Morgunblaðið - 24.10.2019, Síða 32
Á
undanförnum árum hafa miklar
breytingar orðið á rekstri Keahótela
sem í dag er ein af stærstu hótel-
keðjum landsins. „Áhersla hefur
verið á aukinn fjölda hótela sem falla vel að
rekstrinum og styrkja enn frekar rekstrar-
grundvöll félagsins með það að leiðarljósi að
auka hagkvæmni og verðmætasköpun,“ segir
Kristján Daníelsson, framkvæmdastjóri
rekstrar hjá Keahótelum.
Upphaf Keahótela í hótelrekstri má segja að
hafi verið árið 2000 en það ár tók félagið yfir
og sameinaði gistirekstur Hótels Kea og Hót-
els Hörpu á Akureyri. Ekki leið á löngu þar til
fleiri hótel bættust við og á næstu árum bætt-
ust Hótel Norðurland, Hótel Gígur og Hótel
Björk í Reykjavík við reksturinn. Árið 2005
tóku Keahótel svo yfir reksturinn á Hótel
Borg í Reykjavík „sem er eitt glæsilegasta
hótelið okkar og má segja að hafi verið ákveðin
vatnaskil í rekstri félagsins. Síðan hefur orðið
enn meiri vöxtur“, segir Kristján.
Þá bættust við þrjú hótel árið 2018. Í júlí það
ár tóku Keahótel við rekstrinum á Hótel Kötlu
við Vík í Mýrdal og var ráðist í miklar endur-
bætur á hótelinu, bæði gistirýmum og
veitingasal, og mun endurbótum verða haldið
áfram í vetur. Exeterhótel var opnað í ágúst
2018 en það er nýtt hótel við Tryggvagötu í
Reykjavík. Sama mánuð tók hótelkeðjan yfir
reksturinn á Sandhóteli á Laugavegi. Hótelin
eru nú orðin ellefu með samtals 911 herbergi
og eru á fimmta hundrað starfsmenn hjá keðj-
unni. „Þannig að þetta hefur vaxið mjög mikið
og því fylgja eðlilegir vaxtarverkir. Svo erum
við að koma inn í öðruvísi tíma núna og það eru
öðruvísi verkefni sem koma með því,“ útskýrir
framkvæmdastjórinn. Kristján kveðst ekki
geta sagt til um hvort félagið hyggi á frekari
vöxt og fjölgun hótela að svo stöddu. „Ég held
við munum fylgjast vel með markaðnum.
Óneitanlega myndast tækifæri í svona um-
hverfi og við höfum vaxið mjög hratt, en við er-
um í innviðastyrkingu núna.“
Breytt stefna vegna
fækkunar ferðamanna
Árið 2019 hefur verið krefjandi fyrir hótel-
keðjuna eins og önnur fyrirtæki í ferðamanna-
iðnaðinum, en í sumar komu 678 þúsund er-
lendir ferðamenn til landsins borið saman við
803 þúsund ferðamenn sumarið í fyrra. „Sam-
hliða hlutfallslegri hækkun rekstrarkostnaðar
og fækkun ferðamanna til landsins þarf að
horfa í öll horn. Ef við skoðum bara sumarið þá
er heildarfækkunin 16% og fækkun Banda-
ríkjamanna 35%. Við höfum verið með mikinn
fjölda af bandarískum ferðamönnum og höfum
þess vegna þurft að breyta okkar stefnu til að
mæta þessu,“ útskýrir Kristján sem jafnframt
bendir á að um 28% allra ferðamanna sem
hingað koma hafi verið frá Bandaríkjunum.
Þá hefur ferðamönnum frá Þýskalandi,
Frakklandi, Bretlandi og Kanada fækkað
nokkuð. Á móti hefur ferðamönnum frá Kína
fjölgað um 11,5% frá sama tíma í fyrra en þeir
eru um 5% ferðamanna sem koma til landsins.
Jafnframt var herbergjanýting í sumar minni
en á sama tíma í fyrra eða um 4 til 5,2% eftir
mánuðum, en hún hefur þó ekki minnkað alveg
í takt við fækkun ferðamanna.
Er hann er spurður um framtíðarhorfur
greinarinnar og þróun í komu ferðamanna á
næstu árum segist hann því miður ekki eiga
kristallskúlu. „En það sem stendur aðallega í
vegi fyrir því að horfa til framtíðar er óvissa.
