Morgunblaðið - 29.10.2019, Side 16

Morgunblaðið - 29.10.2019, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019 Það brutust út mik- il fagnaðarlæti þegar spurðist út á fundi loftslagssamnings SÞ í París í desember 2015 að náðst hefði samkomulag sem mið- aði að því að halda hlýnun jarðar innan 2°C marksins. Sjálfur fagnaði ég hér heima við þessar fréttir. Fylltist bjartsýni um stund, ekki veitti af því loftslagsmálin eru stundum uppfull af svartri framtíð- arsýn spádóma. Þeir allra bjart- sýnustu þá sögðu að þetta sam- komulag 195 ríkja myndi ekki aðeins ná jafnvægi á milli losunar og bindingar, heldur vera upphafið að endalokum olíualdar. Á þeim bráðum fjórum árum sem liðin eru frá Parísarfundinum hefur ýmislegt gengið á, Bandarík- in hættu við og á næsta ári taka skuldbindingar samkomulagsins við af Kýótóbókuninni frá 1997. Ís- lensk stjórnvöld hafa líka lagt fram metnaðarfulla aðgerðar- áætlun í loftslags- málum til ársins 2030 sem miðar að sam- drætti í losun og að skuldbindingum okkar vegna samningsins verði náð. Ég kafa ekki hér djúpt í efni samnings- ins en við erum í við- miðunarhópi með ESB-löndunum. Ná skal markmiðum um 40% samdrátt í losun árið 2030 miðað við 1990. Komið hefur verið upp viðskiptakerfi með losunarheim- ildir (ETS), en undir það fellur stóriðja og sá hluti alþjóðaflugs sem er í Evrópu. Önnur losun sem stjórnvöld í hverju ríki kappkosta að draga úr til ársins 2030 er frá vegasamgöngum, fiskiskipum, landbúnaði, úrgangi o.fl. Fyrr í þessum mánuði náðist samkomulag Íslands og Noregs við ESB á svið- ið loftslagsmála. Landsmarkmið Íslands kveður á um 40% sam- drátt. Samkvæmt samkomulaginu er lágmarksframlag Íslands 29% samdráttur í losunargeirum utan ETS-viðskiptakerfisins og er það miðað við árið 2005. Þetta er ekki alveg auðvelt að skilja, en rétt er að hafa í huga að þriðjungur þess stabba sem þarf að ráðast á kemur frá vegasam- göngum. Í ljósi þess er skynsam- legt að önnur meginstoð í aðgerða- áætlunar ríkisstjórnarinnar séu orkuskipti í samgöngum með áherslu á rafbílavæðingu. Hitt verkefnið snýr að bindingu kolefnis með skógrækt, landgræðslu og endurheimt votlendis. En hvernig gengur? Tölur úr losunarbókhaldi ná að- eins til ársins 2017. Skoðum þess í stað innflutning á eldsneyti. Í nýrri samantekt Orkustofnunar sést að innflutningur á bensíni og dísilolíu jókst um 15-16% frá 2015 til 2018. Það er alls ekki hægt að segja að aðlögunin byrji vel og fátt sem bendir til þess að snúningur niður á við sé hafinn. Stór áform stjórnvalda eru um rafbílavæðingu. Sumir eru há- stemmdir og tala um byltingu í samgöngum landsmanna. En frá 2015 hefur fólksbílum sem ganga fyrir bensíni eða olíu fjölgað úr 223 þús. í 252 þús. árið 2018. Tvíorku- eða hreinir rafbílar hafa farið frá því að vera 3.200 2015 í 14.400 á síðasta ári. Hlutfallslega voru þeir tæplega 6% fólksbílaflotans. Einfalt raunsætt mat segir að markmiðið um 30% samdrátt í los- un til ársins 2030 náist alls ekki með þessu áframhaldi. Raunin er sú að losun Íslands á gróðurhúsa- lofttegundum hefur haldið áfram að aukast frá því að Parísarsam- komulagið var undirritað. Fallegt tal og það sem kallast samþætting loftslagsmála í alla stefnumörkun virðist ekki duga til. Hér þarf að grípa til miklu róttækari aðgerða. Rafbílavæðingin