Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI H elena Erlingsdóttir hóf störf hjá Gesti Jónssyni árið 1988 og hefur fylgt honum síðan. „Enda afskaplega gott að vinna fyrir hann og aðra eigendur stofunnar. Gest- ur stofnaði stofuna árið 1975 og með honum hafa valist faglega sterkir lögmenn og fram- úrskarandi málflytjendur, ásamt góðu starfs- fólki, og hafa allir lagt sitt á vogaskálarnar sem er grunnurinn að þeim góða árangri sem stofan hefur náð að mínu mati. Við trúum því að gæði þjónustunnar geti af sér gott orðspor og þess vegna sé til okkar leitað.“ Tímaskráning mikilvægur þáttur Hvernig lýsir þú starfi þínu? „Ég sé um rekstur stofunnar en kem ekki að ákvörðunum um lögfræðileg málefni í ein- stökum málum. Það er utan míns verksviðs. Ég held utan um tímaskráningu starfs- manna, sem er mikilvægur þáttur þegar kemur að rekstri lögmannsstofu, sem gengur jú út á að selja þjónustu. Auðvelt aðgengi lögmanna að tímaskráningarkerfi er lykil- atriði, með nýlegri þróun í tímaskráningu er hægt að skrá tímana yfir netið. Fólk er með snjalltæki í höndunum daglega og þægindin við að geta skráð tímana hvar sem það er statt skilar sér í betri tímaskráningu. Það þarf að huga að skjalastjórnun og öryggi gagna, við erum með miðlægan gagnagrunn í skýi, þar sem hægt er nálgast gögnin hvar sem er. Sé horft til umhverfissjónarmiða er hægt að skoða gögnin í tölvu í stað þess að prenta þau alltaf út.“ Hvað finnst þér skipta máli sem stjórnandi á lögmannsstofu? „Mannauðurinn skiptir mestu máli og að halda vel utan um hann. Fólki er vel til vina, hjá okkur. Við erum þéttur hópur sem vinnur vel saman. Það er vinalegur bragur á stofunni og boðleiðirnar stuttar.“ Góður lögmaður er vandvirkur Hvað gerir lögmann að góðum lögmanni að þínu mati? „Góður lögmaður að mínu mati þarf að vera vandvirkur, gæta hófsemi og vera heið- arlegur í sínu starfi. Lögmaður þarf að hafa að leiðarljósi að verkefni, fyrir hönd hvers skjólstæðings, er það mikilvægasta sem til er, fyrir skjólstæðinginn.“ Hvað er í gangi erlendis sem þú vildir sjá þróast meira hér á landi? „Miðlægir gagnagrunnar er eitthvað sem ég vil nefna í þessu samhengi. Við höfum ver- ið og erum í auknum mæli í viðskiptum við erlenda viðskiptavini og lögmannsstofur. Störfin eru farin að eiga sér stað víðar en fyrir íslenskum dómstólum og fyrir íslenska viðskiptavini. Það hefur lent á okkar borði að reka mál fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og höfum við sérhæft okkur á sviði evrópska mannréttindareglna og Evrópuréttar. Nú ný- verið fluttu lögmenn okkar fyrstir íslenskra lögmanna mál fyrir yfirdeild Mannréttinda- dómstóls Evrópu. Mál sem snýst um grund- vallarmannréttindi á sviði réttarfars. Við fórum í heimsókn til Eftirlitsstofnunar EFTA í fyrra til að fá innsýn inn í störf stofnunarinnar í Evrópu. Við reynum að fylgjast vel með þróun sem á sér stað erlend- is. Leggjum áherslu á endurmenntun starfs- manna. Það er mikið í deiglunni núna hvað varðar persónuvernd og peningaþvættismál.“ Lögmönnum fjölgar en verkefnum fækkar Er mikil samkeppni í greininni? „Já, lögmönnum hefur fjölgað og verk- efnum að sama skapi fækkað. Við teljum okk- ur vera samkeppnishæf og eins fagleg og kostur er. Við setjum viðskiptavininni í fyrsta sæti, hvort sem hann er einstaklingur, fyrir- tæki eða opinber stofnun.“ Hver er lykillin að baki árangri síðustu ára? „Mannauðurinn. Hjá okkur starfa hæfi- leikaríkir lögmenn sem kunna sitt fag og leggja sig fram um að veita viðskiptavinunum góða þjónustu. Fólki er vel til vina, þetta er þéttur hópur sem vinnur vel saman og senni- lega er það auðveldara af því við erum ekki of mörg.“ Hvers vegna telurðu að fólk leiti frekar til ykkar en annarra lögmannsstofa? „Við trúum því að gæði þjónustunnar geti af sér gott orðspor og þess vegna sé til okkar leitað.“ Hvernig eru framtíðarhorfur fyrirtækisins og áttu von á því að Mörkin muni stækka mikið á komandi árum? „Ég held að horfurnar séu góðar. Við höf- um vaxið rólega en stöðugt og lítum svo á að sígandi lukka sé best í vexti sem flestu öðru. Gæði þjónustunnar verða áfram að leiðar- ljósið, ekki fjöldi lögmanna. Mikill vöxtur hef- ur aldrei verið sjálfstætt markmið. Við teljum okkur líka fyllilega í stakk búin til þess að takast á við hverskyns verkefni.“ Umfangsmikil vinna á erlendri grundu Þú talaðir um að þið væruð fyrst til að flytja mál fyrir yfirdeild MDE. Í hverju felst það? Er undirbúningurinn mikill og hvaða þýðingu hefur þetta? „Málið var flutt fyrir yfirdeild dómstólsins núna í október. Í því var skilað greinargerð og síðan fór fram munnlegur málflutningur fyrir 17 dómurum. Málatilbúnaðurinn var all- ur á ensku og vinnan sem bjó að baki er mjög umfangsmikil. Til yfirdeildarinnar komast að- eins örfá mál á hverju ári. Það eitt út af fyrir sig að fá að flytja mál sitt fyrir henni er því þýðingarmikið. Það yrði vitaskuld enn þýð- ingarmeira ef við hefðum fram sigur þar, sem við erum bjartsýn á.“ „Góður lögmaður þarf að vera vandvirkur og heiðarlegur“ Morgunblaði/Arnþór Birkisson 202. sæti MÖRKIN LÖGMANNS- STOFA Meðalstórt 41. sæti Helena Erlingsdóttir Helena segir að starfsemin teygi sig í auknum mæli út fyrir landsteinana. Mál séu ekki aðeins rekin fyrir íslenskum dómstólum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.