Morgunblaðið - 29.10.2019, Síða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019
✝ Ísak J. Guð-mann fæddist
á Akureyri 16.12.
1927. Hann lést
15.10. 2019.
Foreldrar: Jón
Gíslason Guðmann,
kaupm. og síðar
bóndi á Skarði Ak-
ureyri, f. 14.11.
1896, d. 3.9. 1958,
og Guðlaug Ísaksd.
Guðmann húsfr., f.
9.3. 1899, d. 2.11. 1968. Systkini
Ísaks voru Gísli, f. 16.12. 1927,
d. 9.6. 1980, maki Stefanía Jó-
hannsd., og Rebekka Helga, f.
22.12. 1928, d. 8.6. 2015, maki
Hermann Sigtryggss. Fóstur-
bræður og systursynir Guð-
laugar: Kristján Ísaks Valde-
marss. f. 3.5. 1936, d. 6.9. 2011,
og Elvar Þór Valdimarss. f.
17.3. 1941, d. 29.8. 2011.
Ísak giftist Auði Þórhallsd. f.
19.2. 1935 hinn 26.12. 1953.
Foreldrar hennar voru Þórhall-
ur Antonss. bóndi og verkam. f.
17.5. 1895, d. 29.8. 1959, og
Guðlaug Hólmfr. Jónasd. húsfr.
og verkak. f. 10.10. 1901, d.
16.1. 1996. Börn Ísaks og Auð-
ar eru: 1. Guðlaug Halla, f.
1953, gift Gunnlaugi Frí-
mannss. Þeirra börn: a) Auður
Karen, f. 1978, maki Stefán Þór
Þeirra börn: a) Þórey Lísa Þór-
isdóttir, f. 1995, maki James
Pook. b) Trausti Lúkas, f. 2002.
c) Breki Mikael, f. 2004.
Ísak fæddist á Akureyri og
ólst upp á Skarði fyrir ofan Ak-
ureyri. Voru foreldrar hans þar
með nautgripabúskap ásamt
grænmetisræktun uns faðir
hans lést 1958. Árið 1957
byggði Ísak hús gegnt Skarði
og var nefnt Skarð II. Árið
2004 fluttu Ísak og Auður í
Holtateig 16. Ísak varð stúdent
frá MA árið 1948. Hann vann
allan sinn starfsaldur hjá KEA,
síðast sem aðalféhirðir. Hann
var félagi í Oddfellowst. Sjöfn í
54 ár og einnig Rebekkust.
Auði og sinnti þar öllum helstu
trúnaðarstörfum. Hann var for-
maður ÍBA frá 1964-1967 og
aftur 1971-1979. Stundaði fim-
leika, sund, þjálfaði sundfólk,
var formaður Sundráðs Ak-
ureyrar og oft mótsstjóri á
sundmótum. Sat í stjórn KA
1952-1958 og var gerður að
heiðursfélaga KA árið 1988.
Var í byggingarnefnd Íþrótta-
hallarinnar, í stjórn Félags
hjartasjúklinga á Eyjafjarð-
arsvæðinu og stjórn Náttúru-
lækningafélags Akureyrar.
Ísak stundaði blak íþróttina á
meðan heilsan leyfði. Frístund-
ir voru notaðar í garðrækt.
Útför Ísaks fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag, 29. októ-
ber 2019, klukkan 13.30.
Péturss. Þeirra
börn: Pétur Áki,
Nökkvi Jón og Ka-
sper Nói. b) Ása
Katrín, f. 1981,
maki Haddur Júl-
íus Stefánss.
Þeirra börn: Arnór
Ísak, Atli Róbert
og Andri Stefán. c)
Aron Tjörvi f.
1996, maki Stein-
unn Guðjónsd. 2.
Kári, f. 1955, giftur Hrafnhildi
Stefánsd. Þeirra börn: a) Ró-
bert, f. 1978, maki Sigurveig
Árnad. Þeirra börn: Árni og
Hrafnhildur. b) Brynjar, f.
1983, maki Helga Kristín
Jónsd. Þeirra börn: Dagur
Snær og Kári Fannar. c) Ísak
Kári, f. 1992, maki Hekla
Sveinbjarnard. 3. Jón, f. 1958,
giftur Örnu Þöll Arnfinnsd.
Þeirra börn: a) Ísak, f. 1979,
maki Louisa Isaksen. Þeirra
börn: Mikael Máni, Kamilla Ýr,
Emil Thor og Elmar Örn. b) Ír-
is Elma, f. 1982, maki Daði
Guðjóns. Þeirra börn: Árelía
Dröfn og Benjamín Árni. c)
Rakel, f. 1990. 4. Anna María f.
