Morgunblaðið - 29.10.2019, Síða 17

Morgunblaðið - 29.10.2019, Síða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019 ✝ Anna Krist-jánsdóttir var fædd á Akureyri 16. október 1932. Hún lést 28. sept- ember 2019 á hjúkrunarheim- ilinu Hrafnistu í Hafnarfirði. Hún var dóttir hjónanna Sigur- laugar Magnús- dóttur og Kristjáns Stefánssonar, sem bæði voru fædd á Fáskrúðsfirði. Anna var elst fimm systkina. Eiginmaður Önnu var Bjarni Guðjón Bjarnason, f. í Vest- mannaeyjum 3. janúar 1926. Hann lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 12. apríl. 2015. Anna og Bjarni eignuðust fjögur börn. Þau eru 1) Sigurlaug Kristín, f. 11. októ- ber 1953, gift Þresti Haraldssyni Eyvinds. Þau eiga synina Harald Ey- vinds og Bjarna Ey- vinds 2) Guðrún Bjarney, f. 18. nóvember 1954, gift Viðari Hall- dórssyni. Þau eiga synina Arnar Þór, Davíð Þór og Bjarna Þór. 3) Bjarni Guðjón, f. 2. júní 1960. Bjarni á soninn Ing- ólf og systurnar Önnu Brá og Birnu Ragnheiði með fyrrver- andi eiginkonu sinni, Helgu Ing- ólfsdóttur. 4) Anna María, f. 11. ágúst 1968, gift Kristbirni Ósk- arssyni. Hetjan hún móðir okkar, Anna Kristjánsdóttir, kvaddi sitt jarð- neska líf 28. september 2019. Hún er nú komin í sumarlandið eilífa gegnum víddirnar til móts við þá sem hún elskaði mest og hafa kvatt. Þessi kona var hetja með stórum stöfum í gegnum allt sitt líf en það fyrsta sem hún þurfti að lifa með var bróður- missir ung að árum norður á Akureyri þar sem hún ólst upp. Í gegnum árin kom þetta oft til tals og alltaf á ferðum okkar norður á Húsavík til að heim- sækja Önnu Maríu, yngstu syst- ur, og Kristbjörn mág var komið við í Akureyrarkirkjugarði og leiði Rafns heimsótt en þetta var henni mikill harmur í hjarta alla tíð. Mamma var hagsýn í heim- ilishaldinu og ég man aldrei eftir að okkur systkin vanhagaði um neitt þótt ekki væri af miklu að taka og hún var mikið ein með okkur systkinin en pabbi var oft á sjónum í löngum útiverum. Reglusemi og stundvísi voru stórar setningar í uppeldinu þeg- ar hún rétti manni kaldan þvotta- pokann á morgnana ef vekjara- klukkan hafði hringt út og maður ekki komin á lappir og skólinn og kennarar væntu nærveru manns og maður hafði verið úti í bílskúr á Sléttahrauninu með brotinn gírkassa í hjólinu eða á hljóm- sveitaræfingu eða í bílaviðgerð- um fram á nótt en þetta var allt umborið hjá mömmu Önnu og meira að segja var litið fram hjá pínulitlu fikti með áfengi á ung- lingsárum. Fyrsta fiktið var á skólaballi, maður var gripinn í dyrunum með lykt og leiddur til skólastjóra sem var frábær mað- ur en þurfti samt að hringja í for- eldra og náði sambandi strax, lýsti aðstæðum, átti nokkur orð við mömmu og vildi að maður yrði sóttur, lagði svo á, var hugsi og sagði svo við mig: þú átt að labba heim. Þetta voru bein fyr- irmæli frá mömmu til skólastjóra takk! Svona var mamma og eftir þetta varð reglan einföld að ef átti eitthvað að fara að fá sér í glas þá fékk maður sér heima áð- ur en lagt var í hann. Anna Krist- jáns vildi sjá ástandið á vina- hópnum áður en lagt var af stað og félagarnir voru næstum skikkaðir til að