Morgunblaðið - 25.10.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019
Selfoss // Akureyr i // Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Mest seldu fjórhjól
á Íslandi síðastliðin 4 ár!
Verð frá
1.480.000
með vsk.
MorgunblaðiðHádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóraSigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.isÁgúst Ingi Jónsson aij@mbl.is FréttirGuðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
ViðskiptiStefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is SmartlandMarta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Persónulega finnst mér afar ánægjulegt hversu mikla
athygli umhverfis- og úrgangsmál hafa loks fengið í um-
ræðunni. Fyrir bæði sveitarfélög og íbúa er það risavaxið
hagsmunamál að þessir hlutir séu í lagi,“ segir Kristján
Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, í samtali við
Morgunblaðið, en hann var einn þeirra sem í gær fluttu
erindi á fundi Landssambands sjálfstæðiskvenna sem
haldinn var í Valhöll.
Er um að ræða fundaröð landssambandsins sem til-
einkuð er umhverfismálum. Markmið fundanna er að
nálgast umhverfismál frá ólíkum hliðum, finna út hvernig
best sé að huga að náttúru Íslands og hvað það er sem
skiptir mestu máli fyrir framtíð þjóðarinnar og komandi
kynslóða.
Kristján Þór fór í máli sínu yfir þau helstu atriði sem
verið er að kanna á Norðurlandi, hver núverandi staða er í
úrgangsmálum og hvaða tækifæri leynast fyrir sveit-
arfélögin.
„Við erum nú með skýrslu í höndunum sem Efla vann
fyrir okkur og erum að yfirfara þær niðurstöður. Næstu
skref til meiri samræmingar eru meðal þess sem þar má
finna, en með því er átt hvernig meðhöndla skal úrgang á
öllu svæðinu. Við teljum fjölmörg tækifæri leynast í því
annars góða starfi sem nú þegar er unnið þegar kemur að
flokkun úrgangs,“ segir Kristján Þór og vísar þá meðal
annars til þess að draga úr urðun á sorpi og nýta þannig
um leið urðunarstaði lengur en ella. „Það verður alltaf
eitthvað urðað en við verðum að leggja áherslu á að fara
vel með þessi svæði,“ segir hann.
Fjölmörg tæki-
færi í flokkun
Morgunblaðið/Eggert
Landssamband sjálfstæðiskvenna er nú með fundarröð um umhverfismál
Reykjavík er í 14. sæti yfir öruggustu
höfuðborgir heimsins með 76,85
öryggisstig, á lista World’s Capital
Cities. Kaupmannahöfn er efst höfuð-
borga Norðurlanda í 10. sæti með
78,73 stig. Helsinki er í 17. sæti með
75,36 stig, Ósló í 57. sæti með 53,52
stig og Stokkhólmur í 59. sæti með
51,49 stig. London er á milli Óslóar og
Stokkhólms með 52,93 stig.
Öryggisvísitalan er byggð á hug-
lægu mati íbúa borganna. Hún endur-
speglar á sinn hátt tíðni afbrota í
hverri borg og það hversu öruggir
borgararnir telja sig vera gagnvart
því að verða fyrir barðinu á afbrota-
mönnum. Tölurnar voru uppfærðar
um mitt árið 2017.
Á listanum eru 102 borgir og trónir
Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum efst með 86,46 stig.
Næst henni er Doha í Katar með
84,13 stig og í 3. sæti er Singapore
með 83,1 stig. Athyglisvert er að
öruggustu borgirnar eru höfuðborgir
í Mið-Austurlöndum eða Asíu.
Efst Evrópuborga er Bern í Sviss í
5. sæti með 81,53 stig. Ottawa í Kan-
ada er sú höfuðborg í Norður-Amer-
íku þar sem borgararnir fundu til
mests öryggis og fékk hún 76,93 stig.
Höfuðborg Kanada fékk mun betri
útkomu en Washington DC, höfuð-
borg Bandaríkjanna, sem fékk 42 stig
og Mexíkóborg sem fékk aðeins 34,65
stig. Lestina á listanum rekur svo
Port Moresby í Papúa Nýju Gíneu
með aðeins 16,32 stig.
gudni@mbl.is
Reykjavík í 14. sæti lista
um öruggustu höfuðborgir
Kaupmannahöfn efst höfuðborga Norðurlanda á listanum
Morgunblaðið/Eggert
Reykjavík Fékk fleiri stig en Hels-
inki, Ósló og Stokkhólmur.
Helgi Bjarnason
Ragnhildur Þrastardóttir
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands
hefur samþykkt tillögu að viðauka
við ráðningarsamninga starfsfólks á
skrifstofum stéttarfélaga. Hann
gengur út á það að starfsfólkið eigi
rétt á lögfræðiaðstoð án kostnaðar
ef upp kemur ágreiningur í hefð-
bundnu vinnuréttarsambandi, meðal
annars vegna starfsloka.
