Morgunblaðið - 28.10.2019, Síða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019
50 ára Jac ólst upp á
Keflavíkurflugvelli og í
Reykjavík og býr í
Hafnarfirði. Hann er
með BA í alþjóðamark-
aðshagfræði frá Tiet-
gen Business College í
Óðinsvéum og er
rekstrarstjóri hjá Reykjavik Sightseeing
og rekur fyrirtækið JacNor Consulting.
Jac situr í stjórn Danskra markaðs-
hagfræðinga og er í SMEI (Sales and
Marketing Executive International).
Maki: Guðbjörg Jónsdóttir, f. 1973, inn-
heimtufulltrúi hjá Medis.
Börn: Tvíburarnir Mikael og Gabríel, f.
2002, og Hekla Rós, f. 2008.
Móðir: Magnea Grímsdóttir, f. 1944,
húsmóðir í Breiðholti.
Jac
Norðquist
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Smekkur þinn fellur eins og flís við
rass fólksins í kringum þig. Viðkvæmni er
ekki til í þinni orðabók.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú getur vel verið ánægð/ur með
hlutina eins og þeir eru en samt leitað
framfara. Tengdafólk þitt kemur þér
skemmtilega á óvart.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú finnur til æ ríkari löngunar til
þess að víkka sjóndeildarhringinn gegnum
ferðalög og meiri menntun. Það kemur
alltaf betri tíð með blóm í haga.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ef ágreiningur rís meðal fjöl-
skyldumeðlima þarf að komast að mála-
miðlun. Gerðu þér dagamun.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Reyndu að koma frá þér eins ná-
kvæmum og réttum skilaboðum og þú
getur. Deildu heimilisverkum á fleiri hend-
ur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er spenna á milli þín og mak-
ans. Brjóttu upp gráma hversdagsins og
settu lit í daginn, t.d. með því að bjóða í
mat eða fara í bíó.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að læra að fara með það vald
sem þér er fengið. Kannski verður þú fyrir
vonbrigðum með framlag annarra, en þú
kemst yfir það.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki taka samt við öllu sem
þér er rétt, og haltu ró þinni. Áhyggjur
leysa enga vanda, andaðu djúpt og þá
sérðu hlutina í betra ljósi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það hjálpar þér ekki að taka
skyndiákvarðanir. Ef þú reynir að vera ást-
ríkari fyllist líf þitt af kærleika.
22. des. - 19. janúar
SteingeitÆvintýralöngun þín kann að
knýja þig til að stefna að hnattreisu. Hvort
sem þú þarft að fara ein/n eða með öðr-
um skiptir ekki öllu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þetta er frábær dagur fyrir ást-
arævintýri og rómantík. Reyndu að klára
verkefni dagsins og skelltu þér svo í
göngutúr, þar hittir þú kannski spennandi
persónu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þið fáið tækifæri til þess að hitta
skemmtilegt fólk og skuluð njóta augna-
bliksins meðan það gefst. Það að vera já-
kvæð/ur fleytir þér langt.
Menntaskóla í tónlist og Lista-
háskóla Íslands. Trompetinn er því
sjaldan langt undan.
Eiríkur reglulega í brúðkaupum,
jarðarförum og við ýmis önnur til-
efni. Hann kennir auk þess við
E
iríkur Örn Pálsson er
fæddur 28. október
1959 í Reykjavík og
ólst upp í Álftamýri.
Hann gekk í Álfta-
mýrarskóla og er stúdent frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Hann hóf sitt tónlistarnám hjá Páli
P. Pálssyni og síðar við Tónlistar-
skólann í Reykjavík. Hann fór í
framhaldsnám til Bandaríkjanna og
lauk þaðan BM-prófi við Berklee
College of Music í Boston og MFA-
prófi frá California Institute of the
Arts í Los Angeles.
Eiríkur Örn hefur verið fastráð-
inn trompetleikari í Sinfóníu-
hljómsveit Íslands frá 1996. „Það
næsta á döfinni hjá Sinfóníunni er
tónleikaferð til Þýskalands og Aust-
urríkis sem hefst 11. nóvember. Þar
leikum við til skiptis 5. sinfóníu
Sibelíusar og 4. sinfóníu Tsjaí-
kovskí og einnig ný verk eftir Önnu
Þorvaldsdóttur og Daníel Bjarna-
son, en verkið hans Daníels er
píanókonsert þar sem Víkingur
Heiðar leikur með okkur.“
Eiríkur hefur verið meðlimur
Caput hópsins frá upphafi og leikið
á fjölmörgum diskum hópsins auk
þess að hafa farið í tónleikaferðir
með hópnum til fjölmargra landa.
