Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI A lma (áður Almenna leigufélagið) er ungt en stöndugt fyrirtæki, stofnað árið 2014 til að annast eignaumsýslu og útleigu húsnæðis fyrir ýmsa fjár- festingarsjóði. „Svo byrjar félagið að kaupa fasteignasöfn og fasteignafélög, stækkar hratt og tekur á sig núverandi mynd á árunum 2016 til 2017,“ segir María Björk Einarsdóttir fram- kvæmdastjóri. Í dag hefur Alma á að skipa rösklega 1.200 íbúðum eða hér um bil 108.000 fermetrum íbúð- arhúsnæðis. Eignasafnið er að stærstum hluta á höfuðborgarsvæðinu og starfa fimmtán manns hjá fyrirtækinu sem ratar núna í fyrsta skipti á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Að sögn Maríu má m.a. skrifa góðan árangur undanfarin ár á hagfelldar aðstæður á fast- eignamarkaði og góða eftirspurn eftir leigu- húsnæði. Æ fleiri kjósi langtímaleigu sem sinn fyrsta kost í húsnæðismálum og standi leigu- félögin þá vel að vígi enda geti þau boðið upp á þjónustu og stöðugleika sem ekki er alltaf hægt að ganga að sem vísum á almennum leigumark- aði. „Margir af viðskiptavinum okkar hafa ein- mitt reynslu af því að hafa lent á flakki milli leiguíbúða vegna breytinga hjá leigusala eða vegna þess að eignin hefur einfaldlega verið seld ofan af þeim,“ segir María og bendir á að Alma hafi lagt sig fram við að bjóða hátt þjón- ustustig. „Bæði getum við tryggt viðskipta- vinum okkar leiguhúsnæði til langframa, en bættum nýlega við þeim möguleika að tryggja fast leiguverð í sjö ár, tengt vísitölu neyslu- verðs. Við leggjum okkur líka fram við að jafna aðstöðumun þeirra sem eiga húsnæði og þeirra sem leigja s.s. með því að hafa leigjendur með í ráðum með breytingar og endurbætur, og með því að leyfa gæludýrahald.“ Leigjandinn hefur sveigjanleika Eflaust hefur mörgum lesendum verið kennt að það sé langtum betri kostur að eiga húsnæði heldur en að leigja, og að það eigi að vera mark- mið allra fjölskyldna að eiga skuldlaust þak yfir höfuðið. Að sögn Maríu fer þeim þó fjölgandi sem sjá að leiguhúsnæði er ekki endilega lakari kostur. „Að vera leigjandi býður t.d. upp á mik- inn sveigjanleika og minna sem bindur fólk við einn stað ef t.d. atvinnutækifæri býðst í öðrum landshluta eða í öðrum heimshluta. Þá snýr sveigjanleikinn líka að því að geta minnkað eða stækkað við sig eftir þörfum, án alls þess um- stangs og kostnaðar sem fylgir því að kaupa og selja fasteign. Leigjandinn er heldur ekki að taka á sig kostnaðinn við ófyrirséð útgjöld vegna viðhalds og framkvæmda, þarf ekki að óttast að sitja uppi með leynda galla, og þarf bara að borga sína föstu leigu mánaðarlega.“ Loks eru leigjendur lausir við þá áhættu sem getur fylgt fasteignakaupum og skuldsetningu. „Bæði getur það haft mikil áhrif á fjárhag fólks að kaupa eða selja á röngum tíma, en svo er líka hefð fyrir því á Íslandi að hafa miklar skuldir áhvílandi á fasteignum og hefur það annars konar áhættu í för með sér ef t.d. vaxta- og lánaumhverfið breytist eða harðnar á dalnum í samfélaginu.“ Rekast á fyrirstöðu í kerfinu Athygli vekur að Alma hefur ekki stækkað eignasafn sitt að ráði undanfarin tvö ár og er svipaða sögu að segja af öðrum félögum, sem haldið hafa að sér höndum í fasteignakaupum. María segir að þegar eignum er bætt við safnið þurfi að vega og meta kaupverð, rekstrar- kostnað og væntar leigutekjur en eftir því sem fasteignaverð hafi farið hækkandi hafi góðum kauptækifærum fækkað. „Til framtíðar teljum við tækifærin frekar felast í því að fjárfesta í nýbyggingum og byggingarverkefnum frekar en að kaupa eignir á almennum