Morgunblaðið - 29.10.2019, Síða 11
Siglufjörður
Sauðárkrókur
Varmahlíð
Hofsós
Hólar
Ólafsfjörður
Akureyri
Dalvík GrenivíkSkagafjörður
Ey
ja
fjö
rð
ur
Jarðgöng
Möguleg jarðgöng
Hofsdalur-Barkár-
dalur, um 20 km
Kortagrunnur: OpenStreetMap
Jarðgöng milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar
Kolbeinsdalur-
Skíðadalur,
12-15 km
Skíðadalur-Svarf-
aðardalur 12-15 km
Hjaltadalur-Hörgár-
dalur, 13-20 km 11
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ef ráðist yrði í undirbúning að gerð
jarðganga á milli Skagafjarðar og
Eyjafjarðar virðist vænlegast að
beina augum fyrst að göngum milli
Hofsdals innan við Hóla og Barkár-
dals inn úr Hörgárdal. Slík göng
yrðu þó mjög löng eða alls um 20 km
að lengd og skoða þyrfti mjög vel
öryggismál í slíku mannvirki. Jarð-
göngin myndu stytta vegalengdir
milli byggðakjarna verulega.
Þetta kemur fram í nýlegri
greinargerð sem Hreinn Haralds-
son, fyrrverandi vegamálastjóri,
hefur tekið saman að ósk Sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar og Akureyrar-
bæjar um möguleg jarðgöng milli
Skagafjarðar og Eyjafjarðar.
Hugmyndir um jarðgöng á Trölla-
skaga hafa öðru hvoru skotið upp
kollinum og skoruðu sveitarstjórnir
á Akureyri og í Skagafirði á stjórn-
völd snemma á þessu ári að skoða
þennan möguleika. Þá lagði Stefán
Vagn Stefánsson, varaþingmaður
Framsóknarflokksins, nýverið fram
þingsályktunartillögu á Alþingi þess
efnis að samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðherra setji í gang vinnu við
rannsóknir og mat á hagkvæmni
jarðgangagerðar á Tröllaskaga.
Greinargerð Hreins Haraldssonar
var lögð fram til kynningar í bæjar-
ráði Akureyrar í seinustu viku.
Hreinn fjallar um fyrri hug-
myndir um göng milli Skagafjarðar
og Eyjafjarðar í greinargerðinni og
ýmsa kosti sem ræddir hafa verið á
umliðnum árum en segir slík göng
þó ekki hafa komið til tals í lang-
tímaáætlunum um jarðgöng.
Fram kemur í samantekt Hreins
að einnig hafi sést hugmyndir um
göng milli Kolbeinsdals og Skíða-
dals inn af Svarfaðardal, og önnur
þaðan til Hörgárdals. ,,Þau yrðu
samanlagt nokkru lengri og dýrari
en fyrrnefnd 20 km göng en líklega
einfaldari m.t.t. öryggismála, þar eð
hvor göng yrðu 12-15 km. Tvenn
göng stytta að auki vegalengdir enn
frekar á milli fleiri þéttbýlisstaða á
Mið-Norðurlandi.“
En Hreinn bendir á að ef vinna
eigi áfram að skoðun á þessum
möguleikum virðist vænlegast að
beina augum fyrst að göngum milli
Hofsdals og Barkárdals og miða
helst við að munnar yrðu í um
eða undir 300 metra hæð yfir sjó.
Líklegasta gangalengd milli Hofs-
dals og Barkárdals er a.m.k. 20 km
en miða þyrfti við að munnar gang-
anna yrðu í um eða undir 300 metra
hæð yfir sjó að mati Hreins.
,,Göng eru mjög dýr mannvirki og
byggð til að nýtast í marga áratugi
eða jafnvel aldir, og því er krafa um
að unnt sé að komast í göngin án
mikilla vandkvæða, jafnvel á snjó-
þungum vetrum og göng mikið yfir
300 [metra yfir sjávarmál] eru varla
í myndinni. Skoða þarf aðstæður
fyrir gangamunna á hverjum stað
fyrir sig, til að geta betur gert sér
grein fyrir gangalengdum stystu
ganga sem uppfylla sett markmið.
