Morgunblaðið - 28.10.2019, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 28.10.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019 benni.is Reykjavík Krókhálsi 9 590 2000 Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 420 3330 Opið virka daga frá 9 til 18 Verið velkomin í reynsluakstur 400.000 kr. Opið virka daga frá 9 til 18 Laugardaga frá 12 til 16 Verið velkomin í reynsluakstur OPEL KARL – VETRARTILBOÐ Á SÝNINGARBÍLUM Verðdæmi: Opel Karl - sjálfskiptur Verð áður: 2.290.000 kr. | Verð nú: 1.890.000 kr. Afsláttur: Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þessir skúrar hafa svo sannarlega sannað gildi sitt hér á landi,“ segir Hörður Sturluson, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum í Hafnarfirði og Garðabæ. Hörður stýrir verkefninu Karlar í skúrum sem undið hefur upp á sig síðustu misseri. Í dag hafa ver- ið opnaðir þrír skúrar á Íslandi, í Hafnarfirði, í Breiðholti og á Pat- reksfirði. Karlar í skúrum snýst um að veita eldri mönnum tæki- færi til að sinna hugðarefnum sín- um og um leið að koma í veg fyrir félagslega einangrun. Var tekið sem stjörnu Karlar í skúrum er alþjóðlegt verkefni sem sett var á fót í Ástr- alíu fyrir aldarfjórðungi. Þar eru nú yfir þúsund skúrar starfræktir og samtökin sem reka þá eru á fjárlögum – fá þrjár milljónir ástr- alskra dollara frá ríkinu ár hvert. Karlar í skúrum er rótgróið verk- efni þar í landi og Hörður var því mjög stoltur þegar honum var boð- ið á ráðstefnu sem haldin er annað hvert ár í Ástralíu um Karla í skúrum. Þar flutti hann erindi um verkefnið á Íslandi og heimsótti nokkra skúra þar í landi. „Þeim fannst áhugavert að heyra um starfið á Íslandi enda landið eins langt frá þeim og mögulegt er. Mér var frábærlega tekið, ég var eins og stjarna meðal sextugra og sjötugra karla sem all- ir vildu láta taka af sér mynd með mér,“ segir Hörður og hlær við. Hann kveðst hafa heyrt og séð ýmislegt fróðlegt í heimsókn sinni. „Rauði þráðurinn á ráðstefnunni var heilsa karlmanna og heilsuefl- ing. Það var til að mynda lögð áhersla á sjálfsvíg karlmanna, margir eldri menn eru týndir og allt of margir fremja sjálfsvíg.“ Fleiri skúrar í farvatninu Auk þess er ýmislegt í fram- kvæmd og umsýslu sem hann telur sig geta lært af frumkvöðlunum. „Við ætlum að stofna samtök um reksturinn hér. Það er ætlunin að Rauði krossinn sleppi takinu og hér verði til sjálfstæð samtök í framtíðinni. Starfið er líka að víkka út. Það eru þreifingar um fleiri skúra. Ég býst við að tveir nýir verði opnaðir öðrum hvorum megin við áramótin. Undirbún- ingur er til dæmis langt kominn í Mosfellsbæ.“ Hörður segir að starfið blómstri í fyrsta skúrnum sem opnaður var, í Hafnarfirði. Þar mæti reglulega hátt í fimmtíu karlar og jafnt og þétt fjölgi í hópnum. „Þeir eru komnir með rosalegt verkstæði og hafa haldið rennismíðanámskeið. Þeir eru líka með framköllunar- herbergi og hafa smíðað leikföng fyrir leikskólann Norðurberg sem er í nágrenninu. Svo voru þeir með nema frá HÍ í sex vikur í starfs- tengdu diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun. Karlarnir borga þrjú þúsund krónur á mánuði og féð er nýtt til að kaupa inn á kaffi- stofuna, halda þorrablót og sviða- veislu