Morgunblaðið - 28.10.2019, Page 19

Morgunblaðið - 28.10.2019, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019 ✝ Rósa Harðar-dóttir, skírð Rósinkransa, fædd- ist á bænum Skeiði undir Erninum í Bolungarvík 19. febrúar 1942. Hún lést á Sjúkrahúsi Ísafjarðar 17. októ- ber 2019. Foreldrar henn- ar voru Guðrún Jóna Jónsdóttir frá Bolungarvík, f. 1923, d. 2006, og Hörður Tryggvason frá Varðgjá í Eyjafirði. Systkini Rósu sam- mæðra eru: Jón Gunnar Þórisson, f. 1946, d. 2014. Kristín Margrét Bjarnadóttir, f. 1960, og Jón Valdimar Bjarnason, f. 1964. Rósa giftist 7. maí 1966 Tryggva Þór Guðmundssyni frá Þaralátursfirði á Hornströndum, f. 9. febrúar 1940, sjómanni á Ísa- firði. Þau eignuðust fjögur börn: 1) Heimir, f. 1963, eiginkona hans er Kristín Guðnadóttir, f. 1963, frá Eskifirði, börn þeirra eru 1a) Magnús Þór, f. 1984, sambýlis- kona hans er Ólafía Sif Magn- úsdóttir, f. 1986, börn þeirra eru Ólafsvík. Börn Gunnars og Hrafnhildar Arnardóttur eru: 3a) Tryggvi Örn, f. 1989, og 3b) Magnea, f. 1994. Börn Gunnars og Úlfhildar eru 3c) Leifur Steinn, f. 2004, 3d) Dýrleif Lára, f. 2006, 3e) Vésteinn, f. 2009, 3f) Daníel Ernir Jóhannsson kjör- sonur, f. 2010. 4) Dagbjört Þóra Tryggvadóttir, f. 1976, d. 2010 sambýlismaður hennar var Jó- hann Árnason, f. 1985, d. 2010, þau létust í bílslysi í Tyrklandi. Sonur þeirra er Daníel Ernir Jó- hannsson, f. 2010. Rósa og Tryggvi hófu búskap í kjallaraíbúð við Mánagötu á Ísa- firði en fluttu svo í nýlegt ein- býlishús, Krók 4, og bjuggu þar alla sína hjúskapartíð. Börnin urðu 4, barnabörnin 11 og lang- ömmubörnin eru orðin 8. Rósa var sjómannskona og því mikið ein með börnin, samt vann hún úti við ýmis störf, m.a. í Íshús- félaginu og sem aðstoðarkona matráðs á hótelinu. Í seinni tíð gerðist hún stuðningsfulltrúi hjá félagsþjónustunni. Áhugamál Rósu voru hannyrðir og garð- yrkja, einnig hafði hún yndi af að ferðast. Hún fór iðulega á hand- verkssýningar og ferðaðist með kvenfélagskonum sem og fjöl- skyldunni. Útför Rósu fór fram í kyrrþey að hennar ósk 26. október 2019 á Ísafirði. Dagbjört Sjöfn, f. 2011, og Heimir Snær, f. 2017. 1b) Bjarni Rúnar, f. 1991 eiginkona hans er Sólveig Helga Há- konardóttir, f. 1992, börn þeirra eru Ívar Tryggvi, f. 2017, og Katrín María Rósin- kransa, f. 2019. 1c) Arna Lind, f. 1995 sambýlismaður hennar er Salmar Már Salmars- son, f. 1994, dóttir þeirra er Díana Sif, f. 2018. 2) Haraldur, f. 1966, sambýliskona hans er Katr- ín Ingibjörg Steinarsdóttir frá Þingeyri, f. 1971. Dætur Har- aldar eru 2a) Iðunn, f. 1990, sonur hennar er Uni Whitehorn, f. 2016. 2b) Rósa f. 1992, sambýlismaður hennar er Ágúst Ingi Svavarsson f. 1982, þau eru búsett í Dan- mörku, synir þeirra eru Salómon Annes, f. 2016, og Jóakim Þór, f. 2018. Dætur Katrínar eru Linda Rún, f. 1994, og Berglind Eva, f. 1982, Rúnarsdætur. 