Morgunblaðið - 29.10.2019, Síða 32
Kuldaskór
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Vatnsheldir og hlýir kuldaskór
með innbyggðum broddum í sóla
Verð 17.995
Stærðir 36 - 47
Verð 17.995
Stærðir 36 - 47
Verð 17.995
Stærðir 36 - 42
Finnska tríóið Grímsey kemur fram
á djasskvöldi Kex hostels í kvöld kl.
20.20 en það er skipað Matti Saari-
nen á gítar, Lasse Lindgren á bassa
og Joonas Leppänen á trommur.
Tríóið mun flytja spila lög af plötu
sinni sem kom út í maí síðast-
liðnum í bland við eldra og nýrra
efni.
Finnska tríóið Grímsey
djassar á Kex hosteli
ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 302. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Hvaða 16 leikmenn verða á leik-
skýrslunni þegar Ísland mætir Dan-
mörku í Malmö 11. janúar, í fyrsta
leik sínum á EM karla í handbolta?
Segja má að vináttulandsleikir Ís-
lands við Svíþjóð um helgina hafi
frekar flækt stöðuna en hitt og að
hausverkur Guðmundar Þ. Guð-
mundssonar landsliðsþjálfara hljóti
að vera töluverður. »25
Svíaleikirnir flæktu
málin fyrir Guðmundi
ÍÞRÓTTIR MENNING
Ljóst er að endurkoma Sigurðar
Gunnars Þorsteinssonar í körfu-
boltalið ÍR breytir miklu fyrir Breið-
hyltinga. Þeim var spáð erfiðum
vetri eftir að hafa misst flesta lykil-
menn sína. Benedikt Guðmundsson
segir fullvíst að ÍR-ingar séu þegar
búnir að kveðja fallbar-
áttuna sem í stefndi
og Trausti Eiríksson,
leikmaður ÍR, segir
að með komu Sig-
urðar horfi
leikmenn liðs-
ins þremur til
fjórum sætum
ofar á töfluna í
úrvalsdeildinni en
áður. Fjallað er um lið
ÍR í Morgunblaðinu í
dag. »26
Endurkoma Sigurðar
breytir miklu fyrir ÍR
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Skammdegisbæjarhátíðin Þolló-
ween fer fram í Þorlákshöfn þessa
vikuna og í dag og í kvöld verður
boðið upp á skelfilega skraut-
smiðju og ónotalega sundstund, en
skemmtuninni lýkur með jóga fyr-
ir börnin á sunnudag.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir er
talsmaður skipuleggjenda. Hún
segir að hóp kvenna í þorpinu hafi
langað til þess að gera eitthvað
skemmtilegt fyrir bæjarbúa í
skammdeginu í fyrra, tekið sig
saman og skipulagt skammdegis-
hátíðina Þollóween. „Skemmtunin
heppnaðist sérlega vel og meðal
annars fékk hópurinn hvatning-
arverðlaun Heimilis og skóla í
vor,“ segir hún. „Þess vegna kom
ekki annað til greina en að halda
áfram á sömu braut í ár.“
Viðamikil dagskrá
Dagskráin hófst í gær með
hrollvekjum fyrir 1. til 10. bekk
grunnskólans. Í dag verður gras-
kersútskurður í hræðilegum
skrautsmiðjum í skólanum og
mannasúpa í pottunum í sundlaug-
inni í kvöld. Á morgun verður rat-
leikur fyrir börn í 5. bekk og eldri
og fyrir fullorðna um kvöldið. Á
fimmtudag verður draugahús í
skólanum, vasaljósaleit fyrir
yngstu börnin og ball fyrir 7. til
10. bekk um kvöldið. Á föstudag
ganga afturgöngur, draugar og
aðrar kynjaverur í hús og boða
grikk fáist ekki gott. Kaffihúsið og
glervinnustofan Hendur í Höfn
verður síðan vettvangur norna-
þings um kvöldið. Á laugardag
býðst fólki að verða vitni að
draugagangi í draugahúsi og 18
ára og eldri geta síðan farið á
grímuball um kvöldið. Á sunnudag
verða yfirfullar kistur af alls kyns
góssi í ráðhúsi Ölfuss þar sem fólk
getur gert góð kaup á flóamark-
aði.
„Við leggjum mikla áherslu á að
dagskráin sé fyrir alla aldurshópa
og gætum þess sérstaklega að
unglingarnir verði ekki útundan
eins og stundum vill verða,“ segir
Ása. „Við leikum okkur með
skammdegið og hrekkjavakan
Halloween er að hluta til fyrir-
mynd, en hafa ber í huga að mikil
hefð er fyrir myrkrinu á Íslandi
og þeim kynjaverum sem leynast í
því.“
Draugasögugangan vakti mikla
athygli í fyrra. Þá var gengið með
sögumanni um þorpið, þar sem
kynjaverur leyndust á hverju
strái. „Núna setjum við þennan
viðburð í ratleiksform,“ segir Ása
og áréttar að saga þorpsins sé
óspart notuð.
Ónotaleg sundstund er á sínum
stað og sama á við um skelfilegu
skrautsmiðjurnar. „Þar hittast all-
ir sem vilja. Í fyrra var fullt út úr
dyrum og við eigum von á meiri
aðsókn að þessu sinni.“
Þorgerður, tíu ára dóttir Ásu, er
mjög spennt vegna hátíðarinnar.
„Um leið og við komum heim úr
síðustu sumarútilegunni byrjaði
hún að telja niður vegna Þolló-
ween og er ekki farin að tala um
jólin, þetta á hug hennar allan,“
segir Ása. „Þetta er lýsandi fyrir
eftirvæntinguna í þorpinu. Skólinn
er á fullu með okkur í þessu og í
raun samfélagið allt.“
Mannasúpa og
skelfileg skrautsmiðja
Hjón Jón Páll Kristófersson og
Ólína Þorleifsdóttir, skólastjóri
Grunnskólans í Þorlákshöfn.
Skammdegisbæjarhátíðin Þollóween í annað sinn í Þorlákshöfn
Skemmtun Sigríður Fjóla Þórarinsdóttir, Helena Helgadóttir og Sigríður
Stefánsdóttir klæddu sig upp á í tilefni hátíðarinnar í fyrra.