næst ekki nema með mun beittari efnahagslegum hvötum, tvöföldun eldsneytisverðs eða hreinlega banni við innflutn- ingi á nýjum bílum sem knúnir er af jarðefnaeldsneyti. Eða þá að leggja á ofurtolla. Þá fyrst fer neytandinn að leita lausna sem gagnast loftslaginu. Slíkar leiðir þykja samt varla raunhæfar því þær koma við kaunin á margvís- legum hagsmunum fólks og fyrir- tækja, ekki síst ferðaþjónustunnar sem er mjög olíudrifinn atvinnu- vegur. Góður ásetningur einn og sér dugar ekki Úlfakreppa segi ég, því ef mark- miðið um samdrátt í losun næst ekki fyrir 2030 er til hjáleið þar sem við getum keypt okkur frá vandanum með uppkaupum á los- unarheimildum. Flestir spá því að verð þeirra muni hækka stórlega þegar nær dregur uppgjöri eftir rúm 10 ár. Þau útgjöld ríkis, þ.e. skattgreiðenda gætu í versta falli numið hundruð milljarða. Í annarri grein verður auk ann- ars fjallað um hitt stóra verkefnið í átt að kolefnishlutleysi, það er bindingin og vandræði stjórnvalda sem blasa nú við að ná fram mark- miðum sínum. Eftir Einar Sveinbjörnsson »Einfalt raunsætt mat segir að markmiðið um 30% samdrátt í los- un til ársins 2030 náist alls ekki með þessu áframhaldi. Einar Sveinbjörnsson Höfundur er veðurfræðingur hjá Veðurvaktinni ehf. Úlfakreppa Parísarsamningsins Sjálfsónæmis- sjúkdómurinn psori- asis er harður hús- bóndi. Ekki síst þegar psoriasisliðgigt leggst á fólk. Ekkert líffæri er óhult fyrir gigtinni. Snemmbúin greining og góður að- gangur að heilbrigð- isþjónustu eru lykil- atriðin varðandi betri líðan. Ég vona að þið hafið lesið rétt; ekki bata! Hann er ekki enn í augsýn en margt hefur áunnist! Við psoriasissjúklingar erum stöðugt í langhlaupi, alls ekki spretthlaupi. Líðan okkar markast ekki eingöngu af útbreiðslu út- brota heldur miklu frekar þeirri andlegu raun sem fylgir sjúkdómn- um. Ég hef haft sjúkdóminn í tæp áttatíu ár og man vel hræðslu fólks við bæði útbrotin og lyfin. Fyrstu lyfin innihéldu mikla tjöru og lykt- in var eftir því. Margir höfnuðu mér um vinnu og fjölskyldan fjandskapaðist við lyktina sem þau fullyrtu að væri af psoriasis. Gríðarmargt gott hefur áunnist í áranna rás, þótt sorglegt sé að sjá að sjúklingar í Afríku og Asíu og e.t.v. víðar verða fyrir þessum sömu fordómum. Spoex hefur markvisst unnið gegn þessu alla tíð. Félagið hefur rekið ljósameð- ferð með góðum árangri sem sést á að sjúklingar sækja lækningu ár- um saman. Enda hefur gæfa okkar verið frábært starfsfólk. Stundum heyri ég úrtöluraddir; að Ísland sé svo lítið að við höfum ekkert fram að færa. Fátt er fjær raunveruleikanum. Árið 1996 voru Helgi heitinn Valdimarsson læknir og Ingileif Jónsdóttir lífeindafræð- ingur með fyrstu stóru erfðarann- sókn á psoriasis í heiminum. Það var fjölskylda undirritaðrar, rúm- lega 100 manns, sem mætti; fjórir ættliðir, en psoriasis hefur verið áhrifavaldur í fjölskyldu minni í a.m.k. fimm ættliði. Nú er þetta undirstaðan að rannsóknum Ís- lenskrar erfðagreiningar sem hef- ur dyggilega haldið áfram heims- sögulegum rannsóknum á psoriasis. Finnist orsök á meingeninu eru öll lík- indi þess að lækning á fleiri og erfiðari sjúk- dómum, svo sem MS, sé í augsýn. Ég minnt- ist áðan á lyfin, sem voru óhentug og eyði- lögðu fatnað, en nú eru þau albestu lyf sem ég hef reynt frá Kerecis, en Baldur