Morgunblaðið - 25.10.2019, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2019
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
ann í upphafi móts sem er eðlilegt.
Það er nýr kóngur á Hlíðarenda
og hann heitir Pavel Ermolinskij.
Undirritaður fékk það á tilfinn-
inguna að það væri hann en ekki
þjálfari liðsins sem væri að stjórna
ferðinni í gær. Pavel er fæddur sig-
urvegari og það er eitthvað sem
Valsmönnum höfur sárlega vantað.
Þrátt fyrir tap þurfa Stólarnir ekki
að hafa miklar áhyggur. Liðið verð-
ur afar erfitt viðureignar þegar
strákarnir á Sauðárkróki verða bún-
ir að spila sig saman. Leikmenn
liðsins verða hins vegar að passa sig
að detta ekki í of mikið kæruleysi.
Dino Butorac var hársbreidd
frá því að tryggja Þór Þorlákshöfn
sigur á KR í Vesturbænum en bolt-
inn dansaði upp úr körfunni eftir
þriggja stiga skot hans í lok leiks.
KR var þá 77:75 yfir og Michael
Craion bætti við stigi af vítalínunni
á lokasekúndunni. Leikurinn var
jafn og spennandi allan tímann en
KR-ingar standa eftir með fullt hús
stiga á meðan Þórsarar hafa unnið
einn af fjórum leikjum sínum. Cra-
ion skoraði 27 stig í leiknum og tók
14 fráköst en hjá Þór var Vincent
Bailey stigahæstur með 24 stig og
Marko Bakovic skoraði 16 auk þess
að taka 15 fráköst.
Haukar áttu ekki í teljandi
vandræðum með nýliða Fjölnis í
Hafnarfirði og unnu 99:75-sigur.
Staðan var þó jöfn framan af leik og
munurinn aðeins fjögur stig í hálf-
leik, 48:44. Flenard Whitfield skor-
aði 28 stig fyrir Hauka og tók 12
fráköst, og Gerald Robinson skoraði
22 stig og tók 11 fráköst. Hjá Fjölni
var Srdan Stojanovic atkvæðamest-
ur með 29 stig og 9 fráköst, en Jera
Vucica skoraði 20 stig og tók 11 frá-
köst.
Valdatími nýs
konungs hafinn
á Hlíðarenda
Pavel með sigurkörfu í framlengingu
gegn Tindastóli KR slapp gegn Þór
Morgunblaðið/Eggert
Sigurvegari Pavel Ermolinskij er vanur því að vinna leiki og titla. Hann var
stigahæstur Vals í gærkvöld, með 23 stig, og skoraði sigurkörfu leiksins.
KÖRFUBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Pavel Ermolinskij reyndist hetja
Valsmanna þegar liðið fékk Tinda-
stól í heimsókn í úrvalsdeild karla í
körfuknattleik, Dominos-deildinni, í
Origo-höllina á Hlíðarenda í fjórðu
umferð deildarinnar í gær. Leiknum
lauk með 95:92-sigri Valsmanna en
Pavel skoraði sigurkörfu leiksins í
framlengingu.
Stólarnir voru mun sterkari í
fyrri hálfleik en Valsmenn sýndu
ótrúlegan karakter í seinni hálfleik
og unnu upp fimmtán stiga forskot
Tindastóls. Pavel Ermolinskij skor-
aði svo sigurkörfuna með þriggja
stiga skoti á loka sekúndum fram-
lengingarinnar.
Valsmenn sýndu þvílíkan karakt-
er í leiknum, eitthvað sem maður
hefur ekki séð frá liðinu áður. Þeir
gátu ekkert í fyrri hálfleik og voru í
raun heppnir að vera bara fimmtán
stigum undir. Pavel Ermolinskij var
allt annað en sáttur með liðsfélaga
sína og hann hefur án alls vafa látið
þá heyra það duglega í hálfleik því
það var allt annað lið sem mætti til
leiks. Pavel kórónaði svo eigin leik
með sigurkörfu í leikslok.
Stólarnir hljóta að vera afar
svekktir með tapið enda voru þeir
með tögl og hagldir á leiknum í fyrri
hálfleik. Það var ekkert sem benti
til þess að Valsmenn væru að fara
koma til baka og Stólunum leið ein-
faldlega of þægilega í byrjun seinni
hálfleiks og þannig hleyptu þeir
Valsmönnum inn í leikinn. Stólarnir
eru með nýtt lið frá því í fyrra sem
er ennþá að slípa sig saman. Það
hefur því vantað upp á stöðugleik-
Origo-höllin, Dominos-deild karla,
fimmtudaginn 24. október 2019.
Gangur leiksins: 3:8, 5:13, 12:20,
17:24, 17:29, 21:36, 26:40, 28:43,
35:45, 41:51, 47:53, 58:56, 63:67,
67:71, 73:75, 81:81, 86:86, 95:92.
Valur: Pavel Ermolinskij 23/9 frá-
köst/4 varin skot, Christopher
Rasheed Jones 19/6 fráköst/8
stoðsendingar, Frank Aron Booker
19/4 fráköst, Ragnar Agust Nat-
hanaelsson 16/13 fráköst, Damir
Mijic 8/5 fráköst, Austin Magnus
Bracey 5, Benedikt Blöndal 3, Ill-
Valur – Tindastóll 95:92 (e. framl.)
ugi Steingrímsson 2/5 fráköst.
Fráköst: 28 í vörn, 17 í sókn.
