Morgunblaðið - 28.10.2019, Page 32
Hægt og hljótt
– vandaðar hurðapumpur í úrvali
Rafknúnar hurðapumpur eru mikilvæg öryggistól sem
tryggja fötluðum og öldruðum aðgengi og eru til
þægindaauka fyrir okkur öll. Rétt stillt hurðapumpa
kemur í veg fyrir slys á fólki. Eigendum og umsjónar-
fólki fasteigna ber skylda til að tryggja öryggi þeirra
sem leið eiga um. ÍVélum og verkfærum fást margar
gerðir af rafknúnum hurðapumpum, m.a. rafeinda-
stýrðar, fyrir inni- og útihurðir og eldvarnarhurðir.
Sérfræðingar okkar veita allar nánari upplýsingar.
SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS
Face SW2
Fyrir innihurðir allt að
200 kg (ekki þar sem er
mikill dragsúgur).
Silfur, mjög nett H:82
mm/D: 117 mm/L:443
mmVottuð samkvæmt
EN 16005.
Ath. skoða þarf aðstæður
hverju sinni.
EMO
Rafeindastýrð
hurðapumpa. Hámarks
hurðarbreidd 1400 mm.
Hámarksþyngd hurða-
blaðs 210 kg. Ekki fyrir
eldvarnarhurðir eða
útihurðir. Ath. skoða þarf
aðstæður hverju sinni.
EMSW
Rafknúin. (Getur einnig
lokað mekanískt).
Hentug fyrir eldvarnar-
og útihurðir. Hámarks
hurðarbreidd 1600mm.
Hámarksþyngd hurðar-
blaðs 250 kg.Vottuð
samkvæmt EN 16005.
Ath. skoða þarf aðstæður
hverju sinni.
PSW250
Mjög nett en öflug raf-
eindastýrð pumpa. Getur
einnig lokað mekanískt.
Hentug fyrir eldvarnar-
hurðir og útihurðir.
Hámarksþyngd hurðar-
blaðs 250 kg.Vottuð
samkvæmt EN 16005.
Ath. skoða þarf aðstæður
hverju sinni.
Verð 93.310 kr. m. vsk*
Verð 144.770 kr. m. vsk*
Verð 165.726 kr. m. vsk*
Verð 187.550 kr. m. vsk*
*Verð miðað við gengi EUR 1.2.2019
Unglist, listahátíð ungs fólks, hefst
í dag og stendur til 6. nóvember.
Hátíðin er vettvangur fyrir ungt og
upprennandi listafólk og fá skáld-
skapur og myndsköpun að flæða
frjálst í takt við tónlistarveislur,
óheftan dans, lifandi leiklist og
aðra viðburði þar sem sköpunar-
gleðin er höfð í öndvegi, eins og
segir á vef hátíðarinnar, unglist.is,
þar sem finna má dagskrá. Hátíðin
hefst í kvöld á Stóra sviði Borgar-
leikhússins þar sem ungir dansarar
sýna verkið Sálir á sviði.
Unglist hefst í dag
MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 301. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Að horfa upp á liðið kasta frá sér
unnum leik á síðustu þremur mín-
útum leiksins var ótrúleg sjón.
Leikmenn sem hafa æft handbolta
frá blautu barnsbeini virkuðu allt í
einu eins og þeir væru að fá bolt-
ann í hendurnar í fyrsta sinn,“ segir
meðal annars í umfjöllun blaðsins
um leik Stjörnunnar og Vals í Olís-
deild kvenna. »26
Garðbæingar köstuðu
frá sér unnum leik
ÍÞRÓTTIR MENNING
Ekki verður starf
þjálfarans einfaldara
„Ég fékk mjög mikið af svörum en
það gerir starfið mitt ekkert ein-
faldara,“ sagði Guðmundur Þ. Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari karla í
handknattkleik, í samtali við Morg-
unblaðið þegar hann var inntur eft-
ir því hvort hann hefði fengið þau
svör sem hann kallaði eftir í vin-
áttuleikjunum tveimur gegn Sví-
þjóð. Guðmundur valdi leikmenn
með litla leik-
reynslu úr A-
landsleikjum í
hópinn. »27
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Stefnt er að því að prentsögusetur
verði opnað almenningi í aflögðu fjósi
og hlöðu á Skálholtsstað innan
tveggja ára. Félagið Prentsögusetur,
sem var stofnað 2015, kostar allar
breytingar á húsnæðinu og kemur
upp varanlegri sýningu með tölvu- og
sýningarstjórnun, en Skálholts-
staður mun síðan sjá um reksturinn.