1966, fyrri eiginmaður Þórir
Jón Guðlaugss. f. 1966, d. 14.
desember 1995, seinni eig-
inmaður Adam Traustas.
Elsku pabbi minn, við höfum
svo mikið að þakka þér og það er
margs að minnast. Þú hefur alla
tíð verið sá besti pabbi, tengda-
pabbi, afi, tengdaafi og síðast en
ekki síst langafi. Við eigum eftir
að sakna þín mikið. Þó að við höf-
um vitað að hverju stefndi þá er
það samt sárt að kveðja. Alla tíð
hefur þú verið tilbúinn að aðstoða
okkur og hjálpa til hvenær sem á
þurfti að halda, hvort sem það var
við smíðar þegar við vorum að
koma okkur upp húsnæði, passa
barnabörnin eða eitthvað annað,
þá voruð þið mamma alltaf tilbú-
in. Þið jafnvel breyttuð ykkar
áformum ef því var að skipta til
að geta aðstoðað okkur. Mikið
höfum við lært af þér, sem hefur
reynst okkur gott veganesti í líf-
inu og gerum okkar besta til að
það fari áfram til okkar barna og
barnabarna. Við kveðjum þig
með þessu fallega ljóði, sem segir
svo mikið.
Föðurminning
Englar Guðs þér yfir vaki og verndi
pabbi minn
vegir okkar skiljast núna, við sjáumst
ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í hjörtum okkar
hér
því hamingjuna áttum við með þér.
Þökkum kærleika og elsku, þökkum
virðingu og trú
þökkum allt sem af þér gafstu, okkar
ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góð-
leg var þín lund
og gaman var að koma á þinn fund.
Með englum Guðs nú leikur þú og lítur
okkar til
nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það
ég skil.
Og þegar geislar sólar um gluggann
skína inn
þá gleður okkur minning þín, elsku
pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú
á braut
gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem
förunaut.
Og ferðirnar sem fórum við um landið
út og inn
er fjársjóðurinn okkar pabbi minn.
(Guðrún Sigurbjörnsdóttir)
Við munum reyna að aðstoða
mömmu eins og við getum. Vertu
sæll, pabbi minn, og góða ferð.
Við minnumst þín þegar við horf-
um á stjörnurnar og vitum að þú
fylgist með okkur.
Þín dóttir og tengdasonur,
Guðlaug og Gunnlaugur.
Ár og dagar líða og nú er ég
kveð kæran tengdaföður minn
Ísak J. Guðmann reikar hugur-
inn aftur í tímann. Ég man þegar
ég kom í fyrsta skipti inn á heim-
ili Auðar og Ísaks sem ung stelpa
þar sem mér var mjög vel tekið
og hefur verið alla tíð síðan.
Ísak var kvikur og ljúfur mað-
ur með jafnaðargeð en dulur á
margt sem snéri að honum sjálf-
um og gat verið fastur fyrir. Væri
hann beðinn um hjálp af ein-
hverju tagi var það auðsótt mál
eins og þegar við Kári sonur hans
keyptum gamla heimilið hans
Skarð, Hamragerði 11. Þá eyddi
Ísak ómældum tíma í að hjálpa
okkur við að gera það að okkar
heimili.
Það var ekki laust við að örlít-
ils kvíða gætti hjá mér að flytja
svona alveg í nábýli við tengda-
foreldra mína sem bjuggu hinum
megin við götuna. Að sjálfsögðu
var það alger óþarfi því yndislegt
var að hafa þau svo nálægt okkur
og gott að geta skroppið „yfirum“
og fengið sér kaffisopa hjá þeim.
Kaffisoparnir hafa verið þó-
nokkrir sem við höfum fengið
okkur í gegnum tíðina og rætt öll
heimsins mál, bæinn okkar Ak-
ureyri, málefni líðandi stundar og
svo blessaða pólitíkina en við vor-
um nú ekki alltaf sammála þar.
Stundum hafði ég hann tengda-
föður minn nú grunaðan um að
finnast ég tala heldur mikið ef
mér lá eitthvað á hjarta.
Ísak tók mikið af ljósmyndum
og hafði unun af bókum og átti
stórt og gott bókasafn. Einnig
veitti það Ísak og Auði mikla
ánægju að vinna í garðinum sín-
um í Hamragerði 10 og ófáar
voru stundirnar þeirra þar enda
var garðurinn glæsilegur.
