Morgunblaðið - 28.10.2019, Side 12

Morgunblaðið - 28.10.2019, Side 12
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Töluverð umræða skapaðist í liðinni viku um nýtt frumvarp ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um breytingar á samkeppnislögum. Skiptar skoðanir eru um inntak og markmið frumvarpsins og þykir sumum að ganga ætti lengra á með- an öðrum þykir frumvarpið marka stefnu í ranga átt. Davíð Þorláks- son, lögfræðingur og forstöðumaður samkeppnishæfn- isviðs Samtaka atvinnulífsins, hefur kynnt sér efni frumvarpsins vel og segi hann það framför að einfalda sam- keppnislögin og færa þau nær því sem þekkist í nágrannalöndunum. Davíð bendir á að vandinn við sam- keppnislöggjöfina, eins og marga aðra löggjöf sem byggist á tilskip- unum EES, sé að íslenski löggjafinn hafi gengið lengra en nauðsynlegt var og innleitt meira íþyngjandi lög en fyrirtæki annarra Evrópulanda þurfa að búa við. Alltaf gengið aðeins of langt „Frá því Ísland varð hluti af EES fyrir aldarfjórðungi hefur það verið tilhneiging hjá stjórnvöldum, við innleiðingu Evrópureglna, að gera það með aðeins flóknari og aðeins meira íþyngjandi hætti en annars staðar. Hvert einasta skipti sem það hefur verið gert hefur það veikt sam- keppnishæfni íslenskra fyrirtækja gagnvart sambærilegum fyrirtækj- um i Evrópu, og eftir 25 ár af þessu sitjum við uppi með regluverk sem er töluvert meira íþyngjandi en hjá öðrum Evrópuríkjum,“ útskýrir Davíð. „Þetta þýðir að íslensk fyrir- tæki sitja uppi með meiri kostnað en ella, eru ekki eins vel í stakk búin til að skapa ný störf og skapa verðmæti, greiða há laun og háa skatta. Þetta þýðir að lífsgæði allra landsmanna eru lakari en þau væru ella.“ Að mati Davíðs mætti taka til víð- ar í lagasafninu, einfalda lögin og færa til betra samræmis við lág- markskröfur EES. Samkeppnislögin séu þó kjörinn staður til að byrja. „Aðrir lagabálkar sem tengjast at- vinnulífinu fjalla yfirleitt bara um eina tiltekna atvinnugrein en sam- keppnislögin hafa aftur á móti áhrif á allt atvinnulífið eins og það leggur sig,“ segir hann. Óánægja úr öllum áttum Þá hefur heldur ekki skort gagn- rýni á alla umgjörð samkeppnismála á Íslandi og stjórnendur jafnt stórra sem smárra fyrirtækja lýst óánægju sinni með málaflokkinn. „Þessar um- kvartanir lúta m.a. að því að illa hef- ur gengið að fá svör um ýmis vafaat- riði hjá samkeppnisyfirvöldum og löng bið eftir úrlausn mála. Stórfyr- irtæki hafa sætt rannsóknum sem varað hafa í áraraðir en ekkert kom- ið út úr, á meðan smáfyrirtæki kvarta yfir að aðgerðaleysi vegna meintra samkeppnisbrota valdi því að þeir sem bera skarðan hlut frá borði fá ekki úrlausn sinna mála fyrr en eftir dúk og disk, ef þá nokkurn tíma,“ segir Davíð og minnir á ný- lega könnun ráðgjafarnefndar for- sætisráðherra um opinberar eftir- litsreglur þar sem kom í ljós að af öllum eftirlitsstofnunum hins opin- bera voru fyrirtækin í landinu óánægðust með Samkeppniseftirlit- ið. „Jafnframt hefur ráðgjafarfyrir- tækið McKinsey bent á að vissar vís- bendingar séu um óskilvirkni í ís- lensku atvinnulífi, s.s. að mun fleiri fermetrum sé varið undir smásölu- verslun en í sambærilegum löndum, og gæti verið til marks um háa þröskulda sem hamla eðlilegri hag- ræðingu og samrunum.“ Þurfa leiðbeinandi tilmæli Vonast Davíð til að nýja frumvarp- ið verði til þess að þetta skáni og tel- ur að margar af þeim breytingum sem þar eru lagðar til ættu að létta störf Samkeppniseftirlitsins. Hann telur þó hægt að gera enn betur og nefnir, sem dæmi, kosti þess að leggja þá skyldu á Samkeppniseft- irlitið að gefa út leiðbeinandi tilmæli. „Þess háttar ákvæði gilda um starf- semi Fjármálaeftirlitsins og hjálpar fyrirtækjum að skilja betur hvernig á að túlka ákvæði laganna,“ útskýrir Davíð og bendir á hversu snúið það getur verið fyrir atvinnulífið að vita fyrir víst hvernig stjórnvöld munu túlka lögin. „Það gerir eftirlitsum- hverfi samkeppnislaga flóknara en ella að bæði kemur til laglegrar og hagfræðilegrar túlkunar. Á það bæði við um lögfræði og hagfræði að skil- greiningar og túlkanir geta verið á reiki og þeim mun erfiðara að átta sig á því fyrirfram hvernig lögunum verður beitt. Hingað til, þegar fyrir- tæki hafa sent Samkeppniseftirlitinu beiðni um einhvers konar leiðsögn hefur þeim oft ekki verið svarað og það þrátt fyrir ákvæði stjórnsýslu- laga um leiðbeiningarskyldu stofn- ana í málum sem þessum.