Morgunblaðið - 25.10.2019, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019
Verslun Snorrabraut 56, 105 Reykjavík | Sími 588 0488 | feldur.is
Hlýjar og
fallegar
úlpur
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Fyrir mér er það að skrifa fullkominafþreying. Þannig hvílist ég. Núnaer ég eina stundina að skrifadoktorsritgerð en hina stundina að
skrifa glæpasögu. Mér finnst gott að fást við
tvennt svo gjörólíkt á sama tíma. Að skrifa
glæpasögur finnst mér fyrst og fremst
gaman,“ segir Fritz Már Jörgensson, prestur í
Keflavíkurkirkju, sem sendi í sumar frá sér
fimmtu glæpasögu sína, Líkið í kirkjugarð-
inum. Næsta bók, sem hann vinnur að núna,
verður einnig sumarbók í
kiljuformi og mun koma út
að liðnum þessum vetri.
„Núverandi útgefandi
minn hjá Uglu vill meina að
það séu ekki margir prestar
að skrifa glæpasögur, en ég
skrifa glæpasögur af því að
mér finnst slíkar sögur
æðislegar og hefur alltaf
þótt. Ég var ungur þegar
ég kynntist norrænum
glæpasögum eftir Per Wahlöö, Maj Sjöwall og
fleiri. Það sem mér finnst frábært við hina nor-
rænu glæpasagnahefð er að innan hennar
rúmast svo mikið, ekki aðeins glæpurinn sjálf-
ur þar sem spennan liggur, heldur líka sam-
félagið, tilfinningar og fólk af holdi og blóði í
öllum sínum breyskleika,“ segir Fritz og bætir
við að hann hafi verið bókaormur alveg frá því
hann var lítill strákur.
„Ég hef alla tíð lesið mikið og er ævinlega
með margar bækur í einu á náttborðinu. Ég
elska að byrja að lesa nýja bók og detta þannig
inn í ókunnan heim.“
Vinur fór með handrit til útgefanda
Fritz var aðeins um tvítugt þegar hann
skrifaði fyrstu drög sín að bók og hélt síðan
áfram að skrifa þar til vatnaskil urðu fyrir tólf
árum þegar fyrsta bókin hans kom út.
„Það kom þannig til að ég og félagi minn
vorum saman í vinnuferð í Þýskalandi árið
2006 og ég gat lítið gert með honum fyrir utan
vinnu því ég var svo upptekinn við að klára að
skrifa glæpasögu. Ég var staddur á svo spenn-
andi stað í sögunni að ég gat ekki hætt. Hann
varð forvitinn og bað um að fá að lesa hand-
ritið. Þegar heim var komið fór þessi vinur
minn með handritið til útgefanda í Skjaldborg,
sem vildi gefa bókina út. Fjórar glæpasögur
hafa bæst við síðan þá en auk þess gerði ég
matreiðslubók með kokkalandsliðinu.“
Í nýjustu bók Fritz er aðalpersónan
presturinn Sigrún og segir Fritz að margir
hafi spurt hann hvort fyrirmynd hennar sé
konan hans Díana Ósk, en hún er prestur í
raunheimum.
„Þetta er ekki hún Día mín og hefur ekk-
ert með hana að gera, enda væri ég þá í vond-
um málum,“ segir hann og hlær.
„Þetta er fyrsta bókin mín þar sem prest-
ur er ein af aðalpersónunum og hún séra Sig-
rún verður líka í næstu bók. Mér finnst svo
skemmtilegt í norrænu glæpasagnahefðinni að
maður hefur leyfi til að halda áfram með per-
sónur bókanna í nýjum bókum, sem standa
samt alveg sjálfstæðar,“ segir Fritz, sem játar
að hann hafi eflst sem rithöfundur eftir að
hann varð prestur. „Auðvitað hefur starfið haft
áhrif á allt líf mitt og það sem ég geri, líka
skrifin. Ég sé ákveðna hluti í öðru ljósi en
áður, til dæmis umgengst ég dauðann mikið í
prestsstarfinu, í öllum hans birtingar-
myndum.“
Hef aldrei skammast mín fyrir trúna
Fritz vígðist til prests óvenju seint á æv-
inni, þegar hann var 54 ára.