koma til baka á Sléttahraunið svo taka mætti nafnakall og allir væru heilir. Á sunnudögum var maður svo vak- inn með nautasteik eða læri, mömmu munaði ekki um það frekar en að keyra Önnu Maríu systur í skólann til Reykjavíkur á hverjum virkum degi í öllum veðrum í mörg ár og sækja pabba á öllum tímum sólar- hringsins þegar skipin sem hann sigldi á voru að koma til landsins, nei mömmu munað ekki um neitt. Anna María og Kristbjörn komu suður áður en þú kvaddir, elsku mamma, og söknuðurinn er mik- ill. Við ræddum margt seinustu árin, mamma mín, og þið pabbi voruð frábærir foreldrar og amma og afi, góð öllum ykkar barnabörnum og ykkar verður sárt saknað. Ég á eftir að sakna þín, elsku mamma mín, þú varst einstök kona og mín hetja. Ég vil þakka góðu starfsfólki á Hrafn- istu í Hafnarfirði fyrir frábæra umönnun og hlýju í garð móður okkar þau ár sem hún var búsett á Hrafnistu. Bjarni G. Bjarnason, Anna María Bjarnadóttir, Kristbjörn Óskarsson. Tengdamóður minni kynntist ég um 1969. Ég hafði þá kynnst núverandi eiginkonu minni Sig- urlaugu. Fór að koma af og til inn á snyrtilegt heimili þeirra í Fells- múla tvö. Þar á fjórðu hæð í lyftulausu húsi bjó þessi kjarna- kona með börnunum sínum fjór- um og eiginmanni, sem sjaldnast var heima. Sjómaður á milli- landaskipi. Það var ekki alltaf auðvelt að fara með börnin og innkaupin upp á fjórðu hæð. En Anna kvartaði aldrei. Hún tók mér strax afar vel. Það spillti ekki fyrir að vera af sjómannsfólki kominn. Milli okk- ar Önnu var ávallt góður og hnökralaus vinskapur, enda bar ég mikla virðingu fyrir þessari öflugu konu. Anna var sjómannskona og stolt af því. Hún hafði þessi sterku bein sem sjómannskonur þurfa að hafa til þess að reka heimili meðan eiginmenn þeirra eru á sjó, jafnvel mánuðum sam- an án þess að koma heim. Á fyrri tímum var ekki alltaf auðvelt að ná sambandi við þá um fjarskipti. Þá þurfti hún ein að taka ákvarð- anir, standa föstum fótum, skipu- leggja, framkvæma og ráðstafa. Það fórst henni vel úr hendi. Anna stundaði nám við Húsmæðraskólann á Hallorms- stað. Þegar kom að heimilis- rekstri þá bar heimilið þess merki að þar bjó myndarleg hús- móðir. Það var notalegt að koma heim til þeirra Önnu og Bjarna. Heimilið fagurt, umvafið ást og alúð. Barnabörnunum þótti ekki slæmt að koma í heimsókn til ömmu og afa, enda fannst þeim gaman að fá barnabörnin í heim- sókn og dekruðu við þau. Oftar en ekki var til eitthvert góðgæti í skálum, ef vel var að gáð. Húsmóðurstarfið var aðalstarf Önnu, en þegar börnin fóru að tínast að heiman til að stofna sín eigin heimili og fjölskyldur, þá fór Anna einfaldlega út að vinna. Hún sagðist nú ekki ætla að sitja heima aðgerðalaus allan daginn. Um árabil vann hún hjá Þorvaldi í Síld og fisk ásamt yngstu dóttur sinni Önnu Maríu. Anna hefur nú fengið lang- þráða ósk sína uppfyllta sem er að fá að fara til fundar við Bjarna sinn. Því fyrr því betra sagði hún gjarnan, orðin södd lífdaga. En það er ekki okkar á þessari jörð að ákveða brottfarardaginn, það vissi Anna. Því beið hún þolin- móð í góðu atlæti á Hrafnistu, fullviss þess að Bjarni tæki