Morgunblaðið - 28.10.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vertíð skemmtiferðaskipanna er að
ljúka þetta sumarið. Síðasta skipið,
Astoria, leggst að Skarfabakka í
Sundahöfn klukkan 9 í fyrramálið ef
áætlanir standast. Það mun láta úr
höfn á miðvikudag og lýkur þá ver-
tíðinni formlega. Svo skemmtilega
vill til að Astoria var einnig fyrsta
skipið sem kom á þessari vertíð. Það
kom til Reykjavíkur um miðjan
mars síðastliðinn.
Árið í ár verður tvímælalaust það
stærsta hvað varðar skipakomur
farþegaskipa og farþegafjölda hing-
að til lands. Eftir er að gera upp ver-
tíðina en fyrir liggur að skipakomur
til Reykjavíkur voru um 25% fleiri í
ár en í fyrrasumar og fjölgun far-
þega svipuð. Hjá höfnum á lands-
byggðinni hefur fjölgunin verið um-
talsverð sömuleiðis.
Leiðangursskipum fjölgar
Það hefur mikið að segja að svo-
kölluðum leiðangursskipum hefur
farið fjölgandi. Það eru skip sem
taka 200-250 farþega og fara í reglu-
bundnar siglingar í kringum landið
með viðkomu á mörgum stöðum.
Farþegar koma yfirleitt fyrr til
landsins með flugi og gista á hót-
elum, áður en farið er í siglingu um
landið. Leiðangursskip eru þau far-
þegaskip sem best er að dreifa um
landið, því þau eru hentug í stærð og
farþegafjöldi hentar mjög innviðum
á landsbyggðinni. Ocean Diamond
heitir það skip sem farið hefur flest-
ar ferðirnar í sumar en það fór 16
ferðir.
Til upprifjunar er Astoria eitt
þekktasta farþegaskip sögunnar.
Það hóf siglingar árið 1948 og hét þá
MS Stockholm og sigldi milli Sví-
þjóðar og Bandaríkjanna. Miðviku-
daginn 25. júlí 1956 stórskemmdist
MS Stockholm eftir árekstur við
ítalska skipið SS Andrea Doria und-
an ströndum Massachusetts á
austurströnd Bandaríkjanna.
Árekstur skipanna er með þekktari
sjóslysum sögunnar, en svartaþoka
var þegar þetta gerðist. Stockholm
sigldi inn í hlið Andrea Doria og
urðu afleiðingarnar þær að hið síð-
arnefnda sökk. Andrea Doria var
stórt skip á þess tíma mælikvarða,
tæplega 30 þúsund brúttótonn. Að
svo stórt skip skyldi enda á hafs-
botni varð að vonum heimsfrétt.
Um borð í Andrea Doria voru
1.134 farþegar og 572 í áhöfn en far-
þegar í sænska skipinu voru 534 og
208 manna áhöfn. Alls 46 farþegar
um borð í SS Andrea Doria týndu lífi
og fimm til viðbótar í áhöfn MS
Stockholm. Öðrum var bjargað yfir í
Stockholm og nærstödd skip.
Stockholm var stórskemmt eftir
áreksturinn en var endurbyggt. Það
hefur siglt síðan um heimshöfin und-
ir nöfnunum Völkerfreundschaft,
Volker, Fridtjof Nansen, Italia I,
Italia Prima, Valtur Prima, Caribe,
Athena, Azores og nú síðast Astoria.
Astoria heilsaði og kveður einnig
Sögufrægt farþegaskip væntanlegt til Reykjavíkur á morgun Komst í heimsfréttirnar árið 1956
þegar það sigldi niður Andrea Doria Metvertíð skemmtiferðaskipa lýkur með komu skipsins nú
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í Sundahöfn Hið sögufræga skip Astoria er væntanlegt til hafnar á morgun. Þetta verður fimmta og síðasta heim-
sókn skipsins til Reykjavíkur á þessu sumri. Merkilegt að það skuli enn vera að sigla eftir áreksturinn á sínum tíma.
