Morgunblaðið - 25.10.2019, Qupperneq 4
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verð á brotajárni í Kauphöllinni með
málma í Lundúnum (LME) hefur
lækkað um tæp 40% frá byrjun síð-
asta árs. Þannig var verðið rúmir 370
dalir í byrjun árs 2018 en er nú um
236 dalir. Verðið hefur lækkað um
20% í haust en það var um 300 dalir í
ágúst.
Daði Jóhannesson, forstjóri
Hringrásar, bendir á áhrif tolla.
„Verð á brotajárni hefur hrunið á
síðustu tveimur mánuðum. Megin-
ástæðan er að Donald Trump
Bandaríkjaforseti setti verndartolla
á stál frá Tyrklandi en langmest af
brotajárninu frá Íslandi endar í
Tyrklandi,“ segir Daði.
Takmarkaði innflutning
Kínastjórn takmarkaði í sumar
innflutning á brotajárni. Samkvæmt
fréttaskýringu Reuters keyptu Kín-
verjar aðeins 10 þúsund tonn af
brotajárni í september og aðeins 180
þúsund tonn á fyrstu níu mánuðum
ársins, eða 83,7% minna en í fyrra.
Daði segir aðspurður að tollar á
stál frá Tyrklandi hafi meiri áhrif á
íslenskan markað en samdráttur
innflutnings til Kína.
Þess má geta að Kínastjórn greip
einnig til takmarkana á innflutningi
á plasti til endurvinnslu. Það hafði
mikil áhrif á plastmarkaðinn en frá
því markaður með plast lokaðist í
Kína hefur Sorpa til dæmis flutt það
til Svíþjóðar til brennslu, eða svo-
nefndrar orkuendurvinnslu.
Spurður hvort Hringrás hafi
brugðist við verðlækkunum með því
að hægja á útflutningi segir Daði
fyrirtækið ekki hafa aðstöðu til að
geyma brotajárn á lager. Þ.e. hvorki
á Akureyri né í Reykjavík.
„Við verðum að flytja allt járn út
jafn óðum; höfum ekki pláss fyrir
það. Það sem við gerum er að hag-
ræða í innkaupum, þ.e. borga minna
fyrir brotajárn sem við kaupum.“
Botninum sé náð
Hringrás hafi lækkað verðið um
síðustu mánaðamót um nærri 20%.
„Það er heldur lítil lækkun miðað
við verðþróunina. Við gerum þetta í
þeirri von að botninum sé náð og að
verðið sé hætt að lækka eftir stöð-
ugar lækkanir í talsverðan tíma. Þeir
sem þurfa að losna við brotajárn eru
fæstir í aðstöðu til að sitja á því í von
um að verðið hækki. Það getur líka
verið röng strategía. Verðið hefur nú
lækkað samfellt í um tvö ár. Því hefði
verið betra að selja brotajárnið
strax. Það er heldur ekki víst að
verðlækkunum sé lokið og þá er
betra að vera búinn að losa sig við
efnið,“ segir Daði.
Hann segir aðspurður að ástand
efnahagsmála í heiminum hafi mikil
áhrif á þennan markað.
„Það eru nefndar þrjár ástæður
fyrir því að stálverð er að lækka.
Brotajárnið er beintengt því. Það er í
fyrsta lagi tollastríð milli Bandaríkj-
anna og Tyrklands og í öðru lagi
brexit, sem veldur óvissu sem aftur
veldur því að menn halda að sér
höndum. Í þriðja lagi er almennt að
hægjast á efnahagslífinu í heiminum
sem leiðir til minnkandi eftirspurnar
eftir stáli,“ segir Daði.
Mikið dregið úr niðurrifi
Þá segir hann aðspurður að dregið
hafi úr niðurrifi bygginga eftir mikið
framkvæmdaskeið. Til dæmis hafi
stórhýsi verið rifin í Vogahverfinu
fyrir nýja Vogabyggð. Við það falli
að langmestu leyti til steinsteypa en
einnig eitthvað af brotajárni. Fram
undan sé niðurrif á gamla Íslands-
Brotajárnsverð í Kauphöllinni í London*
Frá ársbyrjun til 22. október 2019, bandaríkjadalir á tonn
400
350
300
250
200
*Heimild: The London Metal Exchange (LME)
253,50
dalir á tonn
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt
bankahúsinu á Kirkjusandi en fátt
meira. Hægt hafi á hagkerfinu.
„Ég held að það sé búið að byggja
öll hótel sem þarf að byggja á Íslandi
fyrir næstu 100 árin,“ segir Daði í
dæmaskyni.
Hægir á endurnýjun
„Svo eru það bílarnir. Það má ætla
að þaðan komi 20-30% af öllu brota-
járni sem fellur til á Íslandi. Á síð-
ustu árum hafa verið fluttir inn
margir bílaleigubílar sem eru nú að
koma á almenna markaðinn. Það
ryður burt gömlum skrjóðum. Nú er
hins vegar að hægja á endurnýjun
bílaleigubíla vegna fækkunar ferða-
manna. Eftir algjört metár 2018
sjáum við fram á hægari tíma.“
Verðfall á brotajárni í ár
Forstjóri Hringrásar segir tolla Bandaríkjastjórnar á Tyrkland hafa áhrif
Þá sé bent á Brexit og óvissu í heimshagkerfinu sem skýringar á lækkunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verðmæti Spurn eftir brotajárni veitir vísbendingu um hagsveifluna. Hér er járni safnað saman hjá Hringrás.
