Morgunblaðið - 25.10.2019, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019
Vetrarríki Krakkarnir á Húsavík voru ekki lengi að klæða sig í kuldagalla og grípa með sér snjóþotu þegar ljóst var að snjór lá þar yfir öllu. Þau sem fyrir sunnan eru þurfa þó flest að bíða.
Hafþór Hreiðar
Veröldin er eins og
nótt í Róm. Göturnar
liggja hver um aðra
þvera, hver veit hvert?
Sumir sofa sumir vaka;
sumir fæðast aðrir
deyja. Þessi lýsing á vel
við Sjálfstæðisflokkinn
um þessar mundir. Göt-
urnar í flokknum liggja
hver um aðra þvera.
Svo virðist sem fleiri
deyi frá flokknum en þeir sem fæðast
til hans. Allt of fáum virðist það ljóst
hvert flokkurinn ætlar. Sjálfstæð-
isflokkurinn er flokkur borgaralegra
víðsýnna afla og hann má aldrei
verða gæsluflokkur sérhagsmuna.
Ef við berum flokkinn saman við
áfengi kemur í ljós að styrkleiki
flokksins nálgaðist viskí styrkleika
fyrir nokkrum árum en nú er flokk-
urinn kominn niður í styrkleika
veikra vína á borð vín frá Porto.
Hvað hefur gerst á götum Rómar?
Úr sterku í milt
Það er kunnara en frá þarf að
segja að Sjálfstæðisflokkurinn hefur
átt aðild að ríkisstjórnum frá 1991 að
undanskildum fjórum árum. Þetta er
mesta hagsældartímabil sem yfir
landið hefur gengið.
Kaupmáttur lægstu launa hefur
hækkað um 145% en almenn aukning
kaupmáttar er sem næst 90% á þessu
tímabili. Þetta stafar af framleiðni-
aukningu sem aflgjafa hagvaxtar.
Laun ráðast að litlu leyti af kjara-
samningum, miklu heldur af fram-
leiðni, stöðugleika og stjórnfestu í
stjórnarfari.
Afleiðingar bankahruns virtust
óyfirstíganlegar. Með upplausn
þrotabúa bankanna komst á lausn
með stöðugleikaframlagi til rík-
issjóðs og losaði landið úr gjaldeyr-
ishöftum án greiðslujafnaðarvanda.
Forysta um stöðugleikaframlag var
öll í höndum ráðherra
Sjálfstæðisflokksins.
Það er frelsi.
Sigrar
Fjármálaráðherra tí-
undar þá sigra sem leitt
hafa til þessa ástands.
Það er ekki vanþakk-
læti kjósenda að snúa
baki við Sjálfstæðis-
flokknum, heldur eru
væntingar ekki upp-
fylltar. Einhver ör-
vænting snýr fólki til
fylgis við aðra flokka, Samfylkingu
eða Miðflokk, sem hegða sér með
óráðshjali eins og pólitískir vinda
blása hverju sinni. Nægir þar að
nefna óráðshjal um orkumál.
Afturköllun aðildarumsóknar
Til hvers í ósköpunum þurfti Sjálf-
stæðisflokkurinn að vera þátttakandi
í því að styðja afturköllun aðild-
arumsóknar að Evrópusambandinu?
Vissulega var enginn möguleiki á því
að umræða um aðildarumsókn kæm-
ist á dagskrá Alþingis. Sofandi aðild-
arumsókn gerði ekkert mein. Aft-
urköllun aðildarumsóknar að
Evrópusambandinu skapaði grund-
völl fyrir Viðreisn. Frumkvæði að
afturköllun kom frá þeim er síðar
urðu Klausturmunkar Miðflokksins.
Samstaða
Þegar loksins tekst að berja sam-
an yfirlit um framkvæmdir á höf-
uðborgarsvæðinu í uppbyggingu inn-
viða, en það svæði hefur setið á
hakanum svo árum skiptir, þá er það
svo að sveitarfélög utan Reykjavíkur
á höfuðborgarsvæðinu standa sam-
an, en Sjálfstæðisflokkurinn í
Reykjavík er sér á parti. Vissulega er
gjaldtaka óútfærð en það er mikil-
vægt að standa saman í þessu verk-
efni.
Er nú ekki lágmark að félagar í
Sjálfstæðisflokknum standi saman
yfir landmæri bæjarfélaga? Vanda-
mál í samgöngum skapa óánægju.
Greiðar samgöngur skapa ánægju.
Ánægja og óánægja
Með því að fjarlægja þætti, sem
valda óánægju er ekki víst að ánægja
og hamingja aukist. Óánægja vegna
eftirmála hruns fjármálastofnana
hefur að mestu verið fjarlægð, en það
dugar ekki til. Jákvæðar væntingar
skapa ánægju.
Það er í raun bjart fram undan í
efnahagsmálum enda þótt dregið hafi
tímabundið úr hagvexti og þenslu.
Mesta ógn sem íslenskur vinnumark-
aður stendur andspænis er hvernig
Icelandair vinnur úr málefnum Bo-
eing MAX-flugvéla í eigu félagsins.
Tekjur ríkissjóðs af ofurvexti í
ferðaþjónustu eru sennilega sem
næst 35 milljarðar umfram það sem
eðlilegt er í sögulegu samhengi út-
flutningsstarfsemi á Íslandi. Þá dett-
ur fólki í hug náttúrupassi! Hvaða
áhrif hafði náttúrupassi á kjörfylgi
Sjálfstæðisflokksins?