Tindastóll: Jaka Brodnik 24/12
fráköst, Sinisa Bilic 21, Gerel Sim-
mons 20/4 fráköst, Pétur Rúnar
Birgisson 10/8 fráköst, Jasmin
Perkovic 10/9 fráköst, Hannes Ingi
Másson 5, Friðrik Þór Stefánsson
2.
Fráköst: 24 í vörn, 13 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Her-
bertsson, Ísak Ernir Kristinsson,
Aron Rúnarsson.
Áhorfendur: 134
Dominos-deild karla
Valur – Tindastóll..................................95:92
KR – Þór Þ. ............................................78:75
Haukar – Fjölnir ...................................99:75
Staðan:
KR 4 4 0 368:316 8
Haukar 4 3 1 385:354 6
Keflavík 3 3 0 271:250 6
Valur 4 3 1 366:351 6
Tindastóll 4 2 2 345:337 4
Stjarnan 3 2 1 276:247 4
Njarðvík 3 1 2 244:243 2
Fjölnir 4 1 3 336:361 2
Þór Þ. 4 1 3 313:338 2
ÍR 3 1 2 245:278 2
Grindavik 3 0 3 259:283 0
Þór Ak. 3 0 3 234:284 0
1. deild karla
Höttur – Breiðablik............................ 94:106
Skallagrímur – Vestri ........................ 90:110
Staðan:
Hamar 3 3 0 299:234 6
Vestri 3 3 0 311:218 6
Breiðablik 4 3 1 377:324 6
Höttur 3 2 1 263:258 4
Álftanes 4 2 2 326:336 4
Selfoss 3 1 2 209:244 2
Snæfell 3 1 2 196:258 2
Sindri 3 0 3 246:276 0
Skallagrímur 4 0 4 291:370 0
NBA
Leikir í fyrrinótt:
Charlotte – Chicago ..........................126:125
Indiana – Detroit ...............................110:119
Orlando – Cleveland..............................94:85
Brooklyn Nets – Minnesota .............126:127
Miami – Memphis..............................120:101
Philadelphia – Boston .........................107:93
Dallas – Washington .........................108:100
SA Spurs – New York.......................120:111
Utah Jazz – Oklahoma ........................100:95
Phoenix – Sacramento ........................124:95
Portland – Denver.............................100:108
Alþjóðlegt mót karla í Noregi:
Noregur – Spánn...................................27:28
Danmörk – Frakkland ......................... 27:31
Undankeppni Ólympíuleikanna
Asía, undanúrslit:
Katar – Barein ..................................... 26:28
Aron Kristjánsson er þjálfari Barein.
Suður-Kórea – Sádi-Arabía................. 31:30
Barein og Suður-Kórea leika til úrslita.
Handknattleiksþjálfarinn Aron
Kristjánsson er kominn með lið Bar-
ein í úrslitaleik asísku undankeppn-
innar um ólympíusæti. Barein mætir
Suður-Kóreu á morgun í úrslitaleik
og fær sigurliðið farseðilinn til Tókýó
næsta sumar. Tapliðið á enn von því
það fer í sérstakt 12 liða ólympíu-
umspil í apríl með liðum frá öðrum
heimsálfum, hugsanlega Íslandi.
Barein komst í úrslitaleikinn með
því að vinna Katar 28:26 í gær, en
mótið fer fram í Katar. Suður-Kórea
vann Sádí Arabíu 29:26, og raunar
vann Suður-Kórea 31:30-sigur á Bar-
ein í riðlakeppni mótsins.
Tólf þjóðir keppa í handbolta karla
á Ólympíuleikunum í Tókýó og þegar
er ljóst að einn íslenskur þjálfari
verður þar; Dagur Sigurðsson sem
stýrir liði heimamanna. Heimsmeist-
arar Danmerkur og Ameríku-
meistarar Argentínu hafa einnig
tryggt sér sæti á Ólympíuleikunum.
Sigri frá ÓL í Tókýó
Stórmót Aron Kristjánsson stýrði
Barein á HM í byrjun þessa árs.
AFP
Danmörk
B-deild:
Næstved – Viborg.................................... 1:3
Ingvar Jónssson sat á varamannabekk
Viborg allan tímann.
Staða efstu liða: Fredericia 28, Viborg 27,
Vejle 27, Kolding 23.
Hinn 34 ára gamli knattspyrnumað-
ur Baldur Sigurðsson hefur sagt
skilið við Stjörnuna eftir fjögurra
ára dvöl hjá félaginu. Í yfirlýsingu
frá Stjörnunni eru Baldri þökkuð
góð störf og sagt að aðilar hafi kom-
ist að samkomulagi um að leiðir
skilji.
Baldur lék 78 leiki fyrir Stjörnuna
í efstu deild og varð bikarmeistari
með liðinu í fyrra. Hann lék 18 deild-
arleiki fyrir liðið í sumar, þar af 14 í
byrjunarliði, og skoraði 3 mörk.
Baldur er Mývetningur að upplagi
og lék fyrstu ár sín í meistaraflokki
með Völsungi á Húsavík. Hann fór
þaðan til Keflavíkur og varð bik-
armeistari með liðinu árið 2006. Frá
Keflavík fór Baldur til Bryne í Nor-
egi en hann gekk svo í raðir KR fyrir
tímabilið 2009 og varð tvisvar Ís-
landsmeistari og þrisvar bikarmeist-
ari á sex árum með Vesturbæjarlið-
inu. Baldur fór frá KR til danska
úrvalsdeildarfélagsins SønderjyskE
í eitt ár áður en hann kom til Stjörn-
unnar í ársbyrjun 2016. Hann á að
baki 3 A-landsleiki.
Baldur rær á ný mið