3) Gunnar, f. 1969, eiginkona hans er Úlfhildur Áslaug Leifsdóttir, f. 1972, frá Elsku mamma. Hvernig þakkar maður fyrir lífsins gjöf? Fyrir uppeldið, leið- sögnina um lífið, æskuheimilið, stuðning á erfiðum stundum, ástina og hlýjuna? Allt þetta og miklu meira færðir þú okkur börnum þínum fjórum, börnum okkar og barna- börnum. Eitt fátæklegt takk og erindi úr ljóði Matthíasar: Ég man það betur en margt í gær, þá morgunsólin mig vakti skær og tvö við stóðum í túni: Þú bentir mér yfir byggðar hring, þar brosti við dýrðin allt í kring og fjörðurinn bláöldum búni. Gunnar Tryggvason. Ömmudjús bestur í heimi, ömmufiskur lostæti, ömmusnúð- ar gómsætir, ömmuhús notaleg- ast, ömmugarður fallegastur, ömmufaðmur mýkstur. Allt var best hjá ömmu. Þannig birtist kærleikurinn milli barnanna minna og Rósu ömmu þeirra í Króknum á Ísafirði, skilyrðis- laus ást og umhyggja. Við skruppum oft vestur til Rósu og Tryggva með börnin. Þar biðu okkar uppábúin rúm, Dísu- draumur í eldhúsinu og út- breiddur faðmur ömmu og afa. Á heimili þeirra var alltaf gott að koma. Rósa var natin við heimilið og garðurinn hennar var ævintýraveröld fyrir börnin með fjölbreyttu blómaskrúði, burstabæ, gosbrunni með tjörn og litlum álfum sem kíktu undan steinum, svo var fjaran í túnfæt- inum. Amma Rósa elskaði að taka á móti fólkinu sínu sem og öðrum gestum, alltaf var gest- kvæmt hjá henni. Hún var svo glaðlynd kona og naut þess að hitta fólk og fylgjast með því sem var á döfinni hverju sinni. Hún nýtti sér samfélagsmiðla, sem var harla óvanalegt fyrir konu hennar kynslóðar. Með þeim hætti fékk hún fréttir af öllum börnunum daglega, á milli þess sem hún prjónaði eitthvað fallegt á þau. Rósa var mjög greind kona og á sinni lífsins vegferð tileinkaði hún sér margt og lærði svo lengi sem hún lifði. Ekki var hún langskólagengin en ég velti því stundum fyrir mér hvað hún hefði tekið sér fyrir hendur ef henni hefðu boð- ist fleiri tækifæri í lífinu. Rósa var hispurslaus kona og lá ekki á skoðunum sínum. Það varð til þess að hún átti mikilvægt inn- legg í uppeldi barnabarnanna sinna með því að leiðbeina þeim og hæla. Hún gaf sér tíma með þeim, kenndi þeim að prjóna og sauma út og spila á spil. Þau treystu ömmu sinni og litu upp til hennar. Það var eins með blómin og barnabörnin, það dafnaði allt vel sem að Rósa sinnti. Það varð til þess að hún gat kvatt sátt lífdaga. Í æsku bjuggu Rósa og Guð- rún móðir hennar á heimili ömmu hennar og afa á Skeiði í Bolungarvík. Það var lítið kot undir Erninum og áttu þau eina geit. Fjögurra ára smitaðist hún af berklum af afa sínum og dvaldi í eitt ár á Sjúkrahúsinu á Ísafirði. Dvölin þar hefur án efa mótað persónuleika hennar og skapað þann mikla viljastyrk og ákveðni sem Rósa bjó yfir. Hún mundi eftir sér bundinni í kot í rimlarúminu á sjúkrahúsinu. Jón afi hennar lést af berklunum og við það leystist heimilið upp. Rósa fylgdi móður sinni sem vinnukonu til Flateyrar þar sem þær bjuggu á heimili Ragnars forstjóra frystihússins og Mar- grétar eiginkonu hans. Þar leið Rósu mjög vel og ílengdist hún hjá þeim og hóf skólagöngu sína á Flateyri. Þegar móðir hennar stofnaði heimili með Bjarna Jónssyni í Bolungarvík flutti Rósa til þeirra. Þegar hún hafði aldur til vann hún fyrir sér sem verkakona bæði í sveit í Húna- vatnssýslum og í fiski m.a í Vest- mannaeyjum. Rósa elskaði að ferðast og mikið var það gott að við áttum saman dýrmætar stundir síðasta árið. Fórum saman til Spánar síðastliðið haust, áttum yndis- lega fjölskylduhelgi á Kirkjuhóli í vor og svo var allt fólkið þitt samankomið á