Morgunblaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019 Vetrarríki Krakkarnir á Húsavík voru ekki lengi að klæða sig í kuldagalla og grípa með sér snjóþotu þegar ljóst var að snjór lá þar yfir öllu. Þau sem fyrir sunnan eru þurfa þó flest að bíða. Hafþór Hreiðar Veröldin er eins og nótt í Róm. Göturnar liggja hver um aðra þvera, hver veit hvert? Sumir sofa sumir vaka; sumir fæðast aðrir deyja. Þessi lýsing á vel við Sjálfstæðisflokkinn um þessar mundir. Göt- urnar í flokknum liggja hver um aðra þvera. Svo virðist sem fleiri deyi frá flokknum en þeir sem fæðast til hans. Allt of fáum virðist það ljóst hvert flokkurinn ætlar. Sjálfstæð- isflokkurinn er flokkur borgaralegra víðsýnna afla og hann má aldrei verða gæsluflokkur sérhagsmuna. Ef við berum flokkinn saman við áfengi kemur í ljós að styrkleiki flokksins nálgaðist viskí styrkleika fyrir nokkrum árum en nú er flokk- urinn kominn niður í styrkleika veikra vína á borð vín frá Porto. Hvað hefur gerst á götum Rómar? Úr sterku í milt Það er kunnara en frá þarf að segja að Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt aðild að ríkisstjórnum frá 1991 að undanskildum fjórum árum. Þetta er mesta hagsældartímabil sem yfir landið hefur gengið. Kaupmáttur lægstu launa hefur hækkað um 145% en almenn aukning kaupmáttar er sem næst 90% á þessu tímabili. Þetta stafar af framleiðni- aukningu sem aflgjafa hagvaxtar. Laun ráðast að litlu leyti af kjara- samningum, miklu heldur af fram- leiðni, stöðugleika og stjórnfestu í stjórnarfari. Afleiðingar bankahruns virtust óyfirstíganlegar. Með upplausn þrotabúa bankanna komst á lausn með stöðugleikaframlagi til rík- issjóðs og losaði landið úr gjaldeyr- ishöftum án greiðslujafnaðarvanda. Forysta um stöðugleikaframlag var öll í höndum ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Það er frelsi. Sigrar Fjármálaráðherra tí- undar þá sigra sem leitt hafa til þessa ástands. Það er ekki vanþakk- læti kjósenda að snúa baki við Sjálfstæðis- flokknum, heldur eru væntingar ekki upp- fylltar. Einhver ör- vænting snýr fólki til fylgis við aðra flokka, Samfylkingu eða Miðflokk, sem hegða sér með óráðshjali eins og pólitískir vinda blása hverju sinni. Nægir þar að nefna óráðshjal um orkumál. Afturköllun aðildarumsóknar Til hvers í ósköpunum þurfti Sjálf- stæðisflokkurinn að vera þátttakandi í því að styðja afturköllun aðild- arumsóknar að Evrópusambandinu? Vissulega var enginn möguleiki á því að umræða um aðildarumsókn kæm- ist á dagskrá Alþingis. Sofandi aðild- arumsókn gerði ekkert mein. Aft- urköllun aðildarumsóknar að Evrópusambandinu skapaði grund- völl fyrir Viðreisn. Frumkvæði að afturköllun kom frá þeim er síðar urðu Klausturmunkar Miðflokksins. Samstaða Þegar loksins tekst að berja sam- an yfirlit um framkvæmdir á höf- uðborgarsvæðinu í uppbyggingu inn- viða, en það svæði hefur setið á hakanum svo árum skiptir, þá er það svo að sveitarfélög utan Reykjavíkur á höfuðborgarsvæðinu standa sam- an, en Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík er sér á parti. Vissulega er gjaldtaka óútfærð en það er mikil- vægt að standa saman í þessu verk- efni. Er nú ekki lágmark að félagar í Sjálfstæðisflokknum standi saman yfir landmæri bæjarfélaga? Vanda- mál í samgöngum skapa óánægju. Greiðar samgöngur skapa ánægju. Ánægja og óánægja Með því að fjarlægja þætti, sem valda óánægju er ekki víst að ánægja og hamingja aukist. Óánægja vegna eftirmála hruns fjármálastofnana hefur að mestu verið fjarlægð, en það dugar ekki til. Jákvæðar væntingar skapa ánægju. Það er í raun bjart fram undan í efnahagsmálum enda þótt dregið hafi tímabundið úr hagvexti og þenslu. Mesta ógn sem íslenskur vinnumark- aður stendur andspænis er hvernig Icelandair vinnur úr málefnum Bo- eing MAX-flugvéla í eigu félagsins. Tekjur ríkissjóðs af ofurvexti í ferðaþjónustu eru sennilega sem næst 35 milljarðar umfram það sem eðlilegt er í sögulegu samhengi út- flutningsstarfsemi á Íslandi. Þá dett- ur fólki í hug náttúrupassi! Hvaða áhrif