Morgunblaðið - 28.10.2019, Síða 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019
Rjóminnaf ísnum
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„SEM SÉRLEGUR KONUNGLEGUR SMAKKARI
FETAR ÞÚ Í FÓTSPOR 16 STOLTRA
FORVERA ÞINNA. ”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að njóta sviðsljóssins
hjá ástinni sinni.
Í DAG KYNNI ÉG TIL
SÖGUNNAR NÝJAN LIÐ
ÉG KALLA HANN „ sjá
hinn myndarlega kött”
ÉG BÝST FASTLEGA VIÐ ÞVÍ AÐ FÉLAGAR
ÞÍNIR VERÐI HÉR ENN
VIÐ SÓLARUPPRÁS!
HVERS VEGNA
HELDURÐU ÞAÐ?
ÉG HEYRÐI ÞIG HRÓSA MORGUNVERÐAR-
PÖNNUKÖKUNUM MÍNUM!
„ÞRIÐJI BEKKUR HEFUR VERIÐ
FRAMLENGDUR UM EITT ÁR.”
EIN
KUN
NIR
Eiríksdóttir, f. 9.8. 1990, óperu-
söngkona við Kölnaróperuna, og 3)
Haukur Örn Eiríksson, f. 13.4.
1994, rafeindavirki hjá Nova.
Systkini Eiríks: Sigrún Páls-
dóttir, f. 21.9. 1948, fyrrverandi for-
stöðukona hjá gæsluleikvöllum, bú-
sett í Reykjavík, og Gísli Pálsson, f.
19.5. 1952, d. 24.10. 2011, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn í Reykjavík.
Foreldrar Eiríks: Hjónin Páll
Eiríksson, f. 16.7. 1921, d. 29.7.
2011, yfirlögregluþjónn í Reykja-
vík, og Svanfríður Gísladóttir, f. 4.7.
1923, fyrrverandi verslunarmaður,
búsett í Reykjavík.
Eiríkur Örn Pálsson
Svanfríður Gísladóttir
verslunarmaður í Rvík
Gísli Gilsson
bóndi á Arnarnesi í Dýrafi rði
Guðrún Gísladóttir
húsfreyja á Arnarnesi
Gils Þórarinsson
bóndi á Arnarnesi
Ingvar Jónasson víóluleikari og
stofnandi Sinfóníuhljómsveitar
áhugamanna
Guðný Jónasdóttir
húsfreyja á Þröm
Guðlaugur Jóhannesson
bóndi á Þröm í Garðsárdal
í Eyjafi rði
Sigrún Guðlaugsdóttir
húsfreyja á Arnarnesi
Tómas Árni
Jónasson
læknir í Rvík
Jónas Tómasson
tónskáld og
bóksali á Ísafi rði
Tómas Jónasson
bóndi og leikskáld
á Hróarsstöðum í
Fnjóskadal
Haukur Tómasson
tónskáld
Jónas Tómasson
tónskáld
Móeiður Skúladóttir
húsfreyja, dóttir Skúla Thorarensen læknis og
alþm., bróður Bjarna skálds og amtmanns
Ágúst Helgason
bóndi, alþingismaður og
hreppstjóri í Birtingaholti,
Hrunamannahr.
Ragnheiður Ágústsdóttir
húsfreyja á Löngumýri
Eiríkur Þorsteinsson
bóndi og organisti á Löngumýri á Skeiðum
Þorgeir
Þorsteinsson
bóndi og smiður
á Hlemmiskeiði á
Skeiðum
Inga Þorgeirsdóttir
kennari í Reykjavík
Rut Ingólfsdóttir fi ðluleikari
Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari
Þorgerður Ingólfsdóttir
fv. kórstjóri
Unnur María Ingólfsdóttir
fi ðluleikari
Þórdís
Þorsteinsdóttir
húsfr. í Rvík
Halla
Sigtryggsdóttir
leikskólakennari
og húsfr.
Sigtryggur
Baldursson
tónlistarmaður
Vilhelmína Þórdís
Vilhjálmsdóttir
húsfr. í Rvík
Eyþór Gunnarsson
tónlistarmaður
Valgerður Eva
Vilhjálmsdóttir
húsfr. í Rvík
Gunnar Eyþórsson
blaðamaður í Rvík
Þorsteinn Þorsteinsson
bóndi á Reykjum á Skeiðum
Úr frændgarði Eiríks Arnar Pálssonar
Páll Eiríksson
yfi rlögregluþjónn í Reykjavík
Ingigerður Eiríksdóttir
húsfreyja á Reykjum
Helgi R. Einarsson skrapp í sundmeð dóttursyni – þessi varð
þá til „Í stórum dráttum“:
Arnór er átta vetra,
ekkert virðist mér betra,
sjálfstæðis nýtur,
í núinu flýtur,
svo nær sér í konu, ets.
„Annar kappi mætir svo til
leiks,“ skrifar Helgi – „ Boris John-
son“:
Ljóshærðan labbakút
langar að höggva á hnút.
Þessi bráði,
þrjóski snáði
þráir nú aðeins „Brút“.
Davíð Hjálmar í Davíðshaga
hafði orð á því að til standi að
byggja gríðarhá fjölbýlishús við
Pollinn á Akureyri:
Á Oddeyri byggt er, sú bygging er glæst,
menn bólgna af stolti og gorti
og þessir sem búa í blokkinni hæst
blána af súrefnisskorti.
Áður hafði Davíð Hjálmar ort
„Gagaravillu“:
Sigmundur át svínaþind,
saltfisk, kálhaus, nautalund,
búrhval, hákarl, belju, kind,
blæsma geit og svartan hund.
Kveðja barst frá Ólafi Stef-
ánssyni þar sem hann dvelst í sólar-
löndum:
Nú er heldur brugðið Bleik,
– best að forðast grín.
Hér er borðuð hrossasteik,
og haft með kláravín.
Á miðvikudaginn heilsaði Ing-
ólfur Ómar Leirverjum – sagði:
„þegar ég vaknaði í nótt fyrir til-
viljun og leit snöggvast út um
gluggann og þá varð þetta vísukorn
til“:
Hagar frjósa hníga strá
hélurósir skarta,
myrkum ósi merlar á
mánaljósið bjarta.
Gústi Mar svaraði:
Falleg varð hér vísa til,
verða fáir hissa.
Er Ingólfur um óttubil
aftur þurfti að pissa.
Jón Gissurarson sendi kveðju:
Fönnum skrýðast fjallabrúnir
fölur máni skín á jörð.
Haustsins dimmu rökkurrúnir
renna yfir Skagafjörð.
Pétur Stefánsson orti „Hótel-
bygging“ rís þar:
Í Víkurgarði látnir liggja,
legið hafa í friði og spekt.
Yfir þá nú ætla að byggja
auðmenn hótel stórkostlegt.
Öðruvísi mér áður brá,
einhver verður að stöðva þá.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Brút – nefnilega brexit