góðri stundu í ágúst síðastliðnum í sumarhúsi á Suðurlandinu. Ég lærði margt af tengda- móður minni þau 18 ár sem hún var í lífi mínu og vonandi hún af mér. Það var kært á milli okkar og fjölskyldan var okkur mik- ilvægust. Með Rósu er gengin kona sem hafði djúpstæð áhrif á sína nánustu og missir barna- barnanna er mikill. Þau munu varðveita minningu ömmu sinn- ar. Rósa reyndi að búa fjölskyld- una undir andlát sitt með þess- um orðum: „Öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir himninum hefir sinn tíma,“ segir í hinni helgu bók. Úlfhildur Áslaug Leifsdóttir. Ég stend í ævarandi þakk- arskuld við ömmu. Hún gaf mér svo margt; öryggi, skjól og visku ásamt því að veita mér fastan punkt þegar ég þarfnaðist þess mest. Amma Rósa var æðisleg kona, með bein í nefinu. Hún var ákveðin, þrjósk, hjartahlý og æðislegur vinur. Sem barn var ég alltaf hjá ömmu og afa á sumrin og elskaði fríðindi sem ég fékk hjá þeim, það mátti borða morgunmat í sjónvarps- herberginu, drekka ömmudjús út í eitt, sprauta gervirjóma beint úr sprautunni upp í sig (það mátti kannski ekki, en amma sagði allavega ekki neitt í þau skipti sem hún greip mig). Hún leyfði mér að tjalda í garð- inum, við fengum að leika okkur á prammanum og hún gaf mér fullt af ógleymanlegum minning- um sem mér þykir vænt um. Árið 2008 flutti ég til ömmu og afa á Ísafjörð frá Danmörku. Þá fékk ég að kynnast ömmu enn betur, þvílík forréttindi. Við amma urðum rosalega góðar vinkonur og á ég henni mjög margt að þakka. Þau sem þekkja okkur báðar vita vel að við erum rosalega lík- ar í skapi og brussugangi. Við skildum hvor aðra vel, gátum rifist, hlegið og grátið saman. Við áttum margar kvöldstundir þar sem við sátum við eldhús- borðið í króknum og spjölluðum langt fram eftir. Amma Rósa kenndi mér rosa- lega margt. Hún kenndi mér að prjóna, elda, vinna, baka og margt fleira. Hún ætlaðist til þess að ég myndi standa mig og hún lét mig alveg heyra það ef ég uppfyllti ekki væntingarnar. Þetta gerði það að verkum að ég er sú sem ég er í dag. Það er ekkert í boði að sitja og gera ekkert. Maður uppsker það sem maður sáir. Við gerðum helling saman, við ferðuðumst til Danmerkur og Bandaríkjanna, fórum á gler- námskeið, skoðuðum sýningar – þá aðallega handverkssýningar. Það verður rosalega erfitt að fylla það tómarúm sem hún skil- ur eftir. Elsku amma, eins og þú sagð- ir alltaf við mig áður en ég fór eitthvert: „Þú veist að ég á rosa- lega mikið í þér, Rósa mín.“ Það áttu svo sannarlega, elsku amma. Takk fyrir allar þessar góðu minningar, ég mun varð- veita þær í hjarta mínu. Þín, Rósa litla. Rósa var fyndin, stríðin, svo- lítil skellibjalla sem sat ekki á skoðunum sínum. Hún átti það til að skamma mig þegar ég var ekki nógu dugleg að sinna fólk- inu mínu. Hún gerði það þó yfir- leitt þannig að maður vissi að þetta var sagt af mikilli ást og umhyggju. Hún var alltaf svo stolt af fólkinu sínu, sagði manni af nýj- ustu afrekum þess yfir kaffi og góðgæti í eldhúsinu í Króknum en eftir það fórum við oft á rúntinn. Á rúntinum hlustaði ég á sögur af mönnum og málefn- um, við stoppuðum jafnvel til að kíkja á blóm eða heilsa einhverj- um sem ég átti að þekkja. Hún sagði iðulega hverra