Tumi Bald- ursson húðsjúkdóma- læknir hefur þróað þau. Lyfin frá Kerecis eru seld á alheimsmörk- uðum og ég hef frétt á psoriasis- ráðstefnum að þau séu algjör bylt- ing. Núverandi formaður Spoex er Ingvar Ágúst Ingvarsson, ötull og fær sómamaður, hann er einnig varaformaður IPFA, alþjóðasam- taka psoriasissjúklinga. Ekki lítil upphefð fyrir okkur. Hugarfarið skiptir öllu máli! Ekki skammast ykkar fyrir út- brotin eins og mér lærðist. Ég fékk hvorki vinnu né að fara í nám sem hugurinn stóð til. Látið at- hugasemdir þeirra sem „allt“ vita um sjúkdóminn eins og vind um eyru þjóta. Ekki láta sjúkdóminn drottna yfir þér! Þið eruð ekki ein, við erum fjöl- mörg, og eitt af því hrósverða í starfsemi Spoex er samkomur á al- þjóðapsoriasisdaginn. Þá höfum við fengið færustu sérfræðinga sem segja frá nýjungum og rannsókn- um. Spurningar leyfðar á eftir. Gríðarlega líflegar umræður spretta og menn fara vísari um sjúkdóminn og vonandi sjálfan sig heim. Hugheilar þakkir til allra sem lögðu hönd á plóginn. Sjáumst 29. október nk. Alþjóðapsoriasis- dagurinn 29. október Eftir Ernu Arngrímsdóttur Erna Arngrímsdóttir » Finnist orsök á meingeninu eru öll líkindi þess að lækning á fleiri og erfiðari sjúk- dómum, svo sem MS, sé í augsýn. Höfundur er sagnfræðingur. Engin fuglategund hefur verið rannsökuð og vöktuð eins mikið og rjúpan hér á landi, og það með dyggileg- um stuðningi og þátt- töku veiðimanna. Frá 1995 hafa veiðimenn lagt til tæpar 200 milljónir til rann- sókna á henni. Þekk- ing okkar á stofninum væri ekki svipur hjá sjón ef ekki hefði komið til þetta framlag veiðimanna. Oftast hefur vel tekist til í veiði- stjórnun á rjúpu, ef frá er talin al- friðun á rjúpu 2003-2004 og fækk- un veiðidaga eftir það. Ráðist var í miklar tilraunir með fjölda leyfilegra veiðidaga árið 2003. Fyrst með friðun 2003/2004 og svo með fækkun veiðidaga úr 69 í þrepum allt niður í 9 daga. Þessar tilraunir skiluðu eftirfar- andi niðurstöðum: Fjöldi veiðimanna er nokkuð jafn milli ára, um 4.000 Íslend- ingar stunda rjúpnaveiðar, fjöldi sem hefur lítið breyst frá upptöku veiðikortakerfisins 1995. Með sölubanni minnkar heildar- veiði úr 25% í 10% af hauststofni. Það skiptir ekki máli hversu marga daga veiðimönnum leyfist að veiða, þeir munu upp til hópa einungis sækja tæplega fjóra daga (að meðaltali). Svigrúmið til aukinna veiða hef- ur þó farið minnkandi út af lægri nýliðun, en áður gat nýliðunin staðið undir 25% heildarveiði af hauststofni. Veiðistjórnunarmarkmiðið er því að halda veiðitölum innan 10-15% marka, þannig að veiðarnar hafi ekki áhrif á náttúrulegar sveiflur. Leyfður fjöldi veiðidaga hefur engin áhrif á þann fjölda daga sem menn ganga til veiða og engin áhrif á meðalveiði pr. veiðimann. Til að hafa áhrif á sókn með tak- mörkun veiðidaga þyrfti að fara niður fyrir fjóra daga. Ofangreindar niðurstöður mynda grunninn fyrir aðferða- fræðina sem veiðistjórnun rjúpu er nú byggð á. Ráðuneyti, NÍ, UST, Skotvís og Fuglavernd eru sammála um að þessi nálgun stuðli að sjálfbærum veiðum. Sveiflur rjúpna- stofnsins eru nátt- úrulegt fyrirbæri og háð umhverfisþáttum, áhugavert en ekkert óvenjulegt. Örvænting hreiðrar hins vegar um sig þegar niður- sveiflan hefst og þar til botni er náð, áður en uppsveiflan hefst að nýju. Örvænting þessi