Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019
Þ
að má eflaust fullyrða að enn þann
dag í dag njóti Atlantsolía sér-
stakrar velvildar hjá hópi neytenda
fyrir það að hafa stóraukið sam-
keppni á íslenskum eldsneytismarkaði. Fyrir-
tækið var stofnað árið 2002 og opnaði sína
fyrstu bensínstöð í lok árs 2003. Á þeim tíma
skiptu þrjú stór olíufélög markaðinum á milli
sín, en Atlantsolía ruddi brautina fyrir aukna
samkeppni og eru seljendur eldsneytis á bíla
núna orðnir sex talsins.
Guðrún Ragna Garðarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að upphafs-
menn Atlantsolíu hafi hvergi verið bangnir, þó
að mótbyrinn hafi verið mikill. „Upphaflega
stóð til að félagið sinnti fyrst og fremst sölu
eldsneytis á skip en nánari skoðun leiddi í ljós
að það yrði mun erfiðara að fara inn á þann
markað en inn á markaðinn fyrir bifreiðaelds-
neyti,“ segir hún. „Þá vildi svo heppilega til,
þegar fyrirtækið er að taka á sig mynd, að ein-
staklingur sem átti bensínstöð við Kópavogs-
braut var tilbúinn að selja hana til Atlantsolíu
þegar eftir því var leitað. Sú stöð var því
fyrsta bensínstöðin sem félagið opnaði.“
Gerðu allt frá grunni
Eins og gefur að skilja var smæðin til traf-
ala í fyrstu og var eldsneytið flutt inn með
gámaskipum, í sérstökum tönkum. „Á þeim
tíma var hvorki hægt að komast að í þeim olíu-
geymslum sem fyrir voru í landinu, né heldur
að nýta dreifingarnetið, en það hefur breyst
m.a. vegna aðgerða samkeppniseftirlitsins til
að lækka aðgangshindranir inn á markaðinn.
Við þurftum hins vegar að byggja okkar eigin
birgðastöð, koma upp okkar eigin dreifikerfi,
og gera það allt frá grunni.“
Atlantsolía markaði sér strax þá sérstöðu
að reka aðeins sjálfsafgreiðslustöðvar, lausar
við allt prjál. „Við kynntum líka dælulykilinn
til leiks og var það í fyrsta skipti sem einstak-
lingar áttu kost á afslætti af eldsneyti sem
umbun fyrir að halda tryggð við fyrirtækið.
Varð það til þess að okkur tókst nokkuð hratt
að byggja upp góðan viðskiptavinagrunn.“
Olíufélagið hefur stækkað tiltölulega jafnt
og þétt en fjöldi bensínstöðva tók þó nýlega
kipp þegar samkeppnisyfirvöld úrskurðuðu að
samruni olíufyrirtækis og matvöruverslana-
keðju yrði háður sölu á fimm bensínstöðvum.
Atlantsolía keypti þær allar og byggði eina
nýja til viðbótar, svo að samtals bættust við
sex stöðvar á þessu ári. Eru benínstöðvar Atl-
antsolíu núna 25 talsins og dreifast um alla
landshluta að Vestfjörðum undanskildum.
Flestar eru bensínstöðvarnar á stór-
höfuðborgarsvæðinu og selur Atlantsolía elds-
neyti eingöngu í þéttbýli. Markaðshlutdeild
fyrirtækisins er um 10%.