á móti henni þegar kallið kæmi. Nú hefur kallið komið og hún lögð af stað. Starfsdegi Önnu er lokið. Bjarni bíður hennar. Hún er lögð af stað og ætlar sér ekki að vera of sein. Það var ekki háttur Önnu að mæta of seint. Þröstur Haraldsson Eyvinds. Við amma vorum vinkonur. Þegar ég fæddist var amma hætt að vinna og afi hættur á sjónum og kominn á eftirlaun. Saman pössuðu þau mig fyrstu árin og eftir að ég byrjaði á leik- skóla fékk ég líka að vera hjá þeim þegar ég var veik og líka dag og dag og hvíla mig frá leik- skólanum. Afi gaf mér grjóna- graut og slátur og allan góðan heimilismat og við amma gátum alltaf fundið okkur eitthvað skemmtilegt að gera. Þegar ég byrjaði í skóla var líka stutt að fara til ömmu og afa eftir skóla og stundum komu skólasystur mínar með mér í kaffi til þeirra. Amma var alltaf vel til höfð og heimilið hennar alveg tandur- hreint. Það var allt í röð og reglu hjá henni og ekki verið að slugsa með neitt. Við gerðum svo margt saman, eins og að skreppa í búðir og heimsóknir og spila ólsen á svöl- unum á Hringbrautinni. Svo horfðum við á allar Elvis Prest- ley-myndirnar, mörgum sinnum. Þú hefur alltaf verið stór hluti af mínu lífi og við vorum alltaf svo góðar vinkonur og síðustu árin þín á Hrafnistu þá fannst þér enn þá gaman að skreppa í búðir eða á kaffihús. Og þú hugsaðir svo vel um Önnu Maríu sem er svo sjálfstæð og dugleg þrátt sína fötlun vegna þess að þú kenndir henni svo margt alveg eins og þú kenndir mér allskonar um lífið og til- veruna. Ég er svo þakklát, amma mín, fyrir það að við vorum alltaf svo góðar vinkonur og fyrir allt sem þið afi gerðuð fyrir mig. Elsku amma mín, þú ert best og ég gleymi þér aldrei. Þín sonardóttir, Birna Ragnheiður Bjarnadóttir. Anna Kristjánsdóttir ✝ AðalheiðurHalldóra Gísla- dóttir fæddist 31. mars 1926 á Hofs- stöðum í Garðabæ. Hún lést á Land- spítalanum í Reykjavík 29. sept- ember 2019. Foreldar hennar voru Gísli Jak- obsson f. 21. nóv- ember 1882 í Skátabúðum, Gnúpverjahreppi, d. 23. febrúar 1962, og Sigrún Sigurðardóttir, f. 29. desember 1887 á Vífilsstöðum í Garða- hreppi, d. 24. desember 1977. Halldóra var næstyngst í röð þeirra er Aðalheiður Kristjáns- dóttir grunnskólakennari, f. 1963, maki hennar Haukur Bergmann tölvunarfræðingur, f. 28. október 1959, d. 29. desem- ber 2017. Börn þeirra: Kristján Haukur Bergmann f. 1992 (and- vana fæddur), Halldóra Rún Bergmann, f. 30. ágúst 1993, Þóra Lilja Bergmann, f. 8. ágúst 1995, og Hekla Lind Bergmann f. 10. febrúar 1999. Halldóra hóf nám við Verzl- unarskóla Íslands. 1944, 18 ára að aldri, gerðist hún gjaldkeri hjá Kristjáni Gíslasyni og vann þar í 18 ár. 1961 til 1962 vann hún í mötuneyti á Reykhólum. Hún var einnig skólaliði í Kárs- nesskóla og húsfreyja í Kópa- vogi. Síðustu tvö árin dvaldi hún á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Útför Halldóru fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi í dag, 29. október 2019, klukkan 13. fimm systra; Þær eru Sigurlaug Gísladóttir, f. 28. maí 1918, d. 28. jan- úar 2010; Sigríður Gísladóttir, f. 20. febrúar 1921, d. 6. janúar 2012; Guð- rún Gísladóttir f. 9. september 1923, d. 28. maí 2008; Sess- elja Gísladóttir f. 21. ágúst 1927, d. 26. mars. 1988. 