Morgunblaðið - 29.10.2019, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 29.10.2019, Qupperneq 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2019 Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Tilvalinn með á völlinn Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Finnur Arnar Arnarson, myndlist- armaður og leikmyndahöfundur, og Gréta Kristín Ómarsdóttir drama- túrg, hafa hleypt af stokkunum verkefni í tengslum við leiksýning- una Engilinn sem verður frumsýnd í desember í Þjóðleikhúsinu, eins og fram kom í Morgunblaðinu í síðustu viku . Verkefnið kallast Hversdags- leikhúsið og lýsir sér þannig að stól frá stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu er komið fyrir á 10 stöðum um land allt þar sem fólk getur virt fyrir sér hversdagsleikann frá nýju sjónar- horni. „Við höfum verið að undirbúa sýn- inguna Engilinn, sem heiðrar minn- ingu Þorvalds Þorsteinssonar. Hann var myndlistarmaður, leikskáld og rithöfundur sem vann mikið með hversdagsleikann,“ segir Gréta. „Um leið og við fórum af stað, með hugmyndir hans og afstöðu í huga, vorum við að leita að því hvernig við gætum sprengt út þessa sýningu. Þorvaldur vann mikið með töfrana og leikhúsið í hversdagsleikanum og þaðan kemur þessi hugmynd að því að búa til leikhús úr hversdagsleik- anum á hversdagslegum stöðum.“ Vel tekið í verkefnið Gréta segir vilja hafa verið fyrir því að notast við heimabæ Þorvald- ar, Akureyri, en stólum var komið fyrir á tveimur stöðum þar í bæ, Listasafninu á Akureyri og JMJ herradeild. „Við höfðum samband við staði úti um allt land sem okkur finnst vera hversdagslegir staðir, verslanir, stofnanir eða fyrirtæki, sem fólk fer inn í án þess að gefa umhverfi sínu mikinn gaum. Í sam- starfi við starfsfólk og eigendur þessara staða settum við saman leik- skrá fyrir hvern stað.“ Þegar fólk mætir ber því að líta leikskrá, bæði á íslensku og ensku, eins og fólk á að venjast í leikhúsi. „Umhverfinu er lýst eins og horft sé á leiksvið og starfsmönnum og við- skiptavinum er lýst sem leikurum sem leika hlutverk,“ segir Gréta. Hún segir markmiðið með verk- efninu vera að fólk sjái hversdags- leikann í nýju ljósi. „Þetta er allt hugsað sem einhvers konar innsetn- ing svo að fólk setjist og lesi þennan texta og horfi því kannski aðeins öðruvísi á umhverfi sitt. Við viljum búa til rými þar sem fólk getur leyft sér að dagdreyma, sjá annað fólk sem eitthvað merkilegra en bara eitthvert annað fólk. Verða mögu- lega áhorfandi og sjá eitthvað skemmtilegt sem það horfir annars framhjá.“ Gréta segir að starfsfólk og aðrir hafi tekið vel í þetta uppátæki. „Margir af þessum stöðum eru stað- ir sem heimafólki þykir vænt um og er hluti af daglegu lífi þess. Oft eru þetta samkomustaðir eins og félags- heimilið Herðubreið á Seyðisfirði, staðir þar sem er mikið líf. Það hef- ur verið gaman og gefandi að búa til leikskrá fyrir hvern stað og við er- um að lyfta upp þessum hversdags- legu stöðum sem margir taka sem sjálfsögðum hlut. Viðbrögðin hafa verið alveg frábær.