og sitthvað fleira,“ segir Hörður. Hann segir jafnframt að starfið gangi vel í Breiðholti og á Patreksfirði en sé skemmra á veg komið. Formlega er opið á þriðju- dögum og fimmtudögum frá klukk- an 10-12 og þá getur hver sem er mætt, fengið sér kaffibolla og kynnt sér starfið. Heimsótti karla í skúrum í Ástralíu  Verkefnið Karlar í skúrum nýtur vaxandi vinsælda hér á landi  Ástr- alskir frumkvöðlar mjög áhugasamir Morgunblaðið/Eggert Karlar í skúrum Hluti hópsins sem hittist reglulega í Hafnarfirði. Hátt í fimmtíu manns eru í hópnum. Í Ástralíu Barry Sheridan, framkvæmdastjóri Irish Men’s Shed Association, David Helmers, yfirmaður hjá Australian Men’s Shed Association, og Hörð- ur Sturluson, verkefnastjóri Karla í skúrum hjá Rauða krossinum. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stefnt er að því að koma upp aðstöðu til móttöku ferðafólks í gamla rektorsbústaðnum í Skálholti. Þá flyst starfsfólk sem verið hefur í fork- irkju Skálholtsdómskirkju þangað, sem og innheimta bílastæðagjalda og sala minjagripa. Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti, segir að bílastæðagjöld hafi verið innheimt í tvö ár. Þau hafi verið hugsuð sem þjónustugjöld og fólk þyrfti ekki að greiða sérstaklega fyrir notkun á salernum og aðgang að minjasýningu í kjallara kirkjunnar. Á þessu hafi nú verið skerpt með lag- færingum á skiltum. Gjaldið hafi verið þróað og farið að veita hópafslætti. Gjaldið er nú 500 krónur fyrir hvern einstakling en 750 kr. alls ef fleiri en einn eru í fólksbíl. 1.500 til 3.000 eru innheimtar fyrir hverja rútu. Gildir þetta um ferðafólk en fólk sem er að koma í kirkjuna til helgi- halds, bæna eða athafna er undan- þegið. Sumarstarfsfólk hefur haft aðstöðu í forkirkjunni. Kristján segir stefnt að því að það og innheimtan flytjist í móttöku í gamla rektorsbúsbústaðinn sem er við kirkjuhlaðið. Segir hann að búið sé að teikna breytingar á húsinu þar sem gert sé ráð fyrir inngangi að austanverðu, gegnt kirkjunni. Kostn- aður hleypur á tugum milljóna. Von- ast vígslubiskup til þess að hægt verði að ráðast í lagfæringar á aðgengi og stétt á næsta ári, sem og stofu til að hægt verði að taka á móti fólki og selja kaffi. Tekur Kristján þó fram að framkvæmdir ráðist af forgangsröð- un og fjárhag þjóðkirkjunnar. Þá hef- ur verið sótt um styrk til að gera göngustíg í Skálholti. 262 þúsund gestir Skálholt er vinsæll viðkomustaður ferðafólks og hefur stöðugt fleira fólk komið þangað. Á árinu 2018 komu 262 þúsund manns; erlendir ferðamenn og Íslendingar. Telur Kristján hugs- anlegt að heldur færri hafi komið í sumar þar sem færri rútur hafi þar viðkomu í ferð um Gullna hringinn vegna bílastæðagjaldsins. Skálholt fékk um þrjár milljónir í tekjur af gjaldinu í sumar og segir Kristján að það fari til að greiða kostnað við ráðningar á sumarstarfs- fólki, þrif og aðra þjónustu sem nauð- synleg sé vegna ferðafólksins. Það dugi því miður ekki til að ráða fólk í starf allt árið. Móttakan flyst í rektorsbústaðinn  Stefnt að fram- kvæmdum í Skálholti Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skálholt Rektorsbústaðurinn er skammt frá Skálholtsdómskirkju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.