„Þegar ég sagðist ætla að verða prestur
voru einhverjir sem spurðu hvort það væri
ekki allt í lagi með mig. Ég hef aldrei skamm-
ast mín fyrir trú mína, en mörgum finnst erfitt
að segja að þeir séu trúaðir, líka þeim sem eru
með sína fallegu íslensku barnatrú. Ég er
prestur af því að ég fékk köllun. Árið 1995 var
staða mín þannig að ég fór að endurskoða líf
mitt, ég fór í meðferð og fór í gegnum tólf
spora kerfið þar sem æðri máttur er lykil-
atriði, því þegar maður er fíkill þarf maður ein-
hvern sem er æðri en maður sjálfur. Smám
saman áttaði ég mig á að fyrir mig var æðri
máttur Guð. Ég fór að skoða trúna og ég varð
fyrir trúarupplifun. Það gerðust hlutir í lífi
mínu sem urðu til þess að ég breyttist,“ segir
Fritz, sem var KFUM-strákur á bernskuárum
sínum.
„Ég hef alltaf átt mína trú, líka þegar ég
var á villuvegum. Eftir þessa upplifun fór
trúarþörf mín að vaxa og köllun mín var þann-
ig að sú hugsun fór að knýja á að ég ætti að
fara í guðfræðinám. Ég ákvað að prófa og tók
einn kúrs í guðfræði og síðan hef ég lokið emb-
ættisprófi í guðfræði auk meistaragráðu í guð-
fræði og prófi á meistarastigi í áfengis- og
vímuefnafræðum frá félagsráðgjafadeild HÍ.
Það gerði ég til að verða færari í sálgæslunni,
en fólk leitar meira til presta í sálgæslu en
áður, það jókst mikið eftir hrun af því að marg-
ir hafa ekki efni á þeim úrræðum sem eru í
boði. Prestar taka á móti sóknarbörnum sínum
án endurgjalds. Það er mikill skóli fyrir mig að
fá fólk til mín í sálgæslu, en fólk þarf fyrst og
fremst einhvern til að hlusta, segja upphátt frá
vanda sínum,“ segir Fritz og bætir við að hon-
um finnist starf prestsins bæði margslungið og
skemmtilegt.
Séra sem er sjúkur í glæpasögur
Hann hefur alla tíð verið mikill
aðdáandi glæpasagna og hefur
skrifað fimm slíkar sögur sjálfur.
Séra Fritz Már segir starf prests-
ins efla sig í bókaskrifunum.
Morgunblaðið/Eggert
Í friðargarðinum Fritz segir starf prestsins margslungið og skemmtilegt, en hann vígðist til prests þegar hann var orðinn 54 ára.
Skagfirðingarnir Geirmundur Valtýs-
son og Álftagerðisbræður verða í
sviðsljósinu sunnan heiða um
helgina.
Geirmundur
fyllti Salinn í
Kópavogi á tvenn-
um afmælistón-
leikum á dög-
unum og auka-
tónleikar verða á
sama stað í kvöld
klukkan 20. Álfta-
gerðisbræður
hafa tilkynnt að
þeir ætli að
kveðja stóra sviðið í Reykjavík með
tónleikum í Eldborg í Hörpu klukkan
20 annað kvöld og sunnudagskvöld.
Þeir voru með tónleika í Miðgarði í
Varmahlíð í gærkvöldi en verða þar
aftur í kvöld og síðan 1. nóvember.
Langur ferill
Geirmundur átti 60 ára opinberan
tónlistarferil að baki í fyrra og rifjar
upp þetta tímabil með hljómsveit
undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar,
en Helga Möller, Diddú og Ari Jóns-
son syngja með honum.
Álftagerðisbræðurnir Óskar, Sig-
fús, Pétur og Gísli Péturssynir hafa
skemmt landsmönnum í áratugi og
þakka fyrir sig með hljómsveit og
strengjasveit undir stjórn Stefáns R.
Gíslasonar.
Skagfirsk tónlistarinnrás í Kópavogi og Reykjavík
Geirmundur og Álftagerðis-
bræður skemmta með tónleikum
Ljósmynd/Mummi Lú
Álftagerðisbræður Skagfirðingarnir hafa víða komið fram á löngum ferli.
Geirmundur
Valtýsson