manna ég var og bætti svo við að ég væri alveg eins og pabbi og amma. Svona eins og amma gerði alltaf. Því Rósa var alltaf svolítil ská- amma mín, ég fékk að vera ein af þeim og það þótti mér svo af- skaplega vænt um. Símtölin við Rósu voru alltaf dásamleg. Ég var spurð spjör- unum úr og svo var sagt frá því helsta sem fréttnæmt þótti þá stundina. Síðasta rúma árið var svo rædd staðan á ullarfatnaði Júlíu okkar áður en við kvödd- umst því Rósa var listaprjónari sem við nutum góðs af. Ég er svo þakklát fyrir að þær Júlía náðu að hittast, Júlía mun sko fá að kynnast Rósu okkar þegar fram líða stundir. Nú ertu, elsku Rósa mín, komin til Dagbjartar þinnar í sumarlandið með ömmu, afa og pabba. Njóttu hvíldarinnar. Ég mun minnast þín í hvert sinn sem ég sé falleg blóm, heyri háværan hlátur, hugsa um pólitík eða horfi á lygnan sjó – fyrir utan allt hitt sem þú gafst mér. Elsku Rósa mín, hvíldu í friði, þín er sárt saknað en þú verður sannarlega hluti af okkur áfram. Þín Guðrún Jóna Jónsdóttir. Rósa Harðardóttir ✝ Randver Vík-ingur Rafnsson fæddist á Akureyri 10. júní 1955. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 12. október 2019. Foreldrar hans voru Rafn Jónsson, f. 2. febrúar 1925, d. 11. ágúst 1991, og Klara Sigríður Randversdóttir, f. 4. mars 1932, d. 1. nóvember 2017. Systir hans er Geirlaug Jóna Rafnsdóttir, f. 5. janúar 1965. Hennar maki er Hörður Hallgrímsson, f. 4. október 1962, og búa þau á Akranesi. Börn þeirra eru: 1) Klara Árný, f. 1991, unnusti hennar er Roger Sjöström, f. 1988, þau búa í Finnlandi. 2) Guðni Rafn, f. 1994, 3) Davíð Örn, f. 2001, þeir búa á Akranesi. Randver ólst upp í Hólum í Eyjafjarð- arsveit og bjó þar til ársins 1993 en þá fluttist hann ásamt móður sinni til Ak- ureyrar í Skarðs- hlíð 15. Hann flutti svo í Ak- ursíðu 2 vorið 2017 og bjó þar síðan. Útför Randvers fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 28. októ- ber 2019, klukkan 13.30. Jarðsett verður í Hóla- kirkjugarði í Eyjafjarðarsveit. Nú er Randi vinur minn og frændi farinn í síðustu ferðina eins og hann orðaði það sjálfur. Sú ferð verður víst ekki umflúin og er gömul vísa eftir afa hans, Jón Siggeirsson bónda á Hólum, ort fyrir margt löngu, enn í fullu gildi. Feigðarstapann flýr ei neinn föst er skapagjörðin. Fram af hrapar einn og einn eftir gapa skörðin. Margar eru minningarnar sem leita á hugann því oft var kátt á hjalla hjá okkur. Hann varð fyrir því að veikjast á unga- aldri og varð þroski hans með öðrum hætti en annars hefði orðið. Þegar hann óx úr grasi fór hann að heimsækja okkur og aðra nágranna sína og fór allra sinna ferða á reiðhjóli, kom fyrir að hann kæmi tvisvar suma daga. Þegar við hittumst var alltaf heilsast með nokkurri há- reysti, jafnvel aðeins tekist á, og alltaf hlegið dátt. Kölluðum við hvor annan í léttu gríni Hólabola og Vatnsendabola og svo þegar vinur okkar á Skáldsstöðum Skáldsstaðaboli mætti líka þá fór allt af hjörunum. Þegar Randi var ungur sá hann ótrúlega vel, man ég alltaf að hann þekkti bíla sveitung- anna í myrkri í margra kíló- metra fjarlægð á ljósunum. Sá ég þá bara ljós og taldi mig þó sjá vel. Aldrei tók Randver bílpróf, hefði hann þó ekki orðið lakari ökumaður