er afleiðing þekkingarskorts, en góðu fréttirnar eru þær að þekking á rjúpnastofninum hér á landi og áhrifum veiða er bara nokkuð góð og því óþarfi að örvænta um afdrif stofnsins vegna veiða. Til að gera langa sögu stutta: Rúpnahámörk áttu sér stað 1955, 1965, 1975, 1986, 1998, 2005, 2010, 2015, 2018. Hámörkin hafa farið lækkandi, þ.e. topparnir eru ekki eins háir og þau ár sem menn vilja gjarnan miða við (1955 og 1986). Meginstýribreyta fyrir sveiflum eru afdrif ungfugls á fyrsta ári (80% hausstofns), sem umpólerast reglulega (vegna heilsufarsþátta). Heildarvetrarafföll ungfugls um- pólerast reglulega úr 78% (upp- sveifla) í 89% (niðursveifla). Meginstýribreyta fyrir há- mörkum er viðkoma að sumri og fjöldi ára sem afdrif ungfugls er „á réttunni“. Viðkoma að sumri hefur fallið um 20%. Úr 8,2 ungum/hænu (að- dragandi hámarks 1986) í 6,6 unga/hænu (aðdragandi hámarks 2018). Hauststofn 2018 taldi um 1.000.000 fugla, næstmesta stofn- stærð frá 1986. Það sem hefur gerst á undanförnum tveimur ára- tugum er að 20% lakari viðkoma að sumri gerir út um vonir um að sjá hámörk í líkingu við 1986 (1,5 milljón fugla), hvað þá 1955 (2 milljónir fugla). Það athyglisverða við 2018- hámarkið er að í 11 ára aðdrag- anda hámarksins voru nánast sam- felld skilyrði fyrir uppsveiflu (frá 2007) sem dugði samt ekki til að lyfta hámarkinu upp fyrir fyrri há- mörk. Skýringin er lægri viðkoma sem hægir á öllu ferlinu. Lægri viðkoma þýðir einfaldlega að stofninn stendur undir lægri afföll- um en áður, þannig að í stað þess að umpólast (úr niðursveiflu í upp- sveiflu og öfugt) við 86% afföll, þá á umpólun sér stað við 82% afföll m.v. núverandi nýliðun. Þetta þýð- ir að svigrúmið til sjálfbærrar nýt- ingar hefur minnkað sem þessu nemur. Þessi vinna sem er byggð á nærri 40 ára gagnasafni hefur varpað ljósi á samband rjúpn- astofnsins og veiða og hafa veiði- menn haft frumkvæði að samstarfi sem leitast við að rannsaka og upplýsa um raunveruleg áhrif veiða. Meginskilaboðin eru þessi: Meðan viðkoman var betri á ár- unum fyrir 2003 var óhætt að veiða 25% af stofninum áður en veiðar fóru að hafa áhrif á nátt- úrulegar sveiflur. Með lægri við- komu hefur svigrúmið minnkað og því er ekki lengur í lagi að veiða 25% af stofninum. Með sölubanni til að stemma stigu við magnveiði hefur tekist að ná hlutfallinu niður í 10%. Miðað við þessar aðstæður er engin hætta á að veiðar hafi áhrif á náttúrulegar sveiflur. Stofninn núna í haust er jafn- stór stofninum 1998 en þá var ekkert sölubann og leyft var að veiða í 69 daga. Heildarveiðin var 159.188 rjúpur. Þær veiðar höfðu engin áhrif á stofnsveiflu rjúp- unnar. Í ár eru leyfðar veiðar í 22 daga í nóvember og sölubann er á rjúpu. Áætluð veiði um 50-60.000 fuglar. Lagt er til að veiðar fari ekki upp fyrir 10%, eða 73.000 fugla. Áhættan af þessari fjölgun veiðidaga er því hverfandi. Skotveiðimenn, ábyrgð okkar er mikil. Stundum ábyrgar og hófleg- ar rjúpnaveiðar í haust. Sjálfbærar rjúpna- veiðar til framtíðar Eftir Áka Ármann Jónsson »Engin fuglategund hefur verið rann- sökuð og vöktuð eins mikið og rjúpan. Frá 1995 hafa veiðimenn lagt til tæpar 200 millj- ónir til rannsókna á henni. Áki Ármann Jónsson Höfundur er líffræðingur og formaður Skotvís.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.