Ísak safnaði öllu mögulegu og
ómögulegu og átti mjög erfitt
með að henda nokkrum sköpuð-
um hlut, því vakti það ljúfa minn-
ingu er ég fór að skrifborði hans
eftir að hann dó til að ná mér í
penna eða blýant, að þar lá
blýantur sem lítið var eftir af
nema oddurinn og strokleður en
samt hægt að skrifa með honum.
Oft dáðist ég að honum, komnum
á efri ár þegar Akureyringar fóru
að flokka, hvað það virtist honum
eðlislægt, allt átti sinn rétta stað
og ekkert svindl.
Það er erfitt að minnast Ísaks,
tengdaföður míns, án þess að
hugsa líka um Auði en samfylgd
þeirra hefur varað í tæp 70 ár og
dáist maður að þeirra vegferð.
Auður og Ísak fluttu fyrir nokkr-
um árum í Holtateig og undu sér
vel þar en söknuðu garðsins og
skjólsins sem oft er í Hamra-
gerði.
Að leiðarlokum vil ég þakka
þér, elsku tengdapabbi, fyrir
Kára minn og allt sem snýr að
mér og minni fjölskyldu og góða
ferð inn í Sumarlandið.
Hvers vegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Þín tengdadóttir
Hrafnhildur.
Elsku afi er haldinn af stað inn
í ferðalag eilífðarinnar. Þó að til-
hugsunin um að hann sé horfinn á
braut sé óbærileg yljum við sem
eftir sitjum okkur við góðar
minningar um frábæran afa og
langafa.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að hafa átt einstaklega gott
samband við ömmu og afa sem
eru mér bæði svo kær. Afi var vel
lesinn og klár maður, nákvæmur
og vandvirkur og sinnti öllu vel
sem hann tók sér fyrir hendur.
Hann var með fallegt bros, blik í
augunum og hvítt dúnmjúkt hár.
Afi var afar hlýr persónuleiki
með góða nærveru, þrjóskur á
köflum en alltaf sanngjarn. Í
sumarfríinu okkar síðasta sumar
náðum við Stefán og strákarnir
okkar að eiga góðar stundir sam-
an með þér og ömmu.
Óteljandi góðar minningar eig-
um við um þig, elsku afi, og eru
þær okkur allar svo dýrmætar.
Við munum varðveita þær allar í
hjarta okkar um ókominn tíma.
Þegar maður er barn er oft
erfitt að skilja dauðann og
ákváðum við að afi ætti sína
stjörnu á himinhvolfinu. Litli 5
ára langafastrákurinn kíkir því á
hverju kvöldi upp í himininn með
bræðrum sínum og leitar að
sindrandi stjörnunni hans lang-
afa. Á þann hátt lifir minning afa í
hjarta okkar allra.
Góða ferð, elsku afi, við lofum
og passa vel upp á elsku ömmu.
Elskum þig.
Auður Karen, Stefán Þór,
Pétur Áki, Nökkvi Jón og
Kasper Nói.
Elsku besti afi, ég er svo þakk-
lát fyrir allar stundirnar sem við
höfum fengið með þér og ömmu
og allar góðu minningarnar sem
þið eruð búin að gefa mér og
minni fjölskyldu. Það var alltaf
svo gaman að koma í heimsókn til
ykkar og vera með ykkur því það
var alltaf nóg um að tala, um-
ræðuefnið var fjölbreytt og oft
voru það íþróttir, skólamál og
húsbyggingar ofarlega á baugi.
Þú hafðir alltaf svo mikinn áhuga
á því sem við vorum að taka okk-
ur fyrir hendur og eru það frekar
fjölbreytt verkefni síðustu mán-
uði og ár. Áhugi þinn á okkur og
strákunum okkar var ómetan-
legu, þú varst alltaf með á hreinu
hvernig þeim gekk í íþróttunum
og í lífinu almennt. Maður kom
aldrei að tómum kofunum þegar
þurfti að leita góðra ráða, þú
hafðir alltaf svör á reiðum hönd-
um.
Elsku yndislegi afi og langafi,
við kveðjum þig með söknuði,
takk fyrir allt sem þú hefur gefið
okkur, við munum passa upp á
ömmu fyrir þig, ég trúi því að þú
vakir yfir okkur.
Elskum þig,
Ása Katrín, Haddur Júlíus,
Arnór Ísak, Atli Róbert og
Andri Stefán.
Ísak J. Guðmann
Elsku Sonja mín,
eftir rúmlega 20 ára
samfylgd er nú kom-
ið að leiðarlokum.
Þegar við Kristín
fluttum í borgina og ég hóf störf í
Ísaksskóla, tókst þú á móti mér og
með okkur skapaðist vinátta sem
Sonja Backman
✝ Sonja Backmanfæddist 26.