en margur annar. Laginn þótti hann í heyskapnum því þar vann hann á traktorum við að snúa og raka og var fljót- ur að heyra ef eitthvað var öðru- vísi en átti ekki að vera. Á Hólum vann Randi að bú- verkum með foreldrum sínum og föðurbróður, en nokkru eftir að Rafn faðir hans lést flutti hann til Akureyrar með Klöru móður sinni og bjuggu þau í Skarðshlíð- inni þar til hún lést fyrir tveimur árum. Oft komum við í heimsókn þangað að spjalla og fengum alltaf veislukaffi. Þegar hann varð fertugur var veisla og þá varð til ein af Hóla- bolavísunum en þær eru til þó nokkrar. Fjörutíu ára er eitilharður moli. Góðar stundir gefist þér gamli Hólaboli. Randi gat verið ótrúlega orð- heppinn og sum tilsvörin sitja í minningunni. Verða þau ekki öll tíunduð hér, þó langar mig að koma með dæmi. Þegar það fór að spyrjast út að von væri á tengdasyni í Hóla þá var hann spurður. Svarið kom snöggt eins og venjulega. „Það veitti ekki af því að fá tengdason í moðið.“ Eitt af hans verkum var að taka moðið frá kúnum og þótti honum það ekki alltaf skemmti- legt. Annað dæmi er hún Skjóna mín, hryssa sem var þeirri ár- áttu haldin að ef hún slapp úr girðingu var hún óðara komin út í Hóla að gera bændum lífið leitt. Nú kom sá dagur að Skjóna var felld, Randi kemur í heim- sókn og ég segi honum tíðindin. Svarið var eldsnöggt. „Oh, ætli helvítis tunnan komi ekki rúllandi.“ Eftir að Randi flutti til Ak- ureyrar vann hann á svínabúinu Hraukbæ eða Hlíð. Það stytti stundir, honum lík- aði það vel. Hann var þó hættur að vinna fyrir nokkrum árum. Síðast bjó hann í Akursíðunni, þar sem heimaþjónusta Akur- eyrarbæjar leit til með honum. Þegar ég frétti andlátið varð síð- asta Hólabolavísan til: Á hugann fellur hrollköld fönn hopar lífsins gola. Núna hefur tímans tönn tekið Hólabola. Hafðu þökk fyrir góðar stund- ir. Elsku Gilla, Hörður, Klara, Guðni og Davíð, innilegar sam- úðarkveðjur. Sveinn og Guðný, Vatnsenda. Randver Víkingur Rafnsson Elsku eiginmaður minn, pabbi okkar, sonur, bróðir og tengdasonur, LÁRUS DAGUR PÁLSSON, sem lést 19. október, verður jarðsunginn laugardaginn 2. nóvember klukkan 14 frá Löngumýrarkapellu. Anna Sif Ingimarsdóttir Páll Ísak Lárusson Ingimar Albert Lárusson Kolfinna Katla Lárusdóttir Páll Dagbjartsson Helga Friðbjörnsdóttir Svanhildur Pálsdóttir Kolbrún Pálsdóttir Helga María Pálsdóttir Ingimar Ingimarsson Kolbrún Ingólfsdóttir Amma Didda var orkuríkasta manneskja sem ég þekkti. Hvenær sem ég hitti hana sást aldrei þreyta á henni. Heimurinn varð einhvern veginn bjartari þegar maður kíkti í heimsókn. Hún vissi líka oftast svarið við vandamálunum, nema ef þau Anna Guðrún Bjarnardóttir ✝ Anna GuðrúnBjarnardóttir fæddist 14. apríl 1933. Hún lést 29. september 2019. Anna Guðrún var jarðsungin 11. október 2019. voru tæknileg. Það er mér alltaf ríkt í huga að vera í sokkum, því ann- ars varð maður veikur, allavega að hennar sögn. Hún hafði alltaf ein- hverja sögu að segja um ætt- ingjana. Hún var eins og gangandi ættarbók. Henni líkaði ekki alltaf við breytingar en var aldrei neikvæð gagnvart þeim. Hún mun ávallt sitja í hjarta mínu og allrar fjölskyld- unnar. Unnar og Baldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.