Félagið Prentsögusetur var eink-
um stofnað í þeim tilgangi „að stuðla
að söfnun, skráningu og varðveislu
minja sem tengjast prentsmiðju-
rekstri á Íslandi frá upphafi, með
megináherslu á þróun tækjabúnaðar,
efnisnotkunar og vinnubragða“ eins
og stendur í markmiðalýsingu.
Heimir Br. Jóhannsson, formaður
Prentsöguseturs, rak áður Bóka-
miðstöðina í Brynjuportinu svo-
nefnda á Laugavegi 29B. Þar er vísir
að prenstmiðjusafni, rétt eins og á
Seyðisfirði, og verður það væntan-
lega þar áfram, en aðrir munir, sem
félagið á í geymslu, verða fluttir aust-
ur. Þorsteinn Veturliðason, stjórnar-
maður í Prentsögusetri, segir að safn
prentvéla, sem fylli tvo stóra gáma,
verði flutt austur auk annarra tækja
og tóla. „Við eigum tæki sem spanna
alla þróunina frá 1540, meðal annars
gamla pressu, sem er eftirlíking af
fyrstu Gutenberg-vélinni.“ Hann
bætir við að hugmyndin sé einnig að
sýna bókakost í svonefndri bókhlöðu.
„Uppistaðan er úr bókasafni Þor-
steins Þorsteinssonar, sem er varð-
veitt í turni Skálholtskirkju, ómet-
anlegt safn, þar sem elstu bækurnar
eru frá 1634.“
Kúabúskapur var lagður niður í
Skálholti í sumar. Haukur Már Har-
aldsson, fyrsti formaður Prentsögu-
seturs, segir að þá hafi komið upp sú
hugmynd að fá fjósið undir safnið,
þar sem sagan segi að Oddur Gott-
skálksson hafi þýtt Nýja testamentið
í fjósi Skálholtsstaðar, fyrstu bók
sem prentuð var á íslensku. „Skál-
holtsmenn með Kristján Björnsson
vígslubiskup í broddi fylkingar fengu
strax áhuga á málinu,“ segir hann og
bætir við að samstarfssamningur
milli Skálholtsstaðar og Prent-
söguseturs verði undirritaður fljót-
lega.
Mikil lyftistöng
Félagarnir segja það mikla lyfti-
stöng fyrir staðinn og söguna að hafa
safnið í Skálholti. „Þetta verður
ómetanlegt,“ segir Haukur Már.
„Húsnæðið er kjörið fyrir þetta verk-
efni. Það hefur sögulega skírskotun
og er auk þess mjög hentugt fyrir
þessa menningarstarfsemi.“
Þorsteinn hefur fyrir hönd félags-
ins haldið utan um söfnun gripa og
séð um samskipti við forráðamenn
Skálholtsstaðar vegna málsins. Ný-
lega fékk hann Björn G. Björnsson,
leikmynda- og búningahöfund hjá
Leikmynd, til þess að festa á blað til-
lögu um nýtingu rýmis í fjósinu og
hlöðunni og tilhögun sýninga. Hann
segir að áætlun miði að því að safnið
verði opnað fyrir mitt ár 2021.
„Framkvæmdahraðinn veltur á því
hvernig fjárlaganefnd Alþingis af-
greiðir styrkbeiðni okkar og Skál-
holtsstaðar,“ segir hann. Haukur
Már bætir við að auk þess verði hug-
að að fjármögnun á fleiri stöðum.
Stefnt að prentsögu-
setri í Skálholti
Fyrstu formennirnir Haukur Már Haraldsson og Heimir Br. Jóhannsson.
Gamla fjósið og hlaðan henta vel fyrir varanlega sýningu
Í fjósinu Kristján Björnsson vígslubiskup og Svanur Jóhannesson, einn lyk-
ilmanna við stofnun Prentsöguseturs. Þorsteinn Veturliðason fyrir aftan.