Morgunblaðið - 29.10.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019
Um fjörutíu manns leituðu til bráðamóttöku
Landspítalans í gær vegna hálkuslysa. Strax
klukkan ellefu höfðu um þrjátíu manns leitað til
bráðamóttökunnar af sömu ástæðum.
Jón Magnús Kristjánsson, yfirlæknir bráða-
lækninga á Landspítalanum, segir að um óvenju-
mörg slys hafi verið að ræða. „Það er óvenjulegt
að svo margir komi á einum degi en þetta er það
sem við sjáum oft á fyrsta hálkudegi vetrar,“
segir Jón Magnús.
Hann samsinnir því að ástæðan fyrir svo
mörgum slysum sé líklega sú að fólk sé ekki und-
irbúið fyrir hálkuna á fyrsta degi.
Eins og hálkuslysin gefa til kynna var fljúg-
andi hálka á höfuðborgarsvæðinu í gær. Um-
ferðaróhapp varð á Flóttamannaleið sem liggur
meðal annars á milli uppsveita Garðabæjar og
Hafnarfjarðar rétt fyrir ofan Urriðavatn. Þar
valt söltunarbíll og munaði litlu að hann endaði á
fólksbíl sem þegar var utan vegar. Engin slys
urðu hins vegar á fólki.
Auk þess valt bíll í hálkunni á Dalvegi í Kópa-
vogi á níunda tímanum í gærmorgun. Ökumað-
urinn slapp ómeiddur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjörutíu manns á bráðamóttöku vegna hálku
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Ég get staðfest að lýst var yfir
neyðarástandi, en að öðru leyti get
ég ekki tjáð mig mikið um rannsókn-
ina,“ segir Ragnar Guðmundsson,
rannsakandi hjá Rannsóknarnefnd
samgönguslysa, í samtali við Morg-
unblaðið og vísar í máli sínu til flug-
atviks, sem rannsakað er sem alvar-
legt, og átti sér stað á Keflavíkur-
flugvelli í gærmorgun. Varðar það
farþegaþotu Icelandair sem var á
leið til landsins frá Seattle í Banda-
ríkjunum. Vélin lenti heilu og
höldnu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Isavia voru þrjár farþegaflugvélar
Icelandair á leið til Keflavíkur eftir
atvik sem upp kom í lendingu hjá
fjórðu vélinni, lítilli flugvél með tvo
um borð. Sú vél rann út af brautinni
en vegna þess atviks þurftu vélar
Icelandair að bíða. Tveimur þeirra
var flogið til Akureyrar en þriðja vél-
in var þegar komin í biðflug. Hættu-
stigi var lýst yfir á Keflavíkurflug-
velli kl. 6.25 eftir að flugmenn
þeirrar vélar lýstu yfir neyðar-
ástandi. Isavia segir flugmenn hafa
notað orðin „low fuel“ í því sam-
hengi. Neyðarástandi var svo aflýst
kl. 6.31 þegar vélin hafði lent án
vandræða í Keflavík.
Ragnar segir mál litlu vélarinnar
og flugvélar Icelandair vera rann-
sökuð sem „alvarleg flugatvik“.
Þrjár ástæður liggja þar að baki;
flugvél fór út af braut, lýst var yfir
neyðarástandi og flugvél var lent á
lokaðri flugbraut. „Við höfum nú
tekið flugritana og munum rannsaka
þá og önnur gögn sem liggja fyrir,“
segir Ragnar enn fremur.
Skilyrði sögð slæm í Reykjavík
Haukur Reynisson, flugrekstrar-
stjóri Icelandair, segir flugmenn
þeirra véla sem lentu á Akureyri
hafa ákveðið að halda þangað strax
eftir að ljóst var að flugbrautin var
lokuð. Sú sem lenti í Keflavík var aft-
ur á móti á undan þeim og þegar
komin í aðflug fyrir völlinn.
„Hún er þá í minni hæð og brennir
meira eldsneyti. Sú vél var með
Reykjavíkurflugvöll sem varaflug-
völl, eins og margar okkar flugvéla,
en bremsuskilyrði á Reykjavíkur-
flugvelli voru ekki góð,“ segir Hauk-
ur og bætir við að flugstjórinn hafi
metið öruggast að lenda í Keflavík.
„En til þess að fá að lenda á braut
sem er „blokkuð“ þarf hann að lýsa
yfir neyðarástandi þrátt fyrir að
nota ekki nema helminginn af braut-
inni,“ segir Haukur, en flugbrautin
er 3 km. Spurður hver eldsneytis-
staða vélarinnar hafi verið svarar
Haukur: „Fyrir flugið þurfti vélin 30
tonn og þeir voru með rúmlega það
þegar lagt var af stað. Eldsneyti var
nægjanlegt til að fljúga til Keflavík-
ur, bíða yfir vellinum í hálftíma,
fljúga á varaflugvöll og lenda þar.