Í ferðaþjónustu eru frumkvöðlar
sem eiga heima í Sjálfstæðisflokkn-
um og frumkvæði ber að styðja.
Það er hægt að kortleggja
óánægju. Óánægju má lægja með
réttmætum væntingum og aðgerð-
um. Það er óásættanlegt að það skuli
vera mánaða bið eftir liðskiptaað-
gerðum. Líkamlegar kvalir valda
óánægju.
Bið eftir samgöngubótum skapar
óánægju. Eftir að Austfirðingar og
landsmenn allir fengu göng um Al-
mannaskarð urðu miklar væntingar
um úrlausn samgöngumála í fjórð-
ungnum með jarðgöngum. Fáskrúðs-
fjarðargöng og Norðfjarðargöng
skapa frekari væntingar um göng.
Almannatryggingar, lægstu
laun og eldri borgarar
Hvernig hafa greiðslur almanna-
trygginga þróast miðað við breyt-
ingar á lægstu launum? Lægstu laun
hafa hækkað langt umfram almenna
launaþróun. Sjálfstæðiflokkurinn
þarf að hafa forystu um að vera sífellt
á verði um kjör þeirra sem eru alfar-
ið háðir greiðslum frá almannatrygg-
ingakerfi.
Það er óþarfi að tala um alla eldri
borgara sem hóp með slæma stöðu.
Margir eldri borgarar hafa það gott
og það er þakkarvert. Það ber að
styðja eldri borgara að komist í að
verða fjárhagslega sjálfstæðir án
þess að það verði fyrir milligöngu al-
mannatrygginga. Frjáls sparnaður
er nefnilega ein stoð almannatrygg-
inga.
Hver er staða nú?
Það er rétt að íhuga stöðu mála í
íslensku efnahagslífi. Besti mæli-
kvarði á efnahagslegan stöðugleika
er verðbólga. Verðbólga frá ársbyrj-
un 2013 hefur verið um 2,34% að
meðaltali á ári. Það er lítil verðbólga í
sögulegu samhengi. Það er óðaverð-
bólga sem rústar eftirlaunum. Vextir
eru í sögulegu lágmarki. Það er af-
gangur af utanríkisviðskiptum og
jafnvægi í ríkisfjármálum. Stöðug-
leiki í efnahagsmálum er ávísun á
lífskjarabata.
Við þessi skilyrði er allt í einu
flokkur undir forystu fúllynds Ak-
ureyrings að auka fylgi sitt. Alger-
lega óverðskuldað.
90 ár og næstu tvö ár
Níutíu ára Sjálfstæðisflokkur á
ekki í vændum eilífan aldur ef afmæl-
ið gengur fyrst og fremst út á að
bjóða forystumönnum annarra
flokka upp á brauð og tertu. Darwin
talar um aðlögun. Er Sjálfstæð-
isflokkurinn aðlaðandi eða aflaðandi?
Hvernig standa kynningarmál Sjálf-
stæðisflokksins? Hver er sýnileiki
þingmanna Sjálfstæðisflokksins á
menningarviðburðum? Þingmenn
flokksins eru mestan part ósýnilegir.
Það er svo að aðeins örfáir vita
hverjir eru alþingismenn Sjálfstæð-
isflokksins nú um stund. Þeir þurfa
að spyrna í botninn. Eða er betra að
hafa þá í kafi áfram?
Það eru innan við tvö ár til næstu
kosninga. Hvað ætlar Sjálfstæðis-
flokkurinn að bjóða upp á annað en
vín í búðir? Það er af nægu að taka.
Viðspyrna í botn
Þingmenn verða að spyrna í botn-
inn, koma úr kafi og láta sjá sig. Tala
við kjósendur, hlusta og útskýra á
máli sem skilst.
Það eru innan við tvö ár til næstu
kosninga. Er ekki rétt fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn að skerpa á sinni
framtíðarsýn og stefnu fyrir Ísland?
Hvers konar pólitík á flokkurinn
að reka og hvernig getur hann skap-
að sér skýrari aðgreiningu frá öðrum
flokkum á Alþingi; ekki bara til að
vera öðru vísi heldur til að gera gagn,
skapa lífsgæði og ánægju umfram
fúllyndi annarra stjórnmálaflokka.
Styrkleiki
Styrkleiki flokksins felst ekki í því
að bjóða upp á fleiri vínfrumvörp eða
náttúrupassa. Það er enginn vín-
skortur í landinu. Það þarf einfald-
lega að kynna hin fjölmörgu góðu
stefnumál flokksins, tala um stefnu-
mál við fólk og nýta flokksmenn um
land allt við það verkefni.
Sjálfstæðisflokkurinn er í grunn
víðsýnn nýsköpunarflokkur; rekja
má nær alla nýsköpun, framfarir og
bætt lífskjör í landinu síðustu 90 árin
til stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Eftir Vilhjálm
Bjarnason » Það eru innan við
tvö ár til næstu
kosninga. Hvað ætlar
Sjálfstæðisflokkurinn
að bjóða upp á annað
en vín í búðir? Það er
af nægu að taka.
Vilhjálmur Bjarnason
Höfundur var alþingismaður.
Að ná botni og viðspyrna