Morgunblaðið - 25.10.2019, Page 18

Morgunblaðið - 25.10.2019, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019 ✝ Egill MárGuðmundsson arkitekt fæddist í Reykjavík 27. jan- úar 1952. Hann lést 10. október 2019. Hann ólst þar upp og í Lynghól í Mosfellsbæ, sonur leirmunameistar- ans Lydiu Zeitner Pálsdóttur frá München og myndlistarmanns- ins Guðmundar Einarssonar frá Miðdal í Mosfellssveit. Systkini hans eru Einar (1932), Yngvi Örn (1938), Auð- ur Valdís (1943), Ari Trausti (1948) og hálfbróðirinn Erró (1932). Egill lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1972 og MA-prófi í arkitektúr frá Arkitektaháskólanum í Ósló 1978. Hann kvæntist Vigdísi Magnúsdóttur hjúkrunarfræð- ingi 1971, dóttur Önnu Hall- grímsdóttur grunnskólakenn- ara og Magnúsar og ráðgjöf í byggingarmálum skóla. Helstu skipulagsverk- efni sem hann hefur unnið eru skipulag Urriðaholts, Elliðaár- vogs og Húsahverfis í Graf- arvogi í Reykjavík. Meðal bygginga sem Egill hefur komið að eru: Háskólinn í Reykjavík, Glerártorg, Rima- skóli, Smáratorg, Stapaskóli sem nú er í byggingu, Hús Náttúrufræðistofnunar, Hol- men svømmehall í Asker í Noregi, hús Ístaks (nú sendi- ráð Bandaríkjanna) og bygg- ingar IKEA í Vilnius og Riga. Síðustu misserin vann hann að undirbúningi og hönnun Erró- seturs á Kirkjubæjarklaustri. Egill Már starfaði ötullega að hagsmunamálum innan Arkitektafélags Íslands og gegndi ýmsum trún- aðarstörfum fyrir félagið. Hann var farsæll útivistar- og veiðimaður, trjáræktandi og áhugamaður um fornbíla, og félagi í Oddfellow-reglunni. Útförin fer fram frá Hall- grímskirkju í dag, 25. október 2019, klukkan 13. Guðmundssonar menntaskólakenn- ara í Reykjavík. Egill Már og Vig- dís eignuðust Tönju Vigd- isdottir, sem nú býr í Svíþjóð, og Arnar Óskar Eg- ilsson. Hann er kvæntur Biöncu Tiantian Zhang og búa þau í Reykja- vík. Tanja á soninn Pál Skírni en Arnar Óskar og Bianca soninn Guðmund Loga. Egill Már vann hjá Húsnæð- isstofnun ríkisins 1978-79, hjá Ingimundi Sveinssyni arkitekt 1980-85 og starfrækti teikni- stofuna TT3 í Reykjavík með Þórarni Þórarinssyni arkitekt 1986-97. Árið 1997 stofnaði Egill Már, ásamt fleirum, arki- tekta- og ráðgjafarstofuna ARKÍS. Hann var einn af forystumönnum við þróun vist- vænnar hönnunar hérlendis. Eftir hann liggur fjöldi verka, margs konar byggingar, lausnir á skipulagsverkefnum Ég elska Egil afa mjög mikið. Eitt sem ég elskaði við hann var hvað hann hugsaði mikið um alla og elskaði svo mikið. Hann var með svo stórt hjarta. Ég elskaði ótrúlega mikið hvað hann var skemmtilegur og æðislegur. Ég óska þess að hann hefði lifað leng- ur og ég var harmi slegin þegar ég heyrði að hann hefði dáið. Ég er sorgmædd og er grátandi, ég elskaði hann svo mikið. Margar skemmtilegar minningar gefa mér núna sorg og gleði. Ég vildi að ekki bara að ég fengi meira tíma með honum heldur að allir fengju meiri tíma því hann dó allt of snemma. Hann lét mér líða svo vel. Ég elska þig, afi. Ótrúlega mikið. Þín afastelpa, Elísabet (Lísa). Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt hverju orði fylgir þögn og þögnin hverfur alltof fljótt. En þó að augnablikið aldrei fylli stund skaltu eiga við það mikilvægan fund því að tár sem þerrað burt aldrei nær að græða grund. Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. Þú veist að tímans köldu fjötra enginn flýr enginn frá hans löngu glímu aftur snýr. Því skaltu fanga þessa stund því fegurðin í henni býr. (Bragi Valdimar Skúlason) Fregnin af fráfalli þínu, elsku Egill, kom eins og þruma úr heið- skíru lofti. Þruma sem á auga- bragði kramdi hjartað mitt og fjölskyldunnar. Ég get ekki hætt að sjá fyrir mér brosið þitt og fallegu brúnu augun þín. Ég er svo þakklát fyrir það að hafa fengið að verða hluti af þinni fjölskyldu og þeirri ást sem þú hafðir að geyma og varst tilbúinn að deila með þínu fólki. Þitt fólk var meðal annars börnin mín. Nú kveðja þau Egil afa og það er sárt að fylgja þeim í þeirri sorg og söknuðinum. Þau munu alltaf minnast þín og muna þig, sem ástríkan, vel gefin og fallegan mann, sem hafði engar skyldur til þeirra, aðrar en kærleika og ást. Það var þeim dýrmætur lærdóm- ur í lífinu, að ást og fjölskylda er ekki bara í gegnum blóðtengsl, heldur einfaldlega í gegnum stærð hjartans. Ég var svo heppin að kynnast fjölskyldunni þinni þegar ég var 16 ára gömul og þá strax tókuð þið mig í fangið, ef svo má að orði komast. Því get ég þakkað dýr- mætri vináttu okkar Arnars. Mig óraði ekki þá fyrir því að síðar meir myndu fjölskyldur okkar bindast sterkum böndum. En það gerðist þó og áður en ég vissi af átti ég stóra fjölskyldu sem inni- hélt meðal annars, ömmu Dís og Egil afa. Nú er það minningin um þig og tilveran með ömmu Dís. Við höfðum öll alls konar hug- myndir og plön um framtíðina. Þær eru allar breyttar nú. Fjöl- skyldan þín þarf núna að læra lifa í harkalegum en raunverulegum veruleika. Verst þykir mér að sú framtíðarsýn sem þú varst að vinna að fyrir ykkur Vigdísi, er nú brostin. Nú þarf hún að halda áfram án þín, nú þurfa börnin þín og afabörn að halda áfram án þín. En í gegnum þau mun minningin um þig lifa ævi okkar allra á enda. Þú verður alltaf í hjarta okkar. Elsku Vigdís, Tanja, Arnar, Bianca, Palli og Gummi. Orð geta ekki lýst því hversu sárt mér þykir að vita af sorg ykkar og söknuði. Þið eruð öll í huga mér og okkar allra, öllum stundum. Það er styrkur í fjölskyldu og á tímum sem þessum er hún það dýrmæt- asta sem þið eigið. Ykkur sendi ég mína einlægu samúðarkveðju. Ykkar Rannveig Ernudóttir og fjölskylda. Við kvöddumst fyrir stuttu eins og við gerðum alltaf á síðari árum með löngu þéttu faðmlagi. Horfðumst í augu án þess að sleppa takinu alveg og sögðum „Takk fyrir kvöldið“. Vinarkærleikur var Agli ekk- ert feimnismál. Leiðir lágu fyrst saman í Menntaskólanum í Reykjavík en á þeim árum kynntist Egill ást sem entist út lífið. Þau voru eins og eitt og alltaf nefnd í sömu andrá. Samband Egils og Vigdís- ar Magnúsdóttur var fallegt og farsælt í öllum skilningi. Saman deildu þau áhuga á ferðalögum um landið og nutu náttúrunnar og útivistar. Egill átti ekki langt að sækja ferðaþrána. Foreldrar hans voru ekki bara dáðir lista- menn heldur einnig fjallgöngu- og náttúruverndarfólk. Þessarar ferðagleði nutum við hjónin og börn okkar í ótal ferð- um þar sem Egill var fararstjóri. Hann hafði unun af því að deila fegurð landsins með öðrum. Með árunum stækkaði ferðahópurinn en eftir því sem aldurinn færðist yfir urðu ferðirnar léttari og kaffipásur fleiri. Næsta ferða- áætlun okkar var til Vilnius þar sem Egill var arkitekt stórra verkefna og síðan var rætt um að fara til Austurríkis á æskustöðv- ar móður hans. Foreldrar Egils voru honum jafnan ofarlega í huga og hann gladdist yfir því að faðir hans skyldi á síðari árum hafa hlotið viðeigandi sess í lista- sögunni. Í sumarbústaðnum Lynghóli, sem Guðmundur reisti í miðevrópskum stíl, voru haldnar fjölskylduhátíðir án fjöldatak- markana. Eftirminnilegt er hversu Lydia, móðir Egils, hafði mikla ánægju af að fylgjast með fjörmiklum krakkaskaranum sem fylgdi vinahópnum. Eitt sinn mæltum við okkur mót á Akureyri til að kanna