Morgunblaðið - 25.10.2019, Side 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
Blár vinur í stofunni,
yndislegur litur sem nýtur
sín vel í flestum rýmum.
Skoðaðu litaúrvalið
okkar á slippfelagid.is
Notalegur
60 ára Skúli er úr
Vesturbænum í Reykja-
vík og býr á Víðidalsá í
Steingrímsfirði. Hann
er leikari frá Leiklist-
arskóla Íslands og tók
meistaragráðu í menn-
ingarstjórnun frá Há-
skólanum á Bifröst. Hann er menningar-
fulltrúi Vestfjarða. Skúli er gítarleikari og
söngvari í Sniglabandinu og leikstýrir
núna Saumastofunni hjá Leikfélagi
Hólmavíkur og mun leikstýra eftir ára-
mót hjá Menntaskólanum á Ísafirði.
Maki: Þórhildur Örvarsdóttir, f. 1976,
söngkona og söngkennari í Tónlistarskól-
anum á Akureyri.
Börn: Steiney, f. 1990, Véný og Æsa, f.
1999, og Brynjólfur, f. 2002.
Foreldrar: Gauti Hannesson, f. 1909, d.
1982, smíðakennari, og Elín Guðjóns-
dóttir, f. 1926, fyrrv. leiðsögumaður og
blaðamaður, bús. í Reykjavík.
Skúli Gautason
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Heima fyrir er einhver sem elskar
þig en getur ekki alltaf sýnt það. Þú ert
trygg/ur sem tröll.
20. apríl - 20. maí
Naut Einhver sem þú hefur treyst veldur
þér vonbrigðum. Ef þú fæst ekki við það
sem þú hefur áhuga á getur lífið tapað lit
sínum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vin þinn langar til að lána eða
gefa þér eitthvað. Ventu þínu kvæði í
kross og gerðu eitthvað allt annað en þú
ert vön/vanur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Láttu það ekki draga úr þér allan
kjark þótt einhver athygli beinist að þér. Ef
þú ert ekki viss er farsælast að spyrja.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér verður nokkuð ágengt í því að
ræða sameiginlega ábyrgð eða eigur.
Skildu hismið frá kjarnanum. Vinur verður
fyrir áfalli.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú færð tækifæri til að gera eitt-
hvað sem þú hefur aldrei komið nálægt
áður. Ekki líta fram hjá því sem þú veist í
hjarta þínu að er rétt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Komandi mánuður er hagstæður fyrir
vinasambönd. Þú þarft kannski að toga í
spotta bak við tjöldin.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú átt það alveg skilið að
lyfta þér upp, ef þú bara gætir þess að
fara ekki yfir strikið. Mundu að til þess að
sambandið gangi verður þú að gefa eftir
af og til.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Leyfðu þeim sem það vilja að
sýna þér vináttu sína. Þú lendir í klónum á
óprúttnum aðila. Leitaðu þér hjálpar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fyrirhyggja í fjármálum er
nauðsynleg, alltaf. Ef þú talar við aðra
kemstu að því að allir hafa sinn djöful að
draga.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú munt fara í vinnuferð og
kynnast nýjum og spennandi hugmyndum
sem geta nýst þér í starfi. Einhver daðrar
við þig eins og enginn sé morgundag-
urinn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt þér finnist hlutirnir athygl-
isverðir er ekki þar með sagt að öðrum
finnist svo. Afskipti annarra af þínum
einkamálum fara í þínar fínustu.
Theatre Education). Árið 2006 réðst
hún til Kennaraháskóla Íslands (síð-
ar menntavísindasvið Háskóla Ís-
lands) sem aðjunkt í kennslufræði
leiklistar þar sem hún starfar enn
þann dag í dag.
Skemmtiráðstefna um leiki og
leiklist í kennslu til heiðurs Ásu
Helgu Ragnarsdóttur sjötugri
háskóla. Eftir heimkomu settist Ása
í Kennaraháskólann og lauk þar
burtfararprófi 1996. Þá réð hún sig
sem grunnskólakennara við Há-
teigsskóla og kenndi þar í tólf ár.
Hún hélt síðan í framhaldsnám og
lauk meistaraprófi frá University of
Warwick í Englandi árið 2002 í
kennslufræði leiklistar (Drama and
Á
sa Helga Proppé Ragn-
arsdóttir er fædd 25.
október 1949 í Reykja-
vík og ólst upp þar.
Hún bjó í Sporðagrunni
17 frá unga aldri þar til hún fluttist
að heiman.
