir Daði. Hindranir bitna á hagkerfinu Yngvi Harðarson, framkvæmda- stjóri Analytica, segir stálverðið hafa náð lágmarki áður en Donald Trump Bandaríkjaforseti setti 50% toll á stál frá Tyrklandi 14. október sl. Þegar hindranir séu settar í vegi viðskipta milli hagkerfa bitni það á umsvifum og komi niður á heimshag- kerfinu. Það hafi síðan neikvæð áhrif á verðið. Þá hafi Brexit haft neikvæð áhrif með því að valda óvissu sem aftur leiði til minni fjárfestingar. Það ásamt viðskiptastríði Kína og Bandaríkjanna vegi þyngst. Brotajárn hefur hrunið í verði síðustu misserin  Hringrás lækkar verð  Viðskiptastríð á þátt í lækkunum Morgunblaðið/Árni Sæberg Verðmæti Brotajárn í Sundahöfn. MVerðfall á brotajárni í ár »4 Þau voru fremur kuldaleg, þríeykið sem ljósmyndari Morgun- blaðsins rakst á í fjörunni skammt frá Gróttuvita á Seltjarnar- nesi í gær. Þrátt fyrir hvassviðri, kulda og úfinn sjó virtist hópurinn skemmta sér með ágætum. Í fjarska sést Esjan að mestu grá niður hlíðar og á það sjálfsagt við um fleiri fjöll sunnanlands. Í dag og um helgina má búast við köldu og frem- ur björtu veðri á höfuðborgarsvæðinu. Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir hægt minnkandi norðanátt á landinu í dag, víða 5-13 metrum á sekúndu en heldur hvassara suðaust- anlands á Austfjörðum. Hiti verður við og undir frostmarki. Það er því vissara fyrir fólk að grípa í kuldaúlpu og húfu, hafi menn ekki þegar gert það, áður en lagt er af stað út úr húsi. Morgunblaðið/Hari Áfram má búast við köldu veðri víðast hvar á landinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.