Lóðamál stærsta hindrunin
Samkeppnin er hörð, og sala á eldsneyti er
enginn dans á rósum. Aðspurð hvað hafi hjálp-
að til að halda rekstrinum á réttri braut segir
Guðrún að það hafi breytt miklu að hafa skýra
stefnu allt frá upphafi: að félagið myndi ein-
göngu selja eldsneyti, og þá eingöngu í sjálfs-
afgreiðslu. „Það var aldrei inni í myndinni að
vera með einhvern hliðarrekstur, s.s. matsölu
eða smurþjónustu. Í staðinn höfum við ein-
beitt okkur 100% að þessum tveimur vöruteg-
undum: bensíni og dísilolíu,“ útskýrir Guðrún
„Vitaskuld einfaldar það reksturinn á vissan
hátt að hafa vöruframboðið ekki flóknara, en
um leið þá fylgja þessari stefnu töluverðar
áskoranir enda eru allir samkeppnisaðilar
okkar að selja sömu vöruna, og þá spurning
hvað hægt er að gera til að laða viðskiptavin-
ina til okkar og missa þá ekki annað.“
Hún segir það líka mun auðveldara fyrir
nýja aðila að koma inn á olíumarkaðinn í dag
en árið 2003, en þó séu enn til staðar hindranir
sem getur verið erfitt að yfirstíga. „Stærsta
hindrunin er að fá lóð undir bensínstöð, og
rekstrarforsendurnar allt aðrar hjá þeim sem
hafa fengið lóðum úthlutað frá sveitarfélögum
og hjá hinum sem þurfa að leigja lóðir,“ upp-
lýsir Guðrún.
Er breytilegt á milli sveitarfélaga hversu
snúið er að fá hentuga lóð. Á sumum stöðum
eru sveitarstjórnirnar ólmar að fá meiri sam-
keppni á bensínmarkaðinn á sínu svæði á með-
an annars staðar er illgerlegt að komast að. „Í
langan tíma hefur verið mjög erfitt að fá lóð í
Reykjavík. Þar hefur nú verið ákveði að
fækka bensínstöðvum, og var þó á brattann að
sækja löngu áður en sú stefna var mörkuð.
Samkeppniseftirlitið hefur beint tilmælum til
sveitarfélaganna að horfa til samkeppnisþátta
við lóðaúthlutun, en getur ekki gert meira en
það.“
Bensínbílar ekki að
hverfa af götunum
Ýmsar áskoranir eru framundan og verður
áhugavert að sjá hvernig Atlantsolía mun t.d.
bregðast við nú þegar hlutfall rafmagnsbíla í
bílaflota landsmanna hækkar ár frá ári. Guð-
rún segir það vitaskuld hafa áhrif á söluna að
bílar verða sífellt sparneytnari en á móti
hjálpi það olíufélögunum að ferðamenn
streyma til landsins og þurfa að fylla á tank-
inn á leið sinni um hringveginn. „Við höfum
ekki fengið svo stóran bita af túrista-kökunni,
enda ekki með margar stöðvar úti á landi,“
segir Guðrún og bætir við að þótt rafmagns-
bílar kroppi í markaðinn séu bensín- og dís-
ilbílar ekki að fara að hverfa af götunum í
bráð. Hún á ekki von á að Atlantsolía taki þátt
í rafvæðingunni, s.s. með því að setja upp
hraðhleðslustöðvar, enda má vænta þess að
flestir eigendur rafbíla stingi í samband heima
hjá sér og í vinnunni, og helst þörf á hrað-
hleðslustöðvum við hringveginn.
Ýmsar hugmyndir hafa komið til skoðunar,
s.s. að nýta tilteknar lóðir Atlantsolíu með
öðrum hætti, og mögulega hleypa þar að ann-
arri starfsemi. Þá sé stöðugt leitað leiða, í sí-
fellt harðnandi samkeppni, til að hagræða og
þannig hætti Atlantsolía t.d. að reka eigið
dreifikerfi. „Nýir aðilar hafa komið til sög-
unnar og hrist upp í markaðinum. Við fórum
út í þann slag af fullum krafti og fundum leiðir
til að hagræða enn meira í rekstirnum. Vorum
við áður með 19 starfsmenn og 19 stöðvar, en
rekum í dag 25 stöðvar með 10 starfsmenn.“
ai@mbl.is
Einbeita sér 100%
að tveimur vörutegundum
Morgunblaðið/Eggert
138. sæti
ATLANTSOLÍA
Stórt 125. sæti
Guðrún Ragna
Garðarsdóttir
Guðrún Ragna segir
stærstu hindrunina í
rekstrinum vera að
fá góðar lóðir undir
bensínstöðvar.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Atlantsolíu hefur
vaxið fiskur um
hrygg frá því að
fyrirtækið var
stofnað árið
2002.