Flat- eyjardal. Við hjónin mættum tím- anlega og biðum Egils og Vigdís- ar. Seint um kvöld komu þau glöð í bragði en jeppinn var stór- skemmdur. Flutningabifreið hafði verið ekið inn í hlið hans og við það valt jeppinn á hliðina. Slíkir smámunir stöðvuðu ekki Egil. Hann kom fararskjótanum á hjólin, límdi plast yfir brotnar rúður og hélt ferðinni áfram. Egill var einn af stofnendum og eigendum arkitektastofunnar Arkís. Eftir hann liggur mikið ævistarf sem allt ber vitni um smekkvísi og listrænt innsæi en um leið hagkvæmt notagildi mannvirkja. Hugur hans var op- inn og tilbúinn til að tengja um- hverfið við verkefni á sviði bygg- ingarlistarinnar. Klettar og aðrar náttúrumyndir gátu fangað and- ann jafnt og ólíklegustu mann- virki gátu haft að geyma óvænt leyndarmál. Egill var yfirlætislaus, lítillát- ur og hógvær en ekkert af þeim eftirsóknarverðu persónuein- kennum ber að skilja svo að hann hafi látið lítið til sín taka. Nær- vera hans var einlæg og sterk. Á vinnufundum skóp hann and- rúmsloft samvinnu og lausna og leiddi með því stór og flókin verk- efni til farsælla lykta. Tilgerðar- laus og einarðleg framkoma hans var smitandi og getur verið fyr- irmynd þeim sem hafa það hlut- verk að leiða saman ólíkar hug- myndir. Samfara sorginni fylgir þakk- læti fyrir að hafa átt svo einstak- an mannkostamann að vini. Hann og Vigdís fylgdu okkur og börn- um okkar í gegnum stærstan hluta lífsins. Á gleðistundum samglöddumst þau með okkur og í andbyr voru þau jafn nærri og fyrir hvort tveggja erum við þakklát. Egill Guðmundsson skil- ur eftir ljúfar og ógleymanlegar stundir í huga okkar og hjarta. Við biðjum góðan Guð um að umvefja Vigdísi og fjölskylduna alla með kærleika sínum og gefa þeim kraft og æðruleysi í þeirra miklu sorg. Júlíus Vífill og Svanhildur. Í dag kveðjum við vin okkar Egil Má Guðmundsson arkitekt sem féll frá langt fyrir aldur fram. Vinskapur okkar hófst á Laugateignum fyrir hartnær 40 árum þegar Egill og Vigdís fluttu þangað með strákana sína. Kjart- an Ingi sonur okkar og Arnar Óskar voru þá tveggja ára og urðu fljótt mjög góðir vinir. Þeir voru heimagangar hjá hvor öðr- um og má segja að við foreldrar þessara drengja höfum að sumu leyti alið þá upp í samvinnu á þessum árum. Það var því þannig að vinátta þeirra varð upphafið að vináttu okkar foreldranna. Egill var mikill mannkosta- maður og traustur vinur. Hann var prúðmenni og kom fram við alla af hlýju og virðingu. Egill sagði okkur eitt sinn að Theresia amma hans hefði ráðlagt honum að standa fast á sínu en forðast vandræði, okkur sýnist að Egill hafi haft þetta að leiðarljósi. Egill var farsæll í starfi sínu sem arkitekt eins og fjöldi verk- efna sem honum voru falin bera vitni um. Það leyndi sér ekki að Egill var af listamönnum kominn og sáust þess glögg merki í verk- um hans og á hans eigin heimili. Hann virtist jafnvígur á alla þætti arkitektúrs; skipulag, hönnun húsa og hönnun húsgagna. Við höfum átt svo margar ynd- islegar samverustundir, ferðalög- in sem við fórum saman í, allar leikhúsferðirnar með vinahópn- um, utanlandsferðirnar þar sem brúðkaup Arnars og Biöncu í Bej- ing stendur upp úr, samveru- stundirnar á heimilum okkar yfir notalegu spjalli og ekki síst í sum- arhúsum okkar í Vigdísarlundi við Lynghól og á Búðum við Langá. Á ferðalögum okkar saman rákumst við nokkrum sinnum á listaverk eftir Guðmund frá Mið- dal, föður Egils. Á góðviðrisdegi í Eyjafirði komum við að Munka- þverá þar sem er minnisvarði um Jón biskup Arason eftir Guð- mund. Í annað sinn vorum við í kirkjunni á Ökrum á Mýrum þar sem er fallegur