3. desember 1954 kvæntist Halldóra Kristjáni Ebenezers- syni, f. í Tungu, Valþjófsdal í Önundarfirði 20. maí 1924, d. 16. september 2007. Dóttir Nú ertu búin að kveðja, elsku frænka og móðursystir mín, eftir mörg viðburðarík ár á langri ævi. Þar með er gengin kynslóðin sem ólst upp á sveitabæ á jörð í ná- grenni höfuðborgarinnar í Garða- hreppi sem er nú kjarninn í Garðabæ. Dóra var fædd á Hofs- stöðum og ólst upp í hópi fimm systra. Dóra hafði gaman af því að rifja upp fortíðina og var vel minnug á mannlífið í sveitinni frá fyrri tíð. Hún sagði mér oft skemmtilegar sögur úr sveitinni og brá upp lif- andi myndum af nágrönnum sem eru fyrir löngu horfnir af sviðinu. Margar sögur voru til af sendi- ferðum milli bæja og oft minntist hún þess þegar afi minn fór í göngur ríðandi austur yfir heiði og kom ásamt fleirum með safnið í Hafravatnsrétt eftir fáeina daga. Það var einnig til skemmtileg saga um heyskap á Kjóavöllum og vandræðin með fararskjóta. Dóra var mikil bóndakona í sér og lét annt um landið og húsdýrin. Margar sögur kunni Dóra af breska herliðinu sem kom til landsins í maí 1940, sumar alvar- legar en flestar spaugilegar. Her- liðið sýndi stundum yfirgang þeg- ar það var í heræfingum og óð yfir sveitabæina með sínum hertólum. En þeir áttu líka aðra mýkri hlið svo sem þegar kaldir og aumkun- arverðir unglingar í herliðinu komu heim að Hofsstöðum og báðu ömmu um mjólk að drekka sem var góðfúslega veitt. Leið Dóru til menntunar lá í verslunarskólanám og glímuna við tölur sem hún var glögg á alla ævi. Hún réði sig til gjaldkera hjá stórkaupmanni í Reykjavík en eft- ir að hún kynntist Kristjáni manni sínum byggðu þau hús við Borgarholtsbraut í Kópavoginum, ólu upp Heiðu dóttur sína og bjuggu þar alla ævi. Dóra var ávallt nálæg fósturjörðinni og ræktaði tré alla tíð, frá veikburða sprotum til risatrjáa, fyrst í afgirt- um reitum í Hofsstaðalandinu og síðar í sumarbústaðalandinu sínu, Ásabóli í Hrunamannahreppi. Í Ásaból var alltaf ævintýri að koma því þar var heitt vatn leitt í hús úr borholu og útbúin var laug, þar sem bæði krakkar og fullorðn- ir skemmtu sér og voru alltaf vel- komnir. Dóra var afskaplega hlý en ákveðin persóna og tók alltaf vel á móti fólki ungu jafnt sem öldnu. Að heimsækja hana þýddi undan- tekningalaust að manni var boðið að setjast til borðs, lagað var gott kaffi og heimabökuð jólakaka fylgdi með hið minnsta, ásamt umræðu um landsins gagn og nauðsynjar. Þannig naut ég þeirr- ar ánægju að heimili hennar var fastur viðkomustaður hjá mér hin seinni ár. Dóra var heilsugóð alla tíð og létt á sér. Það var aðeins hin síðustu ár sem bar á því að hún gat dottið í sínum daglegu göngu- túrum í félagskap Jasmínar. Sér- staklega í hálku. En hún stóð allt- af upp, harkaði af sér fallið og jafnaði sig. En núna stendur hún Dóra ekki aftur upp, heldur skilur eftir sig óteljandi liðnar gleði- stundir, blessuð sé minning henn- ar. Stefán Sólmundur (Stebbi). Halldóru Gísladóttur eða Dóru eins og hún var