Siglt í land Stockholm var stór-
skemmt eftir áreksturinn við ítalska
skipið Andrea Doria í júlí árið 1956.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vinna við gerð nýrrar tengigötu á
milli Skúlagötu og Sæbrautar er á
lokametrunum. Eftir er vinna
starfsmanna Reykjavíkurborgar við
að koma upp ljósastýringum, kúpl-
um o.s.frv. Reikna má með að
gatnamótin verði opnuð fyrir al-
menna umferð fyrir lok þessarar
viku, samkvæmt upplýsingum
Bjarna Brynjólfssonar, upplýs-
ingastjóra Reykjavíkurborgar.
Hin nýja tengigata er á móts við
Frakkastíg, um 50 metrum vestar
en sú gamla, sem er á móts við
Skúlagötu 20. Fjarlægja þurfti
hluta miðeyjar Sæbrautar vegna
nýju tengigötunnar. Þegar hún hef-
ur verið tekin í notkun verður nú-
verandi tengigata og það sem henni
tilheyrir fjarlægt og tyrft yfir svæð-
ið.
Nýju gatnamótin verða ljósastýrð
og mun það bæta öryggi gangandi
vegfarenda, en margir þeirra, sér-
staklega ferðamenn, fara þvert yfir
Sæbrautina, frá Frakkastíg að Sól-
farinu, og hefur þar oft legið við
slysum.
Önnur gatnamót á Sæbraut voru
innifalin í verkinu. Það voru þrjú
verkefni, tengd en þó aðskilin:
Endurgerð Frakkastígs á milli
Skúlagötu og Lindargötu með til-
heyrandi lagnavinnu. Færa þurfti
strætóbiðstöðvar, gera göngustíga,
leggja snjóbræðslurör og lagnir
veitustofnana.
Endurnýjun umferðarljósa og
göngu- og hjólaleiða á gatnamótum
Snorrabrautar og Sæbrautar ásamt
bættri lýsingu á gönguleiðir. Auk
þess var beygjurein og framhjá-
hlaup til austurs frá Snorrabraut
inn á Sæbraut aflagt.
Endurnýjun umferðarljósa og
gönguleiða á gatnamótum Katr-
ínartúns og Sæbrautar ásamt
bættri lýsingu á gönguleiðum.
Tafir urðu á verkinu
Samið var við fyrirtækið Gröfu
og grjót ehf. að vinna verkið, í
framhaldi af útboði. Samnings-
upphæðin var 166,5 milljónir króna.
Stefnt var að verklokum í ágúst-
mánuði en verkið hefur dregist tals-
vert.
Morgunblaðið/sisi
Nýja tengigatan Miðað er við að hægt verði að hleypa almennri umferð á götuna um og fyrir næstu helgi.
Ný tengigata brátt tilbúin
Gerð nýrrar tengigötu á milli Skúlagötu og Sæbrautar
á lokametrunum Umferð fólks að Sólfarinu auðvelduð
„Við tökum bara einn dag í einu.
Ástandið er erfitt en hún er rosalega
sterk eins og íslenskur víkingur,“
sagði Þórunn Alda Gylfadóttir, móð-
ir Sólrúnar Öldu Waldorff, en Sólrún
liggur alvarlega slösuð á spítala í
Svíþjóð eftir að eldur kom upp í íbúð
hennar og kærasta hennar Rahmon
Anvarov í Mávahlíð í Reykjavík á
miðvikudag.
Flogið var með Sólrúnu á sjúkra-
hús í Svíþjóð á fimmtudaginn en
kærasti hennar liggur á Landspítal-
anum í Reykjavík. Hefur nú verið
stofnaður styrktarreikningur fyrir
Sólrúnu og Rahmon, en fyrirséð er
að þau eigi eftir að dvelja í talsverð-
an tíma á sjúkrastofnun, og í end-
urhæfingu þar á eftir.
„Við viljum skila miklu þakklæti
til starfsfólks Landspítalans, til
Landhelgisgæslunnar og til allra
sem hafa stutt okkur og sýnt hlýhug.
Það hjálpar okkur mikið,“ sagði
móðirin Þórunn Alda í gærkvöld.
„Þetta verður langur tími í endur-
hæfingu, jafnvel heilt ár,“ bætti hún
við og sagði parið hafa misst allt í
eldsvoðanum. thorunn@mbl.is
Endurhæfingin
gæti tekið ár
Styrktarreikningur fyrir parið
Morgunblaðið/Eggert
Slökkvilið Eldurinn í Mávahlíð
kviknaði aðfaranótt miðvikudags.