Morgunblaðið - 25.10.2019, Side 16

Morgunblaðið - 25.10.2019, Side 16
16 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019 Landvernd, landgræðslu- og náttúruverndarsamtök Ís- lands, hefur í haust starfað í 50 ár. Hvað tekur langan tíma að lagfæra það sem betur má fara í íslensku samfélagi? Getur verið að enn sé þörf fyrir sam- tök eins og Landvernd eftir öll þessi ár þar sem mikilvægi náttúru- og umhverfisverndar er tíundað í ræðu og riti? Því miður hefur náttúruverndin fram til þessa verið meira í orði en á borði, og því er svarið já. Í upphafi lögðu samtökin áherslu á gróður- og jarðvegs- vernd. Jarðvegur Íslands var að fjúka út í buskann. Þjóðin var bókstaflega að missa fót- festuna, sjálfan grundvöll lífs- ins. Sá vandi er minni í dag, en mikið er þó enn óunnið á þessu sviði. Þau félög og einstaklingar sem stofnuðu Landvernd haustið 1969 gerðu sér ekki í hugarlund að framundan væru sífellt fleiri viðfangsefni sem taka þyrfti á: deilur um virkj- anir, umgengni við úrgang og fráveitur, þverun fjarða, loft- mengun, verndun víðerna og stofnun þjóðgarða og friðlýs- ing verðmætra svæða. Þegar samtökin voru stofnuð voru orð eins og mengun varla til í íslensku, hvað þá loftslagsvá og hamfarahlýnun, súrnun sjávar og plastmengun og plastagnir í umhverfinu. Landvernd hefur starfað í takt við tímann og tekist á við þau viðfangsefni sem við blasa óháð því hvaða stjórnmála- flokkar halda um landstjórn- ina. Samtökin voru og eru gagnrýnin rödd. En einnig rödd sem bendir á lausnir og leiðir til að takast á við ágrein- ingsmál með rökum og þekk- ingu. Það var á vettvangi Land- verndar sem hugmyndir um rammaáætlun voru þróaðar og prófaðar. Það var Landvernd sem hóf baráttuna gegn of- notkun plastpoka með stofnun Pokasjóðs og benti á þörfina fyrir umhverfisráðuneyti, sem þó var ekki stofnað fyrr en ár- ið 1989. Það var Landvernd sem greindi og mótaði hug- myndir um aðgerðir gegn los- un gróðurhúsalofttegunda lið- lega áratug áður en stjórnvöld fóru að taka þetta viðfangsefni alvarlega. Það var Landvernd sem stofnaði og rak fyrsta náttúruskóla landsins og kom með grænfána til að hvetja skóla til dáða í umhverfis- málum. Vissulega hefur ýmislegt áunnist á hálfri öld. En vand- inn sem við blasir virðist því miður bara vaxa. Enn sem fyrr eru sterkir hagsmuna- aðilar, gróðahyggja og skammsýnir stjórnmálamenn helsta hindrunin á veginum til sjálfbærrar þróunar. En við, hvert og eitt okkar, erum einn- ig hindrun þar sem við eigum erfitt með að tileinka okkur lífsgildi sem eru forsenda þess að vel fari. Verndun náttúruarfsins er í dag eitt meginviðfangsefni Landverndar, eins og kristall- ast til dæmis um þessar mund- ir í áherslu samtakanna á að koma í veg fyrir áformaða Hvalárvirkjun. Landvernd tel- ur að nú sé komið meira en nóg af framkvæmdum sem spilla verðmætum náttúruarfi þjóðarinnar. Náttúran er verð- mætasti lífeyrissjóður kom- andi kynslóða. Landvernd byggist á traust- um undirstöðum með yfir 6.000 félaga og 40 aðildarfélög að baki. Þessir bakhjarlar munu veita samtökunum brautargengi næstu árin. Landvernd heldur upp á af- mæli sitt í Norræna húsinu í dag. Þar er einnig ljósmynda- og margmiðlunarsýning. Vertu velkomin(n) í Norræna húsið og í vaxandi hóp Land- verndarfólks. Landvernd á vaktinni í 50 ár Eftir Ingva Þorsteinsson og Tryggva Felixson Ingvi Þorsteinsson » Þegar Land- vernd var stofn- uð 1969 voru hug- tök eins og mengun ekki til, hvað þá loftslagsvá, súrnun sjávar og plastagnir í umhverfinu. Tryggvi er formaður Land- verndar og Ingvi nátt- úrufræðingur og einn stofn- enda Landverndar 1969 tryggvi@landvernd.is Tryggvi Felixson ✝ Sigrún Jó-hanna Jóns- dóttir fæddist 21. janúar 1940. Hún lést 4. október 2019 á Háskóla- sjúkrahúsinu í Laguna á Te- nerife. Foreldrar Sig- rúnar voru Jón Valdimar Jóhanns- son, f. 5. mars 1906, og Guðrún Magnúsdóttir, f. 25. apríl 1908. Systur Sigrúnar eru Anna Magnea, f. 18. nóvember 1929, Ásdís, f. 15. febrúar 1932, Svanhildur, f. 8. nóvember 1942, og Ragnheiður Elín, f. 13. ágúst 1947. ember 1937, Hafsteinn á þrjú börn: Ársæl, f. 14.1. 