Morgunblaðið - 29.10.2019, Blaðsíða 24
Ljósmynd/FB síða Malmö FF
Skoraði Arnór Ingvi Traustason fagnar markinu í Malmö í gær.
SVÍÞJÓÐ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Malmö getur enn orðið sænskur
meistari karla í knattspyrnu eftir
sigur á AIK þegar næstsíðustu um-
ferð úrvalsdeildarinnar lauk í gær-
kvöldi, sem kölluð er Allsvenskan.
AIK er í 4. sæti og á ekki lengur
möguleika á titlinum en liðið er sex
stigum á eftir toppliðinu Djur-
gården frá Stokkhólmi.
Íslensku landsliðsmennirnir Arn-
ór Ingvi Traustason og Kolbeinn
Sigþórsson mættust í Malmö. Arn-
ór Ingvi skoraði síðara mark
Malmö á 87. mínútu og tryggði lið-
inu 2:0 sigur. Lék hann allan leik-
inn eins og Kolbeinn gerði hjá AIK.
Leikurinn var markalaus þar til á
78. mínútur þegar Anders Christi-
ansen kom Malmö yfir.
Lið Malmö er í 2. sæti deild-
arinnar og er þremur stigum á eft-
ir Djurgården. Malmö er með 62
stig eins og Hammarby og eiga þau
því smá von fyrir lokaumferðina.
Í lokaumferðinni heimsækir
Malmö lið Örebro á meðan Djur-
gården heimsækir Norrköping.
Malmö er með 36 mörk í plús fyrir
lokaumferðina á meðan Djur-
gården er með 34 mörk í plús.
Malmö þarf því að treysta á að
Djurgården tapi gegn Norrköping
til þess að eiga möguleika á titl-
inum. Hammarby, lið Arons Jó-
hannssonar, er með 34 mörk í plús
en þar eru allt aðrar tölur í gangi.
Hammarby hefur skorað 71 mark
og fengið á sig 37. Malmö hefur til
samanburðar skorað 51 mark en
ekki fengið á sig nema 16 í 29 leikj-
um. Hammarby tekur á móti Häc-
ken í lokaumferðinni næsta laug-
ardag.
Fjórtán ár frá meistaratitli
Djurgården lék einnig í gær og
fékk Örebro í heimsókn sem er í 9.
sæti. Djurgården vann örugglega
3:0 en þess má geta að Sigurður
Jónsson kom við sögu hjá báðum
þessum liðum á sínum tíma. Lék
með Örebro en þjálfaði Djur-
gården. Sigur Djurgården í gær
kemur liðinu því í kjörstöðu.
AIK varð meistari í fyrra en
Malmö vann fjórum sinnum á fimm
árum þar á undan. Fara þarf aftur
til ársins 2005 til að finna síðasta
meistaratitil hjá Djurgården. Enn
lengra er síðan Hammarby vann
deildina en það var árið 2001 og er
raunar eini meistaratitill liðsins.
Arnór Ingvi
skoraði gegn AIK
Íslendingar geta orðið meistarar
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019
Svíþjóð
Malmö – AIK ............................................ 2:0
Arnór Ingvi Traustason lék allan leikinn
og skoraði síðara mark Malmö.
Kolbeinn Sigþórsson lék allan leikinn
með AIK.
Djurgården – Örebro ............................... 3:0
Elfsborg – Gautaborg .............................. 2:0
Staðan fyrir lokaumferðina:
Djurgården 29 20 5 4 51:17 65
Malmö 29 18 8 3 51:16 62
Hammarby 29 19 5 5 71:37 62
AIK 29 18 5 6 45:23 59
Norrköping 29 16 8 5 52:24 56
Häcken 29 14 7 8 43:25 49
Gautaborg 29 12 9 8 39:30 45
Elfsborg 29 10 10 9 42:44 40
Örebro 29 9 6 14 40:51 33
Helsingborg 29 8 6 15 28:47 30
Sirius 29 7 5 17 31:51 26
Östersund 29 5 10 14 26:45 25
Kalmar 29 4 11 14 22:44 23
Falkenberg 29 5 7 17 24:62 22
Sundsvall 29 4 8 17 30:48 20
Eskilstuna 29 4 8 17 23:54 20
Í lokaumferðinni mætast Norrköping –
Djurgården, Hammarby – Häcken, Örebro
– Malmö og AIK – Sundsvall.