hafði náttúrupassi á kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins? Í ferðaþjónustu eru frumkvöðlar sem eiga heima í Sjálfstæðisflokkn- um og frumkvæði ber að styðja. Það er hægt að kortleggja óánægju. Óánægju má lægja með réttmætum væntingum og aðgerð- um. Það er óásættanlegt að það skuli vera mánaða bið eftir liðskiptaað- gerðum. Líkamlegar kvalir valda óánægju. Bið eftir samgöngubótum skapar óánægju. Eftir að Austfirðingar og landsmenn allir fengu göng um Al- mannaskarð urðu miklar væntingar um úrlausn samgöngumála í fjórð- ungnum með jarðgöngum. Fáskrúðs- fjarðargöng og Norðfjarðargöng skapa frekari væntingar um göng. Almannatryggingar, lægstu laun og eldri borgarar Hvernig hafa greiðslur almanna- trygginga þróast miðað við breyt- ingar á lægstu launum? Lægstu laun hafa hækkað langt umfram almenna launaþróun. Sjálfstæðiflokkurinn þarf að hafa forystu um að vera sífellt á verði um kjör þeirra sem eru alfar- ið háðir greiðslum frá almannatrygg- ingakerfi. Það er óþarfi að tala um alla eldri borgara sem hóp með slæma stöðu. Margir eldri borgarar hafa það gott og það er þakkarvert. Það ber að styðja eldri borgara að komist í að verða fjárhagslega sjálfstæðir án þess að það verði fyrir milligöngu al- mannatrygginga. Frjáls sparnaður er nefnilega ein stoð almannatrygg- inga. Hver er staða nú? Það er rétt að íhuga stöðu mála í íslensku efnahagslífi. Besti mæli- kvarði á efnahagslegan stöðugleika er verðbólga. Verðbólga frá ársbyrj- un 2013 hefur verið um 2,34% að meðaltali á ári. Það er lítil verðbólga í sögulegu samhengi. Það er óðaverð- bólga sem rústar eftirlaunum. Vextir eru í sögulegu lágmarki. Það er af- gangur af utanríkisviðskiptum og jafnvægi í ríkisfjármálum. Stöðug- leiki í efnahagsmálum er ávísun á lífskjarabata. Við þessi skilyrði er allt í einu flokkur undir forystu fúllynds Ak- ureyrings að auka fylgi sitt. Alger- lega óverðskuldað. 90 ár og næstu tvö ár Níutíu ára Sjálfstæðisflokkur á ekki í vændum eilífan aldur ef afmæl- ið gengur fyrst og fremst út á að bjóða forystumönnum annarra flokka upp á brauð og tertu. Darwin talar um aðlögun. Er Sjálfstæð- isflokkurinn aðlaðandi eða aflaðandi? Hvernig standa kynningarmál Sjálf- stæðisflokksins? Hver er sýnileiki þingmanna Sjálfstæðisflokksins á menningarviðburðum? Þingmenn flokksins eru mestan part ósýnilegir. Það er svo að aðeins örfáir vita hverjir eru alþingismenn Sjálfstæð- isflokksins nú um stund. Þeir þurfa að spyrna í botninn. Eða er betra að hafa þá í kafi áfram? Það eru innan við tvö ár til næstu kosninga. Hvað ætlar Sjálfstæðis- flokkurinn að bjóða upp á annað en vín í búðir? Það er af nægu að taka. Viðspyrna í botn Þingmenn verða að spyrna í botn- inn, koma úr kafi og láta sjá sig. Tala við kjósendur, hlusta og útskýra á máli sem skilst. Það eru innan við tvö ár til næstu kosninga. Er ekki rétt fyrir Sjálf- stæðisflokkinn að skerpa á sinni framtíðarsýn og stefnu fyrir Ísland? Hvers konar pólitík á flokkurinn að reka og hvernig getur hann skap- að sér skýrari aðgreiningu frá öðrum flokkum á Alþingi; ekki bara til að vera öðru vísi heldur til að gera gagn, skapa lífsgæði og ánægju umfram fúllyndi annarra stjórnmálaflokka. Styrkleiki Styrkleiki flokksins felst ekki í því að bjóða upp á fleiri vínfrumvörp eða náttúrupassa. Það er enginn vín- skortur í landinu. Það þarf einfald- lega að kynna hin fjölmörgu góðu stefnumál flokksins, tala um stefnu- mál við fólk og nýta flokksmenn um land allt við það verkefni. Sjálfstæðisflokkurinn er í grunn víðsýnn nýsköpunarflokkur; rekja má nær alla nýsköpun, framfarir og bætt lífskjör í landinu síðustu 90 árin til stefnu Sjálfstæðisflokksins. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Það eru innan við tvö ár til næstu kosninga. Hvað ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að bjóða upp á annað en vín í búðir? Það er af nægu að taka. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Að ná botni og viðspyrna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.