1958, Bergþóru, f. 23.7. 1961, og Klöru Guðrúnu, f. 9.1. 1965. Sigrún ólst upp á Sjónarhól í Sandgerði alla sína barn- æsku, hún var í sveit fram undir fermingu á Grafarbakka í Hrunamannahrepp og var tvo vetur í Húsmæðraskólanum á Hallormsstað. Sigrún var hús- móðir og bjó lengst af í Reykjavík, seinni ár sín bjó hún í Kjóalandi 9 í Garði. Sig- rún sinnti ýmsum félagsstörf- um, hin síðari ár sótti hún í fé- lagsstörf í Auðarstofu í Garði. Sigrún verður jarðsungin frá Lindarkirkju í dag, 25. október 2019, og hefst athöfn- in klukkan 15. Sigrún eignaðist átta börn og þau eru: Ragnar Korn- elíus, f. 28.9. 1958, Jón Valdimar, f. 9.12. 1959, d. 1.3. 1982, Sigurður Jó- hann, f. 26.7. 1962, Gunnar Ingi, f. 25.2. 1964, d. 27.12. 2002, Ólafía Vigdís, f. 3.6. 1965, Sigrún Edda, f. 11.10. 1966, Ingiberg, f. 13.9. 1969, Sigurgeir, f. 3.5. 1977. Börn, ömmu- og langömmu- börn Sigrúnar eru 53 talsins í dag. Sigrún var gift Hafsteini Ár- sæli Ársælssyni, f. 26. sept- Nú ertu leidd, mín ljúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga og rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. (Hallgrímur Pétursson) Við systurnar vorum engan veginn undir það búnar að fá þær sorgarfréttir að þú hefðir látist á Tenerife, elsku mamma. Við höf- um alltaf haft þig í lífi okkar og vit- um ekki alveg hvernig í veröldinni við eigum að halda lífinu okkar áfram án þín. Það hafa verið mikil forréttindi, elsku mamma, að fá að vera dætur þínar fyrir það erum við þakklátar, þakklátar fyrir að hafa þig í lífi okkar, þakklátar fyr- ir að hafa fengið að hafa þig allan þennan tíma sem þú varst með okkur og fjölskyldum okkar. Þú elskaðir að vera í sól og hita. Ef það birtist sólargeisli þá varstu farin út að njóta þess að sitja í sól- inni. Að vera á sólarströnd var þitt líf og yndi. Tvisvar sinnum fórum við systur ásamt börnum með þér til Spánar. Fyrst 2008 og svo fyrir þremur árum með þér og Haf- steini í 17 daga ferð. Það var ótrú- lega gaman að vera með ykkur þið alltaf svo hress og kát. Þessar ferðir skilja eftir skemmtilegar minningar ásamt ferðlögum með ykkur innanlands. Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn til ykkar Hafsteins. Þið vorum svo hamingjusöm saman. Oftast var skellt í vöfflur með heimagerðri rabarbarasultu og rjóma, rætt um daginn og veginn yfir veitingun- um. Þú vildir fá að vita allt um líf okkar, vildir vita hvernig ömmu- og langömmubörnin hefðu það og hvað þau væru að gera og fá að fara í símana okkar og skoða myndir af þeim. Lífið gaf þér mikið, elsku mamma, en það tók líka frá þér. Þú jafnaðir þig aldrei og áttir erf- itt með að sætta þig við að fá ekki að hafa Nonna og Gunna áfram í lífi þínu, söknuðurinn eftir þeim markaði líf þitt. Þegar lífið var þér erfitt þá sagðir þú iðulega: „Guð leggur ekki meira á mig en ég get borið.“ Æðruleysi þitt sýndi okkur hversu sterk þú varst. Æðruleysi og trú þín á Guð hefur hjálpað þér í gegnum lífið og veitt þér styrk þegar þú þurftir á að halda. Sporin okkar verða þung í dag og kveðju- stundin erfið en við systur hugg- um okkur við fallegar og ljúfar minningar, minningarnar veita okkur styrk, minningar um elsku- lega og góðhjartaða móður sem lét fjölskyldu sína ætíð sig varða og vildi okkur öllum svo vel. Við kveðjum þig með bæninni sem þú kenndir okkur þegar við vorum litlar. