Morgunblaðið - 28.10.2019, Síða 29

Morgunblaðið - 28.10.2019, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2019 Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Þessi mynd er náttúrlega grín- hrollvekja. Við höfum talað um að þetta séu béin þrjú; blóð, að bregða og brandarar,“ segir Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr. um nýja kvikmynd sína sem var frumsýnd síðastliðið föstu- dagskvöld. Það er kvikmyndin Þorsti sem tók aðeins 10 daga að taka upp og segir Steindi að hún sé ein ódýrasta kvikmynd sem framleidd hafi verið á íslenskri grundu. „Myndin er um hana Huldu sem er grunuð um að hafa orðið bróður sínum að bana. Jens yfirlögregl- ustjóri rannsakar málið og kemst að því að Hulda virð- ist alltaf einhvern veginn vera á vettvangi þegar eitthvað vafasamt gerist. Hún kynnist þarna mörg þúsund ára gamalli samkynhneigðri vampíru. Þau fella hugi saman og þau eru í raun á flótta undan Jens og eru líka elt á röndum af trúar- költi,“ segir Steindi um söguþráð myndarinnar. Myndin gerist í litlum bæ svip- uðum Reykjavík. Óöld liggur í loft- inu, glæpir og hrottaskapur eru daglegt brauð. „Móðir Huldu, sem skolar niður pillum með bláum Smirnoff á morgnana, trúir einnig að Hulda hafi drepið bróður sinn. Svo er Huldu sleppt vegna þess að það eru ekki nægar sannanir gegn henni og þá rekst hún á Hjört. Hann hjálpar henni að vekja upp dauðan bróður sinn.“ Dánarbeðurinn misskilningur Leikhópurinn X, sem saman- stendur af leikurum sem hingað til hafa einungis komið almenningi fyr- ir sjónir sem aukaleikarar, fer með helstu aðalhlutverk Þorsta. Þar er helst að nefna Hjört Sævar Steinason en ásamt honum fara Birgitta Sigursteinsdóttir, Birna Halldórsdóttir, Ester Sveinbjarnar- dóttir, Hulda Lind Kristinsdóttir og Jens Jensson með aðalhlutverk. Fjöldi landsþekktra og heims- þekktra leikara fer með aukahlut- verk, til dæmis Ingvar E. Sigurðs- son og Halldóra Geirharðsdóttir. „Þau standa sig alveg rosalega vel og fara í raun alveg á kostum. Þau eru mjög sannfærandi í sínum hlut- verkum,“ segir Steindi sem fram- leiddi þáttaröð fyrir Stöð tvö þar sem uppruni hugmyndarinnar að Þorsta er afhjúpaður. Er helsta ástæða þess að Steindi og leikhóp- urinn X réðust í gerð myndarinnar sú að Steinda langaði að leyfa Hirti loks að vera í aðalhlutverki þar sem hann væri dauðvona. „Hjörtur er ekki raunverulega dauðvona. Það var algjör misskiln- ingur. Hann er mjög ferskur og að sögn læknis held ég að hann sé í raun í miklu betra formi en ég þann- ig að hann er bara í toppmálum,“ segir Steindi. Ferlið sem sýnt er í þáttunum sýnir fram á að vinnan við kvik- myndina hafi ekki alltaf verið dans á rósum. „Það var rosalega erfitt og krefj- andi að gera mynd á tíu tökudögum. Sem betur fer erum við með fagfólk í hverju horni. Til dæmis hann Björn Leó sem er leikhússkáld Borgarleikhússins. Hann skrifar handritið. Davíð Berndsen semur tónlistina, hún ger- ir hrikalega mikið fyrir myndina. Við erum með Hákon Sverrisson tökumann og Sigga Bahama ljósa- mann þannig að við erum með alla þessa bestu úr bransanum í öllum stöðum þó að ég geti ekki talið alla upp,“ segir Steindi sem nefnir líka sérstaklega framleiðanda Þorsta, framleiðslufyrirtækið Obbosí sem hafi meðal annars staðið virkilega vel að eftirvinnslu myndarinnar. Hryllingsútgáfa af Mamma Mia Steindi telur að Þorsti sé ákveðið nýmæli í íslenskri kvikmyndasögu. „Eins og fólk veit þá er íslenska kvikmyndasenan búin að vera nokk- uð einsleit í smátíma. Þrátt fyrir að myndin sé ódýr held ég að það sé kærkomið að fá loksins eina mynd þar sem er hvorki sjávarþorp né lopapeysur heldur eitthvað allt ann- að.