B-deild:
Mjällby – Syrianska................................. 2:0
Nói Snæhólm Ólafsson lék allan leikinn
með Syrianska sem er neðst í deildinni.
Milos Milojevic, fyrrverandi þjálfari Vík-
ings R. og Breiðabliks, þjálfar Mjällby sem
með sigrinum tryggði sér sæti í úrvals-
deildinni.
Noregur
Brann – Bodö/Glimt................................ 1:1
Oliver Sigurjónsson var ekki í leik-
mannahópi Bodö/Glimt.
Staða efstu liða:
Molde 26 17 5 4 58:27 56
Bodø/Glimt 26 14 8 4 55:35 50
Odd 26 13 7 6 39:32 46
Rosenborg 26 12 8 6 42:32 44
Viking 26 11 7 8 45:38 40
Kristiansund 26 10 8 8 36:34 38
Brann 26 9 10 7 30:25 37
Danmörk
AGF – FC Köbenhavn ............................. 1:2
Jón Dagur Þorsteinsson lék allan leikinn
og skoraði mark AGF.
Þýskaland
B-deild:
Sandhausen – Wehen .............................. 0:0
Rúrik Gíslason lék fyrstu 73 mínúturnar
fyrir Sandhausen.
Tyrkland
B-deild:
Osmanlispor – Akhisarspor ................... 2:1
Theódór Elmar Bjarnason var á vara-
mannabekk Akhisarspor.
England
B-deild:
QPR – Brentford...................................... 1:3
Patrik Sigurður Gunnarsson var ekki í
leikmannahópi Brentford.
Staða efstu liða:
WBA 14 7 6 1 26:17 27
Preston 14 7 4 3 27:16 25
Leeds 14 7 4 3 17:8 25
Swansea 14 7 4 3 18:13 25
Sheffield Wed. 14 7 3 4 18:10 24
Bristol City 14 6 6 2 22:19 24
Fulham 14 6 5 3 23:14 23
EM U17 karla
Undanriðill í Skotlandi:
Armenía – Ísland...................................... 1:0
Króatía – Skotland ................................... 2:1
Lokastaðan: Króatía 9, Skotland 6, Ar-
menía 3, Ísland 0. Króatía og Skotland eru
komin áfram í milliriðla.
KNATTSPYRNA
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Laugardalur: SR – Fjölnir .................. 19.45
Í KVÖLD!
1. deild karla
Breiðablik – Sindri ............................. 108:83
Vestri – Hamar ..................................... 90:94
Selfoss – Skallagrímur......................... 86:89
Höttur – Snæfell................................... 95:73
Staðan:
Hamar 5 5 0 496:424 10
Breiðablik 5 4 1 485:407 8
Vestri 4 3 1 401:312 6
Höttur 4 3 1 358:331 6
Álftanes 4 2 2 326:336 4
Selfoss 4 1 3 295:333 2
Skallagrímur 5 1 4 380:456 2
Snæfell 5 1 4 369:456 2
Sindri 4 0 4 329:384 0
NBA-deildin
Oklahoma City – Golden State.......... 120:92
Memphis – Brooklyn ............... (frl.) 134:133
Minnesota – Miami........................... 116:109
Dallas – Portland.............................. 119:121
LA Lakers – Charlotte .................... 120:101
KÖRFUBOLTI
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Engu máli virðist skipta hversu
oft læknar þurfa að grípa inn í lík-
amsstarfsemina hjá Tiger Woods.
Kylfingurinn virðist alltaf geta kom-
ið sér aftur í samkeppnishæft
ástand. Tiger Woods er að koma úr
tveggja mánaða fríi frá keppni eftir
að hafa farið í aðgerð á hné. Væri
það kannski ekki í frásögur færandi
nema vegna þess að aðgerðin er sú
fimmta sem gerð er á vinstra
hnénu.
Tiger sigraði á ZOZO Champion-
ship-mótinu í Japan aðfaranótt
mánudagsins. Ekki merkilegasta
golfmótið sem Woods hefur unnið á
ferlinum en með sigrinum náði hann
þeim áfanga að jafna við goðsögnina
Sam Snead sem átti flesta sigra á
PGA-mótaröðinni.
Woods og Snead hafa unnið 82
mót á mótaröðinni en Jack Nicklaus
vann 73 mót. Efstu nöfn listans eru
mjög þekkt eðli málsins samkvæmt
en næstu tveir eru Ben Hogan og
Arnold Palmer með 64 og 62 sigra.
