Morgunblaðið - 28.10.2019, Side 25
ENGLAND
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Liverpool er áfram með sex stiga
forskot á toppi ensku úrvalsdeild-
arinnar í fótbolta eftir helgina þrátt
fyrir að Harry Kane hafi komið Tott-
enham yfir á Anfield eftir aðeins 47
sekúndur í gær. Liverpool var miklu
betri aðilinn það sem eftir lifði leiks
og vann að lokum 2:1-sigur. Það
virðist alveg sama hverju er kastað í
lærisveina Jürgens Klopp, alltaf
finna þeir leið til að vinna, svo lengi
sem þeir eru ekki á Old Trafford.
Eftir markið hjá Kane virtist að-
eins tímaspursmál hvenær Liver-
pool myndi skora, en mörkin stóðu á
sér fram í seinni hálfleik þar sem
Paolo Gazzaniga í marki Tottenham
var í stuði. Liverpool missti hins veg-
ar aldrei trúna, sérstaklega eftir að
Jordan Henderson jafnaði metin á
52. mínútu. Mo Salah sá svo um að
tryggja Liverpool þrjú stig með
marki á vítapunktinum stund-
arfjórðungi fyrir leikslok. Salah er
búinn að skora sex mörk í sjö leikj-
um gegn Tottenham og er það vænt-
anlega hans uppáhaldsandstæð-
ingur. Liverpool leikur gegn Aston
Villa um næstu helgi og svo er það
slagur gegn Manchester City á An-
field.
City vann þægilegan 3:0-sigur á
Aston Villa á heimavelli á laugardag
og hefur liðið svarað tapinu fyrir
Wolves með þremur sigrum í röð, tíu
mörkum skoruðum og aðeins einu
fengnu á sig. Næstu tveir leikir City
eru á heimavelli móti Southampton í
deildabikarnum og deildinni. South-
ampton tapaði 9:0 fyrir Leicester í
síðasta leik. Guð hjálpi Southamp-
ton.
Vantar stöðuleika í VAR
Manchester United vann kær-
kominn 3:1-sigur á móti Norwich á
útivelli. Hefði United tapað, væri lið-
ið komið niður í fallbaráttu. Þess í
stað er rauða Manchester-liðið í sjö-
unda sæti, sem segir allt sem segja
þarf um deildina. Leikurinn var
furðulegur þar sem United fékk
tvær vítaspyrnur en klikkaði á þeim
báðum. Það var hins vegar allt í
góðu, þar sem bæði Marcus Ras-
hford og Anthony Martial skoruðu
eftir að þeir létu Tim Krul í marki
Norwich verja frá sér af punktinum.
Daniel James fékk fyrri vítaspyrn-
una er hann fór niður innan teigs eft-
ir viðskipti við Ben Godfrey. Varn-
armaðurinn virtist gera lítið af sér
og James hlaupa á hann. Dómarinn
dæmdi ekkert en myndbandsdóm-
arar voru á öðru máli og United fékk
víti. Það vantar allan stöðuleika í
VAR, þar sem fjölmörg grófari atvik
hafa átt sér stað í vítateigum og
VAR ákveðið að ekki hafi verið um
vítaspyrnur að ræða.
Eini stöðuleikinn hjá Arsenal er
óstöðuleikinn. Liðið komst í 2:0 for-
ystu gegn Crystal Palace á heima-
velli í gær eftir aðeins níu mínútur.
Þá virtust leikmenn halda að verkið
væri unnið, en svo var aldeilis ekki.
Lærisveinar Roy Hodgson eru búnir
að vera virkilega sterkir á leiktíðinni
og þeir sýndu klærnar aftur og jöfn-
uðu í 2:2. Það voru sennilega fáir
sem veðjuðu á að Sokratis og David
Luiz yrðu markaskorarar Arsenal
og að mörkin kæmu eftir horn-
spyrnur, en sú varð raunin. Eflaust
voru fleiri sem veðjuðu á að Luka
Milivojevic, besta vítaskytta deild-
arinnar, myndi skora á punktinum
er Calum Chambers tók Wilfried
Zaha niður innan teigs eftir rúmlega
hálftíma leik. Serbinn gerði það að
sjálfsögðu. Jordan Ayew jafnaði svo
skömmu eftir leikhlé og þar við sat.
Sokratis kom reyndar boltanum í
netið rétt fyrir leikslok en markið
var dæmt af eftir að VAR taldi Ars-
enal-menn brotlega í aðdraganda
marksins. Dómurinn var ótrúlega
harður og eru stuðningsmenn Ars-
enal skiljanlega orðnir verulega
pirraðir á VAR, sem hefur farið illa
með liðið í síðustu leikjum.
Gylfi í fallbaráttu
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í
Everton eru dottnir niður í fallbar-
áttu. Everton tapaði á útivelli fyrir
Brighton, 3:2, þar sem sigurmarkið
kom í uppbótartíma. Everton er að-
eins tveimur stigum fyrir ofan
Southampton sem er í síðasta fall-
sætinu. Gylfi byrjaði á bekknum
annan leikinn í röð en lék síðasta
klukkutímann vegna meiðsla Bern-
ard. Eins og oft áður á tímabilinu
náði Gylfi sér hins vegar ekki sér-
staklega á strik, frekar en Everton-
liðið.
