Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 32
Á undanförnum árum hafa miklar breytingar orðið á rekstri Keahótela sem í dag er ein af stærstu hótel- keðjum landsins. „Áhersla hefur verið á aukinn fjölda hótela sem falla vel að rekstrinum og styrkja enn frekar rekstrar- grundvöll félagsins með það að leiðarljósi að auka hagkvæmni og verðmætasköpun,“ segir Kristján Daníelsson, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum. Upphaf Keahótela í hótelrekstri má segja að hafi verið árið 2000 en það ár tók félagið yfir og sameinaði gistirekstur Hótels Kea og Hót- els Hörpu á Akureyri. Ekki leið á löngu þar til fleiri hótel bættust við og á næstu árum bætt- ust Hótel Norðurland, Hótel Gígur og Hótel Björk í Reykjavík við reksturinn. Árið 2005 tóku Keahótel svo yfir reksturinn á Hótel Borg í Reykjavík „sem er eitt glæsilegasta hótelið okkar og má segja að hafi verið ákveðin vatnaskil í rekstri félagsins. Síðan hefur orðið enn meiri vöxtur“, segir Kristján. Þá bættust við þrjú hótel árið 2018. Í júlí það ár tóku Keahótel við rekstrinum á Hótel Kötlu við Vík í Mýrdal og var ráðist í miklar endur- bætur á hótelinu, bæði gistirýmum og veitingasal, og mun endurbótum verða haldið áfram í vetur. Exeterhótel var opnað í ágúst 2018 en það er nýtt hótel við Tryggvagötu í Reykjavík. Sama mánuð tók hótelkeðjan yfir reksturinn á Sandhóteli á Laugavegi. Hótelin eru nú orðin ellefu með samtals 911 herbergi og eru á fimmta hundrað starfsmenn hjá keðj- unni. „Þannig að þetta hefur vaxið mjög mikið og því fylgja eðlilegir vaxtarverkir. Svo erum við að koma inn í öðruvísi tíma núna og það eru öðruvísi verkefni sem koma með því,“ útskýrir framkvæmdastjórinn. Kristján kveðst ekki geta sagt til um hvort félagið hyggi á frekari vöxt og fjölgun hótela að svo stöddu. „Ég held við munum fylgjast vel með markaðnum. Óneitanlega myndast tækifæri í svona um- hverfi og við höfum vaxið mjög hratt, en við er- um í innviðastyrkingu núna.“ Breytt stefna vegna fækkunar ferðamanna Árið 2019 hefur verið krefjandi fyrir hótel- keðjuna eins og önnur fyrirtæki í ferðamanna- iðnaðinum, en í sumar komu 678 þúsund er- lendir ferðamenn til landsins borið saman við 803 þúsund ferðamenn sumarið í fyrra. „Sam- hliða hlutfallslegri hækkun rekstrarkostnaðar og fækkun ferðamanna til landsins þarf að horfa í öll horn. Ef við skoðum bara sumarið þá er heildarfækkunin 16% og fækkun Banda- ríkjamanna 35%. Við höfum verið með mikinn fjölda af bandarískum ferðamönnum og höfum þess vegna þurft að breyta okkar stefnu til að mæta þessu,“ útskýrir Kristján sem jafnframt bendir á að um 28% allra ferðamanna sem hingað koma hafi verið frá Bandaríkjunum. Þá hefur ferðamönnum frá Þýskalandi, Frakklandi, Bretlandi og Kanada fækkað nokkuð. Á móti hefur ferðamönnum frá Kína fjölgað um 11,5% frá sama tíma í fyrra en þeir eru um 5% ferðamanna sem koma til landsins. Jafnframt var herbergjanýting í sumar minni en á sama tíma í fyrra eða um 4 til 5,2% eftir mánuðum, en hún hefur þó ekki minnkað alveg í takt við fækkun ferðamanna. Er hann er spurður um framtíðarhorfur greinarinnar og þróun í komu ferðamanna á næstu árum segist hann því miður ekki eiga kristallskúlu. „En það sem stendur aðallega í vegi fyrir því að horfa til framtíðar er óvissa. Ef við lítum bara til næsta árs er óvissa um fjölda ferðamanna og framboð á flugi. Þetta eru mjög stórir óvissuþættir fyrir reksturinn og það þarf að hafa það í huga þegar horft er fram á við, þetta gerir alla áætlanagerð og skipulag erfitt.