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Edda og Ólafía (Óla). Í dag kveð ég mína ástkæru tengdamóður. Fyrir 43 árum var ég svo heppin að koma inn í þessa stóru fjölskyldu og verða strax hluti af henni, þá aðeins 17 ára gömul. Það var alltaf nóg að stúss- ast á Írabakkanum, stórt heimili og ég gleymi aldrei minni fyrstu þvottahúsaferð með tengda- mömmu. Við fórum með þvílíkt magn af þvotti, þarna voru marg- ar þvottavélar, þurrkarar, strau- vél og gat þessi þvottadagur tekið allt að 5-7 klukkutíma enda barn- margt heimili. Það var ósjaldan sem við Raggi reyndum að létta undir og taka einn og einn krakka með okkur í Stórholtið í gistingu eða taka við heimilinu svo hún gæti farið í smá helgar hvíldarferð, sem veitti oft ekki af. Myndarskapurinn hjá tengda- mömmu var mikill og hún var ótrúlega flink saumakona. Hún lét sig ekki muna um að sauma föt á barnahópinn, gardínur og ýmislegt fleira, t.d. fermingarföt dætra sinna. Það síðasta sem hún saumaði fyrir okkur var rúmteppi sem við höldum mikið upp á. Það var alltaf gott að geta komið til hennar og fengið hjálp við sauma- skapinn. Tengdamamma var sterkur karakter og kvartaði ekki. Hún missti syni sína með 20 ára milli- bili og bar ávallt harm sinn í hljóði. Árið 1980 eignuðumst við Raggi okkar fyrsta barn, Gunnar Björgvin (Gosi) sem var jafnframt hennar fyrsta barnabarn og ekki lét hún sig muna um að bæta hon- um í hópinn og passa þegar þess þurfti. Hann kallaði ömmu sína alltaf „ömmu Bjútý“ og gekk hún alltaf undir því nafni hjá strákun- um okkar Gunnari Björgvin (Gosa) og Svavari Dór. Elsku tengdamamma mín var einstök kona og ég er henni þakk- lát fyrir svo margt. Minning um elsku bestu tengdamömmu mína mun lifa. Þín yndislega tengdadóttir Kristín (Stína). Sigrún Jóhanna Jónsdóttir ✝ Karítas LaufeyÓlafsdóttir fæddist 7. júní 1931 í Naustvík á Ströndum. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Sæborg 15. október 2019. Foreldrar henn- ar voru Þórunn Samsonardóttir húsmóðir, f. 16.5. 1891, d. 1986, og Ólafur Magnússon, f. 3.2. 1891, d. 1948, húsmaður á Gjögri og víðar í Víkursveit. Karítas átti fjögur systkini, sem öll eru látin: Bernódus Ólafsson. f. 1919, d. 1996. Her- Ragnar Smári, f. 1954, fyrri kona er Sigurbjörg Hulda Bald- ursdóttir. Börn þeirra eru Hauk- ur Ægir og Leifur Þór. Seinni kona er Kristín Jónsdóttir. Börn þeirra: Jón Ingi, Aðalheiður og Alexander. Gréta Kristíana, f. 1959. Börn hennar eru Theodór Freyr og Aníta Ósk. Árni Geir, f. 1963, maki Herdís Þórunn Jak- obsdóttir. Börn þeirra: Helga Dögg, Silfá Sjöfn og Ásdís Birta. Vala Rós, f. 1966. Maki er Guðlaugur Sigurðsson. Börn þeirra: Þórunn Sif, Sigurður Brynjar og Elmar Ingi. Þórarinn Brynjar, f. 1968. Fyrri kona Linda Sigurðardóttir, börn þeirra: Freyja Sjöfn, Svana Dís og Sigurður Ingvar. Seinni kona Anna Gréta Eyþórsdóttir. Börn þeirra: Karítas Líf og Elías Ey- þór. Jarðsett verður frá Hólanes- kirkju í dag, 25. október 2019, klukkan 14. bert Ólafsson, f. 1920, d. 2007, stúlka Ólafsdóttir, f. 1923, d. 1923, og Jóhanna Björg Ólafsdóttir, f. 1924, d. 2007. Karítas Laufey giftist Ingvari Karli Sigtryggssyni, f. 25.10. 1927, d. 10.7. 1988. Börn þeirra eru: Rúnar Þór, f. 1950. Fyrri kona Guðrún Ólafs- dóttir, dóttir þeirra er Perla. Seinni kona er Rósa Margrét Sigursteinsdóttir. Börn þeirra: Sigrún Eva, Katrín Laufey og Sigursteinn Ingvar. Í dag fylgjum við góðri konu síðasta spölinn. Kaja amma var einstök kona, með hjarta úr gulli en einnig húmor í dekkri kant- inum. Það er ótrúlegt hvaða minningar koma upp í hugann þegar ég rifja upp tímann okkar saman. Þar má nefna óþrjótandi þolinmæði fyrir hverri tískusýn- ingunni á fætur annarri þegar við Alla frænka komumst í slæðusafnið hennar. Það að hún hafi í alvörunni leyft okkur Tedda frænda að spila fótbolta, svo dögum skipti, í glæsilegum garðinum hennar á Bogabraut- inni, með tilheyrandi skemmdum á blómabeðum sem hún hafði lagt mikla vinnu í að halda fal- legum. Glottið þegar hún napp- aði mig við að stelast í kandís í eldhúsinu. Ilmur af rjúpum þeg- ar við heimsóttum hana á að- fangadagskvöld. Amma var líka einstaklega hreinskilin og lá oft ekki á skoð- unum sínum. