Morgunblaðið - 28.10.2019, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019
Nýr vegakafli á Suðurlandsvegi í
Ölfusi var opnaður fyrir umferð nú
á laugardaginn. Þetta er 2,5 kíló-
metra spotti, þriggja akreina 2-1
vegur, milli Hveragerðis og Gljúf-
urholtsár en þó þannig að hægt
verði að hafa hann tvöfaldan í báð-
ar áttir í framtíðinni, án þess að
grafa allt upp aftur. Einnig hefur
framkvæmdinni fylgt gerð hjáreina
og tengibrauta svo vegagerðin er
alls 7 kílómetrar. Þá var brúin yfir
Varmá breikkuð og byggð göng
undir þjóðveginn fyrir gangandi
fólk og hesta.
„Framkvæmdir hafa gengið vel
og núna er aðeins fínpússið eftir.
Því ætti að ljúka núna í vikunni,“
segir Ágúst Óli Jakobsson sem stýrt
hefur verkefninu fyrir hönd verk-
takans, ÍAV. Enn sem stendur er
hámarkshraði á veginum nýja 50
km/klst og við Gljúfurholtsána 30
km/klst. en þar er frágangsvinnu
ólokið.
Áformað er að halda vegafram-
kvæmdum í Ölfusinu áfram og
leggja 2-1 veg alla leið til Selfoss.
Útboð á því verkefni er í undirbún-
ingi. sbs@mbl.is
Opnað fyrir umferð á
nýjum vegi í Ölfusinu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ölfus Nýr vegur til beggja átta og merkingar við tengibrautir komnar upp. Mikil umferð var á svæðinu um helgina.
Engan sakaði í eldsvoða í fjölbýlis-
húsi við Framnesveg í Reykjanesbæ
í fyrrinótt. Tilkynning um eldinn
barst slökkviliði á fimmta tímanum
um nóttina og tók slökkvistarfið að-
eins skamma stund.
Þegar slökkvilið kom á vettvang
logaði eldur út um svalahurð og
glugga á fyrstu hæð. Húsráðandi
var einn í íbúðinni og komst út af
sjálfsdáðum. Allar fjórar íbúðir
hússins voru rýmdar, en þær og
stigagang þurfti að reykræsta.
Miklar skemmdir urðu í íbúðinni
þar sem eldurinn kom upp. Lög-
regla rannsakar málið.
Eldur í fjölbýlishúsi
í Reykjanesbæ
Morgunblaðið/Hari
Bruni Greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Aðalfundur
Neytenda-
samtakanna tel-
ur að fyrirhug-
aðar breytingar
á samkeppn-
islögum gangi
allt of langt í
þjónkun við
fyrirtæki á
kostnað neyt-
enda. Með þeim
sé aukið enn valdaójafnvægi milli
neytenda og fyrirtækja.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Breka Karlssyni, formanni sam-
takanna, en aðalfundur Neytenda-
samtakanna var haldinn um
helgina. Neytendasamtökin gjalda
þannig mikinn varhug við því að
fella brott málshöfðunarrétt Sam-
keppniseftirlitsins og telja það rétt-
arskerðingu fyrir neytendur.
„Þá er ólíðandi að ætla að varpa
kostnaði vegna „lífskjarasamning-
anna“ á herðar neytenda með veik-
ingu samkeppnislaga, eins og lesa
má úr greinargerð með frumvarp-
inu. Virk samkeppni þarfnast virks
eftirlits. Skortur á samkeppni veld-
ur hærra verði sem neytendur
greiða á endanum,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Ólíðandi að veikja
samkeppnislögin
Breki
Karlsson
Arna Lára Jónsdóttir, varaþing-
maður Samfylkingar, hefur lagt
fram á Alþingi tillögu til þings-
ályktunar þar sem samgöngu-
ráðherra væri falið að setja Súða-
víkurgöng á milli Álftafjarðar og
Skutulsfjarðar í Djúpi á samgöngu-
áætlun. Gert verði ráð fyrir göng-
unum tilbúnum innan fimm ára,
enda séu þau mikilvæg með tilliti til
byggða- og öryggismála. Í Súðavík-
urhlíð eru 22 snjóflóðafarvegir.
Mörg dæmi eru um ofanflóð á veg-
inum þar sem oft þarf að loka.
Vill Súðavíkurgöng