Morgunblaðið - 28.10.2019, Side 4

Morgunblaðið - 28.10.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Heidelberg Verð frá kr. 119.995 Aðventuferð til 6. desember í 4 nætur Örfá sæti laus... Embætti ríkissáttasemjara er með 27 mál inni á borði hjá sér um þessar mundir. Af þeim varða 19 mál kjara- deilur aðildarfélaga BSRB gagnvart þremur viðsemjendum; ríkinu, Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg. Þá eru mál Blaðamannafélags Ís- lands (BÍ), Félags íslenskra atvinnu- flugmanna (FÍA), Félags íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) og tvö mál Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) á borði ríkissáttasemjara svo einhver séu nefnd. „Það er hressilega mikið til með- ferðar á sama tíma. Þar að auki er BSRB með samningsumboð fyrir stór mál eins og styttingu vinnuvik- unnar gagnvart þremur viðsemj- endum. Þegar það eru upp undir 30 mál til meðferðar hjá okkur þá er það ágætis verkefni,“ segir Elísabet S. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri ríkis- sáttasemjara, í samtali við Morgun- blaðið. Í dag fer fram fundur vegna deilu FFÍ við Samtök atvinnulífsins (SA) vegna Icelandair auk þess sem vinnufundur Eflingar og Reykjavík- urborgar mun fara fram í húsnæði ríkissáttasemjara. Vinnufundum er þó ekki verkstýrt af ríkissáttasemj- ara heldur eru þeir hugsaðir til að deiluaðilar geti rætt „ákveðin mál milli samningsfunda, sem er oft nauðsynlegt til að fara dýpra ofan í málin,“ útskýrir Elísabet. Fjölmiðlafólk kýs um vinnustöðvun Á morgun, þriðjudag, munu fulltrúar Blaðamannafélags Íslands setjast við sáttaborðið en stjórn BÍ samþykkti í gær að efna til atkvæða- greiðslu um fjórar vinnustöðvanir í nóvember og fer atkvæðagreiðsla fé- lagsmanna fram á miðvikudaginn. Á miðvikudag verður mál FFÍ og SA vegna Air Iceland Connect tekið fyrir hjá ríkissáttasemjara. Dagskráin í húsakynnum ríkis- sáttasemjara verður ansi þétt á fimmtudaginn en þá eru bókaðir tveir vinnufundir Eflingar og Reykjavíkurborgar. Sama dag verð- ur mál FÍA gagnvart SA vegna Air Iceland Connect tekið fyrir sem og mál Sameykis gagnvart Reykjavík- urborg. Daginn eftir, á föstudag, munu fulltrúar Sameykis svo funda með samninganefnd ríkisins. Funda stíft í Karphúsinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Karphúsið Samninganefndir FFÍ og SA funda áfram í vikunni.  Hátt í 30 mál til meðferðar hjá ríkissáttasemjara Íslenskt matargat söng Þursaflokk- urinn forðum í rokkaranum góða um kjötsúpuna. Um 1.500 tonn af kjötsúpu, með lambakjöti, kart- öflum, rófum og öðru meðlæti, voru á boðstólum á hátíðinni sem efnt var til á Skólavörðustígnum í Reykjavík á laugardaginn. Á sjö stöðum við götuna reiddu kokkar fram ilmandi og snarpheita súpu sem hver var með sínu sérstaka bragði. „Mér þykir vænt um að þarna voru Íslendingar í meiri- hluta. Útlendingar slæddust þó með,“ segir Ófeigur Björnsson gull- smiður. Hann er einn aðstandenda kjötsúpudagsins sem nú var efnt til í 17. sinn af sauðfjárbændum, Sölu- félagi garðyrkjumanna og svo kaupmönnum og íbúum við Skóla- vörðustíginn. En kjötsúpudagurinn var þó ekki aðeins veisla og matarhátíð. Lista- menn af ýmsu sauðahúsi komu fram og skemmtu fólki og margir litu inn í búðir við götuna, svo sem listamuna- og bókaverslanir. Má því segja að þarna hafi maður verið manns gaman rétt eins og speki Hávamála hermir. sbs@mbl.is Kjötsúpa á sjö stöðum við Skólavörðustíg sem landinn þáði af bestu lyst Maður er manns gaman Morgunblaðið/Eggert Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Við berjumst bara fyrir þessu öll sem eitt. Það er bara þannig.“ Þetta segir Guðmundur Baldvin Guð- mundsson, formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar, í samtali við Morg- unblaðið um Akureyrarflugvöll. Aukin fjárframlög til flugvallarins hafa löngum verið baráttumál fyrir ráðamenn fyrir norðan og í nýjum drögum að sóknaráætlun Norður- lands eystra fyrir árin 2020-2024, sem unnin var af Eyþingi - sambandi sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu, og birt voru í sam- ráðsgátt stjórnvalda á föstudag, kemur m.a. fram að það sé á meðal helstu áherslna að bæta skipulag á innanlandsflugi. Það vekur þó athygli sumra að málefni Akureyrarflugvallar skipa lítinn sess í nýjum drögum að fimm- tán ára samgönguáætlun sem birt var fyrr í mánuðinum. Á meðal þeirra sem hafa gagnrýnt þetta er Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Circle Air á Akureyri, sem ritar í athugasemdum við drögin að þau séu mikil vonbrigði fyrir Akureyrarflugvöll. „Þetta gengur þvert gegn markmiðum um að jafna álag á landið og stuðla að at- vinnuuppbyggingu um land allt,“ rit- ar hann. „Það er mjög sérstakt að til- laga að samgönguáætlun skuli beinlínis svelta stærsta flugvöll landsins utan höfuðborgarsvæðis og Suðurnesja,“ segir hann enn fremur. Enn að ota sínum tota „Við höfum barist fyrir auknum framlögum til flugvallarins undan- farin ár. Við höfum verið að horfa til innanlandsflugs en ekki síður milli- landaflugs. Við erum enn þá að reyna að ota okkar tota og komum til með að taka þetta fyrir á næsta bæjarstjórnarfundi,“ segir Guð- mundur, spurður út í afstöðu sína til samgönguáætlunarinnar. „Við vilj- um sjá meira fjármagn til Akureyr- arflugvallar,“ bætir hann við. „Ekki bara Akureyri“ Spurður út í málið, með hliðsjón af ofannefndri sóknaráætlun, segir hann: „Við höfum öll verið einhuga um það að uppbygging á Akureyrar- flugvelli væri lykillinn að framtíðar- uppbyggingu á þessu svæði. Við vilj- um sjá aðra gátt inn í landið. Ekki bara Akureyri, heldur Norðaustur- og Austurland allt myndi eflast við það. Það er það sem við erum að berjast fyrir og sóknaráætlunin talar í þá átt.“ Ekki náðist í Hildi Jönu Gísladótt- ur, stjórnarformann Eyþings og bæjarfulltrúa, við vinnslu fréttarinn- ar. Akureyrarflugvöllur sé sveltur  Uppbygging á Akureyrarflugvelli er lykillinn að framtíðaruppbyggingu á svæðinu  „Norðaustur- og Austurland allt myndi eflast“  Fari gegn markmiðum um jafnara álag milli landshluta Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyrarflugvöllur Margir virðast telja að uppbyggingar sé þörf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.