“ Steindi vill sjá fólk lifa sig inn í Þorsta. „Þetta er svona stemnings- mynd og þegar þú heyrir einhvern svona klisjulegan „one-liner“ eða einhver er myrtur á mjög hrottaleg- an hátt þá vil ég heyra fólk öskra eða klappa. Ég lít á þetta sem hryll- ingsútgáfuna af Mamma Mia.“ Hrollvekja tekin upp á 10 dögum Hjörtur Aðalpersóna kvikmyndarinnar er samkynhneigð vampíra.  Hvorki lopapeysur né sjávarþorp í splunkunýrri íslenskri vampírumynd Steinþór Hróar Steinþórsson Nornin er önnur bók í yfirlýstum þríleik eftirHildi Knútsdóttur.Fyrsta bókin, Ljónið, kom út í fyrra og fyrir hana hlaut Hildur Barnabókaverðlaun Reykja- víkurborgar í flokki frumsaminna barna- og ungmennabóka. Undirrituð var mjög hrifin af Ljóninu og beið spennt eftir fram- haldi af ævintýrum vinkvennanna Kríu og Elísabetar, sem voru á fyrsta ári í MR þegar lesendur fengu að kynnast þeim. Sjokkið er vægast sagt gríðarlegt þegar sögu- svið Nornarinnar kemur í ljós og til að skemma ekki fyrir lesendum er best að segja sem minnst frá sögu- þræðinum. Kría og Elísabet koma samt sem áður við sögu, en alls ekki með þeim hætti sem búist var við. Til að gefa ákveðna vísbendingu er hægt að flokka Nornina í tvennt: Annars vegar ungmennabókmennt- ir og hins vegar umhverfis- og lofts- lagsbókmenntir sem hafa verið að ryðja sér til rúms upp á síðkastið, enda hafa loftslagsmál og loftslags- váin aldrei verið fyrirferðarmeiri í samfélagsumræðunni. Loftslags- bókmenntir eru frekar nýjar af nál- inni en engu að síðu tekst Hildi að koma efninu frá sér á svo frum- legan hátt að það er ekki annað hægt en að dást að hugmyndaflug- inu og sköpunarkraftinum. Í Norninni fá lesendur að kynn- ast nýjum persónum sem koma frá öllum heimshornum og hafa því mismunandi bakgrunn. Alma fer þar fremst í flokki og það er aðdáunarvert að kynnast virðing- unni sem hún ber fyrir umhverfi sínu. Alma er á þrítugsaldri og á meðan jafnaldrar hennar kynnast félagslífinu sem fylgir háskólalíf- inu hefur Alma ákveðið að fara aðra leið í lífinu, sem leiðir hana óvænt á hættulegar slóðir, þó svo að fjölskyldusaga hennar hafi einnig áhrif á gang mála. Hildi tekst að skapa sannfær- andi samtöl persónanna sem eru áreynslulaus, sama hvort umræðu- efnið er hvers konar núðlur eigi að vera í matinn eða sjálf ástin. Atburðarásin verður æsispennandi eftir því sem líður á lesturinn og forvitnin drífur lesandann áfram. Dulúð og leyndardómar sem ein- kenndu Ljónið eru einnig ríkjandi í Norninni. Titill bókarinnar, Nornin, er líkt og í Ljóninu sveipaður nokk- urri dulúð og koma nokkrar persón- ur til greina sem hin eiginlega norn, ef það eru þá eftir allt saman skila- boð titilsins. Í Ljóninu leið manni á stundum eins og maður væri stadd- ur í miðri Twilight-sögu eða í ævin- týraheimi Narníu, vísunin var þó lúmsk og kannski alveg ómeðvituð. En nú þegar bæði Ljónið og Norn- in eru komnar fram býst maður hálfpartinn við að þríleikurinn endi á Skápnum, þótt ekki væri nema bara til að fullkomna vísunina í Narníubækur C.S. Lewis. Í skrifum sínum sýnir Hildur að hún er fullfær um að skapa sinn eigin stíl sem er frábrugðinn stíl allra annarra ungmennabókahöf- unda. Með frumkvæðinu, hug- myndafluginu og framtíðarsýninni sem kemur fram í Norninni fer það ekki á milli mála að Hildur er með- al allra bestu ungmennabókahöf- unda samtímans. Morgunblaðið/Eggert Stíll Í skrifum sínum sýnir Hildur að hún er fullfær um að skapa sinn eigin stíl, frábrugðinn stíl allra annarra ungmennabókahöfunda, segir í rýni. Ungmenni og loftslagsmál – æsispennandi blanda Unglingasaga Nornin bbbbm Eftir Hildi Knútsdóttur. JPV gefur út. 331 bls. innb. ERLA MARÍA MARKÚSDÓTTIR BÆKUR Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottum fatnaði. Fatnaður fyrir fagfólk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.