Morgunblaðið - 28.10.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.10.2019, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 8. O K T Ó B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  253. tölublað  107. árgangur  MUNIR SEM EIGA SÉR MERKA SÖGU AFREK HJÁ ARONI MYNDIN ER HRYLLINGSÚTGÁFA AF MAMMA MIA MEÐ BAREIN Á ÓLYMPÍULEIKA 24 ÍSLENSK VAMPÍRUMYND 29NÝR SJÓNVARPSÞÁTTUR 8 Fjárlagafrumvarp » Tekjur og útgjöld ríkisins á næsta ári eiga að standa á pari; 919 milljarðar kr. » Illa hægt að skera niður framkvæmdir og samfélags- lega þjónustu Sterk staða ríkissjóðs og skynsam- leg stjórn þeirra mála skapar stjórn- völdum þá stöðu að draga má úr rekstrarafgangi og fara jafnvel í ör- lítinn hallarekstur til þess að milda áhrif af niðursveiflu í hagkerfinu. Þetta segir Willum Þór Þórsson, for- maður fjárlaganefndar Alþingis, um gerð fjárlaga fyrir næsta ár. Mark- mið um afkomu ríkissjóð segir hann ekki vera heilög og nú þurfi ríkið að gefa í varðandi innviðauppbyggingu. „Við getum illa skorið niður aðkall- andi framkvæmdir og mikilvæga samfélagslega þjónustu, nú þegar hagkerfið er að kólna í niðursveiflu sem virðist þó, samkvæmt hagspám, verða skammvinn,“ segir Willum. Skv. fjárlagafrumvarpinu standa tekjur og útgjöld ríkisins á næsta ári að standa á pari; 919 milljarðar kr. Þar eru heilbrigðismál stór útgjalda- póstur og segir Willum nauðsynlegt að greina þróun útgjalda, sem aukist stöðugt. Hugsanlega þarf því, segir Willum, að efla heilsugæsluna til þess að draga úr álagi á Landspít- alann þar sem launakostnaður hækkar stöðugt. Framlög til sjúkra- hússins verða á næsta ári um 69 milljarðar króna. Hallarekstur mildi samdrátt  Staða ríkissjóðs er sterk, segir formaður fjárlaganefndar Alþingis  Niður- sveiflan verður skammvinn  Útgjöld til heilbrigðismála þarf að greina betur MPólitískur stöðugleiki »6 Ljósmynd/Gassi Vinsæll Arnaldur Indriðason hefur selt yfir fjórtán milljónir bóka. Rithöfundurinn Arnaldur Indr- iðason fagnaði því á dögunum að útgáfa númer þúsund af bókum hans kom út. Var það norsk út- gáfa bókarinnar Myrkrið veit. En þó að Arnaldur eigi sér traustan hóp aðdáenda um heim allan og hafi selt yfir fjórtán milljónir bóka gekk þó brösuglega að fá útgef- endur til að gefa bækur hans út í upphafi. „Það tók drjúgan tíma að finna fyrsta erlenda útgefandann. Nokkur ár. Við fengum alls kyns athugasemdir frá erlendum útgef- endum, meðal annars þær að það væri morgunljóst að engir glæpir væru framdir í landi álfa og eld- fjalla. Það tæki því ekki að líta á glæpasagnahandrit frá þessu landi. Aðrir sögðu að nafn höf- undar væri svo erfitt í framburði að ætti hann að tryggja sér útgáfu á erlendri grund þyrfti hann að skipta um nafn sem skjótast,“ seg- ir Valgerður Benediktsdóttir hjá Forlaginu. » 14 Vildu að Arnaldur skipti um nafn  Útgáfa númer 1.000 af bókum Arnaldar á heimsvísu Fólk og ferfætlingar gerðu skil íslenskri mat- armikilli kjötsúpu á borgargleði þeirri á Skóla- vörðustígunum sem bændur, garðyrkjufólk og íbúar við götuna efndu til á laugardaginn. Hin þjóðlega súpa nýtur vinsælda og er mikið góð- gæti. Hundurinn fékk svo dreggjarnar úr skeið eins vegfaranda en ekki örðu af kjöti enda finnst fæstum hreinlega koma til greina að stinga góð- um bita í hundskjaft. Hundurinn fékk dreggjarnar úr súpuskeiðinni Morgunblaðið/Eggert  „Við berjumst bara fyrir þessu öll sem eitt,“ seg- ir Guðmundur Baldvin Guð- mundsson, for- maður bæjarráðs Akureyrarbæjar, í samtali við Morgunblaðið um Akureyrar- flugvöll. Í drögum að samgönguáætlun fyrir næstu fimmtán árin fer lítið fyrir hlut Akureyrarflugvallar og ráðamenn fyrir norðan ætla að berjast fyrir auknu fjármagni. Guð- mundur segir að ekki einungis Akureyri myndi hagnast á upp- byggingu flugvallarins, heldur Norðaustur- og Austurland allt. Það sé í takt við sóknaráætlun Norðurlands eystra, en drög henn- ar voru birt á föstudag. »4 Ekki bara Akureyri muni hagnast Guðmundur Baldvin Guðmundsson Skýr niðurstaða fékkst í atkvæða- greiðslu sem fram fór á laugardag- inn um sameiningu fjögurra sveit- arfélaga á Austurlandi. Borgar- fjörður eystri, Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaupstaður og Djúpa- vogshreppur verða eitt sveitarfélag frá og með næsta vori. Flestir sögðu já á Héraði, eða 92,9% þeirra sem atkvæði greiddu. Íbúar á svæðinu munu á síðari stigum kjósa um nafn á sveitarfélaginu, aukin- heldur sem kjósa þarf nýja sveit- arstjórn. Það mun væntanlega verða gert á vormánuðum á næsta ári. Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Fljótsdalshéraðs, segir í samtali við Morgunblaðið að samgöngufram- kvæmdir á Austurlandi séu mik- ilvæg forsenda þess að sveitarfélög- in geti sameinast í raun og veru. Gerð jarðganga undir Fjarðarheiði til Seyðisfjarðar og gerð heilsárs- vegar um Öxi, af Skriðdal í Beru- fjarðarbotn, sé nauðsynjamál – og nú virðist sem ekki sé langt í fram- kvæmdir. »6 Jarðgöng og Axarvegur mikilvæg í sameiningu eystra  Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra hefur vísað meintum upplýs- ingaleka frá Seðlabanka Íslands til RÚV um fyrirhugaða húsleit hjá út- gerðarfyrirtækinu Samherja til embættis lögreglustjórans á höfuð- borgarsvæðinu. Innri endurskoðun Seðlabankans leiddi í ljós tölvu- póstsamskipti fyrrverandi fram- kvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits Seðlabankans við fréttamann RÚV í aðdraganda húsleitarinnar sem fór fram árið 2012. Meintur upplýs- ingaleki gæti falið í sér refsivert brot. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir húsleitina hafa verið árás sem var til þess fall- Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Upplýsingaleki Forsætisráðherra hefur vísað meintum upplýsingaleka til lögreglu. Samskipti SÍ og RÚV á borð lögreglu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.