“ Vilja hafa stólana lengur Gréta segir þau Finn nálgast verkefnið með miklum húmor. „Þetta er alls ekki til að svala ein- hverri gægjuþörf fólks eða til þess gert að njósna um aðra. Þetta er á áberandi stöðum og við höfum kynnt þetta vel fyrir fólkinu á hverjum stað. Raunar hafa flestir lýst yfir áhuga á því að hafa stólana lengur en stóð til upphaflega,“ segir Gréta. Verkefnið stendur yfir til áramóta en flestir ef ekki allir staðirnir munu halda stólinum fram yfir áramót svo að gestir og gangandi geti virt fyrir sér hversdagsleikann. Gréta fór um síðustu helgi hring- inn í kringum landið og setti upp stóla og leikskrár á stöðunum. Í vik- unni setti hún svo upp stóla við Vesturbæjarlaug, Reykjavíkurflug- völl og Háráttu í Keflavík skömmu eftir að Morgunblaðið náði tali af henni. Rými fyrir dagdrauma  Í Hversdagsleikhúsinu getur fólk virt fyrir sér hversdagsleikann  Leikhús tengt sýningunni Engllinn sem heiðrar minningu Þorvalds Þorsteinssonar Morgunblaðið/Árni Sæberg Stóllinn Gréta Kristín og Finnur Arnar með stólinn góða sem settur var upp í afgreiðslu Vesturbæjarlaugar. Leikarinn Þorsteinn Bachmann mun leika í söngleiknum Vorið vaknar á næsta ári. Leikfélag Akureyrar setur verkið á svið í Samkomuhúsinu í byrjun næsta árs og er Þorsteinn þar vel kunnugur, þar sem hann hefur áður starfað fyrir leikfélagið og þá bæði sem leikari og leikhússtjóri, að því er fram kemur í tilkynningu. Þorsteinn er fullur tilhlökkunar að stíga á svið á ný í Samkomuhús- inu eftir um það bil 15 ára hlé og segir af því tilefni: „Þetta er eitt allra besta svið á landinu og þótt víðar væri leitað. Frábær hljóm- burður og notalegur salur með mikla sögu og góðan anda.“ Söngleikurinn fjallar um fyrstu kynlífsreynslu, skólakerfið, kvíða og frelsisþrá unglinga í afturhalds- sömu og þröngsýnu samfélagi 19. aldarinnar sem leyfir engin frávik frá hinu viðtekna, segir í tilkynn- ingu og að uppfærsla söngleiksins á Broadway árið 2006 hafi hlotið átta Tony-verðlaun og þar af sem besti nýi söngleikurinn. Vorið vaknar hefur ekki verið sett upp áður í at- vinnuleikhúsi á Íslandi. Auk Þorsteins leika í verkinu Ahd Tamimi, Ari Orrason, Árni Beinteinn Árnason, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Edda Björg Eyj- ólfsdóttir, Eik Haraldsdóttir, Jón- ína Björt Gunnarsdóttir, Júlí Heið- ar Halldórsson, Rúnar Kristinn Rúnarsson, Viktoría Sigurðardóttir og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir en Marta Nordal leikstýrir. Þorsteinn leikur í Vor- ið vaknar Norður Þorsteinn leikur fyrir norðan. Sú breyting verður á Sólveigar Ans- pach-verðlaunakvöldinu á Franskri kvikmyndahátíð á næsta ári að í stað einna verðlauna verða afhent tvenn, ein fyrir stuttmynd á íslensku og önnur fyrir stuttmynd á frönsku, að því er fram kemur í tilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar sem haldin verður í 20. sinn á næsta ári, dagana 23. janúar til 2. febrúar. Frestur til að skila inn stuttmynd í keppnina er 9. nóvember. Skilyrði fyrir þátttöku eru eftir- farandi: Að kona sé leikstjóri stutt- myndarinnar og hafi ekki haft fram- leiðslufyrirtæki á bak við sig í fleiri en þremur myndum. Að þátttakandi sé með ríkisfang eða búsetu í frönskumælandi landi, eða sé íslensk eða búsett á Íslandi. Öll þemu eru leyfð og myndin má að hámarki vera 20 mínútur að lengd, að meðtöldum listum yfir þá sem að gerð mynd- arinnar komu. Þá þarf gerð stutt- myndarinnar að hafa verið lokið eftir 1. janúar 2017. Myndin þarf að vera annaðhvort á íslensku eða frönsku og skilyrði að hún sé með enskum texta. Myndin á að vera í Vimeo-formi og að lokum er tekið fram að fyrri verðlaunahafar keppn- innar megi ekki taka þátt í henni. Hver þátttakandi verður að skrá myndina fyrir kl. 23 þann 9. nóv- ember og innritunareyðublaðið má finna á slóðinni sa2020.af.is. Virt Sólveig Anspach var virtur kvikmyndaleikstjóri. Hún lést árið 2016. Tvenn verðlaun veitt í stað einna á næsta ári

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.