Ef við lítum bara til næsta árs er óvissa um
fjölda ferðamanna og framboð á flugi. Þetta
eru mjög stórir óvissuþættir fyrir reksturinn
og það þarf að hafa það í huga þegar horft er
fram á við, þetta gerir alla áætlanagerð og
skipulag erfitt.“
Harðnandi samkeppni
Spurður hvort það sé áskorun að kljást við
slíkt rekstrarumhverfi segir hann svo vera.
„Já, það er krefjandi, en þessu mætum við með
því að að styrkja innviði, efla þjónustu og vera
tilbúin að mæta breyttum aðstæðum. Þetta
hefur verið krefjandi ár.“ Þá hafi í kjölfar
fækkunar ferðamanna orðið harðnandi sam-
keppni sem hafi leitt til lækkunar á verði.
Bókunarglugginn hefur styst talsvert og hefur
afbókunum með stuttum fyrirvara fjölgað, að
sögn Kristjáns.
„Þrátt fyrir þetta hefur nýting hjá okkur
verið nokkuð í takt við áætlanir,“ bætir hann
við. „Við teljum að lykillinn að áframhaldandi
árangri þegar eftirspurn minnkar felist í þjón-
ustu og upplifun gesta ásamt tækninýjungum
og þróun kerfa sem gerir okkur enn frekar
kleift að veita ferðaskrifstofum, fyrirtækjum
og einstaklingum framúrskarandi þjónustu.
Góð þjónusta og að skila því sem lofað er eru
mikilvægustu þættirnir í þessum geira.“
Starfsfólkið mikilvægur þáttur
Framkvæmdastjórinn segir grundvöllinn að
því að mæta breyttu markaðsumhverfi vera að
styrkja innviði félagsins. „Félagið stendur
traustum fótum og er með gott bakland. Fé-
lagið leggur mikinn metnað í það að vera með
faglegan rekstur. Það sem gerist í þessu um-
hverfi í dag er að maður þarf að horfa inn á við
og við leggjum mikla áherslu á að styrkja inn-
viði fyrirtækisins núna. Við erum að fjárfesta í
nýrri tækni og nýjum kerfum til að mæta auk-
inni samkeppni.“
Hann telur hins vegar ekki líklegt að ný
tækni muni draga verulega úr launakostnaði.
„Í raun er ekki auðvelt fyrir fyrirtæki í hótel-
rekstri að fækka starfsfólki til þess að auka af-
köst þar sem þetta er þjónustuumhverfi og það
breytist líklega ekki. Styrking tæknilegu inn-
viðanna eru til þess að mæta þessum breyttu
markaðsaðstæðum, sjá fyrir hornin og vera
tilbúin fyrir þær breytingar sem fram undan
eru.“
Kristján segir starfsfólkið mikilvægan þátt í
því sem hótelin selja. „Það sem er mikilvægt
fyrir okkur eru verkefni eins og þau sem eru
þegar í gangi. Við erum að bæta í þjónustuna,
við erum að bæta þjálfun starfsmanna og
leggjum áherslu á upplifun til þess að vera
samkeppnishæfari. Starfsfólkið er aðal-
drifkrafturinn í þeirri vinnu vegna þess að við
erum með svo mikið af fólki sem er í beinum
samskiptum við viðskiptavininn eða það sem
hann er að upplifa. Við erum mjög stolt af því
að við höfum vaxið mjög mikið í ánægju, upp-
lifun og þjónustu meðal gesta.“
gso@mbl.is
„Þetta hefur verið krefjandi ár“
75. sæti
KEAHÓTEL
Stórt 74. sæti
Kristján Daníelsson
Morgunblaðið/Hanna
Kristján Daníelsson, framkvæmdastjóri rekstrar Keahótela, segir
mikla óvissu einkenna rekstrarumhverfi hótelgeirans í dag.
Hótel Kea á Akureyri er ekki eingöngu fyrsta hótel keðjunnar, heldur
einnig eitt helsta kennileiti Akureyrar. Fyrirtækið á einnig Hótel Borg.
Exeter hótel er eitt nýj-
asta hótel keðjunnar
sem hefur vaxið ört og
telja hótelin nú ellefu
og starfa um 430 hjá
fyrirtækinu í um 300
stöðugildum.
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019