útskorinn skírn- arfontur með skál eftir Guðmund. Egill var jeppamaður og hann og Vigdís höfðu yndi af ferðalög- um upp á hálendið. Eitt sinn um páska fórum við á Skjaldbreið á jeppunum. Stelpurnar höfðu ekki áhuga á að fara með og það varð úr að við Egill fórum tveir án þeirra, en á sitt hvorum bílnum. Egill og Vigdís kynntust þegar þau voru kornung, hann af Skóla- vörðustíg og hún af Grundarstíg. Þau hafa því gengið lífsins veg saman í hálfa öld. Nú er komið að kveðjustund en minningin um góðan dreng mun lifa. Við vottum Vigdísi, Tönju, Arnari Óskari, Biöncu, Páli Skírni og Guðmundi Loga okkar innileg- ustu samúð. Þórunn og Jón. Kveðja til vinar. Kæri vinur minn Egill Már. Vinátta okkar á sér langa sögu. Við höfum verið samferða í nær fimmtíu ár. Slík vináttubönd ann- aðhvort trosna upp og slitna á svo löngum tíma, eða verða sterkari eftir sem árin líða. Okkar vináttu- bönd urðu sterkari. Þú hefur nú lagt upp í þína hinstu för. Þegar greiðslan er innt af henti til ferjumannsins, sem ferjar þig yfir fljótið mikla, verður ekki aftur snúið. Ég get ekki gert neitt annað en setið eftir á bakk- anum og horft á eftir þér sorg- mæddur yfir að leiðir okkar skuli skilja svo óvænt. En minningin lifir. Minningin um góðan vin, sem alltaf tók á móti okkur Guðrúnu með opnum örmum. Guðrún er einnig farin. Kannski hittist þið aftur á þessum óþekkta áfangastað? Ég minnist þín, glaðværs yfir hverjum endur- fundi. Tilbúins til þess að gefa mér innsýn í þau verkefni, sem þú vannst að og að taka þátt í draum- um ykkar Vigdísar um uppbygg- ingu Lynghóls. Við skoðuðum teikningar og þú útskýrðir fyrir mér hvernig þú hafðir hugsað hin- ar ýmsu lausnir. Endurfundir okkar voru alltaf gleðifundir. Góður matur á borð- um og góður drykkur í glösum, þú og Vigdís, Guðrún og ég, góðir vinir öll fjögur sem nutum sam- vista með hvert öðru. Á eftir kaffi og gott koníak og kannski fyrr á tímum reyktur vindill. Lífið var dásamleg. Það er fleira, sem ég þarf að segja við þig og þakka þér fyrir. Ég þakka þér fyrir alla þá hlýju, væntumþykju og stuðning, sem ég fékk hjá þér Þegar Guðrún konan mín lést. Ef ég hefði ekki átt þess kost að tala við þig, þegar mest á reyndi, hefði ég kannski borgað farið til ferjumannsins líka. Þrátt fyrir að þú oft þyrftir að stríða við þínar eigin raunir gafstu alltaf af sjálfum þér, mér til uppörvunar. Í rauninni þarf að- eins fá orð til að lýsa því sem ég hef reynt að koma til skila. Þú varst góður maður. Megi síðasti áfangastaður á þinni ferð færa þér frið. Ég sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur til Vigdísar, Tönju, Arnars, Biöncu, Páls og Guðmundar. Gunnar Már Gunnarsson. Okkar kæri vinur og félagi Eg- ill Már Guðmundsson til tuga ára er fallinn frá. Fráfall Egils er harmdauði fjölskyldu hans og okkur vinum hans og er sárt sakn- að. Sveinn og Egill vorum stúku- bræður í Oddfellow stúkunni Þór- steini nr. 5 í Reykjavík til margra áratuga og er missir stúkubræðra mikill. Eitt af áhugamálum Egils var ferðamennska hérlendis sem og erlendis og hafði hann ásamt eig- inkonu sinni, Vigdísi Magnúsdótt- ur, víða farið. Egill var formaður Fjallalambsins, ferðafélags okkar vinahópsins, sem samanstendur af fimm hjónum, enda vel að sér í fegurð Íslands og vel kunnur staðháttum. Þannig var hann leið- togi hópsins og ráðagóður um hvert halda skyldi þegar hugað var að ferðum til þess að eiga góð- ar stundir saman á landinu okkar fagra. Vinahópurinn hefur um árabil einnig farið saman í leikhúsin hér í Reykjavík og víðar og haft ánægju af samverunni og fjölda leiksýninga ár