Verð á kopar til
endurvinnslu í LME*
Frá ársbyrjun til 22. okt. 2019
6.750
6.250
5.550
5.250
j f m a m j j á s o
5.794
dalir á tonn
*H
ei
m
ild
: T
he
L
on
do
n
M
et
al
E
xc
ha
ng
e
(L
M
E)
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019
Engar tímapantanir
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Góð passamynd
skiptir máli
Fyrir passann, ökuskírteinið, ferilskrána o.fl.Skjót
og hröð
þjónust
a
Umhverfisráðuneytið hefur samið
við Borgarbyggð um framkvæmdir
við bílastæði og salernishús við foss-
inn Glanna og gróðurvinina Para-
dísarlaut í Norðurárdal í Borgar-
firði. Ríkið ver 13 milljónum kr. til
verkefnisins á rúmum tveimur árum,
í samræmi við landsáætlun um upp-
byggingu innviða til verndar náttúru
og menningarsögulegum minjum.
Glanni er fallegur foss í Norðurá.
Skammt frá er Paradísarlaut í Grá-
brókarhrauni, gróðurvin með vatns-
lindum, í landi Hreðavatns. Eru
þessar náttúruminjar á jaðri svæðis
á náttúruminjaskrá og vinsæll
áfangastaður ferðafólks. Ferðafólki
sem þangað leggur leið sína hefur
fjölgað mjög á undanförnum árum.
Landeigendur framkvæma
Samkvæmt samningi við ríkið sem
bæjarráð Borgarbyggðar hefur sam-
þykkt á að setja upp salernishús úr
timbri í ár og undirbúa 1.500 fer-
metra bílastæði. Á næsta ári á að
malbika bílastæðið og ganga frá því.
Lokafrágangur fer síðan fram vorið
2021.
Landið er í einkaeigu og felur
Borgarbyggð landeigendum verkið
en ber ábyrgð á framkvæmdinni
gagnvart ríkinu. Landeigendur eign-
ast mannvirkin. helgi@mbl.is
Aðstaða verður bætt við
Glanna og Paradísarlaut
Ríkið leggur 13 milljónir í salernishús og bílastæði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Glanni Á vorin er hægt að sjá laxa
reyna sig við fossinn á leið upp ána.
Yngvi Harðar-
son, hagfræð-
ingur og
framkvæmda-
stjóri Analy-
tica, segir
verð á brota-
járni í haust
hafa náð lág-
marki áður en
Trump setti
50% toll á tyrkneskt stál 14.
október sl. Verðþróunin endur-
spegli stöðuna í heimsmál-
unum. Tollastríðin hafi bein
áhrif á stálmarkaðinn. Þegar
hindranir séu settar í vegi við-
skipta milli hagkerfa bitni það
á umsvifum og komi niður á
heimshagkerfinu. Það hafi síð-
an neikvæð áhrif á verðið. Þá
hafi Brexit haft neikvæð áhrif
með því að valda óvissu sem
aftur leiði til minni fjárfest-
ingar. Það ásamt viðskiptastríði
Kína og Bandaríkjanna vegi
þyngst.
Yngvi segir margt skýra að
hægt hafi á heimskerfinu. Nú-
verandi hagvaxtarskeið sé orðið
langt og „ýmsar hagstærðir
orðnar spenntar“.
„Því er í sjálfu sér kominn
tími á einhvers konar leiðrétt-
ingu. Spurningin er hvað muni
leiða til hennar og á hvaða
tímapunkti,“ segir Yngvi. Leið-
andi hagvísar Efnahags- og
framfarastofnunar Evrópu
(OECD) hafi undanfarið bent til
að verulega sé að hægja á
stærstu hagkerfum.
„Þótt hagvísirinn fyrir Kína
hafi lækkað mikið gæti landið
þó hafa fundið sér viðspyrnu.
Evrópa stefnir enn í áberandi
niðursveiflu. Þá eru ýmis óleyst
vandamál í Evrópu eftir fjár-
málahrunið 2008. Ríkin eru dá-
lítið komin upp að vegg. Þau
hafa ekki lengur sömu úrræði
til að bregðast við stöðunni,“
segir Yngvi sem telur verðþró-
un á kopar betri mælikvarða á
heimshagkerfið en brotajárn.
„Stundum er rætt um að kopar
hafi doktorspróf í hagfræði. Þar
hafa sértæk áhrif af tolla-
stríðinu ekki verið eins áber-
andi. Verð á kopar virðist vera
orðið stöðugt,“ segir Yngvi.
Það geti aftur bent til væntinga
um að draga muni úr óvissu á
mörkuðum.
Víxlverkandi
áhrif tollastríðs
HAGFRÆÐINGUR
BENDIR Á „DR. KOPAR“
Yngvi Harðarson