Morgunblaðið - 29.10.2019, Síða 25

Morgunblaðið - 29.10.2019, Síða 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019 Ég fylgdist með báðum leikj- um íslenska karlalandsliðsins í handbolta gegn Svíum um ný- liðna helgi og það ber að þakka SportTV fyrir að sýna báða leik- ina í beinni útsendingu. Mér finnst vera góður taktur í liðinu undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar og hans bíður jákvæður hausverkur að velja hópinn sem Ísland teflir fram á Evrópumótinu sem fram fer í Svíþjóð, Noregi og Austurríki í janúar. Varnarleikurinn var virkilega góður í fyrri leiknum þar sem hinn tvítugi Sveinn Jóhannsson stimplaði sig virkilega vel inn í miðja vörn íslenska liðsins. Hann er framtíðarmaður í landsliðinu þótt svo kunni að fara að hann verði ekki valinn í EM-hópinn. Vörnin var ansi götótt í seinni leiknum en á móti var sóknarleik- urinn til fyrirmyndar þar sem margir leikmenn tóku af skarið. Markvarslan var heilt yfir frekar slök og hana verður að bæta áður en flautað verður til leiks í Malmö. Kári Kristján Kristjánsson er að mínu mati besti línumaður okkar og ég vil sjá Eyjatröllið í EM-hópnum. Kári var kallaður inn í hópinn á síðustu stundu og eftir að hafa verið úti í kuldanum um nokkuð langt skeið kom Kári sterkur inn og sérstaklega í fyrri leiknum. Það er jákvætt að breiddin er að aukast í landsliðinu og það er eitthvað sem Guðmundur hef- ur verið að vinna í og notaði leik- ina til að skoða leikmenn eins og Viggó Kristjánsson, Svein Jó- hannsson og Kristján Örn Krist- jánsson. Landsliðið er í góðum höndum undir stjórn Gumma og vonandi stígur það skref áfram á EM í því markmiði að komast í hóp átta bestu þjóða heims. BAKVÖRÐUR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is EM 2020 Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Hvaða 16 leikmenn verða á leik- skýrslunni þegar Ísland mætir Dan- mörku í Malmö 11. janúar, í fyrsta leik sínum á EM karla í handbolta? Segja má að vináttulandsleikir Ís- lands við Svíþjóð um helgina, þar sem nokkrir reynsluminni eða hreinlega óreyndir landsliðsmenn stóðu sig vel, hafi frekar flækt stöð- una en ekki og að hausverkur Guð- mundar Guðmundssonar landsliðs- þjálfara hljóti að vera talsverður þegar hann á næstu tveimur mán- uðum reynir að setja saman EM- hópinn sinn. Leikirnir um helgina voru þeir síðustu áður en Guðmundur þarf að senda Handknattleikssambandi Evrópu lista yfir 28 manna hóp leik- manna sem koma til greina fyrir EM. Ekki verður hægt að kalla á leikmenn utan þess lista þó að ein- hverjir meiðist eða forfallist af öðr- um sökum. Guðmundur þarf svo að skera þann hóp niður um 12 leik- menn en lokahópinn þarf hann í raun ekki að tilkynna fyrr en kvöldið fyrir fyrsta leik á EM, og hópnum má breyta meðan á móti stendur. Ísland leikur vináttulandsleik við Þýskaland í Mannheim 4. janúar og viku síðar hefst svo alvaran með leik við Danmörku en Danir verða nán- ast á heimavelli í Malmö, þar sem riðill Íslands á EM verður leikinn. Ísland er einnig í riðli með Rúss- landi og Ungverjalandi. MARKMENN Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG 9/0 Ágúst Elí Björgvinsson, Sävehof 31/0 Grétar Ari Guðjónsson, Haukum 7/0 Björgvin Páll Gústavsson, Skjern 221/13 Aron Rafn Eðvarðsson, Hamburg 84/6 Ef við horfum fyrst til mark- mannsstöðunnar þá hafa Viktor Gísli og Ágúst Elí myndað mark- mannapar Íslands frá því að Guð- mundur skipti þeim Björgvini Páli og Aroni Rafni út í apríl, á milli tveggja leikja í undankeppni EM. Björgvin og