Allt í samræmi við okkar reglur.“
Neyðarástand vegna eldsneytis
Tvö flugatvik sem upp komu á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun eru rannsökuð sem „alvarleg“ Vél
fór út af flugbraut og önnur lýsti yfir neyðarástandi og lenti á lokaðri braut Flugritar verða skoðaðir
Morgunblaðið/Eggert
Samgöngur Flugvél Icelandair frá Seattle lenti á lokaðri braut í Keflavík.
Birgir Ísleifur Gunnarsson, fyrrverandi
borgarstjóri og seðlabankastjóri, lést á líkn-
ardeild Landspítalans í Kópavogi í gær.
Birgir fæddist í Reykjavík 19. júlí 1936. For-
eldrar hans voru Gunnar Espólín Benedikts-
son, hrl. og forstjóri, og Jórunn Ísleifsdóttir
ritari. Birgir varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1955 og lauk lögfræði-
prófi frá Háskóla Íslands 1962. Birgir starf-
aði fyrst um sinn sem lögmaður í Reykjavík
og varð héraðsdómslögmaður 1962 og
hæstaréttarlögmaður 1967.
Birgir tók alla tíð virkan þátt í stjórn-
málum. Hann var formaður Vöku, félags lýð-
ræðissinnaðra stúdenta, frá 1956 til 1957 og
formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands frá
1957 til 1958 og sat jafnframt í háskólaráði
f.h. stúdenta. Hann var formaður Heimdallar frá 1959-
1962 og formaður SUS frá 1967 til 1969. Hann sat í
borgarstjórn Reykjavíkur frá 1962 til 1982 og var borg-
arstjóri frá 1972 til 1978. Hann var alþingismaður fyrir
Reykjavíkurkjördæmi frá 1979 til 1991 og gegndi embætti
menntamálaráðherra frá 1987 til 1988 í rík-
isstjórn Þorsteins Pálssonar. Birgir var
skipaður seðlabankastjóri 1991 og formaður
bankastjórnar 1994 og gegndi því starfi þar
til hann fór á eftirlaun 2005.
Birgir starfaði í fjölda nefnda og ráða og
var m.a. formaður sendinefndar Alþingis
hjá þingmannasamtökum Atlantshafs-
bandalagsins 1983 til 1987 og var í sendi-
nefnd Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna frá 1980 til 1988. Birgir var mikill
áhugamaður um skógrækt og átti sæti um
árabil í stjórn Skógræktarfélags Reykjavík-
ur. Hann sat einnig í sóknarnefnd Hall-
grímskirkju. Birgir var virkur félagi í Rót-
arý á Íslandi og var forseti samtakanna um
nokkurt skeið. Birgir ritaði fjölda greina í
blöð og tímarit, einkum um stjórnmál. Birgir var heiðr-
aður með ýmsum hætti fyrir margvísleg störf og hlaut
hann m.a. stórriddarakross íslensku fálkaorðunnar.
Birgir giftist Sonju Backman skrifstofustjóra árið 1956
og eignuðust þau fjögur börn. Sonja lést 5. október sl.
Andlát
Birgir Ísleifur Gunnarsson
Dekkjaþjónusta
Úrval fólksbíla- og jeppadekkja
SAMEINUÐ GÆÐI
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Svandís Svav-
arsdóttir heil-
brigðisráðherra
segir stöðuna á
Reykjalundi
mjög alvarlega.
Tveir læknar til
viðbótar sögðu
upp störfum í
gær og hafa því
átta af fimmtán
læknum Reykja-
lundar sagt upp störfum á síðustu
vikum. Fjórir til viðbótar eru að
skoða stöðu sína.
„Það er náttúrlega alveg ljóst að
það verður að finna leið til þess að
koma starfseminni aftur á réttan
kjöl,“ segir Svandís.
Hún segir jafnframt að ríkið geti
ekki gripið inn í aðstæðurnar með
beinum hætti þar sem Reykjalund-
ur sé sjálfseignarstofnun.
„Bæði Sjúkratryggingar Íslands
og Embætti landlæknis hafa óskað
eftir upplýsingum um stöðuna frá
stjórn SÍBS. Ég er upplýst um þessi
bréfaskipti og ekkert svar hefur
borist.“ ragnhildur@mbl.is
Segir stöð-
una mjög
alvarlega
Ríkið geti ekki
gripið í taumana
Svandís
Svavarsdóttir