“ Harðnandi samkeppni Spurður hvort það sé áskorun að kljást við slíkt rekstrarumhverfi segir hann svo vera. „Já, það er krefjandi, en þessu mætum við með því að að styrkja innviði, efla þjónustu og vera tilbúin að mæta breyttum aðstæðum. Þetta hefur verið krefjandi ár.“ Þá hafi í kjölfar fækkunar ferðamanna orðið harðnandi sam- keppni sem hafi leitt til lækkunar á verði. Bókunarglugginn hefur styst talsvert og hefur afbókunum með stuttum fyrirvara fjölgað, að sögn Kristjáns. „Þrátt fyrir þetta hefur nýting hjá okkur verið nokkuð í takt við áætlanir,“ bætir hann við. „Við teljum að lykillinn að áframhaldandi árangri þegar eftirspurn minnkar felist í þjón- ustu og upplifun gesta ásamt tækninýjungum og þróun kerfa sem gerir okkur enn frekar kleift að veita ferðaskrifstofum, fyrirtækjum og einstaklingum framúrskarandi þjónustu. Góð þjónusta og að skila því sem lofað er eru mikilvægustu þættirnir í þessum geira.“ Starfsfólkið mikilvægur þáttur Framkvæmdastjórinn segir grundvöllinn að því að mæta breyttu markaðsumhverfi vera að styrkja innviði félagsins. „Félagið stendur traustum fótum og er með gott bakland. Fé- lagið leggur mikinn metnað í það að vera með faglegan rekstur. Það sem gerist í þessu um- hverfi í dag er að maður þarf að horfa inn á við og við leggjum mikla áherslu á að styrkja inn- viði fyrirtækisins núna. Við erum að fjárfesta í nýrri tækni og nýjum kerfum til að mæta auk- inni samkeppni.“ Hann telur hins vegar ekki líklegt að ný tækni muni draga verulega úr launakostnaði. „Í raun er ekki auðvelt fyrir fyrirtæki í hótel- rekstri að fækka starfsfólki til þess að auka af- köst þar sem þetta er þjónustuumhverfi og það breytist líklega ekki. Styrking tæknilegu inn- viðanna eru til þess að mæta þessum breyttu markaðsaðstæðum, sjá fyrir hornin og vera tilbúin fyrir þær breytingar sem fram undan eru.“ Kristján segir starfsfólkið mikilvægan þátt í því sem hótelin selja. „Það sem er mikilvægt fyrir okkur eru verkefni eins og þau sem eru þegar í gangi. Við erum að bæta í þjónustuna, við erum að bæta þjálfun starfsmanna og leggjum áherslu á upplifun til þess að vera samkeppnishæfari. Starfsfólkið er aðal- drifkrafturinn í þeirri vinnu vegna þess að við erum með svo mikið af fólki sem er í beinum samskiptum við viðskiptavininn eða það sem hann er að upplifa. Við erum mjög stolt af því að við höfum vaxið mjög mikið í ánægju, upp- lifun og þjónustu meðal gesta.“ gso@mbl.is „Þetta hefur verið krefjandi ár“ 75. sæti KEAHÓTEL Stórt 74. sæti Kristján Daníelsson Morgunblaðið/Hanna Kristján Daníelsson, framkvæmdastjóri rekstrar Keahótela, segir mikla óvissu einkenna rekstrarumhverfi hótelgeirans í dag. Hótel Kea á Akureyri er ekki eingöngu fyrsta hótel keðjunnar, heldur einnig eitt helsta kennileiti Akureyrar. Fyrirtækið á einnig Hótel Borg. Exeter hótel er eitt nýj- asta hótel keðjunnar sem hefur vaxið ört og telja hótelin nú ellefu og starfa um 430 hjá fyrirtækinu í um 300 stöðugildum. 32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.