Morgunblaðið - 29.10.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 29.10.2019, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 9. O K T Ó B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  254. tölublað  107. árgangur  ARNÓR INGVI SKORAÐI Á LOKA- MÍNÚTUNUM SETJA UPP STÓLANA FJALLA UM FALSFRÉTTIR Á ÞINGI RÁÐSINS HVERSDAGSLEIKHÚSIÐ 28 NORÐURLANDARÁÐ 14SVÍÞJÓÐ 24 Örvar eftirspurnina » Kjartan Hallgeirsson, for- maður FF, segir hagstæð lána- kjör styrkja sérbýlismarkaðinn. » Ari Skúlason, sérfræðingur hjá LÍ, segir lægri vexti hafa örvað markaðinn undanfarið. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG verks, telur hugsanlegt að það eigi þátt í niðursveiflunni að bankarnir hafi takmarkað útlán. Vísbendingar séu um að fjármálastofnanir hafi dregið úr útlánum til framkvæmda. Þá hafi vaxtalækkanir Seðlabank- ans ekki skilað sér að fullu. „Vextir hafa lækkað mikið. Því er einkennilegt að það skili sér aðeins að litlu leyti til lántaka og að samhliða vaxtalækkunum skuli vera skortur á lánsfé,“ segir Þorvaldur. Gunnar Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðs- ins, segir vaxtalækkanir draga úr hvata til sparnaðar. Það geti aftur skert útlánagetu bankanna. Margt bendi til að vextir muni hækka. „Við gætum verið að fara inn í skandinavískt umhverfi þar sem vext- ir eru almennt lágir en húsnæðisverð í þéttbýli hátt,“ segir hann. Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri SI, líkir lánamarkaði við kjörbúð þar sem vöruverð er að lækka en allar hillurnar eru tómar. Framboðið fylgi ekki vaxtalækkun. Vegur gegn vaxtalækkun  Forstjóri ÞG verks telur vaxtalækkanir ekki skila sér vegna skorts á lánsfé  Framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins segir lága vexti hafa vissa ókosti MSkortur á lánsfé … »6 Vörumerki Núverandi merki KSÍ var tekið í notkun árið 1997. „Margt í núverandi merki er fremur erfitt til notkunar og kallaði á upp- færslu, ekki síst ef tekið er tillit til allra þeirra nýju miðla sem við þurf- um að vera sýnileg á,“ segir Stefán Sveinn Gunnarsson, sviðsstjóri mark- aðssviðs Knattspyrnusambands Ís- lands, KSÍ. Sambandið hefur samið við auglýs- ingastofuna Brandenburg um stuðn- ing við mótun, uppbyggingu og þróun á vörumerkjum sambandsins með það að markmiði að efla ásýnd KSÍ, auka erlenda tekjumöguleika þess og færa aukinn kraft í markaðsstarf. Núver- andi vörumerki KSÍ var tekið í notk- un árið 1997 og þykir það vera nokkuð hár aldur þegar kemur að vörumerkj- um. Stefán segir þörfina fyrir að efla vörumerki KSÍ á erlendri grundu aldrei hafa verið meiri. „Íslensk knattspyrna er orðin heimsþekkt í kjölfar undangenginnar velgengni og við vildum skerpa á þeim tengingum sem landsliðin okkar hafa. Við sjáum aukna tekjumöguleika á heimsvísu og erum sífellt að leita leiða til að fá að borðinu erlend fyrirtæki sem sjá hag sinn í því að tengja sig við þau gildi sem við höfum yfir að búa.“ »12 Kominn tími á breytingar  KSÍ þróar vörumerki sambandsins með Brandenburg Nokkuð hefur kólnað í veðri að undanförnu, enda veturinn formlega hafinn. Kvöldkulið hindraði þó ekki viðskiptavini ísbúðarinnar Val- dísar í því að gæða sér á dýrindis ís, jafnt í boxi sem í vöffluformi. Það hefur enda lengi tíðkast hér á landi að láta ekki veðrabrigðin á sig fá, þegar ís er ann- ars vegar, og skiptir þá litlu þó að heitar vöfflur séu einnig í boði. Aldrei of seint að fá sér ís og vöfflur í kvöldkulinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tekið að kólna í veðri  Grímsnes- og Grafningshreppi er ekki heimilt að leggja fasteigna- skatt á sumarbústaði sem eru í út- leigu til skamms tíma, sem um at- vinnuhúsnæði væri að ræða. Landsréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms og úrskurð yfirfast- eignamatsnefndar í þessa veru í máli eigenda eins sumarhúss í sveit- inni. Starfsmaður hreppsins fylgdist með síðum þar sem heimagisting er auglýst og lagði hærri fasteigna- skatt á eigendur húsa þann tíma sem þau voru leigð út. Héraðs- dómur og Landsréttur töldu að vilji löggjafans hefði ekki staðið til breytinga á skráningu fasteigna þótt þær væru leigðar út tímabund- ið til ferðamanna. »10 Ekki heimilt að hækka skattinn Samherji krefst 306 milljóna króna í skaðabætur og tíu milljóna króna í miskabætur frá Seðlabanka Íslands (SÍ) vegna rannsóknar bankans á meintum brotum fyrirtækisins á reglum um gjaldeyrismál. Krafa félagsins byggist helst á lögmannskostnaði og öðrum sér- fræðikostnaði, að sögn Garðars G. Gíslasonar, lögmanni Samherja. Garðar segir yfirlýsingu Seðla- bankans um meintan upplýsingaleka frá bankanum til fréttamanns RÚV öfugsnúna. Þar segir meðal annars að húsleit hjá Samherja árið 2012 hafi verið á vitorði margra. „Þetta er eins óeðlilegt og það getur verið og hún dæmir sig eiginlega sjálf þessi yfirlýsing. Að leitin hafi verið á vit- orði margra, það er auðvitað ekki þannig,“ segir Garðar. „Ég á mjög langa sögu í allskonar húsleitum báðum megin við borðið, ég var í 17 ár hjá Skattrannsókn- arstjóra og stýrði hundruðum leita þar en þetta er í eina skiptið sem ég hef mætt á leitarstað sem lögmaður þar sem fjölmiðlar eru mættir á und- an mér,“ segir Garðar en nánar er rætt við hann á mbl.is. »4 Samherji krefur SÍ um 306 milljónir  Nokkuð er um að útselir kæpi á norðurodda Surtseyjar, en þeir voru þó talsvert færri í leiðangri sem farinn var fyrr í mánuðinum heldur en var haustið 2017. Fjöld- inn nú var í takt við aðrar selataln- ingar í eyjunni. Tilgangur leiðangursins nú var einkum að fá yfirlit um dreifingu og fjölda selkópa í látrinu, sem er á norðurtanga eyjarinnar, m.a. til að kanna hvort selirnir hafi átt þátt í gróðurframvindu á tanganum undanfarin ár. Þar hefur gróður aukist mjög á sama tíma og selum hefur fjölgað. Það er hliðstæða við mávabyggðina sem hefur gróið upp sunnar á eynni. »4 Ljósmynd/Jóhann Garðar Þorbjörnsson Í látri Urta ásamt nýkæptum kópi sínum á Norður-Ströndum fyrir nokkrum árum. Aukinn gróður sam- hliða fjölgun sela

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.