Skoruðu á þing SGS
Málefni fjögurra einstaklinga sem
störfuðu á skrifstofu Eflingar stétt-
arfélags en eru í veikindaleyfi eða
voru reknir frá félaginu, verður ekki
tekið fyrir á 7. þingi Starfsgreina-
sambands Íslands sem nú stendur
yfir í Reykjavík. Starfsmennirnir
fyrrverandi hafa átt í deilum við for-
ystu Eflingar og skoruðu á þingið að
taka á málunum.
Björn Snæbjörnsson, formaður
Starfsgreinasambandsins, sagði að
þetta væri innanfélagsmál Eflingar
sem ekki yrði tekið fyrir á þinginu.
Þá vísaði hann til þess að ASÍ væri
að móta reglur um það hvernig skuli
taka á því þegar starfsmenn stétt-
arfélaga eru ósáttir við vinnuveit-
anda sinn.
Skipulags- og starfsháttanefnd
ASÍ hefur mótað tillögu að viðauka
við ráðningarsamninga starfsfólks á
skrifstofum stéttarfélaga. Tillagan
hefur verið samþykkt í miðstjórn
ASÍ en Guðrún Ágústa Guðmunds-
dóttir, framkvæmdastjóri ASÍ, segir
að þær hafi ekki verið sendar stétt-
arfélögunum. Hún tekur fram að
þær verði valkvæðar fyrir félögin.
Þær eru þó hugsaðar þannig að ekki
þurfi að segja upp ráðningarsamn-
ingum núverandi starfsfólks heldur
verði gerður viðauki við samninga.
Meginefni viðaukans er að starfs-
fólkið hafi aðgang að lögfræðiþjón-
ustu ef upp koma ágreiningsmál
sem tengjast hefðbundnu vinnurétt-
arsambandi starfsmanns og skrif-
stofu stéttarfélags.
Ósveigjanleiki, stífni og hroki
Björn Snæbjörnsson sagði í setn-
ingarræðu sinni að enn væri eftir að
semja við ríki og sveitarfélög og
væri alvarleg staða í þeim viðræð-
um. „Ósveigjanleiki, stífni og jafnvel
hroki eru áberandi hjá samninga-
nefnd sveitarfélaganna, og ég get
sagt ykkur það að ef ekkert fer að
ganga við samningaborðið, þá er
ekkert annað að gera en að skella í
lás hjá ýmsum stofnunum sveitarfé-
laga á næstunni,“ sagði Björn og
bætti því við að mælirinn væri full-
ur. Ástæðan væri sú að samninga-
nefnd sveitarfélaganna neitaði fólki
með lökustu lífeyrisréttindin að
jafna þau við aðra opinbera starfs-
menn.
Jafnt aðgengi að þjónustu
Auk kjara- og atvinnumála verða
félagsmálin sérstaklega á dagskrá
þingsins. Einnig aðgengi fólks að
heilbrigðisþjónustu og sá mikli
kostnaður sem fólk sætir. „Fólk er
að fresta því að fara til læknis og
annað vegna þess að það hefur ekki
efni á því,“ sagði Björn. Hann sagði
mikilvægt að fólk hefði jafnt aðgengi
að heilbrigðisþjónustu.
Vilja viðauka við ráðningarsamninga
Málefni fyrrverandi starfsmanna Eflingar ekki tekið fyrir á þingi Starfsgreinasambands Íslands
Tillaga ASÍ að viðauka verður valkvæð fyrir stéttarfélögin Starfsfólkið eigi kost á lögfræðiaðstoð
Morgunblaðið/Hari
Fundað Sjöunda þing Starfsgreinasambands Íslands var sett í gær. Það er
að þessu sinni haldið í Reykjavík. Björn Snæbjörnsson flutti setningarræðu.
Landréttur hefur staðfest fjögurra
vikna gæsluvarðhaldsúrskurð
Héraðsdóms Suðurlands yfir erlend-
um karlmanni. Maðurinn var hand-
tekinn á Höfn í Hornafirði fimmtu-
daginn 17. október sl. ásamt öðrum
manni, en þeim er gefið að sök að
hafa tekið mann nauðugan af heimili
sínu. Fram kemur í málsgögnum að
mennirnir séu grunaðir um meintar
hótanir, frelsissviptingu og vopna-
lagabrot. Þá hafi maðurinn sem ráð-
ist var á verið í miklu uppnámi og
óttasleginn þegar lögreglumenn
mættu á vettvang.
Maðurinn sem nú er í gæslu hefur
hlotið refsidóma erlendis vegna
vopnalaga-, líkamsárása- og ráns-
brota, að því er fram kemur í gögn-
um Evrópulögreglunnar Europol
sem lögreglustjórinn á Suðurlandi
lagði fram vegna málsins.
Þá hefur maðurinn gerst brot-
legur í minnst þremur lögreglu-
embættum hér á landi sl. vikur og
eru brotamálin minnst 10 talsins.
Síbrota-
maður
í gæslu
Brotið af sér er-
lendis og hér heima