hvert og skoðana- skiptum um ágæti sýninganna að þeim loknum. Ótal margra sam- verustunda er að minnast nú á tímamótum vinahópsins við brott- för trausts vinar. Nú er hann flog- inn til Sumarlandsins, þangað sem við öll gerum okkur vonir um að komast til fyrr eða síðar. Bless- uð sé minning Egils Más Guð- mundssonar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Egill Már Guðmundsson HINSTA KVEÐJA Stærra en allir píramídar, en Hi- malaja, stærra en skógar og höf er hjarta mannsins, það er dýrlegra en sólin og Tunglið og stjörnurnar, geislar meir og blómstrar, það er óendanlegt í sínum kærleika. (Heinrich Heine) Elsku bróðir minn. Hið eilífa ljós lýsi þér. Takk fyr- ir allt og allt. Auður. ✝ Guðrún Sig-urveig Jó- hannsdóttir fæddist 3. apríl 1941 á Ak- ureyri. Hún lést 16. október 2019. Guðrún var dótt- ir hjónanna Hall- dóru Kristinsdóttur frá Syðri-Haga, Ár- skógsströnd, f. 7. ágúst 1911, d. 19. nóvember 1985, og Jóhanns Indriða Valdimars- sonar frá Akureyri, f. 31. júlí 1910, d. 27. júlí 1990. Guðrún átti þrjú systkini: Valgerði Jó- hannsdóttur, f. 3. febrúar 1935, d. 7. febrúar 2019, Filippus Sig- urð Jóhannsson, f. 3. ágúst 1939, og Kolbrúnu Kristínu Jóhanns- dóttur, f. 12. júlí 1951. Guðrún giftist Gunnari Hámund- arsyni hinn 31. júlí 1960 og eignuðust þau fjögur börn: Þorbjörgu Hall- dóru Gunnarsdótt- ur, f. 1959, d. 2016, Jóhönnu Gunnars- dóttur, f. 1960, Sig- urð Gunnarsson, f. 1962, og Ólaf Gunn- arsson, f. 1974. Barnabörnin eru 12 og lang- ömmubörnin 15. Guðrún var uppalin á Akureyri en flutti til Reykjavíkur með Gunnari og bjó þar alla tíð. Guðrún starfaði lengst af sem dagmóðir. Útförin fer fram frá Grafar- vogskirkju í dag, 25. október 2019, klukkan 13. Það er með mikilli eftirsjá sem ég kveð elsku tengdamömmu mína eða Gunnu ömmu eins og hún var oftast kölluð í fjölskyld- unni. En núna hefur hún samein- ast Gunnari sínum og Obbu dótt- ur sinni í sóllandinu fagra. Hún var farin að bíða eftir þessari ferð til þeirra. Orðin þreytt á áralöng- um erfiðum veikindum sem rændu hana smátt og smátt öllum lífsgæðum og orku. Í öllu þessu ferli meðan veikindin stóðu yfir heyrði ég hana aldrei kvarta, eða kveinka sér yfir því hvernig stað- an væri hjá henni, miklu frekar að hún spyrði hvernig aðrir hefðu það og setti sjálfa sig til hliðar, sama hvernig henni leið. En hún var afskaplega þakklát öllum þeim aðilum sem komu að að- hlynningu hennar í veikindunum, og talaði um að það væri bara eins og 5 stjörnu hótel að liggja á spít- alanum núna undir það síðasta. Þannig var Gunna, lítillát, hóg- vær, auðmjúk og afskaplega þakklát. Þakklát fyrir lífið sem hún hafði lifað og alla sína afkom- endur. Hún reyndist mér sannur og góður vinur í gegnum árin, trú og traust. Gunna starfaði sem dagmóðir í yfir 30 ár, og eru þau mjög fá barnabörnin sem og önnur börn innan fjölskyldunnar sem ekki hafa verið í pössun hjá ömmu Gunnu á einhverju tímabili í sinni barnæsku. Sum þeirra neituðu að hætta hjá henni þegar komið var að skólagöngu. Elsku Gunna, minningarnar eru margar og einstaklega ljúfar þegar hugurinn reikar. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og fjölskyldunni okkar Sigga í gegn- um árin. Þín verður sárt saknað. En sólin, hún sígur, – og sólin, hún rís, – og sjá: Þér við hlið er þín hamingjudís, sem ávallt er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf: Það er íslenska konan, – tákn trúar og vonar, sem ann þér og þér helgar sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Rannveig. Guðrún Sigurveig Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.