Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 2
Tæknirisar á borð við Intel og Microsoft eru komnir í viðskipta- mannahóp íslenska fyrirtækisins Men&Mice. Það gera þeir þrátt fyrir að standa í harðri sam- keppni við það á sama tíma. Tæknirisar veðja á Men&Mice 92 2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI F yrirtækin sem uppfylla ströng skilyrði um að komast á lista Creditinfo yfir þau fyrirtæki sem teljast til fyrirmyndar eru 874 talsins í ár. Aðeins skeikar einu fyrirtæki frá árinu 2017 en það ár voru þau 875. Frá því að listinn var birtur fyrst árið 2010 hefur fyrirtækjunum fjölgað gríðarlega sem á hann komast eða rétt um 400%. Líkt og fram kemur í viðtali við Brynju Baldursdóttur, framkvæmdastjóra Creditinfo á Íslandi, (sjá s. 6) liggja margar skýringar að baki þessari fjölgun en sennilega vegur þar þyngst sú staðreynd að hagkerfið hefur vaxið að kröftum síðustu ár og við það fá fleiri fyrirtæki dafnað. Skilyrðin sem sett eru fyrir því að fyrirtæki komist á listann eru ströng og ekkert þeirra hefur uppfyllt þau án fyrirhafnar. Líkt og fram kemur í fyrrnefndu viðtali endurspeglar listinn fyrirtæki sem sýnt hafa fram á stöðugleika, fremur en skjót- fenginn hagnað. Ekkert fyrirtæki kemst á listann nema það sem skilað hefur já- kvæðri rekstrarniðurstöðu þrjú ár í röð, svo dæmi sé tekið og þau þurfa að hafa búið við jákvætt eigið fé yfir sama tíma og halda á eignum sem nema minnst 100 millj- ónum króna. Vel rekin fyrirtæki eru samfélagsverðmæti í víðum skilningi. Þau skila ekki aðeins arði til eigenda sinna um leið og þau tryggja þjónustu eða vöru sem eftirspurn er eft- ir. Þessi sömu fyrirtæki eru einnig burðarásar vinnumarkaðarins sem aftur er for- sendan að baki því að hægt sé að tryggja grunnþjónustu á borð við menntun á öllum skólastigum og heilbrigðisþjónustu. Það segir sína sögu að fyrirtækin sem fylla listann yfir Framúrskarandi fyrirtæki skapa um 60 þúsund störf í landinu. Það mun- ar um minna. Þetta er í þriðja sinn sem Morgunblaðið stendur að útgáfu sérrits um fyrirtækin framúrskarandi og byggist hún á samstarfi við Creditinfo. Sem fyrr kennir ýmissa grasa í blaðinu. Auk áhugaverðra upplýsinga sem teknar hafa verið upp úr listanum og gerðar eru aðgengilegar með myndrænum hætti, birtast hér viðtöl við stjórn- endur nokkurra þeirra fyrirtækja sem fylla listann að þessu sinni. Öll hafa þau áhugaverða sögu að segja. Af þessum sögum má draga lærdóm og þær gefa dýpri sýn en talnaefnið sem slíkt getur gert um það hvað til þarf til þess að fyrirtæki geti talist framúrskarandi. Pétur Geirsson, eigandi Hótel Borgarness, kemst þó líklegast réttilega að orði, og fyrir allan hópinn, þegar hann segist einfald- lega hafa lengt í sólarhringnum þegar reksturinn hefur tekið á. Auk þessarar útgáfu hefur Morgunblaðið opnað nýjan og endurbættan vef sem hefur að geyma upplýsingar um fyrirtækin sem komast á lista Creditinfo. Þar eru viðtölin við forsvarsmenn fyrirtækjanna einnig aðgengileg, auk ýmiss konar ít- arefnis sem varpar skýrara ljósi á fyrirtækin sem í hlut eiga. Það er ástæða til að gera framúrskarandi fyr- irtækjum hátt undir höfði og umfjöllunin verður von- andi öllum stjórnendum og eigendum íslenskra fyr- irtækja hvatning til þess að setja sér það markmið að stækka og efla þennan samfélagslega mikilvæga lista. Lengri listi vitnar um þróttmeira samfélag. Samfélags- verðmæti Stefán Einar Stefánsson Útgefandi Árvakur Umsjón Stefán Einar Stefánsson Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@- mbl.is Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is, Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is, Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Auglýsingar augl@mbl.is Grafík Sigurður B. Sigurðsson Forsíðumynd Kristinn Magnússon Prentun Landsprent ehf. Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi? • Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1, 2 eða 3 • Ársniðurstaða var jákvæð rekstrarárin 2016-2018 • Eignarfjárhlutfall var a.m.k. 20% rekstrarárin 2016-2018 • Framkvæmdastjóri er skráður í fyrirtækjaskrá RSK • Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo • Ársreikningi var skilað til RSK fyrir rekstrarárin 2016-2018 • Ársreikningi fyrir rekstrarárið 2018 var skilað á réttum tíma skv. lögum • Rekstrarhagnaður (EBIT) var jákvæður rekstrarárin 2016-2018 • Rekstrartekjur voru a.m.k. 50 milljónir króna rekstrarárin 2017 og 2018 • Eignir voru a.m.k. 100 milljónir króna rekstrarárin 2017 og 2018 og a.m.k. 90 milljónir króna rekstrarárið 2016 Listanum er raðað í lækkandi röð eftir ársniðurstöðu í árs reikningi 2018. Allar tölur eru umreiknaðar í íslenskar krónur. Fyrirtækjum er skipt í eftirfarandi stærðarflokka: • Lítið 0-200 milljónir kr. í eignir alls • Meðalstórt 200-1.000 milljónir kr. í eignir alls • Stórt 1.000 milljónir kr. eða meira í eignir alls Unnið í samstarfi við VIÐSKIPTA Íslendingar hefðu getað hætt að vinna um miðjan september í ár en samt haft jafn mikinn kaupmátt og þegar þeir unnu allt árið 2011. Kaupmáttur aldrei meiri 44 Marel hefur sem stórfyrirtæki tækifæri til þess að hafa jákvæð áhrif á matvælaiðnaðinn en einnig samfélagið sem það starfar í. Samfélagsábyrgð í verki 94 Krónan hefur ákveðið að hafa jákvæð áhrif með því að taka frumkvæði. Það hefur m.a. komið fram í aukinni áherslu á hollustuvörur. Hafa áhrif á umhverfið 16 Bluebird Nordic hefur í áratugi sinnt fraktflutn- ingum í lofti. Félagið hefur á síðustu árum einnig kannað innreið á farþegamarkaðinn. Opnir fyrir farþegaflugi 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.