Morgunblaðið - 29.10.2019, Síða 8

Morgunblaðið - 29.10.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019 Andríki veltir upp þeirri spurn-ingu hvort þörf sé á veggjöld- um á meðan eldsneytissköttum sé kastað út um gluggann. Í nýlegum pistli segir: „Yfir milljarður af elds- neytissköttunum sem Íslendingar greiða árlega er notaður til að niðurgreiða innflutning á lífeldsneyti frá Evrópusam- bandslönd- unum. Þessir skatt- ar voru upp- haflega lagðir á eldsneytið til að standa und- ir vegagerð hér innanlands. Nú rennur hluti þeirra hins vegar úr landi sem nið- urgreiðsla á innkaupum á dýru og orkusnauðu lífeldsneyti sem bland- að er í bensín og dísilolíu sem seld eru hér á landi. Í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn á Alþingi kom fram að lögbundnar ívilnanir ríkisins „vegna þess magns lífeldsneytis sem flutt var inn eða notað á árinu 2015 hefðu numið 1,1-1,3 millj- örðum kr.“    Um næstu áramót gæti þessi só-un tvöfaldast ef farið yrði að kröfum Evrópusambandsins.“    Bent er á að vinstristjórnin al-ræmda hafi leitt þetta í lög og að tilskipunin sé liður í „þeirri stefnu ESB að koma endurnýj- anlegri orku innan sambandsins upp í 20%. Liechtenstein, sem er EFTA-ríki eins og Ísland, fékk und- anþágu frá tilskipuninni. Innleiðing þessarar tilskipunar frá ESB hér á landi var algerlega fráleit því yfir 70% heildar- orkunotkunar Íslendinga er þegar annað með innlendum endurnýj- anlegum orkugjöfum. Sem er heimsmet. Sama hlutfall fyrir ESB er 17%.“ Stefnir í tvöföldun sóunar á næsta ári STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Mosfellsbær vill ekki tjá sig um viðtal við móður stúlku á einhverfurófi í 10. bekk sem birt var í Sunnudags- blaðinu um liðna helgi. Þar segir frá því að stúlkan fái heimakennslu í að- eins eina klukkustund og tuttugu mínútur á dag þrátt fyrir að hafa upp- haflega verið lofað þriggja klukku- stunda kennslu. Bar hún skólastjóra Varmárskóla, sem stúlkan gengur í, þungum sökum og sagðist efast um að stúlkan geti klárað 10. bekk í vor og haldið áfram skólagöngu sinni. Stúlkan, sem er að sögn móðurinnar góður námsmaður, hefur verið lögð í mikið einelti á skólagöngu sinni. Morgunblaðið hefur eftir Arnari Jónssyni, forstöðumanni þjónustu og samskiptadeildar Mosfellsbæjar, að hvorki hann né neinn annar starfs- maður bæjarins megi tjá sig um mál- ið samkvæmt lögum um persónu- vernd. Hann segir í skriflegu svari sínu að mál sem þetta séu unnin eftir ákveðnu ferli hjá bænum og hags- munir barna séu í forgrunni. Þá segir hann að sinni Mosfellsbær ekki skyldum sínum „hafa mennta- og menningarmálaráðuneytið og Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar eftirlit með störfum sveitarfélaga á þeim sviðum sem um er rætt“. Svara ekki þungum sökum móður  Stúlka á einhverfurófi fær ekki kennslu við hæfi  Mega ekki tjá sig Colourbox Einelti Myndin tengist efni fréttar- innar ekki með beinum hætti. „Við höfum ekki úrræði til eigna- könnunar og höfum heldur ekki lög- sögu til að beita úrræðum erlendis, ekki nema það séu einhverjir samn- ingar um eitthvað slíkt í gangi,“ seg- ir Birna Ágústsdóttir hjá Sýslu- manninum á Norðurlandi vestra um sektir vegna umferðarlagabrota er- lendra ferðamanna og annarra sem ekki eru búsettir hér á landi þegar innheimta sektanna á sér stað en téð sýslumannsembætti sér um inn- heimtu sekta og sakarkostnaðar. Samningur milli norrænu land- anna um innheimtu sekta og sakar- kostnaðar er í gildi og því hægt að beita úrræðum ef einstaklingur er búsettur þar. Hins vegar er enginn samningur til staðar milli Íslands og annarra landa. Spurð segir Birna einhverjar þreifingar hafa verið á milli landa innan Evrópu um að hefja samstarf um innheimtu sekta en slíkt sé ekki langt á veg komið og ekkert verið rætt undanfarið að hennar vitn- eskju. „En svo eru ríkin svo ólík og sektarviðmiðin ólík.“ Sektir greiddar á staðnum Farsælast er að sektir fari ekki í innheimtu og fólk greiði sektir sínar á staðnum. „Ég held að yfir 90% geri það,“ segir Sveinn K. Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, en hlutfallið hefur hald- ist stöðugt síðan lögreglan hóf að bjóða fólki að greiða á staðnum. Hann segir þó ekki hægt að beita fólk sem býr erlendis þrýstingi að greiða um leið. „Fólk á rétt, hvort sem það eru Íslendingar eða erlend- ir aðilar, á að neita sektinni og fara með málið fyrir dóm,“ segir hann og þá er lítið hægt að gera ef fólk fer úr landi og til síns heima. Úrræðalaus gagn- vart ferðamönnum  Engir samningar utan Norðurlanda  90% greiða strax Morgunblaðið/Sverrir Sektir Ekki má þrýsta á fólk að greiða sektir sínar á staðnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.