Ágúst voru markmenn Íslands á síðasta stórmóti, HM í jan- úar, en svo virðist sem Viktor og Ágúst hafi stimplað sig inn núna. Viktor spilaði meira í leikjunum við Svíþjóð og stóð sig ágætlega í fyrri leiknum, og Ágúst ver mark Meist- aradeildarliðs. Líklegast er að þeir verði í EM-hópnum en Grétar Ari bankar á dyrnar og var í æf- ingahópnum fyrir leikina við Svía. VINSTRA HORN Bjarki Már Elísson, Lemgo 63/141 Stefán Sigurmannsson, Pick Szeged 72/96 Guðjón Valur Sigurðsson, PSG 356/1853 Bjarki var eini vinstri hornamað- urinn í Svíþjóð en Stefán Rafn og Guðjón Valur fengu hvíld vegna meiðsla. Bjarki var þriðji kostur fyr- ir ári en fór á HM eftir að Guðjón meiddist. Þarna er um að ræða jafna baráttu, sennilega um tvö sæti. Hné- meiðsli sem angrað hafa Stefán Rafn á þessari leiktíð hjálpa honum ekki og má telja líklegra núna að Bjarki og Guðjón fari á EM. VINSTRI SKYTTA Aron Pálmarsson, Barcelona 141/553 Ólafur Guðmundsson, Kristianstad 115/215 Ef við gefum okkur að Guð- mundur taki með tvo leikmenn sem flokkaðir verða sem vinstri skyttur þá verða það Aron og Ólafur, haldist þeir heilir. Aðrir koma ekki sterk- lega til greina. LEIKSTJÓRNENDUR Elvar Örn Jónsson, Skjern 26/80 Haukur Þrastarson, Selfoss 12/15 Gísli Þorgeir Kristjánsson, Kiel 23/31 Janus Daði Smárason, Aalborg 37/41 Það er erfitt að sjá að Guðmundur komi Elvari, Hauki, Gísla og Janusi öllum fyrir, jafnvel þó að hann færi bara með eina örvhenta skyttu á EM eins og í síðustu leikina í undan- keppni EM í sumar. Elvar á sæti víst en það stefnir í harða sam- keppni um að fylgja honum. Hauk- ur, sem var „17. maður“ á HM og kom inn í hópinn þegar Aron Pálm- arsson meiddist, kom sennilega best út af hinum þremur í Svíþjóð. Það hjálpar ekki Gísla hve lítið hann fær að sýna sig í Þýskalandi, þó að hann sé þar hjá einu af betri félagsliðum heims. Janus Daði virðist aftast í goggunarröðinni, nýbúinn að skora sjö mörk í sigri á Flensburg í Meist- aradeildinni. HÆGRI SKYTTA Teitur Einarsson, Kristianstad 18/18 Ómar Ingi Magnússon, Aalborg 46/129 Viggó Kristjánsson, Leipzig 2/3 Kristján Örn Kristjánsson, ÍBV 7/13 Rúnar Kárason, Ribe-Esbjerg 100/243 Höfuðmeiðsli hafa haldið Ómari Inga frá keppni síðan í vor og ekki hægt að fullyrða að hann verði klár í slaginn á EM. Þeir Teitur eru ann- ars líklega áfram fyrstu kostir í hægri skyttustöðuna en Viggó átti fína innkomu í sínum fyrstu lands- leikjum í Svíþjóð. Spili hann vel í Þýskalandi næstu tvo mánuði er ekkert útilokað, sérstaklega vegna óvissu um Ómar. Rúnar hefur ekki verið valinn í landsliðshóp síðan hann féll óvænt út úr hópnum fyrir HM en hann hefur skorað 35 mörk og átt 30 stoðsendingar í fyrstu átta umferðunum í Danmörku. HÆGRA HORN Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer 105/311 Sigvaldi Guðjónsson, Elverum 20/37 Óðinn Þór Ríkharðsson, GOG 13/42 Sigvaldi styrkti stöðu sína innan hópsins í Svíþjóð en Arnór er áfram fyrsti kostur sem hægri hornamað- ur. Hann fékk hvíld um helgina vegna meiðsla, en Óðinn leysti Arn- ór einmitt af hólmi á HM í janúar eftir að Arnór meiddist. Vel hugs- anlegt er að Guðmundur velji aðeins einn hægri hornamann í 16 manna hópinn sinn. LÍNUMENN Arnar Freyr Arnarsson, GOG 45/65 Kári Kristján Kristjánsson ÍBV 137/162 Elliði Snær Viðarsson, ÍBV 6/4 Arnar Freyr hefur spilað kvalinn með GOG og baðst undan því að fara í leikina við Svíþjóð en er sjálfsagt áfram fyrsti kostur af línumönnum þar sem hann getur leikið bæði sókn og vörn. Kári sýndi hins vegar í Sví- þjóð að