markaði. Við höfum fylgst vel með þróuninni erlendis, til dæmis í Bretlandi, þar sem hefur færst mjög í aukana að fasteigna- og leigufélög fjármagni nýbyggingarverkefni beint og taki þannig bankann út úr myndinni, án þess þó að axla verktakaáhættu. Verktakinn lágmarkar sína söluáhættu og fjármögnunaráhættu og skilar þetta sér allt í hagkvæmara kaupverði. Ekki nóg með það heldur getur leigufélagið tryggt að þær íbúðir sem eru byggðar séu hagkvæmar í rekstri og henti vel til útleigu, og af þeirri stærð og gerð sem leigjendur vilja.“ En þó að það væri upplagt að setja aukinn kraft í nýbyggingarverkefni með þessum hætti þá reka Alma, og fleiri félög í sömu sporum, sig á fyrirstöður hér og þar í kerfinu. María segir skipulagsferlið þunglamalegt og þrátt fyrir að nýverið hafi verið gerðar jákvæðar breytingar á byggingareglugerð þá séu þröskuldarnir óþarflega margir og húsbyggjendum settar þrengri skorður en tilefni er til. Þá fylgi mikil gjaldtaka byggingaverkefnum, lítið samræmi sé á milli sveitarfélaga með það hvernig verk- efnin fara í gegnum kerfið og ógagnsæi ein- kenni umsóknar- og úttektarferli. Ekki megi heldur gleyma að fasteignir bera nokkuð háan skatt og í tilviki Ölmu mynda fasteignagjöld um 34% af rekstrarkostnaði fasteigna félagsins, en hjá félögum sem leigja út atvinnuhúsnæði sé skattbyrðin enn þyngri og fari í sumum til- vikum upp í u.þ.b. 70% af rekstrarkostnaði fast- eigna. Til að gera illt verra þá er útlit fyrir samdrátt í fjárfestingu í íbúðarhúsnæði enda eiga mörg byggingafélög í erfiðleikum með að fá fyrir- greiðslu í bankakerfinu. „Sértækir skattar og dýr fjármögnun hafa verið að hamla bönkunum þegar kemur að fjármögnun ýmissa verkefna. Þetta hefur vissulega áhrif á fjárfestingu í nýju húsnæði og þrátt fyrir kipp í húsbyggingar- verkefnum upp á síðkastið eru horfur á að minna verði afhent af nýjum íbúðum árin 2021- 2022 en árin 2019-2020.“ ai@mbl.is Sjá tækifæri í fjárfestingum í byggingarverkefnum Morgunblaðið/Árni Sæberg 85. sæti ALMA Stórt 84. sæti María Björk Einarsdóttir Starfsemi fasteignafélaga er á margan hátt frábrugðin öðrum rekstri, enda áhætta, eignasafn og verðmætasköpun af allt öðr- um toga en víðast annars staðar í atvinnu- lífinu. „Í sögulegu tilliti þá hafa fjárfestingar í íbúðarhúsnæði á Íslandi einkum verið skammtímafjárfestingar aðila sem hafa reynt að tímasetja kaup og sölu þannig að innleysa mætti hagnað í gegnum verð- hækkun á markaði. Leigufélögin sem kom- ið hafa fram á sjónarsviðið að undanförnu byggja á annars konar módeli sem gengur út á langtímaeignarhald á íbúðarhúsnæði og þá ávöxtun á fjárfestingunni sem vænta má í formi leigutekna,“ útskýrir María. Er algengt að krafan um arð af fjárfest- ingu sé ekki eins há og í atvinnurekstri al- mennt, enda fasteign yfirleitt traust fjár- festing. „Að kaupa dreift safn íbúðarhúsnæðis á sterku markaðssvæði, s.s. miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, er almennt mjög örugg langtímafjárfesting þó að vissulega geti markaðsverð sveiflast töluvert til skemmri tíma litið.“ Að því sögðu þá skiptir miklu máli hvernig félagið er rekið og hvernig eign- unum er sinnt. Bendir María á að stórt og fjölbreytt safn eigna minnki áhættu og lækki hlutfallslegan umsjónarkostnað á sama tíma og aðkoma fagaðila hjálpar til að tryggja gott viðhald og endingu hús- næðisins sem fjárfest hefur verið í. Örugg langtímafjárfesting María Björk segir að sífellt fleiri sjái kosti í því að vera á leigumarkaði í stað þess að kaupa fasteign.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.