ágúst 1938. Hún lést
5. október 2019. Út-
för hennar fór fram
18. október 2019.
ég mun aldrei
gleyma og alltaf
varðveita. Vinnudag-
urinn var ekki full-
komnaður nema við
næðum að setjast og
ræða verkefni dags-
ins og svo í framhald-
inu lífið og tilveruna.
Af hverju við
tengdumst svona
sterkum vináttu-
böndum veit ég ekki en þú varst
alltaf full visku og væntumþykju
og fyrr en varði varstu, eins og þú
sagðir sjálf hlæjandi, orðin
„mamma mín í Reykjavík“. Betri
lýsingu á sambandi okkar hefði
ekki verið hægt að finna.
Fimm árum síðar þegar dóttir
okkar fæddist kom ekkert annað
til greina en að skíra hana í höf-
uðið á ömmum sínum þremur,
Helgu, Helgu og Sonju.
Síðar þegar þú varst hætt að
vinna í Ísaksskóla héldum við þó
alltaf sambandi og heimsóknir í
Fjölnisveginn urðu fastir liðir í lífi
fjölskyldunnar. Stelpurnar að
syngja jólalög fyrir ykkur á Fjöln-
isveginum og spila við Lilju, við að
spjalla um Ísaksskóla í eldhúsinu
og Kristín og Birgir að horfa á
Arsenal frammi á gangi er minn-
ing sem við tengjum öll við desem-
ber. Það verður skrítið að fara inn
í vetrarmánuðina vitandi að þess-
um tíma er lokið.
Eftir lifa fallegar minningar
okkar allra um yndisleg hjón og
glæsilega konu með einstakt
hjartalag sem með góðu fordæmi
og duldum/óbeinum leiðbeining-
um, gerði okkur að betri mann-
eskjum.
Takk fyrir allt, elsku Sonja,
betri mömmu, tengdamömmu, og
ömmu „í Reykjavík“ er ekki hægt
að hugsa sér. Við sendum Familia
Fjölnis okkar innilegustu samúð-
arkveðjur. Missir ykkar er mikill.
Matthías (Matti), Kristín,
Helga Sonja og Unnur María.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
AXEL SÖLVASON,
áður til heimilis í Hraunbæ 44,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu þriðjudaginn 15. október.
Jarðarförin fer fram frá Lindakirkju Kópavogi miðvikudaginn
30. október klukkan 11.
Axel Sölvi Axelsson Guðrún Harðardóttir
Sigrún Axelsdóttir Sigurður Viggó Grétarsson
Ragnar Guðni Axelsson Björk Hreiðarsdóttir
Bergur Axelsson
Jóna Guðrún Ívarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku hjartans eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og bróðir,
SIGURÐUR M. SIGURÐSSON
veitingamaður,
Kvíholti 12, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum föstudaginn 25. okt.
Birna Barkardóttir
Gilbert Sigurðsson
Fannar Már Sigurðsson Guðrún Guðmundsdóttir
Kristín Ösp Sigurðardóttir Daníel Baldursson
barnabörn og systkini hins látna
Elskulegur faðir minn, afi og bróðir,
GUÐMUNDUR HAUKUR
SIGURSTEINSSON
Hverfisgötu 106a,
Reykjavík,
lést á heimili sínu mánudaginn
21. október. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju föstudaginn
1. nóvember klukkan 14.
Helga Nanna Guðmundsdóttir
barnabörn
Guðfríður Sigursteinsdóttir
Brynhildur Sigursteinsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ERNA KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Hnjúki, Skíðadal,
sem lést fimmtudaginn 17. október, verður
jarðsungin frá Dalvíkurkirkju föstudaginn
1. nóvember klukkan 13.30. Jarðsett verður í Vallakirkjugarði.
Margrét B. Kristinsdóttir Haukur S. Valdimarsson
Snorri R. Kristinsson Rannveig Guðnadóttir
Ingibjörg R. Kristinsdóttir Jón Þórarinsson
Kristjana S. Kristinsdóttir Jón Þ. Baldvinsson
ömmu- og langömmubörn
Okkar elskulegi
ÞÓRÐUR PÉTURSSON
Þorláksgeisla 70, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
þriðjudaginn 22. október.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
mánudaginn 4. nóvember klukkan 13.
Aðstandendur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR STEINAR KETILSSON
fyrrv. skipherra,
lést á Landspítalanum 27. október.
Útför verður auglýst síðar.
Sólveig Baldursdóttir
Baldur Óli Sigurðsson Hildur A. Ármannsdóttir
Ketill Sigurðsson
og barnabörn