Morgunblaðið - 28.10.2019, Side 26

Morgunblaðið - 28.10.2019, Side 26
Í GARÐABÆ Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Stjarnan kastaði frá sér unnum leik gegn Íslandsmeisturum Vals í úrvals- deild kvenna í handknattleik, Ol- ísdeildinni, þegar liðin mættust í TM- höllinni í Garðabæ í sjöttu umferð deildarinnar á laugardaginn. Leikn- um lauk með 24:24-jafntefli en Garðbæingar leiddu með fjórum mörkum þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Valskonur náðu mest þriggja marka forskoti. Stjörnustúlk- ur voru fljótar að svara og þær leiddu með tveimur mörkum í hálfleik, 12:10. Garðbæingar byrjuðu seinni hálfleik- inn af þvílíkum krafti og náðu mest sex marka forskoti. Valskonur skor- uðu hins vegar síðustu fjögur mörk leiksins og jafntefli því niðurstaðan. Það verður að teljast afar ólíklegt að Garðbæingar hafa sofið vel und- anfarnar nætur. Að horfa upp á liðið kasta frá sér unnum leik á síðustu þremur mínútum leiksins var ótrúleg sjón. Leikmenn sem hafa æft hand- bolta frá blautu barnsbeini virkuðu allt í einu eins og þeir væru að fá bolt- ann í hendurnar í fyrsta sinn. Stjarn- an fékk tvö færi undir restina en taugaveiklun leikmanna liðsins virtist leika stórt hlutverk í þeim báðum, svo víðs fjarri voru skotin. Valskonur geta þakkað sínum sæla fyrir stigið og að vera áfram ósigr- aðar í deildinni. Íslandsmeistararnir áttu ekkert skilið út úr leiknum og spilamennska liðsins var hrein hörm- ung. Valskonur köstuðu boltanum frá sér trekk í trekk í sókninni og þá var sóknarleikur liðsins arfaslakur. Þær fóru í maður-á-mann vörn þegar þrjár mínútur voru til leiksloka og þær hefðu betur spilað þá vörn allan leikinn því þegar upp var staðið skil- aði það þeim jafnteflinu. Það eru bara sex umferðir búnar af mótinu og Garðbæingar geta lært mikið á þessu tapaða stigi. Annars lít- ur liðið mjög vel út og Stjörnustúlkur geta hæglega blandað sér í baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn. Vals- konur geta huggað sig við það að þrátt fyrir afleitan leik þá fengu þær stig á erfiðum útivelli gegn sterku Stjörnuliði. Það er ákveðið styrk- leikamerki að spila illa en ná samt sem áður í úrslit og Valskonur eru áfram í toppmálum í efsta sæti deild- arinnar, ósigraðar. Fram skoraði 42 mörk Heil umferð var leikin á laugardag og er Fram í 2. sæti, stigi á eftir Val, en Fram burstaði HK 42:28 í Kórn- um. Fyrirliðinn Steinunn Björns- dóttir átti stórleik fyrir Fram og skoraði tólf mörk. Landsliðskonan Sigríður Hauksdóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir gerðu sex mörk hvor fyrir HK sem er í fimmta sæti með fimm stig. KA/Þór er komið upp í fjórða sæti eftir 20:18-sigur á ÍBV. Martha Her- mannsdóttir skoraði sex mörk fyrir KA/Þór og Ásta Björt Júlíusdóttir sex fyrir ÍBV sem er með þrjú stig. Haukar unnu sinn annan sigur er liðið lagði stigalaust lið Aftureldingar, 21:19. Guðrún Erla Bjarnadóttir, Sara Odden og Þórhildur Braga Þórðardóttir skoruðu allar fjögur mörk fyrir Hauka en Roberta Iv- anauskaite skoraði sjö fyrir Aftureld- ingu. Stjarnan fór á taugum gegn meisturunum  KA/Þór upp í 4. sæti  Steinunn skoraði 12 mörk í stórsigri Fram Morgunblaðið/Eggert Vörn Sólveig Lára Kjærnested stöðvar Lovísu Thompson í Mýrinni. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019 DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Veldu öryggi SACHS – demparar ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA HANDBOLTI Olísdeild kvenna KA/Þór – ÍBV ....................................... 20:18 Stjarnan – Valur ................................... 24:24 Haukar – Afturelding .......................... 21:19 HK – Fram............................................ 28:42 Staðan: Valur 6 5 1 0 167:125 11 Fram 6 5 0 1 185:133 10 Stjarnan 6 4 1 1 152:130 9 KA/Þór 6 3 0 3 147:162 6 HK 6 2 1 3 156:172 5 Haukar 6 2 0 4 128:147 4 ÍBV 6 1 1 4 114:140 3 Afturelding 6 0 0 6 102:142 0 Grill 66 deild kvenna Fjölnir – FH.......................................... 17:26 ÍBV U – Valur U................................... 24:24 HK U – Selfoss ..................................... 