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar ég var um 17 ára gömul og ákvað í einhverri tilraunastarfsemi að lita hárið á mér ljóst. Þegar amma sá mig, horfði hún á mig í smástund og sagði svo grafalvarleg við mig: „Helga Dögg, hvað gerðirðu við hárið á þér, þetta er hræðilegt?“ Það fór alls ekki milli mála hvað hún var hneyksluð á þessu uppá- tæki mínu. Ég móðgaðist nátt- úrulega alveg hrikalega, enda á hápunkti gelgjunnar og engan veginn til í gagnrýni af nokkru tagi. En svona var amma, hún sagði hlutina bara eins og þeir voru. Eitthvað hef ég nú tekið mark á henni því nokkrum dög- um síðar litaði ég hárið aftur dökkt og núna, mörgum árum seinna, viðurkenni ég það fúslega að þetta var alveg satt hjá henni, þetta var vægast sagt hræðilegt. Já, það er ótrúlegt hvaða minningar rifjast upp þegar kemur að því að kveðja. Margar virðast eflaust ósköp litlar og ómerkilegar en það eru einmitt þær minningar sem mér þykir vænst um, þær sem ég mun geyma og halda áfram að rifja upp aftur og aftur. Það er erfitt að þurfa að kveðja ömmu, að hugsa sér líf þar sem hún er ekki lengur með okkur. Ég er þó ótrúlega þakklát fyrir tímann okkar saman, fyrir það að hafa fengið að kynnast henni og kalla hana ömmu. Takk fyrir allt, amma mín, ég er viss um að afi hefur tekið vel á móti þér og þið séuð stödd á betri stað, svipuðum þessum: Ó, leyf mér þig að leiða til landsins fjalla heiða með sælu sumrin löng. Þar angar blóma breiða við blíðan fuglasöng. Þar aðeins yndi fann ég þar aðeins við mig kann ég þar batt mig tryggða band því þar er allt sem ann ég, það er mitt draumaland. (Jón Trausti) Helga Dögg Jónsdóttir. Elsku amma, mikið eigum við eftir að sakna þín. Jafnvel þótt samskipti hafi ekki verið mikil síðastliðin ár var hugur okkar hjá þér, okkur hlýnaði um hjartarætur við að senda þér myndir eða póstkort og leyfa þér með því móti að fylgjast með lífi okkar. Við systkinin eigum hlýjar minningar af Bogabrautinni, mikið þótti okkur gaman að heimsækja þig, elsku amma. Ávallt var tekið á móti okkur á sama máta, með bros á vör og hlýju faðmlagi. Enda munum við systkinin ekki eftir ömmu nema í góðu skapi, dálítið stríðin var hún þó og það þótti okkur skemmtilegur eiginleiki. Fyrir okkur börnin var garðurinn hennar ömmu líkt og ævintýra- land. Í garðinum var heldur betur gaman að leika innan um alla regnbogans liti í blómahafi. Þeg- ar leik bar hæst laumaði hún amma gjarnan að okkur 50 krón- um og sagði okkur að hlaupa út í sjoppu og kaupa smá nammi, yndislega Kaja amma. Já það var sko gaman að heimsækja þig, elsku amma, háaloftið magnaða, krossgátur, Glæstar vonir, gamla saumavélarborðið og besti steikti fiskur í heimi eru hlutir sem rifjast upp þegar við hugsum um samveru okkar með þér, elsku amma. Þegar tími var kominn til að halda heim til Reykjavíkur var ávallt erfitt að kveðja og gjarnan féllu tár, þannig er það líka í þetta skipti nema nú ert það þú sem loksins færð að kveðja. Með söknuð í hjarta kveðjum við þig, elsku Kaja amma. Við erum þakklát fyrir minningarn- ar sem eftir standa og óskum þér góðrar ferðar í Sumarlandið þar sem vel verður tekið á móti þér. Þórunn Sif Guðlaugsdóttir Sigurður Brynjar Elmar Ingi. Karítas Laufey Ólafsdóttir Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir að- sendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem not- anda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.