hann er besti sóknar- línumaður Íslands í dag og opnaði EM-dyrnar upp á gátt fyrir sig. VARNARMENN Ólafur Gústafsson, Kolding 43/48 Ýmir Örn Gíslason, Val 33/14 Sveinn Jóhannsson, Sönderjyske 7/14 Daníel Þór Ingason, Ribe-Esbjerg 30/9 Ofangreindir geta vissulega allir spilað í sókn en fari þeir á EM verð- ur það fyrst og fremst vegna varnar- hæfileika þeirra. Ólafur, Daníel og Ýmir fóru allir á HM í janúar en Sveinn hefur lengi verið á radarnum hjá Guðmundi sem valdi hann í 28 manna hóp fyrir HM. Sveinn átti mjög góðan fyrri leik gegn Svíum þar sem þeir Ýmir fengu að sýna sig og sanna í fjarveru Ólafs og Daníels sem hafa verið meiddir. Það ræðst betur af stöðu þessara manna í des- ember hverjir komast á EM. Hverjir mæta Dönum?  Guðmundur Guðmundsson þarf að taka margar erfiðar ákvarðanir fyrir fyrsta leik Íslands á EM í Malmö  Leikirnir við Svía flæktu stöðuna frekar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Blandaður hópur Það munar 21 ári og jafnframt 21 stórmóti í handbolta á þeim Viktori Gísla Hallgrímssyni og Guðjóni Val Sigurðssyni en þeir gætu báðir verið á leiðinni til Malmö á Evrópumótið sem hefst 10. janúar. Óvænt úrslit urðu í stórsvigi þegar heimsbikarkeppni kvenna í alpa- greinum hófst í Austurríki um helgina. Ólympíumeistaranum Mi- kaelu Shiffrin var þá skákað af 17 ára gamalli konu frá Nýja-Sjálandi. Heitir hún Alice Robinson og var að keppa í heimsbikarnum í ellefta sinn og er sigurinn hennar fyrsti. Um leið fyrstu gullverðlaun Ný- Sjálendinga. Hún varð naumlega á undan Shiffrin sem hafði forystu eftir fyrri ferðina. Robinson hefur þótt mjög efnileg og fór á verð- launapall í heimsbikarmóti í mars. Gullverðlaun til Nýja-Sjálands AFP Gull Alice Robinson á efsta þrepi á verðlaunapallinum í Austurríki. Jón Páll Pálmason hefur verið ráð- inn þjálfari 1. deildar liðs karla í knattspyrnu hjá Víkingi í Ólafsvík til þriggja ára. Hann tekur við af Ejub Purisevic sem hefur þjálfað Ólafsvíkinga nær samfleytt frá árinu 2003. Jón Páll er 37 ára gam- all Hafnfirðingur sem undanfarin sex ár hefur þjálfað í Noregi. Fyrst þjálfaði hann Klepp í norsku úr- valsdeild kvenna áður en hann tók við karlaliði Stord. Áður hafði hann einnig þjálfað karlalið Hattar í 2. deildinni og Fylki í úrvalsdeild kvenna. vs@mbl.is Jón Páll tekur við Ólafsvíkingum Ólafsvík Jón Páll Pálmason hefur verið ráðinn þjálfari til þriggja ára. Hamar er með fullt hús stiga eftir fimm um- ferðir í 1. deild karla í körfu- knattleik en fjór- ir leikir fóru fram í gær. Ham- ar vann mik- ilvægan sigur á Vestra 94:90 á Ísafirði. Vestri var sjö stigum yfir eftir þriðja leik- hluta en Hvergerðingar reyndust sterkari í fjórða leikhluta. Í Hvera- gerði ætla menn sér stóra hluti og teflir liðið fram þekktum leik- mönnum eins og Kinu Rochford og Danero Thomas. Danero fór mik- inn í liði Hamars og skoraði 28 stig, tók fimm fráköst og gaf fjórar stoð- sendingar. Nemanja Knezevic var atkvæðamestur í liði Vestra og skoraði 34 stig og tók 22 fráköst. Pétur Ingvarsson er að gera fína hluti með Breiðabliki sem styrkti stöðu sína í öðru sæti deildarinnar með 108:83-sigri gegn Sindra í Kópavogi þar sem Larry Thomas skoraði 30 stig og tók níu fráköst. Þá vann Höttur 95:73-sigur gegn Snæfelli á Egilsstöðum og Skalla- grímur lagði Selfoss á Selfossi, 89:86. Vestri og Höttur eru bæði með 6 stig í 3. og 4. sæti og útlit fyr- ir harða baráttu í deildinni. Mikilvægur sigur Hamars á Ísafirði Danero Thomas

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.