“ Einnig þykir Davíð vert að skoða eftirlitsumhverfið í heild sinni og at- huga hvort það gæti borgað sig að sameina stofnanir. „Fyrir nokkrum árum kom til skoðunar að sameina Samkeppniseftirlitið og Póst- og fjarskiptastofnun og mætti jafnvel bæta við raforkueftirliti Orkustofn- unar. Að færa eftirlitsumhverfi at- vinnulífsins á færri staði ætti bæði að einfalda samskipti atvinnulífsins við eftirlitsaðila og um leið vera hag- kvæmari eining fyrir ríkið að reka.“ Loks segir Davíð að halda megi áfram að einfalda reglugerðir, og nálgast kröfur EES með annars kon- ar hugarfari: „Við innleiðingu reglna ættu stjórnvöld alltaf að reyna að fara einföldustu leiðina og nýta allar þær undanþáguheimildir sem EES leyfir nema einhver alveg sérstök og sterk rök mæli með öðru.“ Reglurnar of íþyngjandi AFP Verðmæti Kona að störfum í franskri skóverksmiðju. Davíð segir íslensk stjórnvöld oft hafa innleitt EES-reglur með of íþyngjandi hætti og fyrir vikið skert samkeppnishæfni Íslands gagnvart öðrum löndum Evrópu.  Einfalda þarf ýmsa lagabálka til að auka samkeppnishæfni  Í tilviki sam- keppnismála vantar ákvæði um skyldu stjórnvalda til að veita leiðbeinandi tilmæli Davíð Þorláksson 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019 ER BROTIÐ Á ÞÉR? Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur. Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst. Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn. HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT. botarettur.is 28. október 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.13 124.73 124.43 Sterlingspund 159.33 160.11 159.72 Kanadadalur 95.0 95.56 95.28 Dönsk króna 18.459 18.567 18.513 Norsk króna 13.548 13.628 13.588 Sænsk króna 12.844 12.92 12.882 Svissn. franki 125.17 125.87 125.52 Japanskt jen 1.1421 1.1487 1.1454 SDR 170.72 171.74 171.23 Evra 137.91 138.69 138.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.4134 Hrávöruverð Gull 1504.65 ($/únsa) Ál 1713.0 ($/tonn) LME Hráolía 61.5 ($/fatið) Brent Franski lúxus- vörurisinn LVMH hefur stofnað til yfirtökuviðræðna við bandarísku skartgripaversl- anakeðjuna Tiff- any & Co. Bloom- berg greindi fyrst frá þessu. LVMH er stærsta lúxus- vörufyrirtæki heims m.v. heildar- sölutekjur, og á fyrirtæki á borð við tískuveldin Christian Dior og Louis Vuitton, úraframeiðandann Tag Heu- er og töskufyrirtækið Rimowa, að ógleymdum áfengisframleiðendum eins og Dom Pérignon og Hennessy. Tiffany & Co var fyrst skráð á hlutabréfamarkað árið 1987 og er markaðsvirði fyrirtækisins í dag um 11,9 milljarðar dala. Gangi yfirtakan eftir yrði um að ræða ein allra stærstu fyrirtækjakaup LVMH frá upphafi. Að sögn FT myndu kaupin styrkja stöðu LVMH á Bandaríkja- markaði og gefa fyrirtækinu aukið vægi í skartgripaheiminum. LVMH bætti síðast skartgripafyrirtæki við eignasafn sitt árið 2011 með kaupum á Bulgari. Tiffany & Co er í hópi elstu, þekkt- ustu og stærstu skartgripafyrirtækja heims. Aðalverslun fyrirtækisins á Fimmta breiðstræti New York- borgar er eitt af kennileitum tísku- heimsins. Hjá félaginu starfa í dag um 14.000 manns en Tiffany’s er núna í miðri uppstokkun og hefur tollastríð Bandaríkjanna og Kína þrengt að rekstrinum, sem og að ferðamenn á helstu mörkuðum halda fastar um pyngjuna. ai@mbl.is Bernard Arnault, forstjóri LVMH.  Yfirtökuviðræður eru á fyrstu stigum LVMH vill fá Tiffany

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.