Sumrum eyddi hún í sveit hjá
frændfólki sínu í Sleðbrjótsseli í
Jökulsárhlíð og var send ein í flugvél
frá sex ára aldri sem þótti ekki til-
tökumál þá. „Mér leið vel í sveitinni
og hefði eflaust verið fleiri sumur
þar ef ég hefði ekki veikst af heila-
himnubólgu í sveitinni um 14 ára
aldur og því var strikið tekið til
Reykjavíkur á spítala þar og náð
heilsu.“
Ása eyddi unglingsárunum í
Kvennaskólanum og eignaðist þar
margar góðar vinstúlkur. Leiklistar-
áhuginn blundaði undir niðri og svo
fór að hún stofnaði Leiklistarskól-
ann SÁL, samtök áhugafólks um
leiklistarnám, ásamt öðru fólki sem
brann fyrir leiklist. „Enginn leiklist-
arskóli var rekinn á þessum tíma og
því var ekki annað ráð en að stofna
sjálf skóla.“ SÁL skólinn rann síðan
inn í Leiklistarskóla Íslands þar sem
hópurinn útskrifaðist árið 1976.
„Það var skóli lífsins að reka SÁL
skólann, gera fjárhagsáætlun, ráða
kennara, búa til stundaskrár og
sækja um á fjárlögum. Óhætt er að
segja að þessi ár mótuðu mig. Ekki
bara eignaðist ég ótrúlega flotta fé-
laga sem fylgja mér enn, þéttur
flottur hópur, heldur lærði ég svo
ótal margt á því að rekast á veggi og
brjóta þá niður.“
Við tóku viðburðarík ár hjá Ásu,
tvö ár sem leikkona hjá Borgarleik-
húsi og Alþýðuleikhúsi, nokkur ár í
leiklistarkennslu í skólum, hún vann
sem fararstjóri, meðferðarfulltrúi,
þrjú ár sem umsjónarmaður stund-
arinnar okkar í Ríkissjónvarpinu
ásamt Þorsteini Marelssyni rithöf-
undi og nokkur ár sem þáttastjórn-
andi í útvarpi. Síðan lá leiðin til
Parísar en þangað fór Ása með eig-
inmanni sínum sem hóf doktorsnám
þar. Á meðan eiginmaðurinn var í
doktorsnámi stundaði Ása nám í
leikhúsfræðum við Sorbonne-
verður haldin í dag. Með ráðstefn-
unni vilja félagsmenn í FLÍSS, fé-
lags um leiklist í skólum og vinir og
samstarfsmenn hennar á Mennta-
vísindasviði þakka henni framlag
hennar til að gera nám barna og
kennarastarfið skemmtilegra og
árangursríkara.
Ása Helga hefur verið leiðandi í
innleiðingu leiklistar sem kennsluað-
ferðar í skólum hér á landi og er
kunn fyrir smitandi áhuga sinn á
fjölbreyttum og skapandi kennslu-
aðferðum. Hún hefur með öðrum
skrifað handbækur og námsefni um
aðferðirnar fyrir kennara og kenn-
araefni. Þá hefur Ása haldið fjöl-
margar vinnusmiðjur og erindi fyrir
kennara víða um heim. Jafnframt
hefur hún stundað rannsóknir á
áhrifum leiklistar á nám barna og
birt um það fjölmargar greinar. Í
vetur kemur út hjá Routledge bókin
Drama in Education: Exploring Key
Research Concepts and Effective
Strategies í ritstjórn hennar og
Hákonar Sæberg Björnssonar.
Fjölskylda
Eiginmaður Ásu Helgu er Karl
Gunnarsson, f. 20.5. 1950, líffræð-
ingur, þörungafræðingur. Foreldrar
Karls: Hjónin Doris Jessen Tómas-
Ása Helga Proppé Ragnarsdóttir, aðjunkt við menntavísindasvið Háskóla Íslands – 70 ára
Á skíðum Kamilla Ása og Hafsteinn Níelsbörn ásamt Ásu Helgu.
Skapandi kennsluaðferðir
Stundin okkar Ása Helga ásamt sérlegum aðstoðarmanni, Eiríki Fjalar.
Afmælisbarnið Ása Helga.
50 ára Bjarni ólst upp
í Breiðholti og á Sel-
tjarnarnesi en býr í
Digranesi í Kópavogi.
Hann er pípari frá
Tækniskólanum og
leiðsögumaður frá
Leiðsögumannaskóla
Íslands. Bjarni er eigandi og rekur Stíflu-
þjónustu Bjarna og einnig pípulagninga-
fyrirtækið Hreinar lagnir.
Maki: Ingibjörg Thomsen, f. 1970, sér-
kennslustjóri og meðstjórnandi hjá
Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnar-
firði.
Börn: Harpa Rut, f. 1992, Alexander, f.
1998, og Erla, f. 2004. Barnabarn er
Bjarni, eins árs, sonur Hörpu.
Foreldrar: Guðmundur Þór Jónsson, f.
1941, smiður, bús, í Breiðholti, og Harpa
Bjarnadóttir, f. 1946, sjúkraliði og nudd-
ari, bús. í Hafnarfirði. Stjúpfaðir er Valur
Helgason, f. 1941, fyrrv. verktaki.
Bjarni Guðmundsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is