ætíð kölluð kynnt- ist ég fyrst fyrir alvöru upp úr 1960 þegar Kristján, móðurbróðir minn og maður Dóru, vann við smíðar á Reykhólum. Þar var hún líka starfsmaður við barnaskólann einn vetur þegar verið var að byggja húsið á Borgarholtsbraut 29. Þegar ég á menntaskólaárum mínum fór að vinna fyrir sunnan á sumrin varð heimili þeirra Stjána og Dóru á Borgarholtsbrautinni mitt annað heimili og þau nánast eins og foreldrar mínir og Heiða eins og systir. Og þegar við Ásta hófum búskap fengum við lánuð húsgögn og fleira sem þau Stjáni voru hætt að nota. T.d. litla sófann sem nú er í Ásabóli, sælureit Dóru. Þar átti ég líka margar ógleymanlegar stundir: við að setja niður pottinn, grafa fyrir skeifunni, setja upp sturtuklefa og tröppur með Reyni að ógleymdu skógarhöggi. Og þegar við fórum til náms í Noregi var hún umboðs- maður okkar gagnvart Lánasjóði íslenskra námsmanna og það var ekki alltaf einfalt. Dóra var ótrú- lega atorkumikil alla tíð. Gestrisni hennar var ótrúleg. Hún bakaði bestu jólakökur sem ég hef smakkað og þó að ég hafi fengið uppskriftina tekst mér ekki að endurskapa það sem hún gerði. Þessi gestrisni hennar birtist í hvert skipti sem ég heimsótti hana á Sunnuhlíð. Þá var alltaf eftir að hún hafði heilsað mér spurt: Eiríkur, á ég ekki að hella upp á kaffi? Hún stofnaði til jóla- boða í fjölskyldunni þar sem spil- að var púkk með miklum tilþrifum og tilheyrandi köllum. Fastur lið- ur á aðfangadag hjá mér og börn- um mínum var að fara í heimsókn á Borgarholtsbrautina til að hitta Dóru, fá kökur og þá fyrst gátu jólin komið. Dóra var mér eins- konar mamma og börnum mínum amma og ég á henni ótrúlega mik- ið að þakka, ekki bara umhyggj- una sem hún sýndi mér og mínum heldur líka viðhorfin, alúðina og umhyggjuna sem hún sýndi öll- um. Börnin mín voru aldrei viss um hvort hún væri amma eða hvað. Hún var bara þarna. Síðustu árin var Dóra vegna sjúkdóms horfin aftur að Hofstöðum þar sem hún ólst upp. Þú talaðir oft um að það væri skrítið að vera ein eftir, en þú varst ekki ein eftir, við sem þekktum þig erum hér og vonandi tekst okkur sem eftir lif- um að koma einhverju af þínum viðhorfum til komandi kynslóða. Innilegar samúðarkveðjur frá okkur Ástu og börnum okkar til Heiðu, Halldóru, Þóru og Heklu. Eiríkur Jensson. Þegar ég kynntist Gísla minnt- ist hann strax á uppáhaldsfólkið sitt. Það voru auðvitað Dóra og Stjáni. Ég var spennt að hitta þetta dásemdarfólk. Þegar það gerðist skildi ég hvað hann átti við. Þau voru bara yndisleg. Þeg- ar Silla fæddist eignaðist hún strax þetta sama uppáhaldsfólk. Stjáni lést fyrir þónokkrum árum og nú er Dóra okkar farin. Ásaból hafði mikið aðdráttarafl fyrir alla í fjölskyldunni ekki síst börnin. Þangað var alltaf gaman að koma. Dóra var alltaf til í sprell og krakkarnir elskuðu það og við líka. Eins og Silla segir var Dóra alltaf svo glöð og góð. Allar skemmtilegu minningarnar um Dóru koma upp í hugann og hlýja manni. Við á Mánagötunni þökk- um samfylgdina. Elsku Heiða og dætur, innilegustu samúðarkveðj- ur til ykkar. Gísli, Katrín Guðrún (Æja) og Sigurlaug (Silla). Dóra var