Morgunblaðið - 29.10.2019, Page 6

Morgunblaðið - 29.10.2019, Page 6
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG verks, segir vísbendingar um að fjármálastofnanir hafi dregið úr út- lánum til framkvæmda. „Það virðist eiga við framkvæmd- ir almennt,“ segir Þorvaldur sem telur hugsanlegt að niðursveiflan sé að einhverju leyti tilkomin vegna takmarkaðra útlána bankanna. Að einhverju leyti hafi samverkandi þættir skapað ástandið. Hann kveðst aðspurður ekki áður hafa upplifað þessa stöðu á mark- aði. „Vextir hafa lækkað mikið. Því er einkennilegt að það skili sér aðeins að litlu leyti til lántaka og að sam- hliða vaxtalækkunum skuli vera skortur á lánsfé,“ segir Þorvaldur. ÞG verk er eitt stærsta verktaka- fyrirtæki landsins. Það byggir íbúð- ir og atvinnuhúsnæði víða um land. Ættu að örva markaðinn Seðlabankinn greinir næst frá vaxtaákvörðun 6. nóvember. Bankinn hefur lækkað megin- vexti í fjórum lotum í röð og með því hafa vextir íbúðalána farið lækkandi. Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir vísbendingar um að vaxta- lækkanir Seðlabankans í ár hafi ekki skilað sér sem skyldi vegna takmarkaðrar útlánagetu bank- anna. „Seðlabankinn lækkar vexti til að örva eftirspurn í hagkerfinu og örva fjárfestingu. Ef það á hins vegar að raungerast þarf að vera framboð á fjármagni,“ segir Sigurð- ur. Spurður um leiðir til úrbóta bendir hann á að Seðlabankinn hafi ákveðið að frá og með 1. apríl 2020 muni bankinn fækka þeim aðilum sem átt geta viðskiptareikning í bankanum. Það sé liður í að koma fjármagni og innlánum í bankana. Það geti aftur orðið til þess að örva útlán bankanna. „Ef þetta er raunin má segja að lánamarkaðurinn sé kjörbúð þar sem vöruverðið er að lækka en allar hillurnar eru tómar.“ Sía meira út af verkefnum Fjárfestir sem kemur að upp- byggingu íbúða víða á höfuð- borgarsvæðinu segir að þótt útlána- skilyrði hafi verið hert sé vel hægt að fá lán. „Ég var að fjármagna eitt verk- efnið. Það er ekki búið að taka í handbremsuna heldur eru fjármála- stofnanir farnar að sía meira út af verkefnum … Ég hef heyrt að um- sóknum um íbúðalán hjá bönkunum hafi fjölgað undanfarið. Fasteigna- salar segja mér að það sé fyrst og fremst vegna þess að afgreiðslutími lífeyrissjóða á íbúðalánum sé orðinn svo langur,“ sagði fjárfestirinn. Taldi hann vaxtalækkanir hafa örvað markaðinn. Þá hafi ekki orðið marktæk breyting á hlutfalli þeirra sem falla á greiðslumati. Jafnframt geti svokallaður krónuskortur á markaði orðið til að draga úr upp- byggingu nýrra íbúða. Bankana skorti fjármagn til útlána. Skortur er á lánsfé í hagkerfinu  Forstjóri ÞG verks segir vísbendingar um að takmörkuð útlánageta banka ýti undir niðursveifluna  Forstjóri Samtaka iðnaðarins líkir íbúðalánamarkaði við kjörbúð sem er með tómar vöruhillur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Á Hlíðarenda Horft til austurs eftir Smyrilshlíð í Vatnsmýri. Hundruð íbúða eru í uppbyggingu á svæðinu. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019 Skrifað var undir samning í gær um nám í íþróttafræði á háskólastigi við Háskólann í Reykjavík, sem kennt verður í Vestmannaeyjum. Náminu er ætlað að nýtast sem grunnur að áframhaldandi námi í íþróttafræði. Samningurinn nær til næstu tveggja skólaára og verkefninu er ætlað að efla háskólanám á landsbyggðinni, að því er segir á vef Vestmannaeyja- bæjar. Fyrsta skólaárið verða sex nám- skeið haldin í fjarkennslu í gegnum fjarfundabúnað í Þekkingarsetri Vestmannaeyja. Auk þess munu kennarar koma til Eyja tvisvar á önn til að vinna með nemendum. Tvö verkleg námskeið verða haldin í Vestmannaeyjum. Nemendur munu sækja tvö þriggja vikna námskeið í Reykjavík en taka öll skrifleg próf í Þekkingarsetri Vestmannaeyja. Námið hefst haustið 2020. HR mun bera ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd námsins og ráða um- sjónarmann sem búsettur verður í Eyjum. Bærinn mun leggja til íþróttamannvirki til kennslu í verk- legum greinum, s.s. handknattleik, knattspyrnu og sundi, en jafnframt leggja til aðstöðu fyrir kennslu gegnum fjarfundabúnað. Ráðu- neytið mun leggja til fjármagn, ráð- gjöf og annast eftirfylgni. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Eyjar Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri, Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráð- herra og Hafrún Kristjánsdóttir frá HR skrifuðu undir samninginn í gær. HR með íþróttafræði- kennslu í Eyjum Ari Skúlason, sérfræðingur hjá Lands- bankanum, segir íbúða- markaðinn hafa tekið við sér eftir vaxtalækkanir undanfarið. „Það voru mun meiri verð- hækkanir [á höfuðborgarsvæð- inu] í ágúst og september en verið hafa lengi. Verðið hækkaði um 0,6% báða mánuði. Þá voru mun meiri viðskipti í september en verið hafa lengi,“ segir Ari. Fátt bendi til að hægt hafi á uppbyggingu íbúða. „Þegar óvissan var hvað mest vegna kjarasamninga og gjaldþrots WOW air var reiknað með töluverðu höggi á íbúða- markaðinn. Höggið er hins vegar minna en reiknað var með. Svo er það hitt að menn vilja klára verkefnin,“ segir Ari. Með hliðsjón af hagstæðum lánakjörum og spám um skammvinna niðursveiflu séu kauptækifæri á markaði. Tækifæri í sérbýlinu Kjartan Hallgeirsson, formaður Félags fasteignasala, segir eig- endur sérbýlis hafa góð kaup- tækifæri á markaði vilji þeir nýjar íbúðir. Framboð af sérbýli sé enda takmarkað en að sama skapi hafi framboð nýrra íbúða í háum gæðaflokki aukist mikið undanfarið. Vegna hagstæðra lánakjara hafi margir nú tækifæri til að stækka við sig og flytja í sér- býli. Minna högg en talið var ÍBÚÐAMARKAÐUR Ari Skúlason Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins, segir ýmislegt benda til að vextir á markaði séu að ná lágmarki. Þegar vextir séu lágir sé tækifæri fyrir lántaka til að endurfjármagna eldri og óhag- stæðari lán. Hins vegar sé óvíst hvort ný lán borgi sig. Það þurfi að vega og meta í hverju tilviki, m.a. út frá þróun verðlags og fasteignaverðs ef fólk er að spá í íbúðarkaup. „Við gætum verið að fara inn í skandinavískt umhverfi þar sem vextir eru almennt lágir en húsnæðisverð í þéttbýli hátt. Þar hefur samsetning á greiðslubyrði húsnæðislána breyst á liðnum árum, vextir lækkað en á móti hafa afborganir höfuðstóls hækkað vegna hærra húsnæðisverðs,“ segir Gunnar. Spurður um vaxtaþróunina bendir Gunnar á samhengi innláns- og út- lánsvaxta og önnur atriði sem geta haft áhrif. ,,Um leið og vextir lækka dregur úr hvata fólks til að vera með innlán og þ.a.l. getu útlánsstofnanna til að lána. Margt bendir til þess að komið sé viðnám á vaxtalækkunina undanfarið og að meira jafnvægi sé að nást á milli eftirspurnar eftir lánsfé og framboðs,“ segir Gunnar. Hann bendir á að bankarnir hafi dregið úr útlánum til fyrirtækja. Þá séu sumir lífeyrissjóðir farnir að nálgast efri mörk í æskilegu hlutfalli sjóðfélagalána af eignum. „Fjárfestingarstefna sjóðanna mótast af eigna- og áhættudreifingarsjónarmiðum og sjóðirnir hafa ekki ótakmark- aða getu til að lána. Öll þessi atriði geta haft áhrif á þróun vaxta á næst- unni,“ segir Gunnar um stöðuna. Útlit er fyrir vaxtahækkanir SÉRFRÆÐINGUR SPÁIR VIÐNÁMI 35 cm verð 139.000,- 50 cm verð 209.000,- 70 cm verð 299.000,- Atollo Vico Magistretti 1977 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.