Minna má á til viðmiðunar að veg-
urinn um Þverárfjall fer hæst í um
330 metra yfir sjávarmál. Með göng-
um á þessari leið yrði vegalengdin
milli Akureyrar og Sauðárkróks um
90 km eða 30 km styttri en í dag,
styttingin milli Akureyrar og Hofs-
óss yrði um 50 km og milli Akureyr-
ar og Hóla styttist leiðin um tæpa 70
km. Miðað við að hringvegurinn yrði
færður yfir á þessa leið yrði stytt-
ingin milli Akureyrar og Reykjavík-
ur um 7 km,“ segir í greinargerð-
inni.
Sérstök flóttagöng við hliðina
til að tryggja öryggi
Hreinn bendir á að örfá veggöng
af þessari lengd, um eða yfir 20 km
löng, hafa verið gerð í heiminum og
þá fyrst og fremst vegna þess að ör-
yggismál séu þá orðin erfið viður-
eignar og alþjóðlegar kröfur hafa
verið hertar á umliðnum árum.
„Ekki er t.d. ólíklegt að krafa yrði
gerð um önnur göng við hliðina eða
sérstök flóttagöng til að tryggja ör-
yggi vegfarenda, enda má reikna
með meira en 2000 bíla umferð á
dag ef hringvegur yrði færður yfir í
þessi göng. Þessi atriði þarf að
skoða gaumgæfilega ef kanna á
frekar möguleika á þessum fram-
kvæmdum,“ segir í greinargerðinni.
Hreinn segir að ef stjórnvöld
verði við áskorun sveitarfélaganna
um fjármögnun rannsókna og sam-
anburð kosta við gerð jarðganga
undir Tröllaskaga sé m.a. eðlilegt að
meta samfélags- og efnahagsleg
áhrif jarðganga, móta tillögur um
legu stystu jarðganga og gera könn-
un á öryggi í löngum jarðgöngum
(20 km). Meta þyrfti snjóþyngsli við
líklega vegi að jarðgöngum og kosti
og galla við færslu hringvegar o.fl.
20 km göng vænsti kosturinn
Hreinn Haraldsson hefur tekið saman greinargerð um jarðgöng milli Skaga-
fjarðar og Eyjafjarðar að ósk Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akureyrarbæjar
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019
Alþjóðadagur
psoriasis er dag,
29. október. Af
því tilefni efna
Spoex, Samtök
psoriasis- og ex-
emsjúklinga, til
fyrirlestra og
vörukynninga á
Grand Hótel
Reykjavík í dag frá kl. 17 til 19.30.
Kaffi og léttar veitingar verða í
boði.
Húsið verður opnað kl. 17 og
fyrsti fyrirlestur hefst hálftíma síð-
ar. Ingvar Ágúst Ingvarsson, for-
maður SPOEX og varaforseti
IFPA, mun fjalla um Alþjóða-
samtök psoriasissjúklinga og kynna
verkefnið Global Psoriasis Atlas.
Einnig flytja erindi þau Laufey
Steindórsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur og Ingvar Hákon Ólafsson,
tauga- og heilaskurðlæknir. Munu
þau fjalla um áhrif hugleiðslu og
hreyfingar á heilastarfsemina og
heilsuna. Þá verða tveir erlendir
fyrirlesarar, þau Sebastiano Forgia
og Ingeborg Beunders frá fyrir-
tækinu Boehringer Ingelheim.
Haldið upp á al-
þjóðadag psoriasis
Lögreglustjórinn á Norðurlandi
vestra hefur ákært Svein Margeirs-
son, fyrrverandi forstjóra Matís,
fyrir brot á lögum um slátrun og
sláturafurðir með því að hafa staðið
að sölu og dreifingu á fersku
lambakjöti af gripum sem hafði
verið slátrað utan löggilts slát-
urhúss. Sveinn sagði í samtali við
mbl.is í gær að hann liti svo á að
hann hefði ekki brotið nein lög í
raun og veru, en málið tengist slátr-
un á lömbum á bænum Birkihlíð, en
kjötið var síðan selt á bændamark-
aði á Hofsósi í Skagafirði. Sagði
Sveinn að hann teldi tilraunina hafa
verið í samræmi við hlutverk Matís.
thor@mbl.is
Fyrrverandi forstjóri
Matís ákærður