næstyngst fimm systra sem allar voru fæddar og aldar upp á Hofsstöðum í Garða- hreppi. Dóra var fædd 1926, mamma mín Sigurlaug var elst, fædd 1918, Gunna var næstelst, fædd 1923, svo kom Sigga, fædd 1921, Dóra, fædd 1926, og yngst var Silla, fædd 1927. Amma mín Sigrún sem ég er skírð í höfuðið á og afi Gísli eign- uðust einnig son en hann dó vöggudauða í sama mánuði og hann fæddist 1925. Systurnar urðu allar langlífar nema Silla, sem lést úr krabbameini sextug. Dóra var hlý og góð kona en fyrst og fremst var hún skemmti- leg og var alltaf að segja skemmti- legar sögur. Hún elskaði að segja sögur frá gamalli tíð þegar þær systur voru að alast upp á Hofs- stöðum. Dóra sagði oft frá því þegar þær systur voru að ná í kýrnar og það þurfi að fara austur fyrir læk til að finna þær. Yngstu stelpurn- ar fengu oftast ekki að fara með svo langt, þær þurftu að halda sig heima við. En í þetta sinn sagði Gísli faðir þeirra: „Dóra, þú kem- ur með austur fyrir læk.“ En Silla fékk ekki að fara með yfir lækinn og stóð eftir hágrátandi. Þegar Dóra sagði frá þessu lýsti hún til- finningunni yfir því að litla systir var skilin eftir en hún fékk að fara með! Það hlakkaði í henni! Hver kannast ekki við þá tilfinningu? Á jólum var alltaf spilað púkk þegar Dóra var með. Í eitt skipti gekk mér ekki svo vel og varð nokkuð leið og læsti mig inni á klósetti. Dóra fann náttúrlega á sér hvað var að gerast og bankaði og fékk mig til baka í spilið. Svona var Dóra, hún hafði tilfinningu fyrir hlutunum. Henni var annt um öll okkur frændsystkinin. Hún var vinur okkar og við gátum öll talað við hana um alla hluti, skemmtilega en einnig erfiða hluti. Ein af síðustu minningum mínum um Dóru var þegar ég ætl- aði mér að læra að prjóna klukku- prjón. Dóra var mikil og fær prjóna- kona og hefur mér sjálfri fundist mjög gaman að prjóna. Þar sem ég hef ekki verið búsett á Íslandi síðustu rúmlega tuttugu ár hef ég ekki haft mömmu eða neina frænku nálægt mér til að ráðfæra mig við þegar ég stranda í ein- hverri uppskrift. Ég ætlaði að prjóna húfu með klukkuprjóni úr lopa. En klukkuprjón hafði ég aldrei prjónað. Ég átti erfitt með að finna út úr þessu prjóni. Ég kíkti á uppskriftir, horfði á You- tube en ekkert gekk. Ég átti bók- aða ferð til Íslands um þetta leyti og hugsaði með mér að ég yrði nú bara að tala við Dóru og fá þetta á hreint. Og það gekk! Ég sat í sófanum með Dóru og hún kenndi mér klukkuprjón svo ég gat klárað að prjóna húfuna. Þá var Dóra um nírætt. Ég á enn prufuna sem hún hjálpaði mér við svo ég veit að ég get tekið upp prjónana aftur ef ég vil prjóna klukkuprjón. En nú er klukkan hennar Dóru þögnuð, hún er búin að hringja út í síðasta skipti og ég og við öll sem þekktum hana kveðjum hana með miklu þakklæti og allar þær syst- ur sem voru mér og okkur frænd- systkinum mikils virði. Takk, Dóra, fyrir allt sem þú hefur kennt mér, góðar minning- ar og þann arf sem ég ætla að reyna að koma áleiðis til minna barna og þar með komandi kyn- slóða. Sigrún Hrönn Krist- mannsdóttir Landvall. Halldóra Gísladóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.