23:26 Staðan: Fram U 6 6 0 0 211:150 12 FH 6 5 0 1 159:134 10 Selfoss 6 5 0 1 145:131 10 ÍR 6 4 0 2 152:138 8 Grótta 6 4 0 2 146:138 8 ÍBV U 6 3 1 2 155:150 7 Fjölnir 6 2 0 4 143:157 4 Stjarnan U 6 2 0 4 146:173 4 HK U 6 2 0 4 144:159 4 Valur U 6 1 1 4 155:161 3 Fylkir 6 1 0 5 114:133 2 Víkingur 6 0 0 6 149:195 0 Danmörk Ajax – Esbjerg ..................................... 18:26  Rut Jónsdóttir skoraði lék ekki með Esbjerg. Svíþjóð Skuru – Höör........................................ 26:22  Eva Björk Davíðsdóttir skoraði eitt mark fyrir Skuru. Frakkland Nantes – Bourg-de-Péage .................. 30:22  Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skor- aði eitt mark fyrir Bourg-de-Péage. Undankeppni Ólympíuleikanna Asíukeppni karla, úrslitaleikur: Barein – Suður-Kórea......................... 34:29  Aron Kristjánsson þjálfar Barein.  Barein fær sæti Asíu á Ólympíuleikunum í Tókíó 2020. Vináttulandsleikir karla Frakkland – Spánn . 31:31 (5:3 í vítakeppni) Þýskaland – Króatía............................. 24:23 Danmörk – Noregur........ 29:29 (4:2 í vítak.) Svartfjallaland – Bosnía ...................... 27:26 Sviss – Tékkland................................... 30:29 Egyptaland – Portúgal ........................ 26:27 Túnis – Úkraína.................................... 29:27 Slóvenía – Serbía .................................. 30:24 Svíþjóð – Ísland.................................... 35:31  Kristján Andrésson þjálfar Svíþjóð. Austurríki – Holland........................... 26:24  Erlingur Richardsson þjálfar Holland. Vináttulandsleikur kvenna Þýskaland – Króatía............................. 32:23 TM-höllin Garðabæ, Olísdeild kvenna, laugardag, 26. október 2019. Gangur leiksins: 2:2, 4:4, 5:7, 7:9, 12:10, 14:11, 17:14, 21:16, 22:16, 23:20, 24:24. Mörk Stjarnan: Þórey Anna Ás- geirsdóttir 8/3, Rakel Dögg Braga- dóttir 5, Þórhildur Gunnarsdóttir 5, Stefanía Theodórsdóttir 3, Karen Tinna Dermian 1, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 1, Sólveig Lára Kjærnested 1. Varin skot: Hildur Einarsdóttir 9/1, STJARNAN – VALUR 24:24 Klaudia Powaga 2. Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Valur: Díana Dögg Magn- úsdóttir 5, Vigdís Birna Þorsteins- dóttir 4, Sandra Erlingsdóttir 3/3, Hildur Björnsdóttir 3, Ragnhildur Edda Þórðardóttir 3, Auður Ester Gestsdóttir 2, Lovísa Thompson 2, Elín Rósa Magnúsdóttir 1, Arna Sif Pálsdóttir 1. Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 13. Utan vallar: 2 mínútur. Áhorfendur: 238. Skautafélag Akureyrar og Reykja- vík mættust tvívegis á innan við sól- arhring í Hertz-deild kvenna í íshok- kíi um helgina og fóru leikirnir fram í Egilshöllinni í Grafarvogi. Akur- eyringar höfðu betur í báðum til- fellum. Síðari leikinn í gær vann SA 6:3 en fyrri leikinn á laugardag vann SA 7:2. Akureyri er með sex stig eft- ir fyrstu þrjá leiki tímabilsins en Reykjavík er með tvö stig. Katrín Björnsdóttir og Berglind Leifsdóttir skoruðu sitt markið hvor fyrir Akureyri í fyrsta leikhluta í gær en Védís Valdimarsdóttir minnkaði muninn fyrir Reykjavík í öðrum leikhluta. Sarah Smiley og María Eiríksdóttir komu Akureyri þremur mörkum yfir, 4:1, áður en Védís Valdimarsdóttir minnkaði aft- ur muninn í tvö mörk undir lok ann- ars leikhluta. Sarah Smiley og Berg- lind Leifsdóttir bættu við tveimur mörkum til viðbótar í þriðja leik- hluta fyrir Akureyri áður en Sigrún Árnadóttir minnkaði muninn undir lok þriðja leikhluta. Gunnborg Jóhannsdóttir skoraði tvívegis fyrir Akureyringar í fyrri leiknum á laugardag og Teresa Snorradóttir, Jónína Guðbjarts- dóttir, Berglind Leifsdóttir, Anna Ágústsdóttir og Hilma Bergsdóttir eitt hver. Alda Arnarsdóttir og Sig- rún Árnadóttir skoruðu fyrir Reyk- víkinga. sport@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Mark Berglind Leifsdóttir og Hilma Bergsdóttir (11) fagna marki SA. Fjögur stig á innan við sólarhring

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.