Tiger Woods lék á samtals 19
höggum undir pari í Japan og var
með forystu nánast frá upphafi til
enda. Svolítið eins og um aldamótin
þegar hann var nánast ósnertan-
legur í íþróttinni. Mótið var ekki illa
skipað en á meðal keppenda voru til
dæmis Rory McIlroy, Hideki
Matsuyama, Gary Woodland, Jason
Day, Justin Thomas, Jordan Spieth
og Tommy Fletwood svo einhverjir
séu nefndir.
6. sæti heimslistans
Með sigrinum fer Tiger Woods
upp í 6. sæti heimslistans og
frammistaðan eykur líkurnar á því
að honum takist að komast inn á Ól-
ympíuleikana í Japan næsta sumar.
Þangað stefnir hann eins og greint
var frá um daginn en margir banda-
rískir kylfingar eru tilkallaðir en fá-
ir útvaldir. Þrír landar hans eru fyr-
ir ofan hann á heimslistanum sem
stendur: Brooks Koepka, Dustin
Johnson og Justin Thomas.
Áður í greininni var minnst á hné-
aðgerðirnar. Woods hefur einnig
þurft að fara í fjórar aðgerðir vegna
bakmeiðsla. Heilsan er stærsta
spurningarmerkið þegar menn velta
því fyrir sér hvort hann slái met
Sams Snead. En miðað við að hann
vann í Japan, vann Masters í apríl
og Tour Championship, lokamót
PGA-mótaraðarinnar, fyrir ári, þá
er hann líklegur til að bæta metið.
Öllu snúnara verður fyrir hann að
ná öðru meti sem Woods hefur horft
til nánast allan sinn feril.
„Sagan hefur ávallt verið helsti
keppinautur Tigers Woods á hans
ferli. Þegar Woods sigraði á risa-
móti í fyrsta skipti, Masters árið
1997, þá velti almenningur fyrir sér
hvort hann gæti slegið met Jacks
Nicklaus sem vann risamót átján
sinnum. Hefur það met lengi verið
talið stærsta áskorunin í íþróttinni.
Áfram verður það stóra mark-
miðið,“ skrifaði hinn reyndi golf-
penni AP-fréttaveitunnar, Doug
Ferguson, eftir sigur Woods í gær.
Sagan er helsti
keppinauturinn
Tiger Woods jafnaði met Sams
Snead eftir fimmtu hnéaðgerðina
AFP
82 Tiger Woods er óhemju sigursæll og bætir enn á sig blómum.
Jón Dagur Þorsteinsson, fyrirliði
U21 árs landsliðsins í knattspyrnu,
skoraði gegn stórliði FCK í dönsku
úrvalsdeildinni í gær. Jón skoraði
mark AGF sem tapaði fyrir Kaup-
mannahöfn 1:2 í Árósum. Jón hefur
lagt í vana sinn að skora gegn stór-
liðinu. Hefur hann skorað sex mörk
í dönsku úrvalsdeildinni á ferlinum
fyrir Vendsyssel og AGF en þrjú af
þeim hafa komið gegn FCK. Jón
Dagur lék allan leikinn fyrir AGF
sem er í sjötta sæti dönsku úrvals-
deildarinnar með 20 stig eftir 14
umferðir.
Jón skoraði gegn
stórliði FCK
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skoraði Jón Dagur Þorsteinsson
var á skotskónum fyrir AGF.
Milos Milojevic og lærisveinar hans
í Mjällby munu leika í sænsku úr-
valsdeild karla í knattspyrnu á
næstu leiktíð. Mjällby vann 2:0-
heimasigur gegn Syrianska í
sænsku B-deildinni í gær tryggði
sér þar með sæti í efstu deild á
næsta tímabili.
Milos tók við Mjällby hinn 17. júní
2018 þegar liðið var í C-deild og
hefur því farið upp með liðið um
tvær deildir á tveimur árum. Milos
er íslenskur ríkisborgari en fæddur
í Serbíu. Hann þjálfaði Víking og
Breiðablik í efstu deild á Íslandi.
Fór með lið upp
um tvær deildir
Morgunblaðið/Ófeigur
Afrek Milos Milojevic hefur áorkað
miklu hjá Mällby í Svíþjóð.