Morgunblaðið - 28.10.2019, Side 8

Morgunblaðið - 28.10.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019 Trausti Jónsson veðurfræðingur skrifar bloggið Hungurdiska á blog.is. Þar er mörg gersemin fyrir áhugamenn um veður, svo sem samantekt hans um helgina um meðalhita í Reykjavík og á Akur- eyri það sem af er þessari öld. Fyrsti vetrardagur var á laugardag og vetur konungur gerði vart við sig víða um land, þó að höfuðborg- arbúar og Sunnlendingar hafi ekki þurft að taka fram gönguskíðin.    En þeir gátu í staðinn dundað sér við að slá meðalhitatölurnar hans Trausta inn í Excel og ef þeir föndruðu við þær þar sáu þeir að meðalhiti síðustu fimm ára þessa tíma- bils í Reykjavík var heldur lægri en meðalhiti fyrstu fimm áranna.    Þetta er sérkennileg niðurstaða í ljósi kenningarinnar um hlýnun jarðar, en þegar sömu útreikningar eru gerðir fyrir meðalhitann á Akureyri fær kenningin þó stuðn- ing, því að þar er um lítilsháttar hækkun að ræða.    Allt virðist þetta þó innan skekkju- marka og svo sem ekki að undra, þar sem tímabilið er stutt, nítján ár, og erfitt að slá nokkru föstu um breytingu veðurfars af svo skömmu tímabili.    Engu að síður er þetta áhugavert og ef til vill tilefni til að ræða fyr- irbæri eins og hlýnun jarðar og hvort hennar hafi orðið vart hér á síðustu árum eða áratugum. En þá þurfa slíkar umræður að vera leyfi- legar. Fer ekki best á að leyfa slík- ar umræður – eins og annað sem snýr að þekkingarleit mannsins? Hlýnar á Akureyri? Kólnar í Reykjavík? STAKSTEINAR Ljósmynd/Modis Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Kirkjuráð þjóðkirkjunnar sam- þykkti einróma, á kirkjuráðsfundi 2. október sl., að segja upp ráðningar- samningi framkvæmdastjóra kirkju- ráðs, Odds Einarssonar, og að hann myndi láta af störfum þegar í stað. Þetta kemur fram í fundargerð kirkjuráðsins sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Í henni kemur fram að biskup Ís- lands hafi framsent kirkjuráði tölvu- bréf fjármálastjóra biskupsstofu, dagsett 23. ágúst 2019, þar sem m.a. var kvartað yfir framkomu Odds í garð verkefnisstjóra fjármála sókna á biskupsstofu. Samkvæmt upplýsingum frá Bisk- upsstofu mun Oddur, sem verður 67 ára í janúar nk., ekki vinna uppsagn- arfrestinn og unnið er að því að semja við hann um starfslok. Stað- gengill hefur ekki verið ráðinn og munu starfsmenn Biskupsstofu og kirkjuráðs skipta störfum fram- kvæmdastjóra á milli sín til bráða- birgða. Vígslubiskup á Hólum og séra Ax- el Árnason Njarðvík hafa umboð kirkjuráðs til að ganga frá starfs- lokasamningi við Odd á grundvelli hugmynda sem séra Axel Árnason kynnti á áðurnefndum fundi kirkju- ráðs. Ekki náðist í Odd við vinnslu fréttarinnar. Framkvæmdastjóra kirkjuráðs sagt upp  Kvartað yfir framkomu í garð kollega  Unnið að gerð starfslokasamnings Morgunblaðið/Ómar Kirkjan Kirkjuráð er undir forystu forseta ráðsins, biskups Íslands. Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Það sem var lagt í þessa konungs- heimsókn! Guð minn góður hvað lagður var mikill metnaður og miklir fjármunir í þetta,“ segir Sig- urður Helgi Pálmason, sem nýverið lagðist í rannsóknir á konungskom- unni 1907, heimsókn Friðriks 8. til Íslands í júlí það ár. Ástæðan er glas „með litlu merki“ sem hann fékk í hendurnar, og lagðist í kjöl- farið í athuganir á því hvort verið gæti að glasið tengdist konungs- komunni á einhvern hátt. Þetta er á meðal þess sem Sig- urður hefur nýverið athugað, en þar að auki hefur hann haft undir höndum muni sem talið er að gætu tengst Werner Gerlach, ræðis- manni Þjóðverja hér á landi í seinna stríði, Skúla fógeta og Evu Braun, eiginkonu Hitlers. Ástæðan er rannsóknir sem hann hefur farið í vegna nýrra sjónvarpsþátta Rík- isútvarpsins, Fyrir alla muni, sem hann stýrir ásamt Viktoríu Her- mannsdóttur. „Það eiga einhvern veginn allir einhvern mun sem á sér einhverja sögu. Það er svolítið íslenskt,“ seg- ir Sigurður og bætir við: „Hinn minnsti hlutur getur tengst svo stórum atriðum.“ Sigurður útskýrir að tilgangur þáttanna sé að reyna að sannreyna hvort munirnir tengjast því sem þeir eru sagðir tengjast eða ekki. „Þetta fer með okkur á marga staði,“ segir hann og segir að „hin barnslega forvitni“ sé það sem dríf- ur hann áfram. Glasið gæti tengst konungskomunni  Allir eiga einhvern mun með sögu, segir Sigurður Pálmason Ljósmynd/Aðsend Skoðað Viktoría og Haraldur Þór Egilsson minjavörður athuga glasið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.