Hin fullkomna þrenna
Það leikur hins vegar allt í lyndi
hjá Frank Lampard og Chelsea. Lið-
ið hefur nú unnið sjö leiki í röð í öll-
um keppnum. Til þessa hafa ungir
og uppaldir leikmenn liðsins verið í
aðalhlutverki, þar sem Chelsea er í
félagsskiptabanni. Í 4:2-sigri á
Burnley á útivelli var það hins vegar
aðkeyptur ungur leikmaður sem stal
senunni. Chelsea keypti Christian
Pulisic frá Dortmund fyrir tímabilið
og skoraði Bandaríkjamaðurinn hina
fullkomnu þrennu. Eitt með vinstri,
annað með hægri og það þriðja með
skalla. Margir óttuðust að Lampard
væri ekki tilbúinn fyrir stóru strák-
ana í úrvalsdeildinni eftir aðeins eitt
tímabil sem stjóri Derby í B-
deildinni. Lampard lætur stjóra-
starfið líta út fyrir að vera auðvelt.
Lífið er allt annað en auðvelt hjá
Watford sem hefur ekki unnið í úr-
valsdeildinni síðan í apríl. Síðan hef-
ur liðið leikið 14 leiki í röð án sigurs.
Lífið er þó örlítið betra eftir að Qui-
que Flores tók við, þar sem Watford
er allavega að fá eitt og eitt stig.
Jafnteflið við Bournemouth á laug-
ardag var það þriðja í röð.
Vinna þótt andstæðing-
urinn fái mark í forgjöf
Liverpool áfram með sex stiga forskot VAR óstöðugt og furðulegt
AFP
Sex Jordan Henderson og Mo Salah sáu til þess að Liverpool er enn með sex stiga forskot á toppnum.
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
England
Brighton – Everton ................................. 3:2
Gylfi Þór Sigurðsson lék síðasta klukku-
tímann með Everton.
Burnley – Chelsea ................................... 2:4
Jóhann Berg Guðmundsson hjá Burnley
er frá keppni vegna meiðsla.
Manchester City – Aston Villa ................ 3:0
Watford – Bournemouth ......................... 0:0
West Ham – Sheffield United ................. 1:1
Newcastle – Wolves ................................. 1:1
Arsenal – Crystal Palace ......................... 2:2
Liverpool – Tottenham ............................ 2:1
Norwich – Manchester United................ 1:3
Staðan:
Liverpool 10 9 1 0 23:8 28
Manch.City 10 7 1 2 32:9 22
Leicester 10 6 2 2 25:8 20
Chelsea 10 6 2 2 23:16 20
Arsenal 10 4 4 2 15:14 16
Crystal Palace 10 4 3 3 10:12 15
Manch.Utd 10 3 4 3 13:10 13
Sheffield Utd 10 3 4 3 9:8 13
Bournemouth 10 3 4 3 13:13 13
West Ham 10 3 4 3 12:14 13
Tottenham 10 3 3 4 16:15 12
Wolves 10 2 6 2 13:13 12
Burnley 10 3 3 4 14:15 12
Brighton 10 3 3 4 12:14 12
Aston Villa 10 3 2 5 15:16 11
Everton 10 3 1 6 10:16 10
Newcastle 10 2 3 5 6:15 9
Southampton 10 2 2 6 9:25 8
Norwich 10 2 1 7 11:24 7
Watford 10 0 5 5 5:21 5
B-deild:
Millwall – Stoke ....................................... 2:0
Jón Daði Böðvarsson lék síðustu 20 mín-
úturnar með Millwall.
A-deild kvenna:
Manchester United – Reading ............... 2:0
Rakel Hönnudóttir lék síðustu 12 mín-
úturnar með Reading.
Þýskaland
Wolfsburg – Augsburg ........................... 0:0
Alfreð Finnbogason lék fyrstu 77 mín-
úturnar með Augsburg.
Wolfsburg – Essen................................... 5:1
Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leik-
inn og skoraði eitt mark fyrir Wolfsburg.
Rússland
Rostov – Sochi.......................................... 2:0
Ragnar Sigurðsson lék ekki með Rostov
vegna meiðsla, Björn Bergmann Sigurðar-
son var ónotaður varamaður.
CSKA Moskva – Dinamo Moskva .......... 0:1
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn með CSKA, Arnór Sigurðsson lék
síðustu 31 mínútuna.
Krasnodar – Orenburg ........................... 1:1
Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með
Krasnodar.
Grikkland
Panathinaikos – Larissa ......................... 1:2
Ögmundur Kristinsson lék allan leikinn í
marki Larissa.
Volos – PAOK .......................................... 0:2
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
KNATTSPYRNA
Lokaumferðin í færeysku úrvalsdeild karla í knatt-
spyrnu fór fram um helgina en þar stendur lands-
keppnin nokkuð lengur en hérlendis.
Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar í NSÍ unnu 3:1-
sigur á ÍF Fuglafirði. NSÍ hafnar því í þriðja sæti deild-
arinnar með 57 stig og fer í undankeppni Evrópudeild-
arinnar á næstu leiktíð.
Heimir Guðjónsson stýrði HB í síðasta skipti, í bili að
minnsta kosti. Liðið vann þá 2:1-útisigur á AB. HB endar
í fjórða sæti með 51 stig. Brynjar Hlöðversson lék allan
leikinn með HB. Heimir hefur þegar gert samning við
Val eins og frá hefur verið greint og mun hann stýra
Valsmönnum frá og með næsta tímabili.
Heimir var tvö keppnistímabil í Færeyjum eftir að hann var óvænt leyst-
ur frá störfum hjá FH. Undir hans stjórn varð HB einu sinni færeyskur
meistari og einu sinni bikarmeistari.
Guðjón var að ljúka sínu fyrsta keppnistímabili í Færeyjum en hann
gerði tveggja ára samning við NSÍ sem er frá Runavík.
NSÍ og HB í 3. og 4. sæti
Guðjón
Þórðarson