„Við spilum reglulega og alltaf verk
eftir lifandi tónskáld.“ Eiríkur leik-
ur einnig reglulega með Kammer-
sveit Reykjavíkur, hefur hljóðritað
með sveitinni fjölmarga diska, m.a.
trompetkonserta eftir J.F. Fasch
og Leopold Mozart og farið í tón-
leikaferðir m.a. til Kína, Japans og
Rússlands.
Trompetleik Eiríks Arnar hefur
mátt heyra á leiksýningum Þjóð-
leikhússins og Borgarleikhússins
og í Íslensku óperunni. Hann lék
einnig um tíma með Stórsveit
Reykjavíkur og Tamla sveitinni,
auk þess sem hann hefur leikið í
hljóðverum á fjölmörgum upp-
tökum fyrir kvikmyndir, sjónvarp
og hljómdiskaútgáfur ýmiskonar.
„Mig hefur lengi langað að gefa út
disk með íslenskri málmblásara-
tónlist.“
Fyrir utan allt sem hefur verið
talið upp hér að ofan þá leikur
„Þegar ég var yngri þá lék ég á
trompetinn næstum daglega, en
núna þegar ég er farinn að reskjast
þá hef ég tekið mér sumarfrí frá
honum. Ég á fallegan húsbíl sem ég
hef miklar mætur á og hef ferðast
um landið á honum á sumrin frá því
1999 þegar við hjónin eignuðumst
hann. Ég tek trompetinn með ef ég
er að vinna einhverju verkefni. Auk
þess hef ég mikla ánægju af mat-
seld.“
Fjölskylda
Eiginkona Eiríks er Arnheiður
Ingimundardóttir, f. 9.3. 1961,
kennari í Grandaskóla. Foreldrar
hennar eru hjónin Ingimundur
Jónsson, f. 21.9. 1935, kennari, og
Arnheiður Eggertsdóttir, f. 17.5.
1937, kennari.
Börn Eiríks og Arnheiðar eru 1)
Ingi Páll Eiríksson, f. 1.10. 1988,
BA í sálfræði og tölvunarfræði og
kennir í Grandaskóla; 2) Arnheiður
Eiríkur Örn Pálsson trompetleikari – 60 ára
Fjölskyldan Ingi Páll, Arnheiður, Heiða, Eiríkur og Haukur Örn á leiðinni á tónleika í Hollywood Bowl.
Trompetinn sjaldan langt undan
Hátíðarhljómar Eiríkur Örn Pálsson, Hörður Áskelsson og Ásgeir H. Stein-
grímsson, en Eiríkur lék í Hallgrímskirkju á gamlársdag í 25 ár.
Jón Geirharðsson, fyrrverandi
verkamaður, fæddur í Stykkishólmi
en býr í Reykjavík, á 75 ára afmæli í
dag. Foreldrar hans voru Rakel
Helgadóttir, fædd í Skíðsholtum á
Mýrum, og Geirharður Jónsson,
fæddur á Garðsenda í Eyrarsveit.
Árnað heilla
75 ára
40 ára Óðinn ólst upp
á Laugarvatni og býr
þar. Hann er grafískur
hönnuður að mennt
frá Listaháskóla Ís-
lands og tók meistara-
gráðu í upplýsinga-
arkitektúr frá
Álaborgarháskóla. Hann er sjálfstætt
starfandi.
Maki: Elísabet Björney Lárusdóttir, f.
1978, umhverfisstjórnunarfræðingur, sjálf-
stætt starfandi.
Börn: Einar Máni, f. 2008, tvíburarnir Ask-
ur og Bjartur, f. 2013, og Saga Sól, f. 2018.
Foreldrar: Kjartan Lárusson, f. 1955,
íþróttakennari og bóndi, og Auður Waage,
f. 1949. Þau eru búsett í Austurey 1 í
Laugardal.
Óðinn Þór
Kjartansson
Til hamingju með daginn