Morgunblaðið - 25.10.2019, Síða 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI
Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á.
son, f. 25.9. 1925, húsmóðir, og Jón
Gunnar Tómasson, f. 26.3. 1919, d.
14.9. 1989, verkfræðingur. Fyrri eig-
inmaður Ásu Helgu er Guðlaugur
Hafsteinn Egilsson, f. 6.12. 1950,
framreiðslumaður.
Börn Ásu Helgu og Guðlaugs Haf-
steins eru 1) Níels Hafsteinsson, f.
2.7. 1968, framreiðslumaður; 2)
Trausti Hafsteinsson, f. 5.11. 1973,
kennari og fararstjóri. Þeir búa báð-
ir á Tenerife. Barnabörnin eru Haf-
steinn Níelsson, Kamilla Ása Níels-
dóttir, Tanja Líf Traustadóttir, og
Matthildur Traustadóttir. Börn
Karls eiginmanns Ásu eru 1) Áki
Guðni Karlsson, f. 1.2. 1971, þjóð-
fræðingur, börn hans eru Atli Gauti
Ákason og Orri Steinn Ákason; 2)
Svanfríður Dóra Karlsdóttir, f. 30.3.
1975, lögfræðingur, börn hennar eru
Alexander Áki Einarsson, Andri
Haukur Einarsson og Anita Klara
Svanfríðardóttir Lopez.
Systkini Ásu eru Sigurður Ragn-
arsson, f. 31.3. 1944, sálfræðingur,
býr í Lundarreykjardal, og Andrés
Proppé Ragnarsson , f. 7.4. 1954, sál-
fræðingur, býr í Reykjavík.
Foreldar Ásu voru hjónin Krist-
rún Níelsdóttir húsmóðir, f. 7.6.
1920, d. 20.11. 1994, og Ragnar Sig-
urðsson læknir, f. 17.4. 1916, d. 24.8.
1999.
Ása Helga Proppé
Ragnarsdóttir
Halldóra Hallgrímsdóttir
húsmóðir á Akranesi
Jón Sveinsson
prófastur á Akranesi
Margrét Jónsdóttir
húsmóðir á Akranesi
Níels Kristmannsson
útgerðarmaður á Akranesi
Helga Níelsdóttir
húsmóðir á Akranesi
Kristmann Tómasson
fi skmatsmaður á Akranesi
Kristrún Níelsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Margrét Níelsdóttir fi skverkunarkona á Akranesi
Jón Andrés Níelsson bóksali á Akranesi,
stofnaði Bókaverslun Andrésar Níelssonar
Helga Jónsdóttir Proppé
húsmóðir í Hafnarfi rði
Claus Eggert Dietrich Proppé
bakarameistari í Hafnarfi rði
Dóróthea Bóthildur Guðmundsdóttir Proppé
húsmóðir í Köldukinn og í Reykjavík
Sigurður Guðmundsson
prestur í Þórodds staðasókn í Köldukinn,
síðar ritari Verslunarráðs í Rvík
Ingunn Árnadóttir
húsfreyja á Skeggjastöðum í Garði
Guðmundur Þormóðsson
bóndi í Ásum í Gnúpverjahr.
Úr frændgarði Ásu Helgu Proppé Ragnarsdóttur
Ragnar Sigurðsson
læknir í Reykjavík
Óttar Proppé
ritstjóri
Þjóðviljans og
bæjarstjóri á
Siglufi rði
Kolbeinn Óttarsson
Proppé alþm.
Hrafnkell Á. Proppé
svæðis skipulagsstjóri á
höfuð borgarsvæðinu
Óttarr Proppé tónlistar-
maður og fv. ráðherra
Hulda Proppé
rannsóknastjóri í HÍ
Jón Proppé listheim-
spekingur í Rvík
Óttarr Proppé
forstjóri í Rvík
Ólafur Proppé fv.
rektor Kennara-
háskólans
Ólafur J.
Proppé forstjóri
á Þingeyri og í
Rvík og alþm.
„HVENÆR ÆTLAR ÞÚ YFIR HÖFUÐ AÐ
AXLA ÁBYRGÐ Á VERKEFNUM ÞÍNUM HÉR
INNANHÚSS?”
„ÉG BÝ HÉR Á MÓTI. ERU EINHVERJAR
LAUSAR INNSTUNGUR HJÁ ÞÉR?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vinka þar til hún
er komin úr augsýn.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞAÐ VAR VERIÐ AÐ OPNA NÝJA
KAFFIHÚSIÐ. BOLLA STÆRÐIRNAR
HJÁ ÞEIM ERU ROSALEGAR!
ÉG FÉKK MÉR
TRÖLLAKAFFI!
ÉG FÉKK MÉR
RISAKAFFI!
GJÖRÐU SVO VEL!
GLAS AF KÖLDU
VATNI!
VILTU AÐ
ÉG VÖKVI
BLÓMIN?
VANTAR VATN Í
FISKABÚRIÐ?
ER ELDHÚSIÐ
ALELDA?
EF ÞÚ VILT FREKAR
BJÓR SKALTU BARA
SEGJA ÞAÐ!
Þegar Ólafur Stefánsson lagðiupp í ferð sína til sólarlanda
kvað hann:
Það lá við er lét ég í haf
og létti sorgum mér af
um latmjólka kýrnar
og launmjóar brýrnar,
að ég brosti – svo beygði ég af.
Enn orti hann:
Leiðin langt út í heim,
löngum er erfiðust þeim,
sem malarveg harðan,
margsiginn, skarðan
fara, heiman og heim.
Og kominn til sólarlanda skrifar
Ólafur: „Þegar Íslendingarnir flúðu
inn úr hitanum um tvöleytið hljóðn-
aði skrafið um boltann, en Bret-
arnir héldu áfram að dorma höfuð-
fatslausir í breyskjunni:
Taumlaus sælu tilfinning,
til mín seytlar niður.
Engan græt ég Íslending.
Indæl ró of friður.
Davíð Hjálmar í Davíðshaga
skrifaði í Leirinn á þriðjudag:
Nú er komið norðan fjúk,
næðir svalt um klett og brík.
Hylur fönnin hundakúk
og helblá, frosin rónalík.
Ekki er það fallegt en skrítilegt
er það að þessi staka rifjar upp fyr-
ir mér þulu sem við Ari Jósefsson
fórum oft með á menntaskóla-
árunum: Karl einn fór út að gá til
veðurs að morgni til eins og hans
var vandi. Þegar hann kom aftur
inn í bæ til kerlu sinnar kvað hann:
Norðan kaldinn úti er
er kominn á norðan,
guð alvaldur hjálpi mér
engan hef ég korðann.
„Engan hefi ég korðann!“ sagði
þá kerling. „Já, margt dettur nú
ykkur skáldunum í hug!“
Oft rifja ég upp stöku Matthíasar
Jochumssonar sem hann orti til
sonarsonar síns þar sem þeir stóðu í
brekkunni fyrir neðan Sigurhæðir
en safnaðarfundur hafði synjað er-
indi hans:
Þegar ég heyrði þinglokin
þá hljóp í mig gikkurinn;
þá sagði ég við hann Manga minn:
„Mígðu nú yfir söfnuðinn!“
Og síðan er „sá sem allir hata“:
Því illa má ei alveg glata
og árinn gamli er meir en hró,
því sá sem allir – allir hata
er eitthvað þó.
Katrín Einarsdóttir, móðir Ein-
ars Benediktssonar, orti til hans:
Ef að þótti þinn er stór
þá er von að minn sé nokkur;
blóðið sama er í okkur
dropar tveir, en sami sjór.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Búsorgir og norðan fjúk